Morgunblaðið - 17.02.1999, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999 19
S
Hagnaður Búnaðarbanka Islands hf. 649 milljónir að teknu tilliti til skatta
Gengishagnaður hækk-
aði um 110% milli ára
Búnaóarbanki Islai ndsi 'íj
IpUi íHiíhi viixi im Úr reikningum 1998 Ivllll llUvj
Úrrekstrí 1998 1997 Breyting
Vaxtatekjur Milljónir króna 6.578 5.683 +16%
Vaxtagjöld 3.669 3.003 +22%
Hreinar vaxtatekjur 2.909 2.680 +9%
Aðrar rekstrartekjur 2.030 1.460 +39%
Hreinar rekstrartekjur 4.939 4.140 +19%
Önnur rekstrargjöld 3.385 2.955 +15%
Framlög í afskriftareikning 678 399 +70%
Hagnaður fyrir skatta 876 786 +11%
Skattar 227 246 ■8%
Hagnaður tímabilsins 649 137 +374%
Efnahagsreikn. 3i.des. 1998 1997 Breyting
| Elgnlr: Milljónir króna
Sjóður, ríkisvíxl. og kröfur á lánast. 6.623 8.006 ■17%
Útlán 64.383 48.578 +33%
Markaðsverðbréf og eignarhl. í fél. 14.138 7.646 +85%
Aðrar eignir 3.393 3.137 +8%
Eignir alls 88.537 67.367 +31%
Skuldlr og eigið fé:
Skuldir við lánastofnanir 5.810 3.770 +54%
Innlán 45.779 40.424 +13%
Lántaka 28.786 17.217 +67%
Aðrar skuldir 924 1.225 ■25%
Reiknaðar skuldbindingar 333 324 +3%
Eigið fé 6.138 4.407 +39%
Skuldir og eigið fé samtals 88.537 67.367 +31%
HAGNAÐUR Búnaðarbanka ís-
lands á árinu 1998 var 876 milljónir
króna fyrir skatta, en að teknu til-
liti til skatta var hagnaðurinn 649
milljónir. Gengishagnaður bankans
var 685 milljónir króna og hækkaði
hann um 110% milli ára.
Arið 1997 var hagnaður bankans
af reglulegri starfsemi 540 milljónir
króna eftir skatta. Hagnaður bank-
ans á síðasta ári varð um 10% meiri
en áætlað var þegar hlutafjárútboð
í bankanum fór fram í desember
síðastliðnum, og að sögn Stefáns
Pálssonar bankastjóra stafar það af
meiri umsvifum í verðbréfavið-
skiptum í desember en gert hafði
verið ráð fyrir.
Aukning hagnaðar bankans eftir
skatta varð 20% milli ára og raun-
arðsemi eigin fjár 19,6%, en 14,6%
að teknu tilliti til reiknaðs tekju-
skatts. Hreinar vaxtatekjur voru
2.909 milljónir króna og hækkuðu
þær um 9% milli ára. Vaxtamunur,
þ.e. vaxtatekjur að frádregnum
vaxtagjöldum í hlutfalli af meðal-
stöðu heildarfjármagns, lækkaði
töluvert og var 3,73% til saman-
burðar við 4,41% á árinu 1997. Aðr-
ar rekstrartekjur námu 2.030 millj-
ónum króna og hækkuðu um 570
milljónir króna milli ára, eða 39%.
Aukning varð á öllum helstu
tekjustofnum Búnaðarbankans en
mestu munar um 359 milljóna króna
hækkun á gengishagnaði sem var
685 milljónir króna, til samanburðar
við 326 milljónir árið 1997. Hreinar
rekstrartekjur bankans voru 4.939
milljónir króna og jukust þær um
799 milljónir króna, eða rúm 19%.
Rekstrargjöld hækkuðu hlutfalls-
lega minna, eða um tæp 15%, og
námu alls 3.385 milljónum króna, til
samanburðar við 2.955 milljónir
króna árið áður. Rekstrarkostnaður
sem hlutfall af tekjum lækkaði því
nokkuð milli ára og var 68,5% af
tekjum til samanburðar við 72,5% af
tekjum árið 1997.
Framlög bankans á afskrifta-
reikning útlána hækkuðu milli ára,
og alls voru færðar 678 milljónir
króna á afskriftareikning útlána,
þar af 137 milljónir sem almennt
varúðarframlag vegna mikillar
stækkunar bankans. Sem hlutfall af
meðalstöðu efnahagsreiknings var
framlagið 0,87%.
Stækkun um 40,4 milljarða
á þremur árum
Niðurstöðutala efnahagsreikn-
ings Búnaðarbankans var 88,5
milljarðar en var 67,4 milljarðar í
árslok 1997. Þetta er 31% stækkun
og hefur heildarfjármagn bankans
þá aukist um 84% á síðustu þrem-
ur árum, eða um 40,4 milljarða
króna.
Útlán bankans í árslok 1998
voru 64,4 milljarðar og hækkuðu
um 15,8 milljarða á árinu, eða
33%, og hafa þá aukist um 30,2
milljarða á þremur árum. Hlut-
fallslega varð mesta aukningin á
árinu í erlendum endurlánum, en
þau jukust um 7,5 milljarða, eða
75%. Hlutdeild bankans í útlánum
banka og sparisjóða var rúm 20% í
árslok 1998.
