Morgunblaðið - 17.02.1999, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999 17
ATVINNUMÁL Á SUÐURFJÖRÐUM AUSTFJARÐA
Látið verði reyna á loforðin
„Mér finnst að nota þurfi tímann til að
kanna alla kosti í stöðunni, ekki einblína á
eina leið og þurfa svo að byrja upp á nýtt eftir
nokkra mánuði ef hún reynist ekki fær,“ segir
Hákon. Hann lýsir þeirri skoðun sinni að
hreppsnefndin hefði strax og mál þetta kom
upp átt að láta reyna á þau loforð sem gefin
voru þegar Búlandstindur hf. á Djúpavogi
keypti Breiðdalseignir Gunnarstinds hf.
ásamt kvóta, um að haldið yi'ði uppi fullri at-
vinnu á Breiðdalsvík.
Fyrir forgöngu Byggðastofnunar og opin-
berra sjóða var ákveðið að sameina Hrað-
frystihús Stöðvarfjarðar og Hraðfrystihús
Breiðdælinga í árslok 1991 undir nafni Gunn-
arstinds hf. sem ski-áð var á Stöðvarfirði.
Nýja félagið var með ágæta eigna- og kvóta-
stöðu og átti að hafa alla burði til að spjara
sig. Sameiningin var mjög umdeild á stöðun-
um og baksamningar sem henni fylgdu gerðu
það að verkum að erfitt var að koma við nauð-
synlegri hagi'æðingu enda var félagið rekið
nánast sem tvö aðskilin fyrirtæki. Félagið
varð fyrir áföllum og deilur innan sveitarfé-
laganna og á milli þeirra um stjórnun þess og
starfsemi ieiddi að lokum til þess að ákveðið
var að skipta því aftur upp. Að frumkvæði
sveitarstjórnar Breiðdalshrepps keypti
Búlandstindur hf. á Djúpavogi Breiðdalseign-
ir Gunnarstinds ásamt helmingi kvótans en
togarinn Hafnarey SU hafði verið seldur í
burtu án kvóta. Kvótinn var færður á skip
Búlandstinds hf., Sunnutind SU. Eftir það
seldu Stöðfirðingar Snæfelli hf. á Dalvík
meirihlutann í Gunnarstindi hf. sem var sam-
einaður Snæfelli á síðasta ári.
Breiðdælingar telja að eigendur
Búlandstinds hafi gefið þeim ákveðin loforð
um að halda uppi vinnu á staðnum þegar
þessi viðskipti fóru fram. Rúnar Björgvins-
son, sveitarstjóri á Breiðdalsvík, sem tók
þátt í umræddum viðræðum, segir að fulltrú-
ar helstu eigenda Búlandstinds, það er Út-
sam (síðar íshaf) og VÍS, hafi lofað
því að haldið yrði uppi atvinnu á
Breiðdalsvík enda hefði það verið
grunnhugsunin með sameiningunni
við Djúpavog að tryggja vinnu á
báðum stöðum. Rúnar segir að um
hafi verið að ræða munnleg loforð
og eftir að Olíufélagið, sem eignast
hafði hlutabréf íshafs, og VÍS seldu
meirihlutann í félaginu hafi nýr eig-
andi ekki talið sig bundinn af fyrri
loforðum.
Gengu á bak orða sinna
í fréttum Morgunblaðsins um
kaup Búlandstinds á Breiðdalseign-
unum árið 1995 kom fram hjá Jó-
hanni Þór Halldórssyni, þáverandi
framkvæmdastjóra Búlandstinds, að
áfram yi'ði rekið frystihús á Breið-
dalsvík. „Það eru góð framleiðslu-
tæki og gott starfsfólk á Breiðdals-
vík. Við höfum hug á að nýta okkur
þetta sem allra best og reynum að
starfa sem best með þessu fólki.“ Þá
kom fram hjá Árna Benediktssyni,
þáverandi stjórnarformanni
Búlandstinds, að með kaupunum
væri ætlunin að snúa vöm í sókn í
atvinnulífinu, bæði á Djúpavogi og
Breiðdalsvík.
Jóhanni Þór var sagt upp störfum
í vetur, áður en eigendaskiptin urðu.
