Morgunblaðið - 17.02.1999, Síða 56
Drögum næst
24. febrúar
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
Heimavörn
Q Ji
Sími: 533 5000
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF 3040, NBTFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Sjúkrahúsin bjóða hjúkrunarnemum styrki gegn ráðningu
Allt að hálf laun í
boði til loka maí
HJÚKRUNARNEMUM sem út-
skrifast í vor standa til boða náms-
styrkir af hálfu stóru sjúkrahúsanna
í Reykjavík gegn því að þeir ráði sig
í tvö til þrjú ár. Geta styrkirnir
numið allt að hálfum mánaðarlaun-
um, nálægt fimmtíu þúsund krónum,
mánuðina mars, april og maí.
Vegna stöðugs skorts á hjúkrun-
arfræðingum hafa stóru spítalamir í
Reykjavík og þeir minni í nágrenni
höfuðborgarsvæðisins keppt um að
fá til sín nýútskrifaða hjúkrunar-
Sagt upp
vegna
meintrar
samkeppni
FORRÁÐAMENN Hrafnistu í
Reykjavík hafa sagt upp hjúkrunar-
deildarstjóra á stofnuninni vegna að-
ildar hans að forvali um byggingu og
rekstm- hjúkrunarheimilis sem nú
stendur yfir. Telja þeir hjúkrunar-
fræðinginn í samkeppni við stofnun-
ina en Hrafnista er einn þriggja aðila
í forvalinu vegna útboðsins.
Hjúkrunarfræðingurinn telur
uppsögnina ólöglega og hefur fengið
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
og lögmann í lið með sér og hefur
hann farið fram á skaðabætur við
Hrafnistu vegna hinnar meintu ólög-
legu uppsagnar.
Þrír aðilar eru í forvali hjá Ríkis-
kaupum vegna byggingar 60 rýma
hjúkrunarheimilis í einkafram-
kvæmd. Er þar gert ráð fyrir hönn-
un og byggingu heimilisins ásamt
fjármögnun í 25 ár, svo og rekstri
þess þann tíma. Auk Hrafnistu er
það Securitas ásamt öðru fyrirtæki
og síðan ístak og Nýsir í samvinnu
við þrjá hjúkrunarfræðinga.
Voru gefnir tveir kostir
Sigrún Egilsdóttir er einn hjúkr-
unarfræðinganna þriggja. Hún
kvaðst í samtali við Morgunblaðið í
gær hafa tilkynnt yfirmönnum sín-
um hjá Hrafnistu að hún ætti aðild
að forvalinu daginn eftir að forvalið
^ var opnað. Sér hafi þá verið gefnir
tveir kostir, að ganga út úr forvalinu
eða hætta strax störfum.
Sigrún kvaðst hafa farið fram á, í
samráði við Félag íslenskra hjúkrun-
arfræðinga, að Hrafnista drægi það
sem hún nefndi hótun til baka og að
reynt yrði að semja. Hún sagðist
þessu næst hafa fengið skeyti frá yf-
irmönnum Hrafnistu þar sem henni
var sagt upp störfum frá og með 1.
febrúar. í framhaldi af því fól stétt-
arfélagið lögmanni sínum, Ragnari
H. Hall, málið til skoðunar.
Sveinn Skúlason, forstjóri Hrafn-
' istu, sagði rök forráðamanna stofn-
unarinnar fyrir uppsögn Sigrúnar
vera þau að hún sem deildarstjóri á
Hrafnistu gæti ekki jafnframt undir-
búið forval og útboð í verk í sam-
keppni við Hrafnistu. Því hefði henni
verið gert að velja á milli. Hann seg-
ir nafn hennar fyrst hafa komið upp
þegar í ljós kom hvaða aðilar voru í
" 'Vfon.'ali. Hún hafi ekki látið yfirmenn
sína vita af því fyrirfram.
Mjólkursamlag KEA með útflutningsleyfí til landa ESB
Raunhæfur
möguleiki á
að ná árangri
MJÓLKURSAMLAG KEA hefur
fyrst mjólkuriðnaðarfyrirtækja
fengið útflutningsleyfi til landa Evr-
ópusambandsins, en það var form-
lega staðfest í Brussel í síðasta mán-
uði eftfr að öll ríki innan sambands-
ins höfðu fengið það til staðfestingar.
