Morgunblaðið - 05.01.1999, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1999 5 7
FRÉTTIR
Vann iMac-tölvu í Jólaleik
dagskrárblaðsins
Á DÖGUNUM stóðu Dagskrár-
blað Morgunblaðsins, Aco-Apple-
búðin, Skífan, TAL og 11-11 fyrir
leik í Dagskrárblaði Morgunblaðs-
ins. Leikurinn gekk út á að svara
spurningum úr dagskrá ljósvaka-
miðlanna en svörin við þeim var að
finna í blaðinu.
Leikurinn skiptist í barna- og
fullorðinshluta en iyrir rétt svör í
barnahlutanum áttu þátttakendur
möguleika á að vinna aðra af
tveimur Sony Playstation-leikja-
tölvum frá Skífunni. Fyrir rétt
svör í fullorðinshlutanum áttu þátt-
takendur möguleika á að vinna
annað tveggja TAL-12 GSM síma
frá TAL eða aðra af tveimur mat-
arkörfum frá verslunum 11-11.
Stóri vinningurinn var hins vegar
glæsileg iMac tölva frá Aco-Apple-
búðinni.
Allir vinningshafar hafa fengið
vinninga sína afhenta en myndin er
tekin þegar Jóni Ara Stefánssyni
(t.h.), sem hlaut stóra vinninginn,
iMac-tölvuna frá Aco-Applebúð-
inni, var afhent tölvan af Sigurði
Hlöðverssyni markaðsstjóra Aco-
Applebúðarinnar.
Tónleikar
Undirtóna á
Gauknum
TÓNLISTARBLAÐIÐ Undirtón-
ar hefur nýtt ár með fönkuppá-
komu á skemmtistaðnum Gauki á
Stöng þriðjudagskvöldið 5. janúar
1999. Uppákoman er liður í tón-
leikaseríu á vegum blaðsins sem
gengur undir nafninu Stefnumót
og er hér á ferðinni Stefnumót
númer tvö.
Á Stefnumóti númer tvö mun
fónktónlist vera í aðalhlutverki.
Hljómsveitin Jagúar, sem nú er í
hljóðveri að taka upp sína fyrstu
breiðskífu, mun þar troða upp með
frumsömdum fönktónum. DJ
Tommi þeytir skífum og sérstakur
heiðursgestur verður breski plötu-
snúðurinn Jasper the Vinyl Junkie.
Jasper þessi er staðbundinn plötu-
snúður á skemmtistaðnum Funky
Pussy í London og hefur einnig séð
um safnplötur fyrir breska útgáfu-
fyrirtækið BBE. Hann hefur þeytt
skífum í yfir tvo áratugi og spilar
fjölbreytta danstónlist með
fönkívafi.
Stefnumót númer tvö hefst
stundvíslega klukkan 22 og er að-
gangseyrir 500 kr. Innifalið í að-
gangseyri eru veigar.
Kraftganga
hafín í Öskjuhlíð
KRAFTGANGAN í Öskjuhlíð hef-
ur hafið starfsemi sína á ný eftir
jólafrí. Tímar verða eftir fyrra
skipulagi þ.e. kl. 17.45 til 18.45 á
kvöldin virka daga og á laugardög-
um kl. 10-11 og frá kl. 11-12. Nýir
meðlimir eru boðnir velkomnir.
Þjálfunin fer að mestu leyti fram
utandyra en hitað er upp á undan í
Perlunni og teygt eftir göngu.
Fólki er vinsamlegast bent á að
vera vel skóað og klæða sig eftir
veðri.
Bann í
fullu gildi
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi bókun frá fundi áfeng-
is- og vímuvarnaráðs 28. desember
sl.:
„Að undanfórnu hefur töluvert
borið á bjórauglýsingum í innlend-
um fjölmiðlum.
Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi í lok október í máli sem
ákæruvaldið höfðaði gegn fram-
kvæmdastjóra Ölgerðar Egils
Skallagrímssonar vegna slíkrar
auglýsingar. Á forsendum 73.
greinar stjórnarskrárinnar um
tjáningarfrelsi og með vísan í
mannréttindasáttmála Evrópu féll
dómurinn þannig að ákærði var
sýknaður.
Af þessu tilefni sendu ráðuneyti
dómsmála og heilbrigðismála bréf
til forsvarsmanna allra fjölmiðla
dags 18. desember 1998 þar sem
vakin er athygli á 20. gr. áfengis-
laga nr. 75/1998 um bann við áfeng-
isauglýsingum og viðurlögum við
brotum á þeim.
Nú er til meðferðar í Hæstarétti
refsimál þar sem reynir á hvort
ákvæði áfengislaga um auglýsinga-
bann stenst í ákvæði stjórnar-
skrárinnar. Ríkisstjórnin lítur svo
á að þar tO dómur liggur fyrir sé
bann við áfengisauglýsingum í fullu
gildi.
