Morgunblaðið - 17.02.1999, Síða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Hörð orðaskipti í norður-írska þinginu
Stofnun heimastjórnar
samþykkt formlega
Belfast. The Daily Telegraph.
GERRY Adams, leiðtogi Sinn
Féin, stjórnmálaarms Irska lýð-
veldishersins (IRA), hvatti í gær
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, til að þvinga fram
stofnun tíu manna heimastjórnar
á Norður-írlandi fari svo að sam-
bandssinnar í héraðinu neiti að
ýta stjórninni úr vör. Attu þeir
Adams og Blair fund saman í
London en í Belfast fundaði
heimastjórnarþingið n-írska og
samþykkti fonnlega stofnun
heimastjórnarinnar.
Sambandssinnar standa fast á
því að þótt búið sé að samþykkja
formlega stofnun heimastjórnar-
innar þá muni hún ekki hefja störf
með aðild Sinn Féin nema IRA
byrji afvopnun fyrst. Er því óvíst
hvort bresk stjórnvöld munu geta
framselt völd í hendur heima-
stjómarþinginu 10. mars næst-
komandi, eins og stefnt hefur verið
að. 'h. -
Hefur deilan um afvopnun IRA
stigmagnast undanfarna daga og
kom til harðra orðaskipta í þinginu
í Belfast á mánudag sem þykir
mjög til mai-ks um hversu loft er
lævi blandið á N-írlandi þessa dag-
ana. Ottast margir að takist ekki
að leysa þessar deilur farsællega á
næstu dögum muni allt fara í bál
og brand.
Ætlaði allt um koll að keyra í
þingsal þegar Martin McGuinness,
aðalsamningamaður Sinn Féin, dró
upp úr vasa sínum brot úr hand-
sprengju sem hann sagði öfgahópa
sambandssinna hafa varpað að ein-
um umbjóðenda sinna nýverið.
Prýsti McGuinness með þessu á
um að Sinn Féin verði leyft að taka
sæti sín í stjórninni og gagnrýndi
um leið þá sambandssinna sem
hnýttu saman Sinn Féin og IRA er
þeir væru að ræða um Sinn Féin.
Sagði McGuinness að ekki væru til
nein samtök sem hétu „Sinn
Féin/IRA“ og sagði hann lífum
manna stefnt í voða með tenging-
unni.
Brást Peter Robinson, aðstoðar-
leiðtogi Lýðræðislega sambands-
flokksins (DUP), flokks Ians Pais-
leys, ókvæða við og sakaði McGu-
inness um hræsni. „Eg vissi ekki
að Sinn Féin skammaðist sín fyrir
tengsl sín við IRA,“ sagði Robin-
son og gekk svo langt að fullyrða
að McGuinness væri sjálfur einn
höfuðpaura IRA, t.d. meðlimur í
„herráði“ IRA, sem tekur allar
meiriháttar ákvarðanir samtak-
anna.
Bandaríkjamenn vara
Iraka við að gera árásir
Bagdad. Ankara. Reuters.
BANDARÍKJASTJÓRN varaði
Iraka við því í gær að þeir mættu
búast við skjótum gagnaðgerðum
ef Irakar láti verða af hótunum sín-
um um að gera árásir á herstöðvar
Bandaríkjamanna og Breta í Kú-
veit og Sádí-Arabíu. Tareq Aziz
sem á mánudag fundaði með for-
sætisráðherra Tyrklands, neitaði
því hins vegar að írakar væru að
hóta grannríkjum sínum með bein-
um hætti.
Madeleine Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna sagði í
Mexíkó í gær, þar sem hún var
stödd vegna heimsóknar Banda-
ríkjaforseta, að Bandaríkjastjórn
hefði „gert írökum það fullljóst að
ef til árása á hermenn okkar eða
nágrannaríki komi, munu viðbrögð
okkar verða skjót og markviss".
Aziz dregur
beinar hótanir
til baka
Þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkja-
stjómar, Sandy Berger, sagði af
sama tilefni að „Irakar ættu að
skilja afleiðingarnar ef til árása
þeirra myndi koma“, og bætti við,
„ég held að það hefði sérstaklega
öfug áhrif ef írakar myndu fara út
í slíkar aðgerðir".
