Morgunblaðið - 17.02.1999, Side 15

Morgunblaðið - 17.02.1999, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999 15 Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson JÓN Reynir Sigurvinsson afhendir Hálfdáni Bjarka Hálfdánssyni önn- ur verðlaun á íslandsmótinu í víkingaskák. T.v. er meistarinn Skúli Þórðarson. A myndinni er líka Inga Dan, sem tók við þriðju verðlaun- um fyrir son sinn, Sigurð Pál Ólafsson. Isfírðingar áhugasamir um víkingaskák FYRSTI íslandsmeistarinn í vík- ingaskák er ísfirðingurinn Skúli Þórðarson og var hann krýndur ný- lega í hátíðarsal Framhaldsskóla Vestfjarða á ísafirði. Fyrsta Islandsmótið í þessu rammís- lenska afbrigði af manntafli var haldið á ísafirði föstudag- inn 29. janúar. Mótið var jafnframt heims- meistaramót og raunar var hið opin- bera heiti þess alheimsmeistaramót. Keppendur voru sex. Skúli fékk fjóra vinninga í fimm skákum, Hálf- dán Bjarki Hálfdánsson varð annar með þrjá og hálfan og Sigurður Páll Ólafsson þriðji með tvo og hálfan. Jafnir í fjórða til fimmta sæti urðu þeir Jón Reynir Sigui-vinsson og Kristinn Orri Hjaltason með tvo vinninga hvor. í sjötta sæti varð Þorkell Þórðarson með einn vinn- ing, en hann lagði sjálfan alheims- meistarann óvænt að velli í síðustu umferðinni. Þeir Skúli, Hálfdán, Kristinn Orri og Þorkell eru allir nemendur í Framhaldsskóla Vestfjarða en Jón Reynir er aðstoðarskólameistari og kennari í náttúrufræði. Sigurður Páll er hvorki nemandi né starfs- maður FVÍ en móðir hans er ritari skólans. Skákstjóri og dómari var Brynjar Viborg, frönskukennari við FVÍ og áhugamaður um víkingatafl. í vetur hefur víkingaskák verið iðkuð af kappi á ísafirði, aðallega innan Framhaldsskóla Vestfjarða. Stefnt er að því, að Islandsmót og (al)heimsmeistaramót verði árlegur viðburður á Isafirði. Vfldngurinn til viðbótar Allmörg ár eru frá því að hug\dts- maðurinn Magnús Ólafsson skapaði víkingataflið. Á taflborðinu eni 85 sexstrendir reitir í þremur litum. Þeim er skipað í níu raðir, taflmenn eru níu og peðin níu. Átta mann- anna eru hinir sömu og í hefð- bundnu manntafli en sá níundi er VIKINGATAFL Magnús- ar Ólafssonar. víkingurinn. Manngangurinn er svipaður og í venjulegu tafli og auð- veldur þeim sem það kunna. Skák- menn á öllum styrk- leikastigum hafa reynt víkingataflið. „Manhgangur vík- ingaskákarinnar er auðlærður en það tekur svolítinn tíma að átta sig á stefn- unum á borðinu,“ sagði Friðrik Ólafs- son stórmeistari þegar hann hafði kynnt sér víkingataflið. „Ég býst við að það verði að byggja upp skákfræði fyrir víkingaskákina frá grunni. Þó eru ýmsar meginreglur sem halda sér, eins og að hafa sterkt miðborð, að koma mönnun- um fljótt fram og veikja ekki kóngs- stöðuna, en aðferðin til þess að gera það er allt öðruvísi í víkingaskák.