Hann staðfestir fyrirheit um starf-
semi fyrirtækisins á Breiðdalsvík og
segir að menn hafi gengið á bak
orða sinna með því að hætta starf-
semi þar. „Búlandstindur keypti
þessar eignir til þess að styrkja
svæðið en þá lá fyrir að Gunnars-
tindur þurfti að selja frá sér skip og
kvóta. Við litum svo á að ef illa færi
fyrir Breiðdalsvík gæti farið illa fyr-
ir Djúpavogi og kaupin myndu
styrkja Búlandstind þegar til lengri
tíma væri litið. Eg vann ávallt sam-
kvæmt þeim skilningi mínum að
þarna bæri að halda uppi vinnslu, á
meðan nokkur möguleiki væri til
þess,“ segir Jóhann Þór. Þessu til
frekari staðfestingar getur hann
þess að í júlí síðastliðnum hafi stjórn
Búlandstinds samþykkt stefnu-
mörkun þar sem fram kemur að
vinnslan á Breiðdalsvík yrði styrkt
•og aukin og keypt skip til hráefnis-
öflunar. í þessu skyni hafi togskipið
Mánatindur verið keypt með kvóta.
Arni Benediktsson var fulltrúi Is-
hafs í fyrirtækjunum fyrir austan,
stjórnarformaður Búlandstinds og
stjórnai-maður í Gunnarstindi. Hann
segir að við sameininguna á sínum
tíma hafi verið gengið eftir loforðum
við sig en hann ávallt neitað því að
lofa meiru en hann gæti staðið við.
Ef ætlunin hefði verið að gefa yfir-
Rúnar
Björgvinsson
Hákon
Hansson
Gunnlaugur
Stefánsson
Skúli
Hannesson
Jóhann Þór
Halldórsson
Árni
Benediktsson
Ólafur
Ragnarsson
Pétur H.
Pálsson
lýsingar í tengslum við kaupin hefðu þær
verið gerðar skriflega. Hann segir það hins
vegar rétt að Breiðdalshluti Gunnarstinds
hafi verið sameinaður Búlandstindi til þess
að tryggja vinnu á Breiðdalsvík og frekar
auka hana en hitt. Þáverandi stjórnendur
félagsins hafi unnið að því. Hann bætir því
við að ekki sé hægt að lofa slíku til langrar
framtíðar og þeir sem á eftir hafi komið
séu ekki bundnir af fyrri áætlunum.
Engir baksamningar gerðir
Olafur Ragnarsson, sveitarstjóri á Djúpa-
vogi, segir það af og frá að Breiðdælingum
hafi verið gefin einhver loforð árið 1995.
Hreppsnefndin á Breiðdal hafi óskað eftir því
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
EINAR Birgisson, framleiðslustjóri hjá Útgerðarfé-
lagi Breiðdælinga hf.
PISKVERKAKONUR, f.v. Una Einarsdóttir, Hanna
Ingólfsdóttir og Ragnheiður Arna Höskuldsdóttir.
„FÓLK er fúlt út í kvótakerfíð.
Það hefur byggt afkomu sína á
rekstri frystihússins, sumt í tugi
ára, og stendur nú allt í einu
frammi fyrir þeirri staðreynd að
það hefur ekki lengur rétt til að
Íifa,“ sagði Einar Birgisson,
framleiðslustjóri hjá Útgerðarfé-
Iagi Breiðdælinga hf. (UBB), í
samtali við Morgunblaðið.
Einar hefur verið verkstjóri og
framleiðslustjóri í frystihúsinu á
Breiðdalsvík í mörg ár, fyrst hjá
Hraðfrystihúsi Breiðdælinga, þá
Gunnarstindi, Búlandstindi og nú
ÚBB og hefur því verið í hring-
iðu sviptinganna allan þennan
áratug. „Þetta leggst illa í mig.
Ástandið hefur verið dökkt áður
en aldrei sem nú. Þetta ferli
hófst þegar framkvæmdastjóran-
um var sagt upp. Jóhann Þór er
maður sem hægt er að treysta og
maður gat séð að hverju stefndi
þegar hann var látinn fara,“
sagði Einar.
Einar hefur ekki ákveðið hvort
liann tekur þátt í íjármögnun
ÚBB með kaupum á hlutabréf-
um. Sagðist gera það ef grund-
völlur reynist fyrir rekstri fyrir-
tækisins. Hins vegar taldi hann
óhugsandi að leggja fjármuni í
óhagkvæman rekstur, eingöngu
til að kaupa sér vinnu. Taldi
raunar að hlutafjárkaup íbúanna
skiptu litlu máli f jafn stóru dæmi
og hér um ræðir.