Áfengis- og vímuvarnaráð tekur
undir álit rfldsstjórnarinnar. Ráðið
beinir þeim tilmælum til fjölmiðla
að á meðan endanlegur dómur
liggur ekki fyrir verði áfengisaug-
lýsingar ekki birtar þar sem þær
geta ýtt undir áfengisneyslu ung-
linga.“
Ferðaþj ónustan
og viðburður
ársins 2000
UNNIÐ hefur verið um nokkurt
skeið að undirbúningu ýmissa stór-
verkefna ársins 2000 á vegum opin-
berra aðila. Fulltrúar Landsfunda-
nefndar, Kristnihátíðamefndar og
verkefnisins Reykjavík, Menning-
arborg Evrópu, munu á fundi 14.
janúar kl. 13 á Grand Hótel gera
grein fyrir stöðu sinna verkefna.
Auk þess mun fulltrúi Ferðamála-
ráðs gera grein fyrir aðkomu að
verkefnunum.
Fundurinn er ætlaður starfsfólki
á ferðaskrifstofum, gististöðum,
flutningsaðilum, starfsfólki afþrey-
ingarfyrirtækja, starfsfólki upplýs-
ingamiðstöðva svo og öllu ferða-
þjónustufólki sem vill kynna sér
málefnið.
vj> mbl.is
_ALLTae eiTTHV'AÐ /Vf77-
Málþing
um framtíð
grunnskólans
í TILEFNI þess að 50 ár era liðin
frá því að 1. áfangi Kópavogsskóla
var tekinn í notkun efnir Foreldra-
ráð Kópavogsskóla til málþings um
framtíð íslenska grunnskólans laug-
ardaginn 9. janúar kl. 14 í Kjarnan-
um, sal Kópavogsskóla.
Þar munu eftirtaldir aðilar lýsa
stuttlega framtíðarsýn sinni hvað
tekur til íslenska grunnskólans: Jón
Ólafur Halldórsson, formaður For-
eldraráðs Kópavogsskóla, Hrólfur
Kjartansson, deildarstjóri í mennta-
málaráðuneytinu, Bragi Michaels-
son, formaður Skólanefndar Kópa-
vogs, Jónína Bjartmarz, formaður
Heimilis og skóla og Ólafur Guð-
mundsson skólastjóri. Að því loknu
verða pallborðsumræður ofan-
greindra með þátttöku gesta í sal.
Ráðstefnustjóri verður Ari Þórð-
arson, fulltrúi í F'oreldraráði Kópa-
vogsskóla.
Málþingið verður öllum opið en
væntanlegir þátttakendur eru vin-
samlega beðnir að skrá sig á skrif-
stofu skólans í síðasta lagi fimmtu-
daginn 7. janúar.
Þrettándagleði
Hauka
HAUKAR halda sína árlegu þrett-
ándagleði miðvikudaginn 6. janúar á
Ásvöllum auk þess að taka fyrstu
skóflustungu hins nýja íþróttahúss
sem mun rísa á Ásvöllum.
Dagskráin hefst kl. 19.15 með
blysför álfakóngs og drottningar,
trölla, álfa, púka, grýlu og leppalúða
og jólasvehm frá Suðurbæjarsund-
lauginni að Ásvöllum. Kl. 20 hefst
síðan skemmtidagskrá með tónlist,
göngu og álfabrennu. Tekin verður
skóflustunga að nýju íþróttahúsi.
Ávörp flytja bæjarstjórinn í Hafn-
arfirði, Magnús Gunnarsson, og for-
maður Hauka, Lúðvík Geirsson.
Veitingar, blys og kyndlar verða
seld á vægu verði.
LEIÐRÉTT
Dansleikhús með EKKA
NAFN Dansleikhússins með
EKKA misritaðist í frétt í sunnu-
dagsblaðinu og er beðist velvirðing-
ar á því.
Fjöldi ferðamanna
í VÍKVERJA á sunnudag misritað-
ist hversu margir ferðamenn komu
til landsins á liðnu ári samkvæmt
áætlun Þjóðhagsstofnunar. í blað-
inu eru þeir sagðir 127 þúsund tals-
ins en hið rétta er 227 þúsund.
Beðist er velvirðingar á þessu.
Dagbók lögreglunnar
Annasamt hjá lög1-
reglu um áramót
31.12. 1998 til 04.01. 1999
ANNASAMT var hjá lögreglu í
höfuðborginni um áramótin. Eins
og búast mátti við var mikið um
útköll aðfaranótt fyrsta dags árs-
ins og voru verkefnin margvísleg.
AIls voru færð til bókunar rúm-
lega 600 verkefni á ofangreindum
tíma. Sem betur fer var ekki mik-
ið um slys vegna notkunar flug-
elda þótt alltaf séu einhver tilvik
þar sem menn hljóta branasár.
Þannig slasaðist 11 ára piltur er
flugeldur sem hann hafði sprakk.
