Morgunblaðið - 09.02.1999, Page 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR1999
BADMINTON
MORGUNBLAÐIÐ
Nýtt nafn skráð á íslandsmeistaralistann í einliðaleik karla - Tomas Viborg Garðarsson
Sagði við sjálfan mig:
nú er nóg komið!
Tomas Viborg Garðarsson kom frá Umeá
í Svíþjóð, sá og sigraði í einliðaleik karla,
--------------7-------------------
þegar hann varð Islandsmeistari með því
að leggja tvo fyrrverandi meistara að velli
- Brodda Kristjánsson í undanúrslitum
og Tryggva Nielsen í úrslitaleiknum.
Sigmundur Ó. Steinarsson var vitni að því
er Tomas, sem er fyrsti Víkingurinn til að
verða meistari, stöðvaði 29 ára einokun
badmintonmanna úr TBR á meistaratitlin-
um, eða allt frá því að KR-ingurinn Oskar
Guðmundsson varð meistari 1970.
Eg er í sjöunda himni. Ég kom
hingað frá Svíþjóð staðráðinn í
að fagna sigri,“ sagði Tomas Vi-
borg Garðarsson, Víkingi, sem
lagði Islandsmeistarann Brodda
Kristjánsson að velli í undanúrslit-
um og síðan meistarann 1996 og
1997, Tryggva Nielsen, í úrslita-
leiknum. „Eg er afar stoltur yfír að
hafa náð að leggja kónginn Brodda
að velli,“ sagði Tomas.
Róðurinn var erfiður í byrjun hjá
Tomasi í úrslitaleiknum gegn
Tryggva. Hann varð fljótlega und-
ir, 9:0. Eftir það náði hann sér á
strik, sótti grimmt, sýndi fjöl-
breytni í leik og fagnaði sigri.
„Byrjunin var afar slæm hjá mér.
Eg vissi hreinlega ekki hvað ég var
að gera - var kærulaus og sló
knöttinn oft út af vellinum. Eg varð
mjög reiður út í sjálfan mig fyrir
þetta kæruleysi og sagði við sjálfan
mig; nú er nóg komið - nú verður
þú að byrja að berjast! Það skiptir
engu máli hvað flott höggin eru -
sjá til þess að fá boltann inn á völl-
inn og berjast. Eg gerði það og var
mjög þreyttur eftir leikinn. Það
tekur mikinn kraft að vinna upp
hinn mikla mun sem Tryggvi var
búinn að ná,“ sagði Tomas.
Tomas náði mörgum föstum
skotum, sem Tryggvi réði ekki við
og var högg hans afar glæsilegt er
hann jafnaði 12:12, eftir að hafa
verið undir 12:4. „Þegar ég var bú-
inn að berjast inn í leikinn fór ég að
fá tækifæri til að nýta höggin mín,
sem ég hef náð góðu valdi á,“ sagði
Tomas Viborg, sæll og glaður eftir
úrslitaleikinn.
Tomas Viborg hefur lengst ævi
sinnar verið í Svíþjóð og hefur
hann leikið fyrir hönd Svía. Hann
ákvað í haust að keppa fyrir Island
og eins og menn muna þá stóð hann
sig mjög vel í B-Evrópukeppninni,
þar sem íslenska landsliðið fagnaði
sigri. „Það tók mig hálft ár að
ákveða hvort ég ætti að keppa íyrir
ísland eða Svíþjóð. Ég valdi ísland
og sé ekki eftir því.“
Tomas Viborg Garðarsson er 22
ára - verður 23 ára 12. ágúst. For-
eldrar hans eru Fanney Jónsdóttir
og Garðar Viborg. Tomas fæddist í
Svíþjóð er foreldrar hans voru þar
við nám. Þau fluttu heim til Islands
þegar Tomas var átta ára og voru
hér á landi í fimm og hálft ár, en
héldu síðan á ný til Malmo í Sví-
þjóð. Garðar er bamasálfræðingur,
EINAR Jónasson, sem er 85 ára og
fyrsfi íslandsmeistarinn í einliða-
leik - fagnaði sigri 1950, var ánægð-
ur með úrslitaleikinn hjá ungu
strákunum, Tomasi Viborg Garð-
arssyni og Tryggva Nielsen. „Það
var ótrúlegt að sjá hvernig Thomas
náði að snúa leiknum sér í hag eftir
að hafa verið undir 9:0. Hann sýndi
geysilega keppnishörku, gafst ekki
upp þó að útlitið hafi verið svart.
