Morgunblaðið - 17.02.1999, Page 41
MORGUNB LAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999 41
Hvert stefnir Islandspóstur hf.?
FRÍMERKI
FRÍMERKJAÚTGÁFA
ÁRSINS 1999
SÍÐAST var fjallað um ýmsar
breytingar hjá Islandspósti hf. og
vikið að samvinnu Póstsins við
samtök frímerkjasafnara. Á döf-
inni er m.a. útgáfa frímerkja-
blaðs, sem Pósturinn mun styrkja
fjárhagslega, en safnarar vænt-
anlega leggja til efni að veruleg-
um hluta. Állir hljóta að sjá og
skilja, að þetta getur orðið hið
bezta mál fyrir báða aðila. Ef
blaðið kemst í hendur allra
áskrifenda Frímerkjasölunnar,
innlendra sem erlendra, má vera
ljóst, hvílík lyftistöng þetta getur
orðið fyrir þá, sem að blaðinu
standa. Get ég þess vegna ekki
ímyndað mér annað en safnarar
fagni þessari væntanlegu sam-
vinnu, enda hefur yfirleitt farið
vel á með samtökum okkar og
póstyfirvöldum.
Því miður virðast samt blikur á
lofti í frímerkjamálum um þessar
mundir og að mínum dómi og
margra annarra hættulegar fyrir
frímerkjasöfnun og um leið fyrir
frímerkjasölu almennt og skipti
við safnara. Þetta kom einmitt að
nokkru fram í greinargerð
Eðvarðs T. Jónssonar, sem hann
flutti á janúarfundi FF. í umræð-
um á fundinum komu upp ýmsar
áleitnar spurningar, sem ég kem
hér á framfæri og við frímerkja-
safnarar væntum skýrra svara
við af hálfu Póstsins.
Þar var síðast komið sögu í
þætti 10. þ.m., að eftir var að
segja frá frímerkjaútgáfu Pósts-
ins á þessu ári. Eðvarð rakti hana
eins vel og kostur er á í upphafi
árs, enda verður ekki að öllu séð
fyrir enda hennar til ársloka. Á
þessum stað vil ég koma á fram-
færi þakklæti okkar safnaranna
til Póstsins íyrir það, hversu
fljótt við fáum í hendur tilkynn-
ingar um næstu útgáfur og jafn-
vel „allar útlínur" til næstu ára-
móta og lengur.
Fyrstu frímerki ársins höfum
við þegar séð, en þau komu út 22.
janúar sl., en það var annars veg-
ar 35 kr. frímeriri með mynd af
Jóni Leifs tónskáldi, undir al-
mennt burðargjald innanlands,
og svo voru hins vegar tvö frí-
merki í flokki nytjafiska. Lægra
verðgildið er 35 kr. með mynd af
skarkola, en síld er á hærra verð-
gildinu, 55 ki'ónum. - Mynd af
þessum merkjum má sjá hér. -
Hinn 4. marz koma út fjögur frí-
merki undir heitinu „Sjávarspen-
dýr“. Á 35 kr. merki verður mynd
af háhyrningi, á 45 kr. merki
verður búrhvalur, á 65 kr.
steypireyður og hnísa á 85 kr.
merki. Þessi merki koma einnig
út í smáörk. Kristín Þóra Þor-
kelsdóttir hjá Auglýsingstofunni
Yddu hefur teiknað þau. - 15.
apríl koma út tvö 75 kr. merki,
annað með af mynd af öðrum
þeim eimvagni, sem flutti grjótið
úr Öskjuhlíð til hafnargerðar
Reykjavíkur árin 1913-14, en hitt
af því fræga skipi, kútter Sigur-
fara. Koma fjögur merki saman
og eingöngu í heftum. Burðar-
gjaldið er stflað á póst utan Evr-
ópu og bendir til þess, að einhver
hækkun sé einnig í vændum á
töxtum Póstsins á þeim leiðum. -
20. maí koma út hin árlegu Evr-
ópufrímerki. Er þema þeirra að
þessu sinni þjóðgarðar. Arnar-
stapi verður á öðru þeirra og
Skaftafell á hinu. Tíu frímerki
verða í hefti, en verðgildið hefur
enn ekki verið ákveðið. - Svo
verður hlé yfir sumarið, en 9.
sept. koma fjögur merld í flokki,
sem nefnist Steindir (mineraler),
en óvíst um verðgildi þeirra.
Sama dag koma einnig út fjögur
merki um náttúruvemd, en
myndefni þeirra hefur ekki enn
verið ákveðið. Dagur frímerkisins
verður haldinn 7. október, og þá
kemur að vanda út smáörk. Hlyn-
ur Ólafsson teiknar hana, en
myndefnið hefur ekki enn verið
gefið upp. Sama dag á einnig að
koma út frímerld af því tilefni, að
Reykjavík hefur verið valin
menningarborg árið 2000. Allt er
enn á huldu um útlit þess og verð-
gildi.
