Morgunblaðið - 09.02.1999, Blaðsíða 10
10 B ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1999
MORGUNB LAÐIÐ
IÞROTTIR
KÖRFUKNATTLEIKUR / NBA
Reuters
AARON McKie hjá Philadelphia og J.R. Reid hjá Charlotte
Hornets berjast um knöttinn.
Loks rúllar
boltinn
SPÁ margra um að byrjun NBA keppnistímabilsins myndi ein-
kennast af lélegri aðsókn og slökum leikjum reyndist ekki á rök-
um reist. Reyndar einkenndust sumir leikir af því að liðin æfðu
og kepptu lítið fyrir fyrstu leikina en alls ekki var hægt að full-
yrða að þess yrði vart á flestum leikjanna. Tapaðir boltar og
mislukkuð vítaskot einkenndu stundum suma leikina, en aðdá-
endur liðanna létu ekki sig vanta.
Aðsóknin að fyrstu leikjunum eft-
ir 94 daga seinkum var góð.
Meðalaðsókn á leik var 17.192 og
uppselt var á sjö af
Gunnar t61f teikjunum- -.Það
Valgeirsson er eins og það hafí
skrífar frá aldrei verið neitt
Bandaríkjunum verkbann,“ sagði Gr-
ant Hill, stjörnuleikmaðurinn hjá
Detroit Pistons. „Við erum mjög
ánægðir með hversu ákafir áhorf-
endur eru og vonumst að sjálfsögðu
til að geta bætt fyrir verkbannið sem
fyrst,“ bætti hann við.
Los Angeles Lakers byrjaði
keppnistímabilið með tveimur mikil-
vægum heimaleikjum gegn Houston
og Utah. Lakers vann Houston á
fóstudag, 99:91, þrátt fyrir frábæran
leik Charles Barkely hjá Houston
sem skoraði 31 stig og tók 15 frá-
köst. Utah lét hinsvegar „Holly-
wood-gengið“ lítil áhrif hafa á leik
sinn frekar en venjulega og vann
góðan og sannfærandi sigur, 100:91.
Lakers náði 13 stiga forystu í fyrri
hálfleik, en Utah tók við sér í þeim
seinni og heimamenn áttu ekkert
svar við góðri liðsheild hjá gestun-
um. Utah jafnaði fljótlega eftir hlé
og náði 10 stiga forystu um miðjan
seinni hálfleikinn sem Lakers gat
ekki unnið upp. Lakers sprakk ein-
faldlega í fjórða leikhlutanum og á
enn ekkert svar við sóknarleik Jazz,
sem einkennist sem fyrr af uppsetn-
ingu tálma og sendingu inn að körf-
unni á frían leikmann. „Við vitum ná-
kvæmlega hvað þeir gera í sókninni,
en það er hægara sagt en gert að
stöðva þá,“ sagði Derek Harper hjá
Lakers. Karl Malone var traustur
sem fyrr hjá Utah með 28 stig og 8
fráköst. „Lykillinn hjá okkur var að
stöðva sóknarfráköstin hjá þeim í
seinni hálfleiknum. Við einbeitum
okkur að því að spila saman sem lið
og gera sem minnst af því að gorta í
fjölmiðlum," sagði Malone í leikslok.
San Atonio byrjaði einnig vel með
góðum sigrum á Minnesota og
Sacramento. Tim Duncan og David
Robinson hafa verið sterkir og liðið
virðist til alls líklegt.
I Austurdeildinni hefur Detroit
komið á óvart. Liðið vann Indiana
Paeers á sunnudag, en Indiana er
talið langsigurstranglegasta liðið í
deildinni. Detroit vann Miami Heat á
föstudag í Flórída og síðan Pacers á
heimavelli á sunnudag. Grant Hili
skoraði 26 stig gegn Indiana og
Reggie Miller svaraði með sama
stigafjölda fyrir Indiana.