Liðlega fjörutíu starfsmenn
eru í frystihúsi Útgerðarfélags
Breiðdælinga, þar af sjö pólskar
Kvóta-
kerfið er
undirrót
vandans
fiskverkakonur. Áherslum í
starfseminni hefur verið breytt
nokkuð. Meðal annars hafa verið
gerðar tilraunir með vinnslu
fisks sem fluttur er ferskur með
flugi á erlenda markaði og sagði
Einar að það hefði gengið vel.
Nægilegt hráefni hefur fengist,
með bráðabirgðasamningi við
Búlandstind á Djúpavogi. Síðan
var ætlunin að frysta loðnu í
febrúar en þegar blaðamenn
voru á ferð á Breiðdalsvík var
ekki ljóst hvort loðnan yrði fryst-
ingarhæf.
Kaupa hlutabréf
„Þetta er afskaplega óljóst,
enginn veit hver framtíðin verð-
ur,“ sagði Una Einarsdóttir, fisk-
verkakona hjá Útgerðarfélagi
Breiðdælinga, þegar blaðamaður
ræddi við starfsfólk í frystihús-
inu. Ragnheiður Arna Höskulds-
dóttir gæðaeftirlitsmaður taldi
að rekstur frystihússins ætti að
ganga ef nægur kvóti fengist til
ráðstöfunar. „Ef ekki væri þetta
kvótakerfi sem er að drepa smá-
staðina þá gæti þetta gengið,"
sagði Ragnheiður og Una bætti
um betur: „Að það skuli vera
hægt að fara með kvótann frá
þessum stöðum og þurrka þar
með út fiskveiðiréttindin..."
Hanna Ingólfsdóttir, sljórnar-
maður í Verkalýðs- og sjómanna-
félagi Breiðdælinga, bættist í
hópinn og sagði: „Kvótakerfið er
undirrót vandræðanna. Það er
fáránlegt að kvótinn skuli fylgja
skipum en ekki byggðarlögum.
Við höfum tekið þátt í því að afla
þessa kvóta og svo getur einhver
komið og selt hann í burtu.
Vandamálin byijuðu með kvóta-
kerfinu. Þeir sem eiga peningana
kaupa kvótann og flylja frá
minni stöðunum.“
Una sagðist harðákveðin í að
kaupa hlutabréf í ÚBB og hefur
þegar skrifað sig fyrir ákveðnum
hlut. Hanna reiknaði með að
gera það einnig. „Við verðum
einfaldlega að veðsetja húsin
okkar, þau eru verðlaus hvort
sem er,“ sagði hún. Ragnheiður
kvaðst vilja bíða með ákvörðun
sína eftir rekstraráætlun fyrir-
tækisins. Hún er varafulltrúi í
hreppsnefnd og sagði lítið hægt
að gera án peninga annað en að
leita sanistarfs við aðra. Hún
sagði gott ef unnt yrði að fá til
samstarfs útgerð með bát og
kvóta. Hægt væri að bjóða upp á
góða aðstöðu til beitningar og
staðurinn lægi vel við miðunum.
að Búlandstindur keypti eignir Gunnarstinds
en hreppsnefnd Djúpavogshrepps lagst gegn
því í fyrstu, enda hefði fyrirtækið og staðurinn
verið að koma upp úr mikilli lægð. Breiðdæl-
ingar hafi sótt málið fast og síðan hafi Djúpa-
vogshreppur eins og aðrir hluthafar lagt aukið
hlutafé í Búlandstind til að fyrirtækið gæti
staðið undir kaupunum. Kveðst hann ekki vita
til þess að Breiðdalshreppur hefði lagt neitt af
mörkum, raunar selt sín hlutabréf í
Búlandstindi, og ekki hafi verið ágreiningur
um verðlagningu eignanna þegar kaupin fóru
fram. „Ég tel að Breiðdalsvík hafi ekki tapað á
viðskiptunum við okkur."
„Það var skýrt tekið fram að engir bak-
samningar yrðu gerðir við Breiðdælinga. Ekki
er hægt að reka fyrirtæki með þannig skuld-
bindingum því stundum þarf að grípa til sárs-
aukafullra og óvinsælla aðgerða. Þrátt fyrir
það hélt Búlandstindur alltaf uppi meiri vinnu
í frystihúsinu á Breiðdalsvík en hér á Djúpa-
vogi,“ segir Olafur.
