Morgunblaðið - 17.02.1999, Side 43
MORGUNB LAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999 43
FRÉTTIR
Grunnskóla-
hátíð í
Hafnarfirði
GRUNSKÓLAHÁTÍÐIN í Hafnar-
firði verður haldin miðvikudaginn og
fímmtudaginn 17. og 18. febrúar í
Hvaleyrarskóla og íþróttahúsi Víði-
staðaskóla. Æskulýðsráð Hafnai--
fjarðar og nemendur á unglingastigi
standa að hátíðinni.
I Hvaleyrarskóla fer fram sameig-
inleg skemmtidagski-á og á sýning-
unni verða flutt verk eftir nemendur
á unglingastigi í grunnskólum bæj-
arins. Foreidrasýning verður mið-
vikudaginn 17. feb. kl. 20 og er for-
eldrum og öðrum aðstandendum
unglinganna boðinn ókeypis aðgang-
ur, að því er segir í ft'éttatilkynn-
ingu.
Sýningar verða kl. 14 og 16:30 fyr-
ir nemendur fimmtudaginn 18. febr-
úar. Hver sýning samanstendur af 5
verkum frá skólum bæjarins. Nem-
endur Öldutúnsskók flytja verkið I
byrginu eftir Gísla Ásgeirsson sem
einnig leikstýrir. Frá Setbergsskóla
kemur verkið Vinir sem nemendur
sömdu en er í leikstjórn kennaranna
Garðars og Magnúsar. Hvaleyrar-
skólanemendm- flytja eigið verk, Of-
urfiskinn og starfsmenn félagsmið-
stöðvarinnar Versins, Óli Már og
Stefán sjá um hljóð og leikstjórn.
Nemendur Lækjarskóla sýna eigið
verk er kallast Fjórða víddin og leik-
stýrir Ólafur Á. Traustason. Lítið á
björtu hliðarnai' er verk nemenda
Víðistaðaskóla og Skarphéðinn tón-
listarkennari leikstýrir.
Um kvöldið verður dansleikm' íyr- '
ir unglinga í gnmnskóladeildum
skólanna í íþróttahúsinu við Víði- í
staðaskóla. Húsið er opnað kl. 21 og
mun hljómsveitin Land og synir !
leika íyrir dansi. Hver skóli leggur >
til eitt skemmtiatriði, Tvíhöfði
skemmtir með söng og leik, ungir
hafnfírskir plötusnúðar spila og " ‘
herra og ungfrú Hafnarfjörður .
verða valin. Meðferð vímuefna er að '•
sjálfsögðu óheimil. Að dansleik lokn-
um verða rútuferðir um bæinn
þannig að allir komist heilir heim.
Upplýsingagjöf
um eyðslu
nýrra fólksbfla
SAMKVÆMT nýju samkomulagi
sem umhverfisráðuneytið, Bílgreina-
sambandið og Félag bifreiðaeigenda
hafa gert með sér skulu framvegis
iiggja frammi í sýningarsölum bif-
reiðainnflytjenda í Bílgreinasam-
bandinu upplýsingar um eldsneytis-
notkun nýrra fólksbíla. Þetta mun
vera í samræmi við kröfur sem gerð-
ar eru á Evrópska efnahagssvæðinu.
Samkomulagið var undirritað í
gær af Guðmundi Bjarnasyni um-
hverfisráðherra, Boga Pálssyni, for-
manni Bflgreinasambandsins, og
Árna Sigfússyni, formanpi Félags ís-
lenskra bireiðaeigenda. í því felst að
Bílgreinasambandið og FIB munu ,
með stuðningi umhverfisráðuneytis ;
gefa út bækling árlega með upplýs- j
ingum um eyðslu nýrra fólksbfla og
annað því tengt. M.a. skulu vera í ♦
bæklingnum upplýsingar um þróun {
varðandi mengun í útblæstri og elds- ;
neytisnotkun bifreiða. " )
Stefnt er að því að fyrsti bækling-
urinn komi út eigi síðar en 1. októ- i
ber í haust. Auk þess að liggja
frammi í sýningarsölum bifreiðainn-
flytjenda verður bæklingnum dreift
til félaga í FÍB. ;
Norskur
skólakór með
tónleika
SKÓLAKÓR frá skólasetrinu j
Fjallahaug í Osló heldur tónleika í i
Kristniboðssalnum í Reykjavík í
kvöld, miðvikudag, og í Breiðholts- j
kirkju annað kvöld, fimmtudag.
Hefjast báðir tónleikarnir kl. 20.30.
Flytjendur eru 25 nemendur af ]
tónlistarbraut frá skólasetrinu sem ,
er í eigu Norska lútherska kristni- m;
boðssambandsins.