. New York má heldur betur taka
sig saman andlitinu ef það ætlar sér
eitthvað í vetur. Liðið lék tvo ósann-
færandi tapleiki um helgina gegn
Orlando og Miami. Knicks saknar
framherjans Charles Oakley sem var
látinn fara til Toronto fyrir Marcus
Camby. Miami vann New York á úti-
velli á sunnudag, 83:79, í leik þar
sem heimamenn klikkuðu á 12 af 22
vítaskotum sínum. Liðið hefur aðeins
50% vítahittni í tveimur fyrstu leikj-
um sínum og það kann ekki góðri
lukku að stýra. Leikur þessara erki-
fjenda einkenndist sem fyrr af mis-
tökum í sókn hjá báðum liðum, en
góður leikur Jamals Mashburn, sem
skoraði 23 stig fyrir gestina, gerði
gæfumuninn. Leikmenn New York
voru lítt ánægðir eftir leikinn. „Það
hefur enga þýðingu fyrir okkur þótt
einhverjir blaðamenn segi okkur sig-
urstranglega í okkar riðli ef að við
getum ekki sannað það úti á vellin-
um. Það höfum við alls ekki gert í
þessum tveimur leikjum," sagði bak-
vörðurinn Chris Childs.
Liðunum sem gengur illa í byrjun
er eins gott að ná sér á strik sem
fyrst því þau spila mun fleiri leiki í
viku hverri en venjulega. Mun betri
mynd verður komin á styrkleika lið-
anna eftir leiki næstu helgar, sem er
ástarhelgi heilags Valentínusar hér í
landi.
■ Úrslit / B14
HANDKNATTLEIKUR
Afturelding í erfiðleikum með baráttuglaða HK-inga
Enginn meist-
arabragur
„TVÖ stig hérna í Kópavoginum eru eitt af stærstu skrefum okk-
ar að deildarmeistaratitlinum,11 sagði Bergsveinn Bergsveinsson,
markvörður Aftureldingar, eftir 24:25 sigur á HK á laugardaginn.
Með sigri kom Afturelding annarri höndinni á titilinn og Ijóst er
að fátt getur komið í veg fyrir að hin fylgi á eftir.
Tómas Gunnar
Viðarsson
skrifar
Það var baráttuglöð HK-vörn
sem tók á móti toppliði Aftur-
eldingar. Vörnin var það sterk að
það tók Aftureldingu
níu mínútur að finna
leið í gegnum hana.
HK tókst hins vegar
ekki að nýta sér
þetta í vil. Liðið náði einungis að
skora tvö mörk á þessum níu mínút-
um. Ástæðan var fyrst og fremst sú
að Afturelding tók Sigurð Val
Sveinsson úr umferð og Bergsveinn
Bergsveinsson varði ágætlega. Aft-
urelding náði svo að jafna leikinn
2:2 og jafnt var á öllum tölum í fyrri
hálfleik, en þó voru HK-menn
ávallt skrefinu á undan. Þeir misstu
þó aðeins taktinn í lok hálfleiksins
og hleypti gestunum fram úr, 11:12,
og í þeirri stöðu var gengið til bún-
ingsherbergja.
Skúli Gunnsteinsson, þjálfari Aft-
ureldingar, hefur greinilega lesið
hressilega yfir sínum mönnum því
þeir komu mjög grimmir og ein-
beittir til síðari hálfleiks. Bjarki fyr-
irliði Sigurðsson gekk fyrir liði sínu
og gerði tvö fyrstu mörk hálfleiks-
ins og breytti stöðunni í 11:14. Þessi
þriggja marka munur hélst fram á
tíundu mínútu - 14:17 - en þá var
eins og HK áttaði sig á að kaffi-
pásan væri búin. Leikmennirnir
tóku sig saman í andlitinu og náðu
að jafna leikinn 17:17. Liðin skipt-
ust á að skora og allt var í járnum
þar til rúmar fimm mínútur voru
eftir. Afturelding náði þá aftur
þriggja marka forystu, 20:23 og
22:25 þegar um tvær mínútur voru
eftir. Leikmenn HK voru ekki á
þeim buxunum að gefast upp, náðu
á ótrúlegan hátt að minnka muninn
í eitt mark, 24:25, þegar um tuttugu
sekúndur voru til leiksloka. Þeir
reyndu síðan að vinna boltann en
tókst ekki og leikurinn fjaraði út.
I lokin voru HK-menn of bráðir
og var það fyrst og fremst ástæða
þess að Afturelding náði þriggja
marka forystu þegar fimm mínútur
voru eftir. Of mörg skot voru tekin
úr erfiðum færum og gegn jafn-
reyndu liði og Aftureldingu má það
einfaldlega ekki. Það verður þó að
segja HK-mönnum til vorkunnar að
Sigfús G.
Guðmundsson
skrífar
heppnin var ekki í þeirra liði í þess-
um leik.
