Morgunblaðið - 04.02.1999, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 C 9
VIÐSKIPTI
Skipurit Plastprents hf. lagað að breyttum aðstæðum
„Stjórnkerfið aðlagað
nýrri framtíðarsýn “
Nýtt skipurit Plastprents hf. tók gildi um
áramót en undirbúningur hafði staðið yfír í
rúmt ár. Eysteinn Helgason, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, sagði í samtali
við Gísla Þorsteinsson að með nýju skipu-
lagi væru ábyrgðarsvið gerð skýrari og að-
löguð nýrri framtíðarsýn.
Morgunblaðið/Ásdís
EYSTEINN Helgason, í annarri röð frá hægri, ásamt deildarstjórum
fyrirtækisins sem tóku til starfa undir nýju skipuriti um áramót.
EYSTEINN segir að
ástæða þess að starfsemi
fyrirtældsins var endur-
metin sé sú að aðstæður,
einkum í alþjóðlegu samhengi, séu
síbreytilegar. Útflutningur sé meiri
og sé orðin ein helsta kjölfestan í
plastumbúðaframleiðslu fyrirtækis-
ins. „Að sama skapi hefur innfiutn-
ingur aukist og markaðurinn orðið
harðari. Stefnan hefur nokkrum
sinnum verið endurmetin en um
haustið 1997 var ákveðið að ganga
lengra og aðlaga skipurit fyrirtæk-
isins betur að breyttum aðstæðum."
Hafist var handa við að endur-
meta stefnu fyrirtækisins, tekið
var mið af stöðunni á einstökum
mörkuðum jafnframt þvi sem líkleg
þróun í notkun umbúða var kort-
lögð. Stefnumörkunin var unnin í
samvinnu við ráðgjafarfyrirtækið
Corporate Lifecycles-Ráðgjöf ehf.
og segir Eysteinn að sú aðferða-
fræði sem notuð hafi verið sé
margreynd hér heima og erlendis.
Hlutverk endurmótuð
Niðurstöður stefnumörkunar
voru þær að móta yrði hlutverk
fyrirtækisins að nýju. Skipuriti
þess var breytt og stjórnkerfið að-
lagað nýrri framtíðarsýn. Eysteinn
segir að með skipulaginu hafi línur
milli einstakra ábyrgðaraðila verið
gerðar skýrari. Hann segir að fyr-
irtækið hafði áður verið skilgreint í
plastumbúðaiðnaði en núverandi
stefna gerði ráð fyrir að lagðar
yrðu áherslur á lausnir, sem féllu
að margbreytilegum umbúðaþörf-
um fyrirtækja í matvælafram-
leiðslu, iðnaði, landbúnaði, verslun
og þjónustu auk þess að bjóða fjöl-
breytt vöruval til endursölu.
Einstaka deildir gerðar ábyrgar
í nýju skipuriti eru markaðssvið
fyrirtæksins ábyrg íýrir tekjum en
aðrar einingar eru ábyrgar fyrir
kostnaði. Til að tryggja að skipulag
og upplýsingakerfi virki sem stjórn-
tæki í rekstrinum hefur verið sett
upp reikningsskilakerfi þar sem
hvert svið í rekstrinum er gert upp
mánaðarlega. Markaðssviðin eru:
sérlausnir umbúða, sem heldur um
alla vöruflokka sem eru sérpantað-
ir, vöruhús umbúða, sem útvegar
lausnir á sviði staðlaðra umbúða og
skyldra rekstrarvara, endursölu-
vörusvið sem selur vörur til versl-
ana, auk hráefnissviðs.
„Framleiðsla ber ábyrgð á að
framleiða á sem hagkvæmastan
hátt plastumbúðir í samræmi við
óskir viðskiptavina og selur vörur
til markaðssviða. Ef ekki nást
samningar um kjör milli deilda geta
deildir keypt af öðrum fyrirtækjum
til að ná fram meiri hagkvæmni.
Sölusvið hefur umsjón með sölu,
þjónustu og samskiptum við við-
skiptavini. Fjármálasvið er ábyrgt
fyrir bókhaldi og fjárreiðum og
hlutverk þess er jafnframt að veita
öðrum sviðum þjónustu," segir Ey-
steinn.
Um áramót tóku yfirmenn nýrra
deilda, samkvæmt skipuriti, form-
lega til starfa. Deilarstjórarnir eru:
Þórður Bachmann, sölustjóri, Helgi
Gústafsson, markaðsstjóri vöruhúss
umbúða, Sigrún Rósa Björnsdóttir,
markaðsstjóri endursöluvöru, Jó-
hann Jón ísleifsson, markaðsstjóri
sérlausna umbúða, Oddur Eiríksson
gæðastjóri, Arne Sólmundsson
framleiðslustjóri og Bemharð
Hreinsson fjármálastjóri.
Eysteinn segir að hvert svið setji
fram markmið og áætlanir fyrir
hvert ár og beri ábyrgð á að fylgja
eftir stefnu fyrirtækisins og tryggja
árangur á hverju viðskiptasviði.