Hinn 4. nóvember kemur út frí-
merki, sem nefnist Framtíð á frí-
merki. Þessi útgáfa er mjög sér-
stæð, enda liður í alþjóðlegri
hönnunarsamkeppni 8 til 12 ára
barna. Þarna eiga bömin að túlka
framtíðarsýn sína á nýja öld.
Pósturinn tók þátt í keppninni í
samstarfi við bandarísku póst-
stjórnina, en dómnefnd á hennar
vegum velur að endingu það
myndefni, sem valið verður á frí-
merki Bandaríkjanna. Alls bárust
um tvö þús. teikningar í sam-
keppni Póstsins. Vom margar
þeirra að sögn mjög skemmtileg-
ar. Lesendur Mbl. hafa þegar séð
fjögur þeirra, sem unnu til verð-
launa, í tilkynningu Islandspósts
hf. 29. jan. sl. Þar varð hlut-
skörpust Jóna Gréta Guðmunds-
dóttir í Höfðaskóla á Skaga-
strönd.
FYRSTU frímerki ársins komu
út 22. janúar sl.
VERÐLAUNAMERKIÐ Fram-
tíð á frímerki kemur út 4. nóv.
ember nk.
Þennan sama dag koma svo út
síðustu frímerki Póstsins, hin ár-
legu jólafrímerki. Frá upphafi
þeirra árið 1981 hafa komið út tvö
merki á ári, annað undir burðar-
gjald fyrir almenn innanlands-
bréf og hitt undir burðargjald til
annarra Evrópulanda. Við þetta
hafa að sjálfsögðu allir verið sátt-
ir. En að þessu sinni kastar tólf-
unum, enda má segja, að fundar-
menn FF 28. jan. hafi orðið dol-
fallnir, þegar þeir heyrðu, að
merkin yrðu 13 að þessu sinni,
þ.e. allir jólasveinarnir í einni
dorm. Ég veit satt að segja ekki,
hvers foreldrarnir, Grýla og
Leppalúði, eiga að gjalda að vera
skilin ein eftir úti á hjarninu.
Raunar skildist mér á ummælum
fulltrúa Póstsins, að skoðanir út-
gáfunefndar hafi eitthvað verið
skiptar og til umræðu hafi komið
að dreifa jólasveinunum á nokkur
ár. Hefði að sjálfsögðu verið eitt-
hvert vit í því, enda vart hægt að
hafa vægara lýsingarorð en fá-
ránlegt um þá ákvörðun að taka
þá alla í einni lest. Ég vona svo
sannarlega, að þeir í útgáfu-
nefndinni, sem mun enn eiga
telja fulltrúa LÍF, hafi ekki léð
þessari fásinnu atkvæði sitt. Ég
vænti þess að lokum, að frí-
merkjasafnarar sjái sér almennt
fært að láta opinberlega í ljós
skoðun sína í þessu alvarlega
máli, sem snertir íslenzka safn-
ara, en þó ekki síður Islandspóst
hf. og framvindu hans og sam-
vinnu við frímerkjasafnara hér
heima og erlendis.
I næsta þætti verður enn rætt
um stefnu Póstsins og ýmsar að-
gerðir hans, sem orka vægast
sagt tvímælis og safnarar em lítt
hrifnir af.
Jón Aðalsteinn Jónsson
A U G LÝ S 1 I 1 IM G A
ATVIMINIU-
AUGLÝSINGAR
Innheimta og umsjón
Við ætlum að ráða starfskraft, hálfan daginn,
til innheimtustarfa í síma, og til að sjá um
greiðslur í samvinnu við fjármálastjóra.
Reynsla og árangur skilyrði.
Þarf að geta byrjað strax. Reyklaus vinnustaður
og góð aðstaða.
Vinsamlega sendið helstu upplýsingar í fax
562 9165 eða rafpóst korund@korund.is.
Heimasíða: http://korund.is.
Kórund ehf.,
Þverholti 15,
Reykjavík.
FÉLAGSSTARF
Fulltrúaráð
Sjálfstæðisfélag-
anna í Garðabæ
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ, Sjálfstæðisfélagið i
Garðabæ og Huginn f.u.s. í Garðabæ, halda sameiginlegan félagsfund
að Lyngási 12, á morgun, miðvikudaginn 18. febrúar kl. 20:00.
Dagskrá: Kosning fulltrúa á 33. landsfund Sjálfstæðisflokksins,
sem verður haldinn dagana 11. —14. mars nk.
Stjórn fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ.
Stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar.
Stjórn Hugins f.u.s. Garðabæ.
TILKVIMIMIINIGAR
VERSLUNARMANNAFÉLAG HAFNARFJARÐAR
vaf
Framboðsfrestur
Allsherjaratkvæðagreiðsla verður viðhöfð um
kjör fulltrúa á þing Landssambands íslenskra
verslunarmanna, sem haldið verður í maí nk.
Kosning fer fram samkv. 22. gr. laga félagsins.
