Morgunblaðið - 05.01.1999, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1999 27
ERLENT
Stjórnvöld í fsrael
Vísa sértrúar-
fólki úr landi
Jerúsalem. Reuters.
INNANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ í
ísrael fyrirskipaði í gær að ellefu
Bandaríkjamönnum yrði vísað úr
landi vegna gruns um að þeir væru í
kristnum sértrúarsöfnuði sem er
sagður hafa skipulagt ofbeldisað-
gerðir á götum Jerúsalemborgar
um aldamótin til að flýta fyrir end-
urkomu Krists.
Lögreglan færði einnig þrjá aðra
meinta félaga í söfnuðinum fyrir
dómara og óskaði eftir því að þeir
yrðu úrskurðaðir í gæsluvarðhald
vegna gruns um að þeir hefðu lagt á
ráðin um „mjög alvarlega glæpi sem
stefna öi-yggi landsins í hættu“.
Bandaríkjamennirnir 14, þeirra á
meðal sex börn, voru handteknir á
sunnudag og talið er að þeir séu í
sértrúarsöfnuði sem er með höfuð-
stöðvar í Denver í Bandaríkjunum.
Um 60 félagar í söfnuðinum hurfu
fyrir nokkrum mánuðum en ekki
var vitað í gær hversu margir
þeirra eru í Israel. Lögreglan sagði
að fólkið hefði ætlað að grípa til of-
beldisaðgerða í Jerúsalem „með það
að markmiði að valda endurkomu
Krists á dómsdegi“.
Leiðtogi safnaðarins, Monte Kim
Miller, sem hefur spáð því að hann
muni deyja á götum Jerúsalem fyrir
aldamótin, er ekki í ísrael, að sögn
lögreglunnar.
ísraelsk yfirvöld hafa stofnað sér-
staka lögreglusveit til að koma í veg
fyrir hugsanleg ofbeldisverk sértrú-
ai'flokka í Israel um aldamótin.
Kafaldsbyl-
ur í Banda-
ríkjunum
HRÍÐARBYLUR gekk yfir Mið-
vesturríki Bandaríkjanna á laug-
ardag, olli töfum á flugi og að
minnsta kosti tólf dauðsföll voru
rakin til óveðursins.
56 sm djúpur snjór var á göt-
um Chicago eftir óveðrið og er
þetta mesti hríðarbylur í borg-
inni í tæp 30 ár. Aflýsa varð fjöl-
mörgum flugferðum frá flugvöll-
um í Miðausturríkjunum á laug-
ardag, meðal annars O’Hare-al-
þjóðaflugvellinum í Chicago.
Flugið um flugvöllinn fór einnig
úr skorðum á sunnudag, þegar
245.000 manns voru bókaðir í
flug um hann, auk þúsunda
manna sem urðu veðurtepptir á
laugardag.
Mikið fannfergi var einnig í
Ontario-fylki í Kanada og lægðin
olli mikilli úrkomu, ísingu og
flóðum á austurströnd Banda-
ríkjanna, meðal annars í New
York-borg þar sem 50 bflar lentu
í árekstri vegna hálku.
Borgarstarfsmaður hreinsar
hér snjó af gangstétt við skrif-
stofu nálægt Sears-turninum í
Chicago.
SÞ grípur til varúðarráðstafana í Angóla
Óttast afleið-
ingar átakanna
Luanda. Reuters.
SAMEINUÐU þjóðirnar hafa
ákveðið að flytja alla eftirlitsmenn
sína af átakasvæðunum í Angóla og
hætta öllu flugi til borgarinnar Hu-
ambo eftir að flutningavél á vegum
samtakanna vai’ skotin niður nálægt
borginni á laugardag. Ottast er að
átök stjórnarhersins og uppreisnar-
manna UNITA-hreyfingarinnai’
verði til þess að þúsundir manna
deyi úr sulti.
Þetta er í annað sinn á rúmri viku
sem flugvél á vegum Sameinuðu
þjóðanna er skotin niðui’ á átaka-
svæðunum í Angóla. Alls voru 22
menn í flugvélunum tveimur og
sagði Alcides Sakala, talsmaður
UNITA, í gær að hann hefði áreiðan-
legar upplýsingar um að enginn
þein’a hefði komist lífs af. Sakaði
hann jafnframt stjórnai’herinn um
að hafa staðið á bak við ódæðisverk-
in í því skyni að kenna UNITA um,
og valda þannig andúð umheimsins á
samtökunum.
Ekki staðið við gefín Ioforð
Benon Sevan, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
ræddi málið við ráðamenn í Luanda í
gær og gagnrýndi stjórnina og
UNITA-hreyfinguna harkalega fyrir
að hafa ekki staðið við loforð sín um
að greiða fyrh’ því að hægt yrði að
bjarga áhöfnum flugvélanna. „Það er
ekki nóg að lofa samstarfi," sagði
hann. „Við viljum aðgerðir og sam-
starf í verki.“
Issa Diallo, yfirmaður eftirlits-
manna Sameinuðu þjóðanna í
Angóla, kvaðst efins um að þeir
gætu starfað í landinu þar sem
vopnahléssamningur stjórnarinnai’
og UNITA frá 1994 hefði ekki borið
tilætlaðan ái-angur og borgarastyrj-
öldin héldi áfram. „Eg hygg að ör-
yggisráðið og framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna hafi hugsað um
þetta alllengi og að því komi mjög
bráðlega að ákvörðun verði tekin
[um framtíð vopnahléseftirhtsins]."
Diallo kvaðst hafa gefið fyrh’mæli
um að öllu flugi á vegum Sameinuðu
þjóðanna til Huambo yrði hætt strax
og að allir eftirlitsmenn samtakanna
yrðu fluttir af átakasvæðunum.
Starfsmenn hjálparstofnana sögðu
að þetta gæti haft alvarlegar afleið-
ingar fyrir íbúa Huambo, sem eru að
minnsta kosti 150.000, og um 100.000
flóttamenn í borginni. Þeir óttast að
átökin verði til þess að ástandið í Hu-
ambo og nágrenni borgarinnar verði
eins slæmt og á árunum 1993-94 og
þúsundir manna deyi af völdum
hungursneyðar og sjúkdóma.
Stærsta sportvöruverslunarkeðja í heimi -nú á Islandi
VINTERSPORT
Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík • 510 8020 • www.intersport.is
ÞlN FRfSTUND-
OKKAR FAG
CASALL
KÖhnisch