RKI með
námskeið í
skyndihjálp
REYKJAVÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir námskeiði í almennri
skyndihjálp sem hefst fimmtudag-
inn 18. febrúar kl. 19. Kennsludag-
ar verða 18., 22. og 23. febrúar og
er kennt frá kl. 19-23. Námskeiðið
telst vera 16 kennslustundir og
verður haldið í Fákafeni 11, 2. hæð.
Þátttaka er heimil öllum 15 ára og
eldri. Félagar í RKÍ fá 25% afslátt.
Þeir sem hafa áhuga á að komast
á þetta námskeið geta skráð sig hjá
Reykavíkurdeild RKÍ frá kl. 8-16.
Meðal þess sem kennt verður á
námskeiðinu verður blástursmeð-
ferðin, endurlífgun með hjarta-
hnoði, hjálp við brana, beinbrotum
og blæðingum úr sáram. Einnig
verður fjallað um helstu heimaslys
þ.m.t. slys á börnum og forvarnir.
Að námskeiðinu loknu fá nemend-
ur skírteini sem hægt er að fá met-
ið í ýmsum skólum, segir í fréttatil-
kynningu.
Önnur námskeið sem eru haldin
hjá Reykjavíkurdeildinni era um
sálræna skyndihjálp, slys á börn-
um, námskeið fyrir barnfóstrur og
það hvernig á að taka á móti þyrlu
á slysstað.
Tekið skal fram að Reykjavíkur-
deild RKI útvegar leiðbeinendur til
að hafa ofangreind námskeið fyrir
þá sem þess óska.
Gönguferð
á þorra
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
stendur fyrir gönguferð í kvöld,
miðvikudagskvöld, og býður upp á
sýradrykk og molakaffi í lok
gönguferðarinnar.
Farið verður frá Hafnarhúsinu
að vestanverðu kl. 20, gengið upp
Grófina og um Víkurgarð og
Hljómskálagarð suður í Vatnsmýri
eða eftir gönguhraða hvers og eins
til kl. 20.45. Þá er snúið við og
gengið til baka. Þá er einnig hægt
að mæta við Hafnarhúsið kl. 21.30
og njóta hressingar með göngu-
fólkinu. Þórður mætir með nikk-
una. Allir era velkomnir.
Fundur um
ríkiseign á
fjölmiðlum
SAMBAND ungi-a jafnaðarmanna
og Heimdallur halda sameiginleg-
an fund á Sóloni íslandusi, 2. hæð,
fimmtudaginn 18. febrúar, kl. 21.30
um réttmæti ríkiseignar á fjölmiðl-
um á íslandi.
Framsögumenn fundarins era
þau Hrafn Gunnlaugsson leikstjóri,
Guðrún Helgadóttir, fyrrverandi
alþingismaður og útvarpsráðsmað-
ur, og Hólmfríður Sveinsdóttir
stjórnmálafræðingur.
Fundarstjóri verður Gunnlaugur
Jónsson.
• •
Oskudags-
skemmtun í
Víkinni
FÉLAGSMIÐSTÖÐIN Bústaðir,
Foreldrafélag Breiðagerðisskóla,
Foreldrafélag Fossvogsskóla og
Knattspyrnufélagið Víkingur
standa fyrir öskudagsskemmtun í
íþróttahúsi Vfldngs í Bústaðahverfi
á Öskudag kl. 13.30-15.
Allir krakkar, unglingar og for-
eldrar era velkomnir en boðið
verður upp á andlitsmálun, kettirn-
ir slegnir úr tunnunni og farið í
leiki sem starfsmenn félagsmið-
stöðvarinnar sjá um ásamt foreldr-
Um. " .......
Morgunblaðið/Ásdís
Verðlaun fyrir bestu mynd-
irnar gegn tóbaksnotkun
INGIBJÖRG Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra afhenti á mánu-
dag verðlaun í teiknikeppni, sem
Æskan og Tóbaksvarnanefnd
efndu til um bestu myndina gegn
tóbaksnotkun. Grunnskólanem-
endur á aldrinum sex til 14 ára
tóku þátt í keppninni og var
þeim skipt í þrjá flokka. Alls bár-
ust 1.728 teikningar frá 40 skól-
um og 59 einstaklingum. Allir
þátttakendur fá viðurkenningar-
skjal og unnu 18 til verðlauna.
Sex þeirra hlutu bakpoka frá
Seglagerðinni Ægi og 12 fengu
íþróttagalla frá Hreysti.
Aðalverðlaun í flokki sex til
átta ára fengu Elísabet Trausta-
dóttir, Grunnskóla Bolungarvík-
ur, og Thelma Rut Elíasdóttir,
Selásskóla. Aukaverðlaun fengu
Alda Yr Guðmundsdóttir, Glerár-
skóla, Ástrós Gunnarsdóttir,
Landakotsskóla, Ómar Búi Sæv-
arsson, Grunnskóla Sauðárkróks,
og Víkingur Þór Björnsson, Gler-
árskóla.