Kjörnir verða 4 fulltrúar og jafnmargir til vara.
Framboðslistar þurfa að berast kjörstjórn á
skrifstofu Verslunarmannafélags Hafnarfjarðar,
Lækjargötu 34d, fyrir kl. 12 á hádegi miðviku-
daginn 24. febrúar 1999.
Kjörstjórn.
Böðmóðsstaðir, Laugardalshreppi
Auglýsing
um deiliskipulag
Samkv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, og í samræmi við 3.1. ákvæði til bráða-
birgða sömu laga er hér með auglýsttil kynning-
artillaga að breyttu deiliskipulagi frístundabyggð-
ar í landi Böðmóðsstaða I í Laugardalshreppi.
Deiliskipulagið afmarkast að norðaustanverðu
af landamörkum jarðanna Efstadals og Böð-
móðsstaða, að suðvestanverðu af girðingu
við þjóðveg nr. 366 og að sunnan af landa-
mörkum Leynis.
Skipulagstillagan verðurtil sýnis á skrifstofu Laug-
ardalshrepps frá og með 19. febrúar nk. til og með
19. mars 1999. Þeim, semtelja sig eiga hagsmuna
að gæta, er hér með gefinn kostur á að gera at-
hugasemdir við deiliskipulagstillöguna.
Fresturtil að skila inn athugasemdum rennur
út 2. apríl nk. Skila skal athugasemdum á skrif-
stofu Laugardalshrepps, 840 Laugarvatni.
Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við deili-
skipulagstillöguna fyrir tilskilinn frest, telst
samþykkur henni.
Oddviti Laugardalshrepps.
FUIMOIR/ MAIMIMFAGIMAOUR
Aðildarfélagar Ráðstefnu-
skrifstofu íslands
Fundur verður haldinn að Hótel Loftleiðum,
þingsal 1, mánudaginn 22. febrúar nk. kl. 14.
Dagskrá samkvæmt samþykktum.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs
Almennur
félagsfundur
Almennur félagsfundur hjá Sjálfstæðisfélagi
Kópavogs verður haldinn í Hamraborg 1
á morgun, fimmtudaginn 18. feb., kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Kosning fulltrúa á landsfund Sjálfstæðis-
flokksins.
2. Gunnar I. Birgisson, formaður bæjarráðs,
ræðir málefni Kópavogs og landsmálin.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs.
ATVIIMIMUHÚSIMÆO I
Geymsluhúsnæði
Ca 60 fm geymsluhúsnæði óskast með góðri
aðkomu og breiðum dyrum. Verður að vera
þurrt en hiti ekki nauðsynlegur.
Upplýsingar í síma 553 4932.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
□ GUTNIR 5999021719 1
I.O.O.F. 7 = 179021781/2 = Br.
□ HELGAFELL 5999021719 IVA/
I.O.O.F. 18 s 1792178 = 8 1/2 II*
I.O.O.F. 9 = 1792178V2 =
Hörgshlíd 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
REGLA MUSTERISRIDDARA
RM Hekla
17.2.-HRS-MT
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Kl. 20.30 Hjálparflokkur fyrir
konur í Garðastræti 38.
1oo
KFUM & KFUK
1 8 9 9 - 1 999
KFUM og KFUK
Aðalstöðvar við Holtaveg
Hádegisverðarfundur í dag kl.
12.0 stundvíslega. Jógvan Purk-
hús, framkvæmdastjóri Gídeon-
félagsins, segir nýjustu fréttir af
starfi Gídeonfélagsins, innlendar
og erlendar.
Fólk hvatt til að fjölmenna.
Allir velkomnir.
ÉSAMBAND (SLENZKRA
____> KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Norski prédikarinn Gunnar
Hamnöy talar. Kór nemenda á
Fjellhaug skoler í Osló syngur.
Allir velkomnir.
Kórinn heldur einnig tónleika í
Breiðholtskirkju annað kvöld,
fimmtudag, kl. 20.30.
Þangað eru allir velkomnir.
\v---7/
KFUM
[ Aðaldeild KFUM,
Holtavegi
V
Hátíðarfundur á 100 ára afmæli
KFUM verður á morgun, fimmtu-
dag, í aðalstöðvum KFUM og K
við Holtaveg.
Fundurinn hefst með borðhaldi
kl. 19.00. Nýjum félögum sér-
staklega fagnað.
Skráning í kvöldverðinn fer fram
í dag á skrifstofu KFUM og K,
sími 588 8899. Allir karlmenn
velkomnir á fundinn.
DULSPEKI
Lærðu að
þekkja sjálfan
þig!
Ragnheiður
Ólafsdóttir heldur
námskeiö dagana
20. og 21. febrúar
i sjálfsstyrkingu,
næmi/miðlun og sköpun, ef næg
þátttaka fæst.
Upplýsingar og bókanir í sima
588 5322 frá kl. 16-18 miðviku-
dag fimmtudag og föstudag.