Pétur H. Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis,
segir engin skilyrði um rekstur á Breiðdalsvík
hafa fylgt kaupum fyrirtækisins á hlutabréf-
um Olíufélagsins og VÍS í Búlandstindi. Ekki
hafi annað gerst en að eigandi meirihlutans
væri nú í Grindavík en ekki Reykjavík.
Pétur segir að mikið tap hafi verið á rekstri
Búlandstinds og kvóti fyrirtækisins aðeins
dugað fyi'ir eina fiskverkun en ekki þrjár. Því
hafi verið ákveðið að hætta fiskvinnslu á
Breiðdalsvík og sjófrystingu og leggja áherslu
á vinnslu á Djúpavogi. Pétur getur þess þó að
seljendur og kaupendur hlutabréfanna vilji
stuðla að því að koma einhverjum rekstri af
stað á Breiðdalsvík og að því sé unnið. Segir
hann fleiri en eina leið færa í því efni.
Engin ölmusa
Hákon dýralæknir segir það alvariegt ef
fyrirheit eigenda Búlandstinds séu hvergi til
skrifleg. Hann vill þó að hreppsnefndin ráði
lögfræðing til að innheimta loforðin. Hann
leggur áherslu á að Breiðdælingar
hafi ekki þegið neina ölmusu frá
Djúpavogi. Búlandstindur hafi keypt
eignimar á 260 milljónir kr. á sínum
tíma, í þeim pakka hafi verið allar
landeignir Gunnarstinds á Breið-
dalsvík og kvóti upp á 1.476
þorskígildistonn, þar af 542 tonn
þorskur. Síðan hafi heildarþorsk-
kvótinn aukist en kvóti annarra teg-
unda minnkað þannig að kvótinn
nemi í dag 1.657 þorskígildistonnum.
Telur Hákon að markaðsverð kvót-
ans sé í dag nokkuð á annan milljarð.
Nú standi Breiðdælingum til boða að
kaupa til baka brot af þessum afla-
heimildum með óhagstæðri samsetn-
ingu og togbát sem þeir hefðu ekkert
við að gera iyrh' 380 milljónir kr. og
landeignirnar fyrir 70 milljónir kr. til
viðbótar. „Þetta kalla ég eignaupp-
töku,“ segir Hákon.
Rúnar Björgvinsson sveitarstjóri
segir að ekki hafi verið rætt í
hreppsnefndinni að reyna að inn-
heimta loforð Búlandstinds. Hann
segir fyi'sta skrefið vera að ræða við
þessa aðila, áður en farið sé af stað
með mikla kröfuhörku. Segist hann
hafa rætt málið við umboðsmann
VÍS á Austurlandi en árangur af því
hafi ekki enn komið í ljós. „En
reynslan annars staðar frá hefur
kennt manni það að ákveðin fyrir-
heit sem gefin eru við sameiningu
fyrirtækja hafa ekki alltaf mikið
gildi þegar á reynir," segir hann.
Áfram óvissa
Eins og staðan er nú virðist margt
þurfa að ganga upp til þess að
hreppsnefnd Breiðdalshrepps, sem
jafnframt er stjórn Utgerðarfélags
Breiðdælinga hf., geti staðið við
kauptilboð sitt. Aðrar leiðir virðast
heldur ekki greiðar, enda ráða
Breiðdælingar ekki yfir því afli sem
til þarf, það er að segja peningum
eða kvóta. Samvinna við öflugar út-
gerðir gæti þó breytt gangi mála
verulega. Ekki virðist mikill áhugi á
því að innheimta munnleg fyi-irheit
fyrri eigenda Búlandstinds um að
halda uppi vinnu á staðnum, auk
þess sem sú innheimta gæti reynst
afar torsótt.
Það gæti því ráðist af þeim við-
ræðum sem nú standa yfir við út-
gerðarmenn um samvinnu hvort
óvissan sem einkennt hefur lífið á
Breiðdalsvík undanfarnar vikur
heldur áfram eftir 1. mars þegai' til-
boðið rennur út og jafnframt samn-
ingur Utgerðarfélags Breiðdælinga
um kaup á hráefni frá Djúpavogi.
Á morgun: „Brestir í fjöregginu".