Morgunblaðið - 17.02.1999, Page 22

Morgunblaðið - 17.02.1999, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ • • Abdullah Ocalan, skæruliðaforingi Kúrda, kominn bak við lás og Mörg’um spurningum ósvarað um tildrög framsalsins Tyrkir eru loks búnir að koma höndum ----------n----- yfír Kúrdaleiðtogann Abdullah Ocalan, sem þeir segja bera ábyrgð á fjölda ódæð- -------7---——---------------- isverka. Oljóst er hins vegar enn, segir Davíð Logi Sigurðsson, hver voru tildrög þess að Tyrkir höfðu hendur --------------——-—----------- í hári Ocalans. FLÓTTALEIÐ ÖCALANS Foringi Verkamannaflokks Kúrdistan (PKK), Abdullah Öcalan sem framseldur var til Tyrklands, hefur verið á flótta í fjóra mánuði I leit að hæli í Evrópu Abdullah Öcalan Foringi PKK sem barist hefur fyrir aðskilnaði Kúrdistan frá Tyrklandi i 14 ár © 19. október 1998 Öcalan staðfestir að hann hafi flúið frá Damaskus í Sýrlandi vegna þrýstings Tyrkja á þarlend stjórnvöld © 20. október Tyrknesk stjórnvöld segja Öcalan i Rússlandi 5. nóvember Rússnesk stjórnvöld neita þvi að Öcalan sé þar í landi og segjast ekki munu veita honum hæli © 12. nóvember Handtekinn á flugvellinum i Róm við komu til Ítalíu frá Moskvu með fölsuð skilríki 28. nóvember Dómstóll í Róm hafnar framsalsbeiðni tyrkneskra stjómvalda © 16. janúar 1999 Öcalan sagður farinn frá Ítalíu og getum leitt að því að hann sé I Rússlandi eða einhverju grannríkja þess © 1.febrúar Hollensk yfirvöld neita Öcalan um hæli. Tyrkir segja að honum hafi einnig verið neitað um hæli í Sviss en flugvél foringjans hafi tekið eldsneyti I Mílanó © 2. febrúar Grísk stjórnvöld segja engan fót fyrir þvi að Öcalan hafi verið um borð í flugvél sem fékk að lenda á Korfú © 15. febrúar Öcalan yfirgefur gríska sendiráðið I Nairóbí og er tekinn hönum af yfirvöldum I Kenýa © 16. febrúar Komið með Öcalan til Tyrklands þ.s. hann á yfir höfði sér þunga dóma vegna hryðjuverka ::ö , Reuters ÞYSKIR óeirðalögreglumenn ganga framhjá bíl, sem Kúrdar veltu fyrir utan gríska sendiráðið í Bonn. GÍFURLEG fagnaðarlæti brutust út í Tyrklandi í gær þegar þær fregnir bárust að tyrknesk stjórnvöld hefðu loks haft hendur í hári kúrdíska skæruliðaleiðtogans Abdullahs Öcalans eftir að hafa leit- að hans dyrum og dyngjum undan- farna mánuði. Að sama skapi voru vonbrigði Kúrda mikil og efndu þeir til mótmæla víðs vegar um Evrópu. Beindist reiði þeirra einkum að Grikkjum, sem þeir töldu hafa íramselt Öcalan til Tyrkja, en áhöld eru þó uppi um hvernig Öealan komst í hendur tyrkneskra yflr- valda. Hafa stjórnvöld í Kenýa neit- að því að hafa framselt Öcalan og ólíklegt er talið að það hafí verið Grikkir sjálfír sem afhentu hann Tyrkjum, enda hafa Tyrkir og Grikkir lengi eldað grátt silfur sam- an. Þykja ekki öll kurl komin til grafar í þessu máli og jafnframt blasir við að atburðir gærdagsins gætu dregið dilk á eftir sér. „Við hétum því að hafa hendur í hári hans hvar svo sem hann væri staddur í veröldinni. Nú höfum við efnt þetta heit okkar,“ sagði Bulent Ecevit, forsætisráðherra Tyrk- lands, er hann tilkynnti á frétta- mannafundi í gærmorgun að Öealan væri kominn til Tyrklands. Var ekki laust við að greina mætti geðshrær- ingu í rödd Ecevits en Tyrkir hafa lengi litið á Öcalan sem þjóðaróvin sinn númer eitt. Hefur Öcalan gegnt forystu í Verkamannaflokki Kúrdístans (PKK), skæruliðasveit- um Kúrda sem barist hafa fyrir sjálfstæði um