Morgunblaðið - 17.02.1999, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 17.02.1999, Blaðsíða 50
50 MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM > Forvitnilegar bækur GOLFBÓK AÐ HÆTTI LESLIE NIELSEN Hver fann upp bréfa- klemmuna? Hundrað uppfinningar sem settu svip á öldina. Century Makers. Höfundar: David Hillman & David Gibbs, gefið út af Weidenfeld & Nicolson, London 1998, 191 bls. Fæst í Bókabúð Máls og menning- ar, Laugavegi 18, kr. 2695. TUTTUGASTA öldin er öld tækn- innar. Tæknin hefur unnið ótrúlega sigi-a á þessari öld. Hún hefur kom- ið manninum til tunglsins, viðskipt- unum á Netið og sjónvarpinu inn á hvert heimili. Komandi kynslóðir munu minnast tuttugustu aldarinn- ar sem aldar kjamorkunnar og flugvélanna, aldar kvikmyndanna og talsímans. Gervihnattaaldar. Þessi bók er reyndar ekki um atómsprengjur og stóruppgötvanir á sviði erfðafræðinnar heldur er hún úttekt á minniháttar uppfinn- ingum aldarinnar. Myndir og texti eru í jöfnum hlut- fóllum og útskýra á hnitmiðaðan hátt uppruna og sögu eitt hundrað nytjahluta, heimilistækja, uppfinn- inga og hugmynda. Hlutimir eiga það sameiginlegt að hafa slegið í gegn hjá almenningi og þykja nú svo sjálfsagðir að við tökum varla efth' þeim. Bréfaklemman er t.d. lítil og einfóld uppfinning sem fæstir gefa gaum að, en Norðmaðurinn Jo- hannes Vaaler fann hana upp á sín- um tíma. Bókin bregður Ijósi á smæstu hlutina og útskýrir sam- hengi þeirra við lífið á öldinni. Sem dæmi má nefna að þegar Gillette fann upp einnota rakvélablöðin 1901 varð ekki aðeins gjörbreyting á skeggtísku karlmanna heldur á öll- um framleiðsluháttum hins vest- ræna heims. Framleiðendur upp- götvuðu þá að hægt var að græða margfalt á öllu sem var einnota. Efni bókarinnar er skemmtilega valið og fjölbreytt. Hér er hægt að finna fróðleik um gúmmíhanska, einnota kveikjara, kúlupenna, vara- lit, sílíkon-brjóst, hamborgara, ör- yggisbelti, frostpinna, greiðslukort og mjúkan klósettpappír. Mynd- skreytingar eru frjálslega tengdai' efninu en alltaf vel útskýi'ðar og falla vel að yfirbragði bókarinnar. Hjá greininni um franska rennilás- inn er mynd af karlstrippurunum Chippendales sem notuðu uppfinn- inguna til að flýta fyrir berháttun sinni. Hjá greininni um leikfanga- bangsa er mynd af Banda- ríkjaforsetanum Theodore Roosevelt, en af nafni hans er enska heitið dregið, „teddy bear“, upp- runalega „Teddy’s Bear“. Bókin er aðgengileg og skemmtileg og ættu allir að geta haft af henni gaman. Þessi „skoði-bók“ færi vel á hvaða biðstofu eða baðher- bergi sem er. Bókin er sér- staklega heppileg fyrir bess- ervissera og aðra þá sem hafa gaman af að slá um sig með fá- nýtum fróðleik. í henni er nóg af staðreyndum til að leggja á minnið og nýtast þær eflaust til að koma einhverjum skemmtilega á óvart: „Vissir þú að fyrsta strika- merkið var á Wrigley’s tyggjó- pakka en hann var seldur nákvæm- lega klukkan 8:01 fyrir hádegi, þann 26. júni 1974, í stórversluninni Marsh í borginni Troy í Ohio?“ ÍJlfur Eldjárn irinn Appelsínuhúð: Ráð úr regnskóginum Henry Beard hefur einnig ráð undir rifi hverju þegar kemur að því að halda líkamanum í góðu lagi. Bókin Appelsínuhúð- nrspádómurinn: Ævintýri eða „The Cellulite Prophecy" eftir ar;ininn nltf. Forvitnilegir borðar Century Makers One humlreri cleuer thinys we take for yranicri whích Jtawe changed our iives ovet the last one humlred years Oavid Hillman & David tlihbs MlCHAÍiL ROS'a’K’A — íiooR ►Ml CU.AÍÆ mACKIL Búin til úr pylsum? „Michael Rosenls Book of Nonsense" eftir Michael Rosen. Myndskreytt af Clare Mackie. 48 bls. Macdonakl Young Books, East Sussex, árið 1997. Eymundsson. 