Morgunblaðið - 17.02.1999, Side 1

Morgunblaðið - 17.02.1999, Side 1
STOFNAÐ 1913 39. TBL. 87. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS • • Gífurleg mótmæli Kúrda í 20 evrópskum borgum vegna handtöku Ocalans Barist á götum og sendi- ráð tekin herskildi Lundúnum, Ankara, Aþenu. Reuters. ABDULLAH Öcalan, leiðtogi Verkamannaflokks Kúrdistan (PKK), var handsamaður í Naíróbí í Kenýa og fluttur til Tyrklands að- faranótt þriðjudags. Öcalan hefur verið á flótta frá því í október síðast- liðnum er hann varð að yfirgefa Sýr- land vegna þrýstings Tyrkja á þar- lend stjórnvöld. Frá upphafi þessa mánaðar hefur hann leynst í sendi- ráði Grikklands í Naíróbí. Sendi- herra Grikklands í Kenýa var kallað- ur heim til Aþenu í gær vegna máls- ins. Ekki er enn ljóst hvernig Öcalan var færður í hendur tyrkneski-a yfir- valda. Lögfræðingur hans sagði í gær að mannréttindi hefðu verið brotin á skjólstæðingi sínum er hann var blekktur til þess að gefa sig fram við stjórnvöld í Kenýa. Grísk stjórn- völd segja hins vegar að Öcalan hafi sjálfur kosið að treysta yfirvöldum í Kenýa í þeirri trú að senda ætti hann til Hollands. Öcalan er leiðtogi tyrkneskra Kúrda, sem barist hafa fyrir réttind- um sínum í Tyrklandi síðastliðin fjórtán ár. Átök PKK og tyrkneskra stjórnvalda hafa kostað 29.000 manns lífið. Öcalan gæti átt dauða- refsingu yfir höfði sér en hann var eftirlýstur af tyrkneskum stjórn- völdum sem landráða- og hryðju- verkamaður. Skæruliðar PKK lýstu því yfir í gær að þeir myndu ótrauðir halda áfram vopnaðri baráttu fyrir sjálfstjóm Kúrda í suðaustur-Tyrk- landi þótt leiðtogi þeirra hefði verið handsamaður. Mótmæli eins og eldur í sinu um álfuna Bylgja mótmæla reið yfir Evrópu í gærmorgun er fregnaðist að Grikkir hefðu sleppt vemdarhendi af Öcalan og hann værí kominn í hendur yfir- valda í Kenýa. Kúrdar létu þá til skarar skríða gegn sendiráðum og ræðismannsskrifstofum Grikklands í helstu borgum álfunnar. Einnig var ráðist til atlögu við nokkur sendiráð Kenýamanna í Evrópu. Reiði Kúrda magnaðist svo enn frekai- er á dag- inn kom að tyrknesk stjórnvöld hefðu haft hendur í hári Öcalans. Mótmæli stuðningsmanna Öcalans fóm eins og eldur í sinu um Evrópu er leið á daginn. Kúrdarnir lögðu til atlögu við sendiráð og ræðismanns- skrifstofur Grikklands í rúmlega tuttugu evrópskum borgum. Tveir Kúrdar báru eld að sjálfum sér og víða hótuðu mótmælendur fjölda- sjálfsmorðum kæmi lögreglan ná- lægt þeim. Fréttum bar ekki saman um hversu margir gíslar væru í haldi kúrdískra mótmælenda í lok dags en a.m.k. fimm manns voru enn í haldi í Haag og Zúrich. Costas Simitis, for- sætisráðherra Grikklands, sagði í gærkvöldi að grísk stjórnvöld myndu láta einskis ófreistað til að ná gíslum úr haldi. Reiðubúnir að láta lífið fyrir leiðtoga sinn í Haag gerðu um 150 Kúrdar áhlaup á bústað gríska sendiherrans og tóku eiginkonu, son og þjónustu- stúlku sendiherrans í gíslingu. Óeirðalögreglan var kölluð til í París Reuters MIKIL mdtmæli brutust út í borgum víðs vegar um Evrópu í gær vegna handtöku Abdullah