„Markaðssvið hafa umsjón með sín-
um vöruflokkum, bæði hvað varðar
val á vörum og birgjum, verðlagn-
ingu og árangur er mældur í heild-
artekjum í hverjum vöruflokki,"
segir Eysteinn.
Fyrirtæki í fyrirtækinu
„Skipulagið byggist á að mark-
aðssviðin verði eins og fyiúrtæki í
fyrirtækinu sem hvert hefur af-
markað starfssvið. Kostnaðarsvið
þjóna markaðssviðum og stuðla að
því að þau nái markmiðum sínum
og geti veitt þjónustu á sem arð-
bærastan hátt,“ segir Eysteinn.
Hann segist bjartsýnn á að nýtt
skipurit skili fyrirtækinu meiri ár-
angri. Hann telur að framtíðar-
verkefni fyrirtækisins séu að festa
í sessi þá hæfni sem sé innan
veggja þess og byggja upp starf-
semi sem veiti viðskiptavinum fjöl-
breyttár umbúðalausnir á einum
stað. Þá sé jafnframt nauðsynlegt
að styrkja og efia forystu fyrirtæk-
isins í hönnun, framleiðslu og notk-
un plastumbúða.
„Einnig verður að byggja á styrk
íýrirtækisins sem felst í þekkingu
þess á umbúðaþörfum háþróaðs
matvælaiðnaðar og hefja samstarf
við aðra framleiðendur og þjónustu-
aðila, með það fyrir augum að veita
víðtækari umbúðalausnir."
Námskeið Tæknivals eru skipulögð með það fyrir augum að sinna þörfum
fyrirtækja og styrkja starfsmenn i að mæta sifellt harðari kröfum I nútima
tækniumhverfi.
Ilf 6* <4 ?
LIÐSHEILD, ÞJOLFUN
0G ÞEKKING ...
SKILfl FYRIRTfEKJ UM I FREMSTU RÖÐ
Láttu fagmenn Tæknivals aðstoða þig við að efla liðsheild fyrirtækisins.
Tæknival hefur á að skipa velmenntuðum starfsmönnum með mikla reynslu
og þjálfun í fullkomnum tölvukerfum og hugbúnaði.
Hittu beint í mark með öflugri liðsheild, góðri þjálfun og þekkingu.
Skráning á námskeiðin er hjá Nönnu Jónsdóttur f sfma 550 4104 eða f
netfanginu nannajon@taeknival.is. Kynnið ykkur nýjustu upplýsingar um
námskeiðin á heimasíðu Tæknivals: www.taeknival.is
NÓmskeiðsyfirlit Tæknivals
Tegund og gerö námskeiðs Leiö- Tungu- Hám. beinandi mál fjöldi þáttt. Daga- fjöldi Tfmi: kl. Dagsetningar námskeiða: Feb. Mars Apríl Maí
Microsoft
Umsjón MS NT 4.0 Hallur H. fsl. 12 3 09-17 10-12
Umsjón MS NT 4.0 Advanced Hallur H. fsl. 12 3 09-17 24-26
Umsj. og stillingar MS Exchange Hallur H. fsl. 12 3 09-17 26-28
Umsj. og stillingar MS Exc. Adv. Hallur H. fsl. 12 3 09-17 02-04 03-05
System Administr. f. SQL Server CTEC Ens. 12 5 09-17 03-07
Internet Information Server Hallur H. Ens. 12 3 09-17 16-18
Umsj. og stillingar. MS IIS & Proxy Hallur H. fsl. 12 3 09-17 17-19
NT Workstation Bryndís fsl. 12 1 09-17 22 22
Novell
NetWare 5 Administration - 560 CTEC Ens. 12 5 09-17 24-28
NetWare 4.11 to NetWare 5 Upd. CTEC Ens. 12 3 09-17 31/5-02/06
HHHHI Hi HH HHH hhh
Grunnnámskeið Ómar H. ! ísl. ! 12 3 09-17 15-17
Framhaldsnámskeið Ómar H. ísl. 12 3 09-17 22-24
Compaq
Insight Manager o.fl. Erlendur , fsF 12 1/2 í 13-17 19
HnHBBBHHHi HHHHi HH bhhb HHH
Byrjendanámsk. í fjárhagsbókh. Sigríður H. fsl. 12 5x1/2 13-17 08-12 08-12 **
V Framhaldsnámsk. í fjárhagsbókh. Sigríður H. fsl. 12 3x1/2 13-17 16-18 ** ** /
Launakerfi - TOK Marinó F. fsl. 12 3x1/2 13-17 16-18
** Tímasetning ákveðin síðar. Námskeiðið verður
haidið í nýju húsnæði Tæknivals.
Námskeiðahald byggist á því að næg þátttaka
náist og geta dagsetningar því breyst.
Innifalið í verði er námsefni og hádegisverður (námskeið frá 09-17).
Tæknival
Hvert einstakt mark er arangur heildarinnar
w w w
t a e k n i v a I