Aðalverðlaun í flokki 9 til 11
ára fengu Fanney Eiríksdóttir,
Flataskóla, og Tinna Rún Da-
víðsdóttir, Flataskóla. Aukaverð-
laun í þeim flokki fengu Alex-
andra Helga ívarsdóttir, Hamra-
skóla, Hafdís B. Böðvarsdóttir,
Steinsstaðaskóla, Kristjana Mar-
grét Jóhannsdóttir, Grunnskól-
anum á Suðureyri, og Sonja L.
Sveinbjörnsdóttir, Bfldudals-
skóla.
Aðalverðlaun í flokki 12 til 14
ára fengu Dagbjört Ásta Jóns-
dóttir, Garðaskóla, og Tinna
Daníelsdóttir, Selásskóla. Auka-
verðlaun í þeim aldursflokki
fengu Anna Birna Guðlaugsdótt-
ir, Bfldudalsskóla, Erla Rún
Jónsdóttir, Bfldudalsskólá, Guð-
björg Stefanía Hafþórsdóttir,
Grunnskóla Bolungarvíkur, og
María Guðrún Gunnlaugsdóttir,
Glerárskóla.
Opið hús
hjá SKB
OPIÐ hús verður á skrifstofu
Styrktarfélags krabbameinssjúkra
barna (SKB), Suðurlandsbraut 6,
fimmtudaginn 18. febrúar og verður
opnað kl. 20.30. Veitingar verða á
boðstólum eins og venja er auk er-
indis um sálræna skyndihjálp og
lífskreppur.
I fréttatilkynningu segir: „Mar-
grét Blöndal barnahjúkrunarfræð-
ingur hefur að undanförnu leiðbeint
á námskeiðum á vegum Rauða
kross Islands í sálrænni skyndi-
hjálp. Námskeið þessi era m.a. fyrir
aðila sem veita þeim stuðning er
eiga í andlegum erfiðleikum vegna
veikinda barna sinna eða hafa jafn-
vel misst barn. Ekki er þó ætlunin
að Margrét haldi slíkt námskeið á
opnu húsi hjá SKB heldur skýri út
hvað áfallahjálp er og fjalli um ýmis
mál innan þess sviðs. Vonir standa
til að um nefnt málefni skapist um-
ræður á meðal foreldra í framhaldi
af erindi Margrétar.
Eins og flestir vita er engin sál-
ræn skyndihjálp veitt á kerfisbund-
inn hátt þegar foreldrar fá tilkynnta
sjúkdómsgreiningu barna sinna
sem svo sannarlega væri full ástæða
til að gera þegar um alvarlega sjúk-
dóma er að ræða. Eitt af baráttu-
málum SKB er þ.a.l. að sjúki-ahúsin
bjóði sjálfkrafa upp á aðstoð eins og
hér um ræðir.
LEIÐRÉTT
Rangur
myndatexti
I myndatexta með frétt sem birtist í
Morgunblaðinu í gær um starfsemi
Netverks kom fram að fyrirtækið
hefði opnað söluskrifstofu í Hong
Kong. Hið rétta er að Netverk mun
á næstunni opna söluskrifstofu í
Hong Kong. Beðist er velvirðingar
á þessum mistökum.
Stofnfundur
Símenntunar-
miðstöðvar
Vesturlands
STOFNFUNDUR Símenntunar-
miðstöðvar Vesturlands verður
haldinn í Hótel Borgamesi, föstu-
daginn 19. febrúar kl. 15.
Samband sveitarfélaga í Vestur-
landskjördæmi og framhaldsskól-
arnir á svæðinu - Fjölbrautaskóli
Vesturlands og háskólamir að
Hvanneyri og Bifröst - standa að
stofnun Símenntunarmiðstöðvar-
innar ásamt ýmsum fyrirtækjum.
Hlutverk miðstöðvarinnar er að
efla fullorðinsfræðslu með nám-
skeiðshaldi og fjarkennslu í þágu
atvinnuvega og einstaklinga, segir í
fréttatilkynningu.
Símenntunarmiðstöðin verður til
húsa í stjórnsýsluhúsinu í Borgar-
nesi. Björg Árnadóttir, blaðamaður
og ritlistarkennari, hefur verið ráð-
inn forstöðumaður.
s
Iþróttahreyfingin semur
við Flugfélag Islands
UNDIRRITAÐIR hafa verið
samningar milli Flugfélags fs-
lands og fþrótta- og ólympíu-
sambands íslands (ISÍ) um flug-
fargjöld. Samningurinn, sem
gildir til Ioka ársins 1999, felur
í sér sérfargjöld til allra
áfangastaða Flugfélags íslands
innanlands.
Stefán Konráðsson fram-
kvæmdastjóri ÍSÍ, Ellert B.
Schram forseti ÍSÍ, Jón Karl
Ólafsson framkvæmdastjóri
Flugfélags íslands og Árni
Gunnarsson sölu- og markaðs-
stjóri Flugfélags fslands, gengu
frá samkomulaginu.