Morgunblaðið - 17.02.1999, Side 18

Morgunblaðið - 17.02.1999, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Með samningnum við Ericsson hafa forsvarsmenn Oz stigið stórt skref í átt að markmiðum sínum um stóra hlutdeild á Internetmarkaði Sjá fram á að margfalda veltu á næstu árum OZ Úr rekstri 1996-1999 Aðalfimdur Skýrr hf. verður haldinn að Hótel Lofdeiðum - Þingsal 1 fimmtudaginn 25. febrúar nk. kl. 17:15. Davskrá fundarins verður sem hér segir: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 4.05 gr. samþykkta félagsins. 2. Tillögur: Breytingar á samþykktum félagsins til samræmis við upptöku rafrænnar skráningar hlutabréfa. 3. Onnur mál, löglega upp borin. Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað. Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð, verða að gera það skriflega. Stjóm Skýrr hf. Ljóst er að samningur Oz og Ericsson mun hafa í för með sér mikil umskipti á allri starf- semi hugbúnaðarfyrir- tækisins. Elmar Gísla- son ræddi við forsvars- menn og meirihlutaeig- endur Oz, þá Guðjón Má Guðjónsson og Skúla Mogensen, um breytingarnar og hvernig brugðist verður við vaxandi umsvifum. Finance, Sumimoto og Panasonic, auk nokkurra fjársterkra einstak- linga þar sem frægastan skal telja heimshornaflakkarann Jim Rogers. Nú fjórum árum síðar virðast há- leit markmið forsvarsmanna Oz vera farin að skila sér, enda félagið komið í samstarf með einu stærsta fjar- skiptafyrirtæki í heimi, Ericsson. Þrátt fyrh- að Oz eigi þegar í sam- starfi við önnur stór fyrirtæki, líkt og Microsoft og Intel, er umfang þeirra samninga ekkert í líkingu við þann samstarfssamning sem fyrirtækið undii-ritaði við Ericsson, en andvirði hans er talið nema um einum millj- arði íslenskra króna, að undanskild- um öllum söluhagnaði sem sameigin- legar afurðir félaganna munu skila í framtíðinni. Fyrirtækið kemur engu að síður að fjölmörgum öðrum verk- efnum og má þar t.a.m. nefna nýja þrívíddarlausn sem Oz hefur hannað í samvinnu við Intel og kynnt verður í Bandaríkjunum í dag. SAMSTARFSSAMNINGUR sá sem fyrirtækið Oz undirritaði við sænska símarisann Erics- son á dögunum markar ákveðin tímamót meðal íslenskra hugbúnað- arfyrirtækja í ljósi þess að um er að ræða stærsta og umfangsmesta verkefni sem íslenskir aðilar í þess- um geira hafa tekist á við. Vöxtur fyrirtækisins kemur kannski ekki svo mjög á óvart ef litið er til þeirra markmiða sem þar ráða ríkjum. Frá þvi að forsvarsmenn félagsins breyttu áherslum sínum og stofnuðu nýtt móðurfélag í Bandaríkjunum árið 1995 hefur starfsemin að mestu snúist um að hasla sér völl á hinum ört vaxandi Netmarkaði. Þá þegar var mönnum ljóst að áður en hægt yrði að fara með samkeppnishæfa söluvöru á markað þyrfti að fara fram mjög umfangsmikið rannsókn- ar- og þróunarstarf. Það var jafn- framt vitað að sú vinna yrði afar tímafrek og kostnaðarsöm og ljóst að það áhættufjármagn sem þyrfti til að fleyta fyrirtækinu í gegnum fyrstu „tekjulausu" árin væri ekki að finna á íslandi. Því var brugðið á það ráð að stofna nýtt móðurfélag vest- anhafs sem hlaut nafnið Oz.COM. Fyrirtækinu gekk vel að selja er- lendum fjárfestum hugmyndir sínar og fékk fljótlega til liðs við sig öflug félög eins og Nippon Investment and Morgunblaðið/Ásdís FORSPRAKKAR Oz, þeir Guðjón Már Guðjónsson stjórnarformaður t.v. og Skúli Mogensen forstjóri, segja ljóst að samningurinn við sænska símarisann Ericsson muni valda umskiptum í rekstri