1.095 krónur. „HVAÐ myndir þú gera ef þú værir búin til úr pylsum?" spyr Michael Rosen. Michael er Ijóð- skáld. Ljóðin hans eru ef til vill skrifuð fyrir börn en fullorðnir með barnssál geta hlýjað sér að innan við lesturinn. Michael nefni- lega bullar og bullar. Það sem veltur upp úr honum er hreinasta della. Hann segir okkur furðusögur í bundnu máli, laumar inn nokkrum limrum úr undra- heimi og kaffærir lesandann í óendanlegum orðaleikjum. Hann er konungur bullukollanna, æðstur meðal æringja. Rugludallurinn, skáldið, sækir yrkisefni sín í heillandi heim barnsins. Einfaldir hlutir eins og fótboltar og hundar eru honum innblástur. Hann kynnir okkur fyrir gúmmístelpunni, harðsvíruðu gólfmottunni, litlum sjónvarps- köttum og ýmsum skrímslum. Við kynnumst Dennis sem dýrkar tennis, Rolf sem spilar golf, og Bemharði sem...?! Það þarf ekki mikið til að gleðja litla sál, og lesandinn verður að vanda sig, eigi honum að takast að vera dapur við ljóðalesturinn. Ljóðin, sem kalla mætti þvaður um einskis nýta hluti, þau einfald- lega gleðja. Áhrif ljóðanna gætir einnig í daglegu lífi lesandans, lífið verður orðaleikur og ævintýrin geta leynst í hvaða brauðsneið sem er. Lesandinn sér á endanum heim- inn með augum skáldsins. Mynda- heimur bullbókarinnar er álíka galinn og heimur orðanna. Teikn- ingarnar eru rúsínan í pylsuend- anum og þannig myndar bókin eina heild. Ljóðabókin er örlítil ljóstýra sem yljar ungum jafnt sem öldnum. En hvað er ljóð? Er réttlætanlegt að kalla svona vit- leysu skáldskap? Og svona ærsla- belg skáld? Og hvað myndirðu gera, svona í alvörunni, - ef þú værir búin til úr pylsum?' Silja Björk Baldursdóttir Ekkert mál að kenna golf, bara vonlaust að læra það ÞEGAR vorið er að náigast kemur tími léttleikandi fjörs, fyrirgefningar og vel á minnst, golfs. Það finnst í það minnsta leikaranum Leslie Nielsen sem á síðasta ári gaf út Vitlnusu litlu golfbókinn hnns Leslie Ni- elsens eða „Leslie Nielsen’s Stupid Little Golf Book“. í bók- inni setur Nielsen sig í hlutverk þess sem allt veit um það sem alls ekki má gera á golfvellin- um. „Eins og allar klassfskar bæk- ur um golf er mín bók troðfull af vonlausum þekkingarmolum, fáránlegum ráðum og tilgangs- lausum upplýsingum... en fyrir mörgum árum uppgötvaði ég hinn stóra sannleika varðandi golfkennslu. Það er hægt að kenna golf en gjörsamlega von- laust að læra það.“ Enga höfuðhnykki, takk! Að sögn Nielsen halda góðir kylfingar höfði sínu grafkyrru þegar þeir sveifia kylfunni. Svo þeir líti vel út. Nielsen segir að til að tryggja góða ímynd á vell- inum sé gott að ímynda sér eft- irfarandi: „Þú hefur óvart þveg- ið þér upp úr nítróglyseríni. Ef þú hreyfir höfuðið veistu að þú þarft að taka leigubíl langa leið til að geta klórað þér í eyranu!“ Einnig má tryggja góða ímynd með þeirri einföldu hern- aðaraðgerð að líta betur út en andstæðingurinn. Spurning eins og „Hefurðu nokkurn tíma séð hvað er inni í hnénu á þér?“ virkar t.a.m. ágætlega til að laða fram undrunargrettu. Hvor haldið þið að muni líta betur út, þín undurblíða ásjóna eða grett andlit andstæðings- ins? Skrifblokk Simpsons Vitlausa litla golfbókin er samvinnuverkefni Nielsens og frumkvöðuls National Lampoon myndanna, Henry Beard, en liann hefur þegar fært út kví- arnar enn frekar á bókmennta- sviðinu. Væntanleg er bókin Minnisblokk O.J. eða „CLJ.’s Legal Pad“ en í henni aðstoðar Beard hugmyndasnauða lesend- ur við að giska á hvað frægasti sakborningur heimsins var að skrifa í minnisblokk sina á meðan „réttarhald aldarinnar" stóð yfir. Bókin verður að sjálf- HVAR er engilblíð ásjónan nú þegar niikið liggur við? „óþekktan höfund" er þegar komin út á vegum hans og þar er tekið föstum tökum á fitu- hnúðum þeim sem kenndir eru við appelsínur. í bókinni eru lífsreglur megrunarfíkla raktar aftur til íbúa regnskóganna, sem samkvæmt bókinni vissu allt um það hvernig vinna ætti bug á hinni hvimleiðu appel- L'lísiiáfe sinuhúð. „Hugur minn rauk fram og til aðfea. baka í tíma ... Atóm inín birtust mér í trylltri líkamsrækt, þrammandi upp og niður _mT , , . tröppuvélina..." Þeir sem hafa NIELSEN er kunnuglegri ]esiö eitthvað eftir nýaldarhöf- með byssuna og Iogreglu- undínn James Redfield kannast merkið á loft. að hætt. per- kannski við stflinn? sonu hans í „Bemt a ska . sögðu prentuð á gulan pappír og bundin að ofan eins og títt er um minnisbækur. Samhliða minnisbók sakborn- ingsins er önnur bók með áður „óbirtum" bréfum til O.J. Simp- sons en hún er kölluð Ég veit hvnð þú vilt segjn mér, en ég vil eiginlegn ekki vitn þnð. Réttar- haldið yfir O.J. Simpson hefur greinilega orðið til þess að Henry Beard hefur fengið hveija hugmyndina á fætur annarri og ekki getað haldið sig frá tölvunni til að skrá snilldina á blað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.