Ekki var meistarabragur á liði
Aftureldingar en það er merki
meistara að vinna líka þá leiki þegar
illa er spilað. .Sóknarleikurinn var
ekki góður, við lentum í ágætis vörn
hjá HK og þeir börðust vel. Þetta
var ástæða þess að leikur okkar
varð ekki eins agaður og við lögðum
upp með. En tvö stig eru alltaf tvö
stig,“ sagði Bergsveinn Bergsveins-
son sem, ásamt Bjarka Sigurðssyni,
var besti maður Aftureldingar í
leiknum. Hjá HK voru þeir Oskar
Oskarsson og Hjálmar Vilhjálmsson
einna sprækastir í jöfnu og barátt-
uglöðu liði.
Stjarnan fyrst til að
sigra I Eyjum!
Eyjamenn mættu Stjörnunni í
Eyjum. Fyrir leikinn höfðu leik-
menn IBV lagt að velli alla þá níu
andstæðinga sem
höfðu mætt til Eyja í
deildinni. Þetta var
hörkuleikur og
Stjörnunni tókst það
sem öðrum hefur ekki tekist, sigr-
uðu Eyjamenn á þeirra heimavelli
með einu marki, 21-22, og var það
Heiðmar Felixson sem skoraði sig-
urmarkið á lokamínútu leiksins og
hélt þar með von Stjörnunnar á
deildarmeistaratitli opnum.
Það var ljóst frá upphafi að í vænd-
um væri spennandi leikur og þó að
leikmenn IBV hafi byi'jað ögn betur
og verið fyrri til að skora framan af
fyrri hálfleik var jafnt nánast á öll-
um tölum. Leikurinn var mjög harð-
ur án þess þó að vera grófur, hvergi
gefinn þumlungur eftir. Varnarleik-
ur liðanna var mjög sterkur lengst-
um og Eyjamaðurinn Birkir Ivar
Guðmundsson í marki Stjörnunnar
sýndi að hann hefur ekki setið auð-
um höndum eftir að hann yfirgaf
herbúðir Eyjamanna og hefur bætt
sig mikið og varði hann alls 13 skot í
fyrri hálfleik og var Eyjamönnum
þrándur í götu allan leikinn. Það var
öðru fremur góður kaíli hans þegar
vel var liðið á fym hálfleikinn sem
skóp forystu Stjörnunnar í hálfleik
sem var naum, 10:11.
Leikmenn ÍBV komu ákveðnir til
síðari hálfleiks, gerðu þrjú fyrstu
mörkin á fyrstu mínútunum á með-
an leikmenn Stjörnunnar komu
boltanum ekki í net Eyjamanna, en
Stjarnan komst fljótt inn í leikinn
aftur og svöruðu með næstu þremur
mörkum. Eftir það hélt geysileg
barátta liðanna áfram og jafnt var á
öllum tölum upp í 21:21. Heiðmar
Felixson gerði síðasta mark leiksins
þegar 36 sekúndur voru eftir og
reyndist það sigurmark leiksins og
fyrstu töpuðu stig Eyjamanna á
heimavelli í vetur staðreynd.
Það var enginn sem stóð uppúr í
liði Eyjamanna sem léku þrátt fyrir
tapið oft piýðilega en þeir réðu ekki
við Birki ívar í marki Stjörnunnar
sem átti stórleik og varði alls 25
skot og þar á meðal 2 vítaköst þegar
vel var liðið á leikinn. Heiðmar Fel-
ixson var öflugur í sókn Stjörnunn-
ar í annars jöfnu liði.
Valssigur á Selfossi
Leikur Selfoss og Vals skipti
miklu fyrir heimamenn þar sem
fallið blasir óþægilega við þeim, tak-
^ist ekki að snúa
Sigurður rækilega við blaðinu.
Jónsson Ekki tókst að snúa
skrífar við blaðinu að þessu
sinni og Valsmenn
hrósuðu 5 marka sigri, 25:20, eftir
slakt gengi í undanfömum Ieikjum.
Leikurinn var jafn framan af og
svo að sjá sem Selfyssingar væru
staðráðnir í að sigra og ná til sín
dýrmætum stigum. Staðan í hálfleik
var jöfn, 9 mörk gegn 9, en Vals-
menn komu af krafti inn í seinni
hálfleik og gerðu þrjú mörk í röð
sem Selfyssingum tókst ekki að
vinna upp. Undir lok leiksins áttu
Selfyssingar góðan kafla, komust í
góð færi og náðu að verjast sóknum
Valsmanna en þá snérist dómgæsl-
an þeim í óhag, sóknir mnnu út í
sandinn. Þar má segja að fjögur
mörk færa forgörðum vegna dóm-
aranna og þá um leið baráttugleðin.