félagsins. Stærstu hluthafar Oz eru sem fyrr þeir Guðjón Már Guðjónsson og Skúli Mogensen, sem eiga rúman helming hlutafjár. Um 10% eru í eigu starfsmanna, íslenskir fjáifestar eiga 7,5% en afgangurinn er í höndum hinna erlendu fjárfesta sem nefndir eru að ofan. A aðalfundi móðurfélagsins í gær, sem fór í fyrsta sinn fram á íslandi, var ársreikningur félagsins kynntur, auk þess sem m.a. var greint frá eðli og umfangi nýrra verkefna í Svíþjóð. Eins og sjá má á meðfylgjandi töflu hefur félagið verið rekið með tapi fram til þessa en í rekstraráætlunum þessa árs er gert ráð fyrir hagnaði í fyrsta sinn. Skúli leggur þó áherslu á að næstu tvö árin verði meg- ináhersla lögð á að stækka sem mest og tryggja fyrir- tækinu sem stærsta hlutdeild á Internetmarkaðinum. „Líkt og gildir um allar nýjungar á örasti vöxturinn sér stað í upphafi á meðan hlutirnir eru í mótun, en síðan hægir á. Internetmarkaðurinn er í slíkum fasa um þessar mundir og því mikilvægt að okkar mati að tryggja Oz sem stærsta hlutdeild strax í upp- hafi, því eftir því sem frá líður verður erfiðara og kostnaðarsamara fyrir nýja aðila að koma inn á þennan markað. Það er hins vegar erfitt að vaxa og hagnast á sama tíma. Við sjá- um fram á að tvöfalda veltuna árlega næstu þrjú árin, en eigum allt eins von á að sjá taprekstur í tvö ár til við- bótar, áður en dæmið fer að snúast við.“ Samningurinn tvíþættur Samningurinn við Ericsson á sér langan aðdraganda. Að sögn Guð- jóns fóru menn fyrst að tala saman árið 1997 og allt síðasta ár fóru fram stöðugar samningaviðræður á milli fyi-ii-tækjanna áður en gengið var frá formlegu samkomulagi á dögunum. Hann segir að samningnum megi skipta í tvennt. Annars vegar er um að ræða almennan samstarfssamn- ing „General agreement", sem segja má að sé nokkurs konar rammi sem hafður er til grundvallar þegar fyrirtækin semja um tiltekin verkefni, „Specific agreements“. Þau geta hins vegar verið fjölmörg og af ýmsu tagi. Þegar hefur verið gengið frá einum slíkum verkefnasamningi sem kynntur verður í apríl auk þess sem fleiri eru í bígerð, sem skýrist vænt- anlega síðai’ á þessu ári. Nú þegar starfa um 50 manns við þróun samskiptakerfisins sem félög- in vinna að í sameiningu í Stokk- hólmi. Þar af eru 25 á vegum Oz en að óbreyttu mun sú tala hækka um- talsvert í nónustu framtíð. Guðjón segir Ijóst að miklum og hröðum vexti, líkt og Oz er að ganga í gegnum, fylgi eðlilega ákveðin vanda- mól en þau séu jákvæð og skemmti- leg viðfangs. Þegar þeir félagar fóru af stað fyrir níu árum fór reksturinn Mikilvægt að Oz haldi sjálf- stæði 10.000 TEKJUR: (þús. dollara 4.133 9.440 228 1996 1997 1998 1999 Sundurllðun gjalda (%) GJÖLD: í þús. dollara 5.733 5.699 3.313 Q 1996 1997 1998 1999 Þróun oq rannsóknir 50,4 29,0 42,8 54,8 Sala oq markaðsstarf 17,9 17,5 21,4 17,9 Almennt oq stjórnun 31,7 53,4 35,8 27,3 SAMTALS 100,0 100,0 100,0 100,0 HAGNAÐUR (TAP): í þús. dollara 1996 1997 1998 |-1.736 ’3'142 R 459 1999 -4.792 fram í einu herbergi við Brautarholt 8.1 dag fer starfsemin fram í fyrrver- andi húsnæði Osta- og smjörsölunnar á Snorrabraut 54, auk þess sem fyrir- tækið á hluta af nálægri byggingu. Plássið er engu að síður af skomum skammti og útlit fyrir að gn'pa þurfi tii einhverra ráðstafana í þeim efnum þegar á þessu ári. „Við eigum frekari byggingarrétt hér á lóðinni við Snorrabraut sem hugsanlega verður nýttur. Þó er spuming hversu mikið fyrirtækið getur vaxið hér á landi í framtíðinni. Við störfum í fagi þar sem mikil samkeppni ríkir um hæft starfsfólk og alls ekki víst að markað- urinn hér heima dugi til að mæta þörfum okkar. Annar mögulegur kostur væri að nýta frekar þá aðstöðu sem við búum við í Bandaríkjunum og Svíþjóð. Þó ber að leggja á það áherslu að óháð því hvaða leið verður farin mun fyrirtækið ávallt eiga ræL ur sínar á Islandi.