Morgunblaðið - 17.02.1999, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 17.02.1999, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999 33 * H UMRÆÐAN Flugvöllur á förum - eða hvað? TÖLUVERÐ um- fjöllun hefur farið fram að undanförnu um stöðu og framtíð Reykj avíkurflugvall- ar. Þessi umræða tengist ekki síst tillög- um sem fram hafa komið um byggingu nýs flugvallar fyrir innanlandsflugið úti á Skerjafirði en áþekkar tillögur komu fram í borgarstjórn árið 1974. A liðnum ára- tugum hafa komið fram ýmsar hugmynd- ir um byggingu nýs flugvallar eða um flutning innanlandsflugsins til Keflavíkurflugvallar. Þegar nánar hefur verið kannað hefur komið í ljós að slíkar hugmyndir hafa reynst með öllu óaðgengilegar, ýmist vegna samgöngumála, flug- tæknilegra skilyrða eða fjár- hagsástæðna. Miklar umræður fóru fram í borgarstjóm Reykjavíkur árið 1986 um framtíð Reykjavíkurflug- vallar þegar í fyrsta sinn var samþykkt deiliskipulag fyrir flug- vallarsvæðið. Fulltrúar Alþýðu- bandalags og Kvennalista voru á móti og vildu að flugvöllurinn yrði lagður niður og innanlandsflugið flutt til Keflavíkur. Þegar aðal- skipulag Reykjavíkur 1990-2010 var samþykkt í borgarstjórn voru borgarfulltrúar þessara sömu flokka enn sömu skoðunar og vildu flugvöllinn burt. En hvað hefur breyst í þessu máli síðan fulltrúai' vinstriflokkanna fengu meirihluta í borgarstjórn í júní 1994? Nákvæm- lega ekkert. I aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016, sem R- listinn samþykkti, er gert ráð fyrir áframhaldandi starfsemi Reykja- víkurflugvallar í óbreyttri mynd. Nú nýlega lauk R-listinn við að endurskoða deiliskipulag flugvall- arins frá 1986. Breytingar á því skipulagi eru óverulegar og gert ráð fyrir áframhaldandi rekstri Reykjavíkurflugvallar til ársins 2016. Orð og efndir Ferill borgarfulltrúa Alþýðu- bandalags og Kvennalista í málefnum Reykjavíkurflugvallar sýnir að lítið sem ekkert er að marka yfirlýsingar þeirra um stöðu og framtíð Reykjavíkui-flug- vallar. Þessir borgarfulltrúar þykjast vera á móti rekstri flugvallarins, samþykkja síðan til- lögur um skipulag svæðisins og áfram- haldandi rekstur hans eða nákvæmlega sömu tillögur og þeir greiddu atkvæði gegn fyrir nokkrum árum. Til að viila um fyrir þeim sem vilja flug- völlinn burt tala þeir út og suður um fram- tíð Reykjavíkurflug- vallar og flutning, ýmist út í Skerjafjörð eða suður í Keflavík. Svo til allir sem þekkja vel til flugmála innanlands ei-u sammála um að ekki komi til greina að flytja innanlandsflugið til Keflavíkur. Flugsamgöngur við höfuðborgina versnuðu verulega og ferðatími frá og til hinna ýmsu staða á landinu lengdist í flestum tilvikum um helming. Við búum við erfið veðurskilyrði stóran hluta ársins og ef miðstöð innanlands- Innanlandsflug Það hefði slæmar af- leiðingar fyrir at- vinnulífið í borginni, segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, yrði inn- anlandsfiugvöllur ekki áfram í Reykjavík. flugsins flyttist á Keflavíkurflug- völl yrði ferðalagið óöruggara og verra. Ákvörðun um að flytja inn- anlandsflugið til Keflavíkm- gæti haft alvarleg áhrif á þá miklu og mikilvægu uppbyggingu sem oi'ðið hefur í innanlandsflugi á undan- fórnum áratugum og laskað veru- lega þá þjónustu sem flugfélög í innanlandsflugi veita nú. Tillaga