Eftir árásir bandarískra og
breski’a herþotna á flugbanns-
svæðinu yfir norður- og suðurhluta
íraks á mánudag, lýsti Taha Yass-
in Ramadan, varaforseti Iraks, því
yfir að Irakar væru færir um að
valda verulegu tjóni á „bælurn"
Vorfaqnaöur
Úrvals-fólks
Fyrir alla 60 ára og eldri
Fimmtudaginn 18. febrúar
í Súlnasal Hótel Sögu.
Húsiö opnar kl. 18.00
Glæsileg grísaveisla
bandaríska og breska hersins í Sá-
dí-Arabíu og Kúveit sem og á
svæðinu öllu. Tareq Aziz neitaði
því í gær að ummæli varaforsetans
sem og yfirlýsingar háttsettra
stjórnarmanna í Irak undanfarið,
væru beinar hótanir. „Irak er ekki
að hóta grönnum sínum,“ sagði
Aziz á blaðamannafundi áður en
hann hélt heimleiðis frá misheppn-
uðum fundi sínum í Ankara með
Bulent Ecevit, forsætisráðherra
Tyrklands, en þar hafði hann farið
fram á að Tyrkir riftu samningi
sínum við bandarísk og bresk
stjómvöld um afnot af herflugvöll-
um í suðurhluta Tyrklands.
A fundi sínum með Ecevit gerði
Aziz mikið úr hættunni af því að
stefna Bandaríkjamanna í Mið-
austurlöndum miðaði að stofnun
sjálfstæðs ríkis Kúrda í norður-
hluta Iraks, en þeir era einnig fjöl-
mennir í suðurhluta Tyrklands.
Aziz hafði ekki erindi sem erfiði og
Ecevit sagðist eftir fundinn verja
árásir Bandaríkjanna og hvatti
íraksstjóm til að framfylgja öllum
ályktunum öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna.
Aðalfundur
LISTIR
Islenska tríóið
keppir til úrslita í
alþjóðlegri keppni
ÍSLENSKA tríóið keppir nú tO úr-
slita í alþjóðlegu kammermúsíkk-
eppni Coneert Artists Guild
Competition í New York. Keppnin,
sem fram fer í þessari viku, er ein
stærsta tónlistarkeppni sinnai- teg-
undar í Bandai’íkjunum. Úrslitin
fara fram í Lincoln Center-listamið-
stöðinni í New York og verður niður-
staða tilkynnt 23. febrúar.
Islenska tríóið, sem skipað er Sig-
urbirni Bernharðssyni, fiðluleikara,
Sigurði Bjarka Gunnarssyni, selló-
leikara og Nínu Margréti Grímsdótt-
ur, píanóleikara, mun m.a. flytja tríó
eftir Þorkel Sigurbjömsson auk
verka eftir Brahms og Shostakovitsj.
Islenska tríóið- mun ennfremur
leika á tónleikum í Washington D.C.
í bústað sendiherrahjónanna Jóns
Baldvins Hannibalssonar og Bryn-
dísar Schram 26. febrúar. 23. maí
mun tríóið koma fram á tónleikum í
Nordic Heritage Museum í Seattle.
Þar munu þau m.a. flytja verk eftir
Sveinbjörn Sveinbjörnsson og Jón ly Nordic chamber music series.
Sinfóníuhljómsveit Islands
Bernharður Wilkin-
son ráðinn aðstoðar-
hlj ómsveitar stj óri
ÍSLENSKA tríóið: Nína Margrét
Grímsdóttir, Sigurbjörn Bem-
harðsson og Bjarki Gunnarsson.
Nordal í tónleikaröð er nefnist Most-
BERNHARÐUR Wilkinson hefur
verið ráðinn aðstoðarhljómsveit-
arstjóri Sinfóníuhljómsveitar Is-
lands. Um er að ræða hálfa stöðu
og gildir samn-
ingurinn til vors
2000.
Segir Bern-
harður starfið
leggjast vel í sig.
„Eg er auðvitað
injög ánægður.
Mér er sýnt mik-
ið traust með
þessari ráðningu.