Öcalans, leið- toga tyrkneskra Kúrda. í Stokkhólmi beitti óeirðalögreglan kylfum og hundum gegn Kúrdum sem mót- mæltu handtökunni fyrir utan skrifstofu gríska ræðismannsins þar í borg. UM 3.000 stuðningsmenn Öcal- ans fjölmenntu fyrir framan gríska sendiráðið í Lundúnum og báru mynd af foringja sínum á stórum borða. til þess að rýma sendiráð Kenýa og Grikklands. í Stuttgart voru 27 manns handteknir sem sest höfðu að á grísku ræðismannsskrifstofunni. Kúrdar sem tekið höfðu gi-íska sendiráðið í Moskvu herskildi gáfust upp síðdegis og yfirgáfu sendiráðið. I Lundúnum tóku 100 Kúrdar gríska sendiráðið og lýstu því yfir að þeir væru reiðubúnir að brenna sig til dauða fyrir Öcalan. í Brussel tóku á þriðja tug mótmælenda sendiráðið og hótuðu að kveikja í sér yrðu þeir færðir á brott. Peir gáfust upp um miðjan dag, en í hópnum voru konur og börn. Einnig var ráðist til atlögu við grísku sendiráðin í Vín, Bern, Kaupmannahöfn og Stokkhólmi, en í höfuðborgum Danmerkur og Sví- þjóðar komust stuðningsmenn Öeal- ans ekki inn í byggingarnar. Einnig var látið til skarar skríða gegn ræðismannsskrifstofum Grikk- lands í Sydney í Ástralíu og í Vancouver í Kanada. Þrýstingur og hótanir báru árangur STJÓRNMÁLASKÝRENDUR telja handtöku Kúrdaleiðtogans Öcal- ans mikinn sigur tyrkneskra sijómvalda, sigur sem aldrei hefði unnist ef þau hefðu ekki beitt hernaðarlegum þrýstingi og ógn- unum, viðskiptaþvingunum og öðr- um mótmælaaðgerðum. Einnig segja þeir ljóst að ekki séu öll kurl komin til grafar í þessu máli. „Við fyrstu sýn virðast Tyrkir hafa unnið mikið afrek,“ segir Keith Kyle, prófessor í málefnum Tyrklands og Grikklands við hina Konunglegu stofnun um alþjóða- mál í Bretlandi. „En Tyrkirnir hafa gengið mjög hart fram í þessu máli og gætu enn klúðrað því.“ Að áliti stjórnmálaskýrenda skiptir ekki minna máli fyrir Tyrki að alþjóðlegt almenningsálit snúist á sveif með málstað tyrkneskra sljómvalda, og þá gegn PKK, en málstaður Kúrda nýtur víða sam- úðar á Vesturlöndum. „Kröfur Kúrda um sjálfstjórn eiga víða hljómgmnn og margir gera engan greinarmun á PKK og kúrdísku þjóðinni," segir James Ker-Linds- ey, sérfræðingur í samskiptum Grikkja og Tyrkja. „Nú gæti hin raunvemlega hættustund verið mnnin upp fyrir Tyrki.“ . í október síðastliðnum neyddu Tyrkir Sýrlendinga til þess að vísa Öcalan úr landi er tyrknesk- ar hersveitir tóku sér stöðu á landamærum ríkjanna tveggja. Talið er að Hafez al-Assad Sýr- landsforseti hafi goldið varhug við vaxandi hernaðarlegu sam- starfi Tyrklands og Israels og því afráðið að vísa Kúrdaleiðtoganum úr landi. Kúrdískur fangi lést af völdum sára sinna í fangelsi í Diyarbakir í Tyrklandi eftir að hafa borið eld að klæðum sínum í mótmælaskyni við handtöku Öcalans. Tveir aðrir fang- ar gerðu tilraun til að svipta sig h'fi í mötmælaskyni í sama fangelsi. Var Öcalan blekktur ? „Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef var skjólstæðingur minn blekktur af yfirvöldum í Kenýa og í raun dreginn út úr gríska sendiráð- inu þar í landi,“ sagði Eberhard Schultz, lögfræðingur Ócalans, í