um gerð nýs flugvallar úti á Skerjafirði er áhugaverð og hana verða borgar- og flugmálayf- ii-völd að skoða ítarlega, m.a. veð- urfarsleg skilyi'ði, meta umhverf- isáhrif og kostnaðarþáttinn. Ljóst er að út frá umhverfissjónarmið- um er nýr flugvöllur í Skerjafirði viðkvæmt mál. Ennfremur kostar bygging nýs flugvallar með nauð- synlegum mannvirkjum mikla fjármuni, hugsanlega sjö til tíu milljarða króna. Ekki er ósenni- legt að alvarlegur lóðaskortur í Reykjavík og stöðug hnignun mið- borgarinnar hafi áhrif á um- ræðuna um nýjan flugvöll í Skerjafirði og íbúðarbyggð á núverandi flugvallarstæði í Vatns- mýrinni. Flugvöllurinn ekki á förum Nýlegar ákvarðanir R-listans í skipulagsmálum staðfesta að Reykjavíkurflugvöllur er ekki á fórum. Helstu röksemdir gegn staifrækslu Reykjavíkurflugvallar hafa frá upphafi verið þær að nálægð flugvallarins við byggðina skapi hættu gagnvart næsta um- hverfi svo og hávaðamengun. Við skipulagningu á flugvellinum hefur verið leitast við að fylgja ströng- ustu öryggisreglum, sem Alþjóða- flugmálastofnunin hefur sett fram um gerð flugvalla. Staðreyndin er sú að Reykjavík- urflugvöllur er betur settur en flestir flugvellir við aðrar höfuð- borgir vegna þess að við flugtak og lendingu er aðeins örstutt flug yfir byggð. Víða annars staðai' þurfa flugvélar að fljúga langa leið yfir byggð svæði við lendingu eða eftir flugtak. Það er á hinn bóginn krafa borgarbúa að dregið verði úr þeirri hættu sem óhjákvæmilega fylgir flugi og úr hávaðamengun eins og kostur er. Kennsluflugið er helsta orsök hávaða og við þeim vanda verða flugmálayfirvöld að bregðast sem allra fyrst. Flugið er einn mikilvægasti sam- göngumáti landsmanna. Árlega nota rúmlega 300 þúsund manns flugferðir innanlands sem byrja eða enda á Reykjavíkurflugvelli. Mörg hundruð manns vinna við rekstur flugvallarins, flugi-ekstur og flugþjónustu og fjölmörg önnur störf tengjast beint eða óbeint starfrækslu flugvallarins, t.d. hótelrekstur, bílaleigur og leigubif- reiðaakstur. Það hefði slæmar af- leiðingar fyrir atvinnulífið í borg- inni ef innanlandsflugvöllur yrði ekki áfram í Reykjavík, sem er miðstöð samgangna, viðskipta og stjórnsýslu landsins. Þessu mikil- væga hlutverki getur Reykjavíkur- borg ekki þjónað með fullnægjandi hætti ef miðstöð flugsamgangna í innanlandsflugi yrði flutt frá Reykjavík. Höfundur er borgarfulltrúi. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Ofnasmiðja Reykjavíkur *'l|r Vagnhöföa11 112 Reykjavík Hágæða heitavatnsofnar frá Danmörku. BBRUGMAN HANDKLÆÐAOFNAR, Steypusögun.kjarnaborun, múrbrot, smágröfur. Lflh) Leitið tilboða. ''l'' --------------- TH0R S:577-5177 Fax:577-5178 HTTPy/WWW.SIMNET.IS/THOR ori/lame Náttúrulegar sænskar snyrtivörur Gæða snyrtivörur á gþáu verði. _____ í 29 ár á íslandi. i IjkSími 567 7838 - fax 557 3499 . , e-mail raha@islandia.is I wwvv.xnet.is/oriflame D LYFIA Lyf á lágmarksverói Frumkvöðull í lækkun lyfjaverðs á Islandi Lyfja Lágmúia i Reykjavík - Lyfja Setbergi í Hafnarfirði - Lyfja Hamraborg í Kópavogí AUGLYSINGADEILD Sími: 569 1111, Bréfsími: 569 1110 Netfang: augl@mbl.is ýg>mbl.is \LLTAf= GITTHXSAÐ IMYTT í kvöld er dregið í Víkingalottóinu um tugi milljóna króna! Fáðu þér miða fyrir kl. 17 í dag. i. X'

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.