Valsmenn juku forskot sitt. Loka-
tölur, 20:25.
Erlingur Richardsson var at-
kvæðamikill í leiknum, skoraði 7
mörk fyrir Val. Bjarki Sigurðsson, í
Val, er gi-einilega upprennandi leik-
maður en hann átti einnig góðan
leik og er þar greinilega á ferðinni
framtíðarmaður hjá Val.
I Selfossliðinu var Robertas
Pauzlis atkvæðamestur með 7 mörk.
Sætaskipti á Hlíðarenda
Vikingsstúlkur unnu 23:20 sigur á
Val á Hlíðarenda á laugardag-
inn og er sigurinn ekki síst mikil-
vægur fyrir þær þar
sem liðin höfðu
sætaskipti - Víking-
ar settust í fjórða
sætið og fær því
heimaleik í 8-liða úrslitum ef liðinu
tekst að halda sig þar uns yfir lýk-
ur. Valsstúlkur aftur á móti féllu úr
fjórða í fimmta sæti og missa af
heimaleik ef svo fer fram sem horfir
en það er enn nóg eftir af mótinu.
Valsstúlkur vora að venju grimm-
ar í vörninni og lokuðu fyrir skyttur
gesta sinna enda komu ekki mörk
frá þeim allan fyrri hálfleikinn. Vík-
ingar lögðu þó ekki árar í bát, skor-
uðu á annan hátt og höfðu 10:8 for-
skot í leikhléi. Er leið að leikslokum
tókst heimasætunum að saxa á for-
skotið svo að það var að duga eða
drepast fyrir Víkingsstúlkur og þær
náðu að halda fengnum hlut með
mikilli baráttu.
Þrátt fyrir að Valsstúlkur næðu
að stöðva skyttur gesta sinna fram-
an af dugði það ekki til auk þess
sem sóknarleikurinn átti erfitt upp-
dráttar. Mikið mæddi á Ollu
Gokozian, hinum nýja útlendingi hjá
Val, oft var eins og til of mikils af
henni ætlast en hún átti engu að
síður ágætan leik. Larissa Zouber í
markinu var ágæt eins og Gerður
Beta Jóhannsdóttir.
„Við missum Höllu Maiíu út
vegna meiðsla, eram ekki eina liðið
sem lendir í slíkum vandræðum en
sýnum karakter með því að berjast
fyrir sigrinum,“ sagði Inga Lára
Þórisdóttir, sem átti ágætan leik
fyrir Víkinga á laugardaginn. Hún
er að ná fyrri styrk eftir að hafa
lagt skóna á hilluna því vegna
meiðsla annarra leikmanna varð
hún að fara upp á hillu og ná í skóna
á ný. Kristín María Guðjónsdóttir í
markinu sýndi góð tilþrif er á leið
og Svava Sigurðardóttir skoraði
grimmt.
FH sótti stig til Eyja
W
IBV og FH áttust við í Eyjum á
laugardag og var leikurinn nokk-
uð jafn og spennandi, en gestirnir
höfðu sigur að lok-
um, 22:20. Eyja-
stúlkur byrjuðu
mjög vel, voru sterk-
ar í vöminni og
höfðu undirtökin lengstum í fyrri
Sigfús G.
Guðmundsson
skrifar
hálfleiknum en fóru illa með fjöl-
mörg hraðaupphlaup á lokakafla
hálfleiksins og því skildi aðeins eitt
mark í hléi, staðan 8:7 Eyjamönnum
í vil.
Eyjastúlkur gerðu fyrsta mark
síðari hálfleiks en eftir það tóku
FH-stúlkur völdin, gerðu 4 mörk 1
röð og náðu undirtökunum sem þær
héldu nánast til leiksloka með þeim
undantekningum að ÍBV tókst í þrí-
gang að jafna en náði ekki að fylgja
því eftir og sigurinn varð FH-inga,
20:22.
Amela Hegic var að vanda at-
kvæðamikil í liði IBV og Elísa Sig-
urðardóttir nýtti sín færi vel, tví-
burasysturnar Dagný og Drífa
Skúladætur vora atkvæðamestar í
jöfnu liði FH og Jolanta varði prýði-
lega í markinu.