fjórtán ára skeið í suðausturhluta Tyrklands. Telja Tyrkir Öcalan ábyrgan íyrir dauða þeirra 29.000 manna sem látist hafa í átökum Kúrda og tyrkneskra ör- yggissveita. Hundeltur um alla Evrópu Öcalan var handsamaður í Nairobi, höfuðborg Kenýa, og þaðan fluttur til Tyrklands en hann hafði undan- farna tólf daga dvalið í sendiráði Grikklands í Nairobi. Hann hefui- hvergi átt höfði sínu að að halla eft- ir að mál hans komst í hámæli í október síðastliðnum er hann var handtekinn á flugvelli á Ítalíu. Öcalan hafði um margra ára skeið stýrt baráttu PKK frá Sýr- landi. Engum blandast hugur um að Öcalan á sök á ýmsum ódæðisverk- um á þeim tíma en Sýrlendingar létu sér það í léttu rúmi liggja enda engir perluvinir Tyrkja. I október juku Tyrkir hins vegar mjög þrýst- ing á sýrlensk stjórnvöld að láta af stuðningi við Öcalan. Stigmagnaðist deila landanna og virtist sem stríð væri yfirvofandi þegar Tyi-kir gáfu Sýi'lendingum „lokaviðvörun" 6. október síðastliðinn til að hætta stuðningi við Öcalan og sveitir hans. Gáfu Sýrlendingar eftir og þótt þeir gengju ekki svo langt að afhenda Tyrkjum Öcalan tilkynntu þeir að skæruliðaleiðtoginn væri farinn frá Sýrlandi. Má segja að þar með hafí vand- ræði Öcalans hafist því í ljós kom að hann átti í engin hús að venda. Ekki eru til öruggar heimildir um ferða- lög hans en svo virðist sem hann hafí farið til Rússlands frá Sýrlandi. Þessu neituðu reyndar rússnesk yf- irvöld á sínum tíma og sögðust aldrei myndu veita honum pólitískt hæli. Þegar Öcalan birtist í Róm 12. nóvember var hann hins vegar engu að síður að koma með flugi frá Moskvu. Handtóku ítölsk yfirvöld Öcalan íyrir að ferðast á fölsuðu vegabréfi, en í ljós kom að til staðar var alþjóðleg handtökuskipun. Hófst þá málarekstur iýrir ítölsk- um dómstólum sem snerist um þá beiðni Tyrkja að Öcalan yrði fram- seldur þangað. ítalskur dómstóll úrskurðaði hins vegar að ekki væri hægt að framselja Öcalan til Tyrk- lands þar sem lög landsins bönnuðu framsal manns til ríkis þar sem dauðarefsing er viðhöfð. Þegar þýsk stjórnvöld, sem höfðu gefíð út handtökutilskipunina, neituðu að taka við Öcalan áttu ítölsk stjórn- völd þann kost einan að láta hann lausan. Óttuðust Þjóðvei-jar átök milli tyrkneskra og kúrdískra inn- flytjenda vegna málsins. ítalir höfðu hins vegar ekki hugs- að sér að veita honum pólitískt hæli og hófust því ferðalög Öcalans á nýjan leik. Yfirgaf hann Ítalíu 16. janúar og var sagður hafa farið á ný til Rússlands, eða einhvers annars fyrrverandi lýðveldis Sovétríkj- anna. Skaut hann upp kollinum í Hollandi þann fyrsta febrúar en var neitað um landvistarieyíi þar. Flaug hann þá til Sviss en var neit- að um lendingarleyfi og fékk síðan einungis að lenda í Mílanó til að fylla flugvél sína af eldsneyti. Við- urkenndi Theodoros Pangalos, ut- anríkisráðherra Grikklands, í gær að Öcalan hefði þaðan haldið til grísku eyjunnar Korfú til að fylla vél sína eldsneyti og síðan flogið áfram til Nairobi í Kenýa en þar dvaldi hann í vistarverum gríska sendiráðsins uns hann var sendur til Tyrklands í fyrrinótt. Hver framseldi Öcalan í hendur Tyrkja? Pangalos lét hafa eftir sér í gær að fulltrúar Öcalans hefðu um nokk- urra daga skeið verið að reyna að semja við ríkisstjórnir ýmissa Af- í-íkuríkja um að veita Öcalan hæli. Hélt Öcalan út á flugvöllinn í Na- irobi á mánudag í því skyni að fljúga til Hollands, að sögn