“ Vetrarfrí í Grunnskóla Djúpavogs Djúpavogi - Vetrarfrí nemenda og kennara í Grunnskólanum á Djúpa- vogi hófst föstudaginn 12 febrúar. Er þetta í annað sinn sem slíkt frí er tekið í skólanum og er Grunn- skóli Djúpavogs jafnframt eini skól- inn á landinu svo vitað sé, sem hefur komið á þessum sið. í fyrravetur var þessi nýbreytni tekin upp og þótti takast ágætlega. Auk þess að taka sér aukafrí til að safna kröftum fyrir framhaldið og fá með því móti óþreyttari kennara og nemendur er megintilgangur frísins þó að á hlýrri árstímanum, með svokölluðum „Vordögum“ megi nemendur verða sér betur meðvit- andi um það umhverfi sem þeir al- ast upp í, læri að meta fjölbreytta og einstaka náttúru en jafnframt að kynnast öðrum hliðum mannlífsins í stai'fi og leik. Má þar meðal annars nefna að oft hefur þótt vanta verklega þáttinn inní líffræðinámið og var því meðal Morgunblaðið/Sverrir UNGLINGAR fyrir utan félagsmiðstöðina á Djúpavogi. annars breytt með vinnu nemenda í skólagörðum og við gróðursetning- ar. Jafnframt fengu nemendur al- hliða kynningu á sögu staðarins, at- vinnuháttum, merkum staðháttum auk safnakennslu. Einnig gafst nemendum í þéttbýlinu tækifæri til að kynnast sveitinni með dvöl og vinnu á sveitaheimili og sveitaböm- in að kynnast þéttbýlinu. Síðast en ekki síst má nefna að 9. og 10. bekk- ur sótti æfingabúðir slysavarnafé- lagsins í Hamraborg og er að því stefnt að nemendur sem útskrifast úr skólanum, hafi allir sótt þær æf- ingabúðir. Að þessu sinni lýkur fríinu í dag, miðvikudag, og hefst kennsla að nýju á morgun. Að þessu sinni var mikið um að fólk nýtti sér tækifærið til að heimsækja höfuðborgina, og kom vetrarfríið sér vel meðal ann- ars fyrir 5. flokk drengja í knatt- spyrnu hjá Umf. Neista á Djúpa- vogi en eftir að verða Austurlands- meistarar í nóvember sl. kepptu þeir á Islandsmótinu í innanhús- sknattspyrnu í Laugardalshöll um helgina. Skólastjóri Grunnskóla Djúpavogs er Freyja Friðbjarnar- dóttir. Kvað stemmur fyrir 70 árum og aftur nú Morgunblaðið/Stfiinunn Ósk Kolbeinsdóttir ÞAÐ var hópur rangæskra eldri borgara sem var samankominn m.a. til að hlýða á þau Maríu og Jón. Hvolsvelli - Hún María Jóns- dóttir frá Kirkjulæk í Fljótshlíð ferðaðist um landið sem barn og kvað stemmur með föður sínum Jóni Lárussyni og bróð- ur sínum Pálma. Þau komu víða fram, m.a. í Gamla bíói og víða á Vesturlandi. Faðir Maríu hafði af þessu nokkrar tekjur og gat með þessum hætti fjár- magnað kaup á jörð sinni Kirkjula'k. Stemmurnar voru teknar uppá stálþráð og nú 70 árum síðar leyfði María eldri borgur- um í Rangárvallasýslu að heyra þessar gömlu upptökur og kvað um leið nokkrar stemmur, nú MÆÐGININ María Jónsdóttir og Jón Ólafsson frá Kirkjulæk. með syni sínum sem einnig heitir Jón eins og afinn en er Ólafsson og býr á Kirkjulæk. María hefur undanfarið verið að kenna syni sinum stemmurn- ar og fannst þeim tilvalið að rifja upp þessa gömlu og hverf- andi hefð. Þau voru sammála um að þessi kunnátta mætti ekki glatast. Eldri borgarar í Rangár- vallasýslu koma saman einu sinni í mánuði og eldri borgar- ar á Hvolsvelli koma saman á hverjum fimmtudegi og spila og skemmta sér. Það var gerð- ur góður rómur að þessari óvenjulegu uppákomu hjá eldri borgurum og minnti þetta marga á löngu liðna tíma. . . ... .. ; : - OTRULE Flísar frá kr. HEFST A MORGUN 990. M2 cféfn UÐ b traust undirstaðafjölskyldunnar BORGARTÚNI33 SÍMI 561-7800 - FAX 561-7802

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.