Morgunblaðið - 05.01.1999, Síða 59
1
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1999 59
1
I
BRÉF TIL BLAÐSINS
IJKAMSRÆKT OG LJÓS
Dalshraun 11 - sími 565 2212
Týndist
Hellisbúinn?
Frá Guðrúnu Bergmann:
í ÞÆTTINUM Víðsjá mánudaginn
28. des. fjölluðu þær Halldóra Frið-
jónsdóttir og Soffía Auður Birgis-
dóttir um leiksýningar líðandi árs á
mjög skemmtilegan og fróðlegan
hátt og fóru injög ýtarlega yfir
flestar sýningar, sérstaklega stærri
leikhúsanna en gátu einnig ýmissa
sýninga minni leikhúsanna.
Furðu mína vakti þó að þær
skyldu ekki minnast einu orði á
listilegan einleik Bjama Þórs
Haukssonar í Hellisbúanum, sem
hlýtur að teljast sú leiksýning sem
hlotið hefur hvað mesta aðsókn á
árinu. Leikritið hefur notið fádæma
vinsælda áhorfenda og eftir fjórar
fyrstu sýningamar hefur verið upp-
selt á hverja sýningu og sýningar
langt fram í tímann. Orðsporið sem
af Hellisbúanum fer bendir til að
áhorfendur hafi verið himinlifandi,
því setningin sem heyinst yfirleitt
frá þeim er: „Þú verður að sjá Hell-
isbúann!“
Bjarni Þór hefur kvöld eftir kvöld
náð að heilla áhorfendur og halda
athygli þeirra með leik sínum alla
sýninguna og færa til lífs texta sem
fjallar um samskipti kynjanna á
beittan og hárfínan hátt í farsa - og
það er list að láta fólk hlæja heila
sýningu.
Sú spurning hlýtur að vakna hvað
valdi því að Víðsjá fjallar ekki um
Hellisbúann og þá aðstandendur
sýningarinnar sem auk Bjarna Þórs
eru Hallgrímur Helgason og Sig-
urður Sigurjónsson.
GUÐRÚN G. BERGMANN,
leiðbeinandi og rithöfundur,
Hellnum, Snæfellsbæ
Tækjasalur - Léttur vetur - Átaksnámskeið
Þolfimi - Hjólaáfak - Byrjendaátak
Kg klúbburinn - Funk þolfimi - Karlatímar
Vinaklúbbur Hress - Body Pump
Kvennaleikfimi - Yoga - Ljósabekkir
Skráning og nánari upplýsingar i sima 565 2212
IechnoG/m
Einkatönleikar Bjarkar?
Frá Alberti, Grétari Má
og Hólmsteini Inga:
AÐ JAFNAÐI þarf mikið til að
koma undirrituðum úr jafnvægi, en
nú er okkur öllum nóg boðið. Ætlun
okkar var að fara á tónleika Bjarkar
í Þjóðleikhúsinu í byrjun janúar, en
þeir voru auglýstir mikið skömmu
fyrir áramót.
Við vorum mættir við Þjóðleik-
húsið þriðjudaginn 29. desember sl.,
nokkru áður en miðasalan átti að
hefjast og voru á að giska 50 manns
á undan okkur í röðinni. Við hugs-
uðum okkur gott til glóðarinnar þar
sem auglýst hafði verið að 500 mið-
ar væru í boði á hvora tónleika. En
þegar u.þ.b. 20 manns höfðu keypt
sér miða, var tilkynnt að uppselt
væri á tónleikana! Fólk horfði
þrumu lostið hvert á annað, en
margir höfðu lagt það á sig að bíða í
tæpar tvær klukkustundir í kuldan-
um eftir miðum.
Þegar miðasölufólkið var krafið
svara var okkur sagt að nokkrir að-
ilar hefðu nælt sér í miða símleiðis,
auk þeirra sem voru allra fremst í
röðinni. Okkur þótti skrýtið að ekki
fleiri en þetta hefðu keypt upp alla
miðana en fljótlega kom hið rétta í
Ijós; aðstandendur og styrktaraðili
tónleikanna höfðu ráðstafað meiri-
hluta miðanna til vina og vanda-
manna!
Það er einkennilegt að auglýsa
svo merkilega tónleika hvað eftir
annað og bjóða svo einungis lítinn
hluta miðanna til sölu. Það er svo
sem ekkert óvenjulegt við að eitt-
hvað sé um boðsgesti á tónleikum,
en að þeir skuli vera í slíkum meiri-
hluta er hreint með ólíkindum. Það
er í raun ekkert annað en ömurleg
framkoma gagnvart því fólki sem
lagði það á sig að bíða í röð, í kulda
og trekki, til þess eins að láta hafa
sig að fíflum.
ALBERT ÞORBERGSSON,
Vífilsgötu 20, Reykjavík
GRÉTAR MÁR ÓLAFSSON,
Hvassaleiti 135, Reykjavík
HÓLMSTEINN INGI
HALLDÓRSSON,
Fífuseii 7, Reykjavík.