“ Leggja áherslu á heildarlausnir Þó að Ericsson eigi uppruna að rekja til Svíþjóðar hefur fyrirtækið fyrir löngu skipað sér sess á meðal stærstu aðila í veröldinni á sínu sviði. Félagið er með starfsemi í 134 lönd- um og hjá því starfa alls um 100 þús- und manns. Að sögn Skúla leggur Ericsson mikla áherslu á heildarlausnir fyrii' viðskiptavini sína og til að mæta þeim kröfum hefur félagið fengið til liðs við sig fjölda samstarfsaðila líkt og Oz. Hann neitar því ekki að í samningaviðræðunum hafi komið til tals að Ericsson keypti Oz en segir að báðir aðilar hafi orðið ásáttir um að slík ráðstöfun væri óheppilegur kostur fyrh’ bæði fyrirtækin. „Þeirra fjárfesting snýst aðallega um að fá til liðs við sig smærri aðila sem eru í nánari tengslum við markaðinn en þeim er mögulegt vegna stærðar sinnar. Við vinnum á öðrum hraða, höfum aðra hugsun og sjáum veruleikann í allt öðru ljósi en þeir. Forsvarsmenn Ericsson gera sér grein fyrir þeim samruna sem er að eiga sér stað á milli Inter- netsins og símatækninnar og ætla sér hlutdeild á þeim vettvangi. Þeir hrifust af þeim Netlausnum sem við höfum þróað og leituðu til okkar um samstarf. Ein grundvallarforsendan fyrir því að samningurinn skili þeim tilætluðum árangri byggist þar af leiðandi á því að Oz haldi sjálfstæði sínu og eigi áfram í samstarfi við aðra aðila. Það kemur í veg fyrir stöðnun og tryggir að fyrirtækið haldi áfram að þroskast, sem er ekki síður þefrra hagur en okkar," að sögn Skúla. Gæti komið til skráningar á árinu Eftir að greint var frá samstarfinu við Ericsson hafa margir velt því fyr- ir sér hvort því verði fylgt eftir með skráningu móðurfélagsins á markað í Bandaríkjunum. Skúli segir að það hafi verið yfirlýst stefna frá upphafi að sækja um skráningu þar vestra. Hvenær af því verður sé þó að stór- um hluta undir markaðnum komið. „Eins og staðan er í dag stefnum við ótrauðir á skráningu á Nasdaq síðar á þessu ári, enda er Oz komið mun lengra á veg en mörg þau fyrirtæki sem þegar hafa hlotið skráningu. Það sem skiptfr okkur hins vegar mestu máli í dag er að styrkja stoðir félagsins og gera því kleift að mæta þeim vexti sem við blasir. Við höfum t.d. fengið bandaríska frumkvöðulinn dr. Edward Tuck til liðs við okkur og tók hann formlega sæti í stjórn fé- lagsins í gær. Hann var einn af stofnendum Tele Desic á sínum tíma og er okkur mikill liðsstyrkur líkt og Daninn Hans Hansson, sem stýrir starfsemi okkar í Svíþjóð, en hann er fyrrverandi forstöðumaður þróunar- sviðs hjá Nokia. Þá stendur til að taka inn tvo nýja menn til viðbótar í stjórn félagsins sem greint verður frá á næstunni." Þrátt fyrir að meginverkefnin sem framundan eru séu aðallega á er- lendum vettvangi binda þeir vonir við að geta aukið umsvif sín hér inn- anlands í framtíðinni. Þeir segja Is- land spennandi tilraunamai’kað að ýmsu leyti og vísa þar til mikillar tölvu- og símnotkunar landsmanna samfara almennt góðri tölvuþekk- ingu, sem gæti komið fyrirtækjum til góða við þróun og smíði hugbúnaðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.