við- tali við þýska sjónvarpsstöð. I yfir- lýsingu grískra stjórnvalda sagði að Öcalan hefði sjálfur ákveðið að semja við yfu-völd í Kenýa síðdegis á mánudag. Síðan þá hefðu grísk stjómvöld ekkert haft af honum að segja. Hins vegar sagði utanríkis- ráðherra Kenýa, Bonaya Godana, að stjórn sín hefði ekki haft hönd í bagga með handtöku Öcalans, enda hefði ekki komið til greina af henn- ar hálfu að framselja hann til Tyrk- lands. Taismaður Bills Clintons Bandaríkjaforseta lýsti yfir ánægju með það að Öcalan hefði verið hnepptur í hald um leið og hann vís- aði því á bug að bandan'sk stjórn- völd hefðu átt nokkurn þátt í því að hafa hendur í hári Öcalans. ■ Mörgum spurningum/22 Reuters LÖGREGLA rannsakar um- merki sprengjutilræðis í Tash- kent, höfuðborg Usbekistans. Forseta * Usbekistans sýnt tilræði Tashkent. Reuters. ISLAM Karimov, forseti Mið-Asíu- lýðveldisins Úsbekistans, slapp ómeiddur frá sprengjutilræði sem talið er að hafi verið beint gegn hon- um í gærdag. í röð átta öflugra sprenginga í höfuðborginni, Tash- kent, fórust a.m.k. níu manns og fímmtán slösuðust. Talið er að sprengingarnar hafi átt að granda forsetanum er honum var ekið í átt að þinghúsi landsins. Karimov, sem undanfarin sjö ár hef- ur haldið fast um stjórnartaumana í þessu fjölmennasta ríki Mið-Asíu, lét hafa eftir sér að hann myndi taka miskunnarlaust á málinu. Talsmaður forsetans sagði að markmið árásar- innar hefði verið að myrða forsetann og sá efa og skelfingu meðal íbúa landsins. Óstaðfestai- fregnir herma að nokkrir hafi verið teknir höndum á aðalflugvelli landsins. Úsbekistan, sem á landamæri að Mið-Asíuríkjunum Kirgisistan, Ka- sakstan, Túrkmenistan og Tadsjíkist- an, auk Afganistans, hefur verið laust við ofbeldisverk og pólitíska ólgu til skamms tíma en að undanförnu hefur stjóm Karimovs þó þurft að gh'ma við íslamska trúarhópa sem hún segir vilja kynda undir ófidði. ---------------- Serbar þæfa viðræður um Kosovo Belgrad. Washington. Rambouillet. Reuters. STJÓRNVÖLD í Belgrad hafa ekki sýnt nein merki þess að stefnubreyt- inga sé að vænta í viðræðum fulltrúa þeirra og Kosovo-Albana í Ram- bouillet-höll fyrir utan París. Slobod- an Milosevic, forseti Júgóslavíu, sambandsríkis Serbíu og Svartfjalla- lands, hefur staðfastlega hafnað til- lögum Tengslahópsins svonefnda um að 30.000 manna friðargæslulið Atl- antshafsbandalagsins (NATO) verði sent til Kosovo. Utanríkisráðhema Bandaríkj- anna, Madeleine Albright, sagði í viðtali við ABC-sjónvarpsstöðina í gær, að afstaða serbneskra stjórn- valda til friðargæsluliðs í Kosovo kynni að ráða úrslitum í samninga- viðræðunum. Áréttaði hún afstöðu NATO og sagði: „Ef að engu sam- komulagi verður komist verða Ser- bar að vita það sem við höfum þegar sagt - sá aðili sem slítur viðræðun- um verður gerður ábyrgur. I tilfelli Serba þýðir það loftárásir NATO.“ Sendi hún aðalsamningamann Tengslahópsins, Bandaríkjamann- inn Chris Hill, til fundar við Milos- evic í Belgrad í gær til þess að gera honum þetta ljóst.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.