Innlán að meðtalinni verðbréfa-
útgáfu í árslok 1998 voru 51,9 millj-
arðar króna og hækkuðu um rúm
16% á árinu. Veruleg aukning varð
einnig á erlendum lántökum bank-
ans, sem jukust um 9,2 milljarða á
árinu og voru 22,6 milljarðar í árs-
lok. Hlutdeild Búnaðarbankans í
heildarinnistæðum banka og spari-
sjóða var samkvæmt bráðabirgða-
tölum 21% í árslok 1998.
Eigið fé Búnaðarbankans í árslok
nam 6.138 milljónum króna og jókst
það um 1.731 milljón á árinu, eða
um 39%. Hlutafé bankans í ársbyrj-
un var 3.500 milljónir króna, en á
síðari árshelmingi var hlutafé
bankans aukið um 600 milljónir
króna nafnverðs og var 4.100 millj-
ónir króna í árslok. A árinu gaf
bankinn út víkjandi lán til að
styrkja enn frekar eiginfjárhlutfall
sitt og stóð það lán í 767 milljónum
króna um áramót. Samkvæmt
CAD-reglum var eiginfjárhlutfall
bankans 9,2% í árslok.
Sterk alhliða stofnun
Stefán Pálsson, bankastjóri Bún-
aðarbankans, sagði í samtali við
Morgunblaðið að mikil aukning
hefði verið í starfsemi bankans á
verðbréfasviðinu en vegna þeirrar
starfsemi hefði einnig orðið aukn-
ing í starfsmannahaldinu.
„Það er kannstd svolítið erfitt að
draga einn þátt út úr og segja að
verðbréfin skili meirihluta hagnaðar-
ins ef allur kostnaður á bankanum er
skilinn eftir, því auðvitað kostar
þetta dýran mannskap. Mín niður-
staða er að bankinn spili mjög vel
saman núna og að við séum mjög
sterk alhliða stoíhun," sagði Stefán.
„Út af fyrir sig gefa hefðbundin
sparisjóðsviðskipti, tékkaviðskipti og
annað slíkt ekkert af sér og reyndar
er gott ef það sleppur. Þetta er
mannfrekt og það má segja að öll
bankastarfsemi hafi breyst mjög
mikið á síðustu fimm árum og við
sjáum að allir bankamir hafa dregið
inn til sín verðbréfaviðskiptin."
Umhverfí bankanna í
mjög góðu lagi
Albert Jónsson, forstöðumaður
verðbréfamiðlunar Fjárvangs,
sagði að ef horft væri á afkomu
Búnaðarbankans miðað við árið áð-
ur væri um verulegan bata að ræða
og ekki hægt að segja annað en að
bankinn væri að gera mjög góða
hluti. Ef mið væri tekið af afkomu
Islandsbanka væri afkoman hins
vegar ívið lakari.
„Tekjurnar sem Islandsbanki
hafði voru mikið til vegna markaðs-
verðbréfa og gjaldeyris og síðan
var góður hagnaður vegna Glitnis
og VIB, en hagnaðurinn af reglu-
legri starfsemi var ekkert sérstak-
ur. Hjá Búnaðarbankanum kemur
fram að aukning varð á öllum
helstu tekjustofnum, en mestu
munaði um 359 milljóna króna
hækkun á gengishagnaði. Það sem
virðist skýra þetta að verulegu leyti
virðist því vera umtalsverð aukning
á hagnaði vegna markaðsverðbréfa
og þá eru menn að horfa á lækkun
vaxta á langtímabréfum. Það má
kannski segja það almennt um
bankana að það vaxtaumhverfi sem
við upplifðum í fyrra þar sem vextir
lækkuðu verulega hefur leitt til
þess að bankarnir högnuðust mjög
vel,“ sagði Albert.
„Það virðist ekki vera mikill
hagnaður af hefðbundinni banka-
starfsemi heldur er þetta fyrst og
fremst af starfseminni með mark-
aðsVerðbréf og gjaldeyri sem er að
skila þeim verulegum hagnaði á síð-
asta ári. Þá velta menn fyrir sér
hvernig verður með þetta ár og það
bendir margt til þess að vextirnir
geti lækkað enn frekar á þessu ári
og það ætti að geta komið bönkun-
um til góða. Umhverfi þeirra virðist
því vera í mjög góðu lagi,“ segir Al-
bert Jónsson.
Lítil viðskipti voru með hlutabréf
í Búnaðarbankanum á Verðbréfa-
þingi Islands í gær, eða íyrir tæp-
lega 1,6 milljónir króna, og lækkaði
gengi þeirra um 4,32%.
• Ljósmyndataka í bobi Hans Petersen
hefst kl. 10.30 fyrir heppna krakka
• Kringlan býóur krökkum að sjó Mulan
í Kringlubíó kl. 13.00 * fyrstir koma fyrstir fó
• Andlitsmólun í göngugötunni fró 11.00-13.30
• ...og hver veit nema hressir og góöir krakkar
fói góðgæti
ÖSKUFJÖR
fyrir alla krakka
Opiö: mán,- fim. 10.00 - 18.30
fös. 10.00-19.00
lau. 10.00- 18.00
Þar sem þú vitt vera