Hann hlaut branasár á innan-
verðu læri. Lögreglan er ánægð
að sjá hversu margir nota sérstök
hlífðargleraugu og hefur það
komið fram í því að fátítt er að
einstaklingar hljóti augnskaða á
þessum tíma sem áður var al-
gengt. Þótt góða skapið sé með í
för hjá flestum borgarbúum á
þessum tímamótum er svo ekki
hjá öllum. Af þeim sökum þurfti
lögreglan að hafa afskipti af ein-
staklingum í átökum bæði á heim-
ilum og skemmtistöðum. Alltaf
eru það einnig einhverjir borgar-
búa sem fagna árinu með öðram
hætti en þeim hefðbundna og t.d.
vora tilkynnt 18 innbrot til lög-
reglu.
Umferðarmálefni
Um helgina vora tilkynnt 32
umferðaróhöpp, þar af lenti ein
lögreglubifreið í óhappi um miðj-
an sunnudag. 22 ökumenn voru
stöðvaðir vegna gruns um ölvun
við akstur og jafnmargir sem
sættu kæra vegna hraðaksturs.
Innbrot - þjófnaðir
Einstaklingur braut sér leið inn
í strætisvagn sem stóð við
Hlemmtorg að morgni fimmtu-
dags. Hann var talsvert ölvaður
og við leit fann lögreglan nokkurt
magn af hlutum sem erfitt reynd-
ist að gera grein fyrir. Ilann var
því vistaður í fangageymslu og
unnið úr því að koma þýfinu til
skila. Brotist var inn í mynd-
bandaleigu í austurborginni á
fyrsta degi ársins. Einhverjar
skemmdir vora unnar og stolið
vindlingum. Brotist var inn í
verslun á Laugavegi með því að
spenna upp glugga. Stolið var
peningum og áfengi sem var í ís-
skáp á staðnum. Þrennt var hand-
tekið að morgni nýársdags gran-
að um þjófnað á ökutæki, árekst-
ur og afstungu.
Lfkamsmeiðingar
- ölvun - ógnanir
Karlmaður var handtekinn að
morgni nýársdags eftir að hafa
verið í slagsmálum í miðbænum.
Við leit á honum kom i ljós að
hann hafði merkjabyssu innan-
klæða og skot. Hann var fluttur í
fangahús lögreglu. Lögreglan
lagði hald á haglabyssu eftir að
tilkynnt hafði verið um að fólki
hafi verði ógnað með henni í gleð-
skap. Engin skotfæri reyndust
vera á vettvangi. Þá lagði lögregl-
an hald á aðra haglabyssu eftir að
karlmaður hafði ógnað sambýlis-
konu sinni með henni.
Fíkniefnamálefni
Lögreglumenn á eftirlitsferð
veittu athygli kyrrstæðri bifreið i
Breiðholti aðfaranótt mánudags.
Við skoðun fundust ætluð fíkni-
efni og neysluáhöld. Lögreglan
fór inn í húsnæði á Laugavegi að-
faranótt mánudags þar sem grun-
ur lék á fíkniefnaviðskiptum. Efni
fundust á tveimur einstaklingum
og vora þeir handteknir og fluttir
í fangahús. Auk þess fannst tals-
vert af neysluáhöldum. Þá fór lög-
reglan inn í hús í austurborginni
sömu nótt og fundust þar ætluð
fíkniefni og meint þýfi. Einn aðili
var handtekinn og fluttur á lög-
reglustöð.
Brunar
Á þessu tímabili var tilkynnt
um 28 bruna til lögreglu, flestir
minniháttar þótt oft sé skammt í
mikla hættu. Um miðnætti á ný-
ársdag var tilkynnt um eld á svöl-
um húss í vesturbænum. Reyndist
þar hafa kviknað í fatnaði og öðr-
um hlutum. Slökkvilið kom á stað-
inn og slökkti eldinn.
Hópasöfnun unglinga
Nokkuð bar á því að unglingar
hópuðust saman í borginni og
urðu í einhverjum tilvikum af því
óþægindi fyrir aðra borgarbúa.
Var það einkum vegna notkunar á
flugeldum og sprengjum auk ölv-
unar. Svo virðist sem foreldrar
slaki verulega á því að framfylgja
reglum um útivist á þessum tíma.
Annað
Stúlka vai' flutt á slysadeild eft-
ir að hafa fallið af svölum á 2. hæð
húss í austurborginni. Málsatvik
eru óljós en stúlkan fann til í baki.
, Sunddeild
Armanns
Hin sívinsælu sundnámskeið
eru að hefjast
• Ungbarnasund
• Framhald ungbarnasunds
• Börn 2—3 ára (með foreldrum)
• Börn 4—6 ára (með foreldrum)
• Fyrir vatnshrædda
• Vatnsleikfimi
• Fullorðinskennsla
Innritun virka daga frá kl. 16.30 og um helgar frá kl. 13.00 í síma 557-6618 (Stella).