Ég hef alltaf ver-
ið orkumikill og
langar að hjálpa hljómsveitinni að
halda áfram að vaxa og dafna eins
vel og ég get.“
Bernharður verður 48 ára í
næsta mánuði. Hann er fæddur í
Hitchin í Hei-tfordshire á Englandi
en fluttist til Islands nimlega tví-
r
Flamengospum
f
Raggi Bjama kemur
öllum í sólarstemmningu
Vilborg Halldórsdóttir, leikkona
Gítarleikur: Símon H. ívarsson
Danssýningar
I Spænskir og klassískir dansar
Happdrætti
I Veglegir
Dans
vinningar í boöi
Miðasala og
boröapantanir
hjá Rebekku
og Valdísi á
skrifstofu
Úrvals-Útsýnar
Lágmúla 4
Sími: 569 9300
Verö 2.200 kr.
Hljómsveit Hjördísar Geirs
sér um fjörið
# ÚRVIL IÍTSÝH
Lágmúla 4: sími 569 9300.
Aðalfundur Skýrr hf. verður haldinn að
Hótel Loftleiðum - Þingsal 1
fimmtudaginn 25. febrúar nk. kl. 17:15.
Davskrá fundarins verður sem hér sevir:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 4.05 gr. samþykkta fclagsins.
2. Tillögur: Breytingar á samþykktum félagsins til
samræmis við upptöku rafrænnar skráningar hlutabréfa.
3. Onnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins munu
liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku
fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og íundargögn verða afhent á fundarstað.
Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð,
verða að gera það skriflega.
Stjóm Skýrr hf.
tugur að aldri og er íslenskur ríkis-
borgari. Hann er flestum hnútum
kunnugur hjá Sinfóm'uhljómsveit-
inni en þar hefur hann starfað sem
flautuleikari óslitið frá 1975 og
undanfarin ár hefur hann einnig
stjórnað hljómsveitinni við ýmis
tækifæri, meðal annars á áskriftar-
tónleikum. „Segja má að þessi
ráðning komi í beinu framhaldi af
því starfi," segir hann.
Starf aðstoðarhljómsveitar-
stjóra er nýtt af nálinni en Páll
Pampichler Pálsson gegndi á sín-
um tíma starfi hljómsveitarstjóra
SÍ sem Bernharður segir um
margt hafa verið sambærilegt.
„Það var full þörf á að endurvekja
þetta starf.“
Bernharður segir eitt af for-
gangsverkefnum sínum vera að
móta starfið í samráði við Rico
Saccani aðalhljómsveitarstjóra.
„Rico keniur til iandsins síðar í
þessum mánuði og niunum við þá
bera saman bækur okkar. Það er
því fullsnemmt að segja í smáatrið-
uni j hveiju starf mitt verður fólg-
ið. Ég geri þó ráð fyrir að mitt
helsta verkefni verði að vera stað-
gengill aðalhljómsveitarstjóra
meðan hann er ekki á landinu,
meðhöndla ýmis mál fyrir hans
liönd, eins og að búa hljómsveitina
undir stærri tónleika. Þá þykir mér
lfldegt að ég komi til með að sitja
fundi verkefnavalsnefndar og hafa
umsjón með verkefnavali fyrir
skólatónleika, svo dæmi séu tekin.“
Þrír menn sóttu um starf að-
stoðarhljómsveitarstjóra en Bern-
harður er ráðinn að fenginni til-
lögu Ricos Saccanis. Áður hafði
farið fram skoðanakönnun innan
hljóinsveitarinnar.
Beraharður fer þegar í stað á
hálfan samning sem flautuleikari
við hljómsveitina en að öðru leyti
segir hann of snemmt að spá fyrir
um hvað þessi breyting á högum
hans komi til með að þýða, en
Beraharður hefur um árabil verið
mikilvirkur í i'slensku tónlistarlífí.
Hann er meðal annars einn af
stofnfélögnm í Blásarakvintett
Reykjavíkur og stjóraandi
Söngsveitarinnar Fflharmóníu.
Bernharður Wilkinson er
kvæntur Ágústu Jónsdóttur fiðlu-
Ieikara í Sinfóníuhljómsveit Is-
lands og eiga þau tvö börn.