Það var gaman að sjá strákana
leika. Það er einnig ánægjulegt að
sjá hvað við eigum marga unga og
góða badmintonspilara. Nú á dög-
um eru börn innan við tíu ára aldur
farið að æfa og er aðstaðan mjög
góð hér í TBR-húsinu - sautján
vellir. Hér fá skólar frían aðgang,
en Fanney kennir við kennarahá-
skólann í Malmo.
Tomas var í badmintonmennta-
skólanum í Malmo, en fyrir tveim-
ur og hálfu ári flutti hann að heim-
an og gerðist leikmaður með bad-
mintonliði Umeá í Norður-Svíþjóð.
Umeá-liðið er í öðru sæti í sænsku
meistaradeildinni.
Tomas sagðist æfa einu sinni á
dag fimm daga vikunnar. „Ég er á
æfingum með liðinu, sem tekur tvo
tíma. Síðan er ég á séræfingum
með þjálfara mínum, æfingum sem
standa yfir í klukkustund - tvisvar
í viku. Fyrir utan það æfi ég lyft-
ingar einu sinni í viku og þá fer ég
út að hlaupa,“ sagði Tomas Viborg,
sem vinnur hjá einu af stærstu fyr-
ii-tækjum Svíþjóðar, Vattenfall,
sem er orkufyrirtæki. Þar sér hann
um póst í fyrirtækinu og ýmisleg
önnur þjónustustörf fyi-ir starfs-
menn fýrirtækisins.
„Ég hætti starfi mínu hjá fyrir-
tækinu 28. febrúar og fer þá á at-
vinnuleysisbætur. Þá mun ég nota
tímann til að æfa miklu meira og
verða betri leikmaður. Ég mun síð-
an fá mér vinnu og vinna þá þrjá til
fjóra tíma á dag,“ sagði Tomas Vi-
borg, sem kom til landsins sl. mið-
vikudag og heldur í dag til Svíþjóð-
ar sem Islandsmeistari - fagnaði
sigri á fyrsta meistaramótinu sem
hann hefur tekið þátt í. Tomas seg-
ir að draumurinn sé að komast á
Olympíuleikana í Sydney á næsta
ári.
þannig að börn og unglingar fá
tækifæri að spreyta sig í íþróttinni,“
sagði Einar, sem er enn að æfa bad-
minton - kemur í TBR-húsið tvisvar
í viku. „Já, ég er enn með góða bak-
hönd,“ sagði Einar og hló. Einar
fékk sinn fyrsta spaða þegar hann
var 32 ára, stóð síðan uppi sem Is-
landsmeistari þremur árum síðar,
1949. Einar varð meistari í tvíliða-
leik fimm ár í röð 1952 til 1956 með
Wagner Walbom. Einar varð síðan
meistari í tvíliðaleik með Oskari
Guðmundssyni 1959. „Ég varð síð-
ast meistari í tvíliðaleik er ég var 48
ára 1962. Þá með Wagner, sem
hafði ekki æft badminton í eitt ár.
Það á aldrei að gefast upp,“ sagði
Einar.
Hvað segir Tomas Viborg um
badmintoníþróttina hér á landi?
„Við sýndum það í Evrópukeppn-
inni að íslenska landsliðið er á
réttri leið. Liðið er ungt með tvo
gamla refi, Brodda og Arna Þór.
Ég er viss um að liðið eigi eftir að
verða betra og betra með árunum,
ef liðsmenn halda áfram að æfa
eins og gert er,“ sagði Tomas Vi-
borg.