Panga- los. Sagði Pangalos að Öcalan hefði farið í fylgd fulltrúa Kenýastjórnai- þrátt fyrir að Grikkirnir hefðu ráðið honum frá því og ef marka má þess- ar staðhæfingar er vart hægt að draga aðra ályktun en þá að Kenýa- menn hafi framselt Öealan. Hefur lögfræðingur Öcalans sjálfs einnig sagst hafa upplýsingar um það að Kenýamenn hefðu „gabbað“ Ócalan út úr gríska sendiráðinu og síðan, væntanlega, framselt í hendur Tyrkjum. Þessu hafa Kenýamenn hins veg- ar alfarið neitað. Héldu stjórnvöld í Kenýa í gær fréttamannafund þar sem þau lögðu ríka áherslu á að þau hefðu ekki svikið Öcalan í hendur Tyrkja. Sakaði Bonaya Godana, ut- anríkisráðherra Kenýa, Grikki um að hafa smyglað Öcalan inn í landið á ólöglegan hátt og síðan hýst hann í sendiráði sínu í Kenýa í óþökk þarlendra yfirvalda. Krafðist Godana þess að George Costorlas, sendiherra Grikklands, yrði kallað- ur heim en hann mun staðfastlega hafa neitað því að Öcalan væri í sendiráðinu þegai- stjórnvöld í Kenýa gengu á hann. Var það ekki fyrr en Godona sýndi Costorlas slá í Tyrklandi Reuters EINN Kúrdanna, sem réðust inn í sendiráð Kenýa í Bonn, gefur sigurmerki út um glugga á húsinu. tít af gluggasyllunni hangir mynd af foringja Kúrda, Abdullah Öcalan. fram á að hann hefði í höndunum sannanir fyrir því að Öcalan væri í Kenýa sem Costorlas viðurkenndi loks að hann hefði skotið skjólshúsi yfh’ glæpamanninn. Sagði Godona að hann hefði þá skipað Grikkjum að koma Öcalan úr landi. „Við áttum ekki von á þvi að vin- veitt þjóð eins og Grikkir myndu koma Kenýa í svona aðstöðu sem gæti jafnvel haft í för með sér grun- semdir um aðild okkar og árásir á okkur þess vegna,“ sagði Godona í gær og bætti því við að vegna máls- ins bæru stjórnvöld ekki lengur traust til gríska sendiherrans. „Aðalatriðið er þetta: við viljum fullvissa alla hlutaðeigandi, m.a. alla Kúrda, um að við áttum enga aðild að málinu." Óljóst er því enn hvernig framsal Öcalans bar nákvæmlega að og ör- uggt að ekki eru öll kurl komin til grafar hvað það varðar. T.d. voru uppi getgátur um það í gær að ísra- elar eða Bandaríkjamenn hefðu haft hönd í bagga varðandi framsal Öcalans. Kvaðst Joe Lockhart, tals- maðm’ Bandaríkjaforseta, hins veg- ar engar upplýsingar hafa um „beina aðild“ Bandaríkjamanna að málinu. Leikaðferð Tyrkja heppnaðist Of snemmt er að segja um hverjar afleiðingar málsins verða en þó er víst að Tyrkir munu nú loks fá tækifæri til að leiða Öcalan fyrir dóm. Verði Öcalan fundinn sekur um þá glæpi sem Tyrkir telja hann sekan um má gera ráð fyrir að hann verði dæmdur til dauða. Dauðarefs- ingu hefur hins vegar ekki verið framfylgt í Tyrklandi síðan 1980. Tyrkir hafa undanfarna þrjá mánuði lagt gífurlega áherslu á að koma höndum yfii- Öcalan. Hafa þeir t.a.m. beitt viðskiptaþvingun- um, götumótmælum og pólitískum hótunum gegn þeim sem gerðu sig líklega til að aðstoða Öcalan og má segja að þessi leikaðferð þeÚTa hafi skilað árangi’i í gær, enginn vildi í raun taka þá áhættu að veita Öcal- an liðsinni. A hinn bóginn benda frétta- skýrendur á að Tyrkir gætu hafa kallað yfir sig gífurleg vandræði vegna málsins, t.d. mikla reiði Kúrda, andmæli umheimsins vegna þess hvernig staðið var að hand- töku Öcalans og síðast en ekki síst gætu réttarhöld yfir Öcalan í raun beint sjónum manna að og um leið aflað samúðar með frelsisbaráttu Kúrda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.