Missti niður
væna stöðu
Tryggvi Nielsen var ekki
ánægður með leik sinn gegn Tom-
asi. „Ég hafði heppnina með mér í
byrjun og fékk væna stöðu. Það
var þá sem ég sofnaði á verðinum,
hélt ekki höfði og gaf Tomasi tæki-
færi til að komast inn í leikinn,
sem hann nýtti sér. Ég vaknaði
upp við vondan draum er Tomas
var búinn að jafna 12:12 og komst í
14:12. Ég er sár að hafa ekki náð
að klára leikinn þá. Ég fann mig
ekki nægilega vel í fyrri leiknum,
en ákvað að vera með lengri send-
ingar í seinni leiknum - þreyta
Tomas. Það gekk ekki eftir. Tom-
as er sterkur leikmaður sem hefur
úr mörgum höggum að velja, eins
og hann sýndi - ég sá stundum
ekki út hvað hann var að gera.
Tomas lék vel og stóð uppi sem
sanngjarn sigurvegari," sagði
Tryggvi.
Tryggvi er nú búsettur í Norður-
Kaupmannahöfn, þar sem hann
leikur með badmintonfélaginu Lil-
leviss, sem er í dönsku úrvalsdeild-
inni. Tryggvi er fyrsti varamaður
liðsins, leikur á fyrsta velli með
öðru liði félagsins, sem leikur í 2.
deild. „Það er mjög gaman að leika
með liðinu. Það er allt annað en hér
heima, því að þar er maður alltaf að
etja kappi við nýja og nýja
mótherja. Fjölbreytnin er miklu
meiri í Danmörku en hér,“ sagði
Tryggvi.
Ekki hægt að
afskrifa Brodda
Þegar Tryggvi var spurður hvort
hann teldi að yngri leikmennirnir -
eins og hann, Tomas og Sveinn
Sölvason, kæmu til með að berjast
um Islandsmeistaratitilinn á næstu
árum, sagði hann að það mætti
ekki afskrifa Brodda Kristjánsson.
„Broddi verður örugglega með í
meistaramótinu á næsta ári. Hvers
vegna ekki? Hann er bestur hér á
Islandi þegar við strákarnir erum
úti að æfa. Hvers vegna ætti hann
þá að hætta?“ sagði Tryggvi.
■ Meistarar / B2
■ Úrslit / B14
TOMAS Viborg Garðarsson úr
úrslitaleik í einliðaleik. Hér nær 1
Lagði
Tryggva í
þríðju tilraun
TOMAS Viborg Garðarsson
náði að leggja Tryggva Niel-
sen að velli í þriðju tilraun.
Þeir kepptu fyrst í unglinga-
fiokki og þá hafði Tryggvi
betur í oddaleik. Fyrir fimm
árum mættust þeir á Norður-
landamóti unglinga í Björgvin
í Noregi, þar sem Tomas Vi-
borg keppti fyrir Svfþjóð.
Tí’ygíO'i fagnaði þá aftur sigri
í oddaleik. I úrsiitaleiknum í
einliðaleik á sunnudaginn náði
Tomas Viborg fram hefndum,
2:0.
Broddi með
39 meist-
aratitla
BRODDI Kristjánsson varð fs-
landsmeistari í tvfliðaleik og
tvenndarleik og hefur Broddi
þar með tryggt sér 39 íslands-
meistaratitla. Hann hefur
þrettán sinnum orðið meistari
í einliðaleik síðan hann vann
fyrst 1980. Hann hefur saufján
sinnum orðið meistari i tví-
liðaleik frá því að hann vann
fyrst 1980 með Jóhanni Kjart-
anssyni. Þá liefur hann m'u
sinnum orðið meistari í
tvenndarleik frá því hann
vann fyrst með Kristínu
Magnúsdóttur 1982.
Morgunblaðið/Golli
EINAR Jónsson og Tomas Viborg Garðarsson, fyrir utan TBR-
húsið, eftir að Tomas fagnaði sigri f einliðaleik.
Einar ánægður
með strákana