Er leyfið án allra takmarkana og
gildir því fyrir allar mjólkurvörur
sem fyrirtækið framleiðir, en oft
hafa slík leyfi verið veitt fyrir ein-
stakar vörur og vöruflokka.
Hólmgeir Karlsson mjólkursam-
lagsstjóri sagði að ítarleg úttekt
hefði verið gerð á mjólkursamlaginu,
framleiðsluháttum þess, gæðakerfi
og gæðum mjólkur frá bændum og
hefði leyfið fengist í kjölfar þeirrar
úttektar.
Hólmgeir sagði að sú stefna hefði
verið mörkuð að vinna markvisst að
útflutningi og er markmiðið það að
innan tíu ára verði útflutningur orð-
inn snar þáttur í starfsemi fyrirtæk-
isins. Öllum tæknilegum hindrunum
hefði verið rutt úr vegi og væri út-
flutningsleyfið mikill áfangasigur
sem myndi hvetja menn til að halda
áfram á sömu braut. Þetta lejdi hef-
ur í för með sér að mjólkursamlagið
hefur nú þegar aukna möguleika á
útflutningi á smjöri úr því umfram-
magni fitu sem verður til þar sem
sala mjólkurvara á próteingrunni er
meiri en á fitugrunni innanlands.
Styrkir stöðuna
Hólmgefr telur samlagið eiga
raunhæfa möguleika á að ná árangri
í útflutningi á mjólkurvörum á
næstu árum. „Það er að mínu mati
nauðsynlegt að leita allra leiða til að
styrkja stöðu mjólkuriðnaðarins
með markvissu útflutningsstarfi,“
sagði Hólmgeir en á næstu árum
munu mjólkurbúin þurfa að takast á
við aukinn innflutning á mjólkurvör-
um hingað til lands. Benti samlags-
stjóri á að á næstu árum yrði dregið
úr innflutningsvernd þeirra landa
sem mest væri horft til varðandi út-
flutning.
Taldi Hólmgeir að samlagið ætti
mesta möguleika á að flytja út ýms-
ar sérvörur, en lykilatriði væri að
finna heppilega aðila í samstarf
varðandi útflutninginn.
Verða að undir-
rita víxil sem
tryggingu
fræðinga. Sjúkrahús í nági'enni
Reykjavíkur hafa boðið þeim strax
röðun í hærri launaflokka en spítal-
arnir í Reykjavík auk þess sem þeim
eru í vissum tilvikum boðnar staðar-
uppbætur. Þessa leið hafa forráða-
menn sjúkrahúsanna í Reykjavík
ekki séð sér fært að fara en fyrfr
nokkru kom fram hugmynd um að
bjóða hjúkrunarnemum námsstyrki
á lokaspretti námsins.
Standa nú yfir viðræður milli spít-
alanna og nokkurra hjúkrunarnema.
Um er að ræða allt að hálfum
launum sem getur þýtt kringum 50
þúsund krónur gegn því að hjúkrun-
arnemarnir skuldbindi sig til að
vinna í tvö til þrjú ár á sjúkrahúsinu
eftir útskrift. Er þeim gert að undir-
rita víxil sem fellur ef þeir halda ekki
út umsaminn tíma.
Um 80 útskrifast í vor
Frá Háskóla Islands útskrifast 56
hjúkrunarfræðingar í vor og 25 frá
Háskólanum á Akureyri. Flestir sem
útski-ifast á Akureyri ráðast í vinnu
þar um slóðir en hinir dreifast á höf-
uðborgarsvæðið og víða um landið.
Fyrir nokkru fór fram sérstök
kynning á vegum Landspítalans á
starfi hjúki-unarfræðinga meðal
þeirra sem ekki hafa verið í starfi að
undanfórnu. Er útlit fyrir að tekist
hafi að ná í 10 hjúkrunarfræðinga
eftir þeirri leið sem munu skila sér í
störf á næstu vikum og mánuðum.
Fjölbreytt
kjötkveðju-
hátíð
KJÖTKVEÐJUHÁTIÐ var haldin
í safnaðarheimili kaþólskra við
Hávallagötu í Reykjavík í gær-
kvöld. Fór þar fram hin fjöl-
breyttasta fjölskylduskemmtun
með leikjum, söng, dansi og
snæðingi. Framundan er síðan
fastan og þá stilla margir neyslu
sinni í hóf.
Morgunblaðið/Golli
Öld frá
upphafinu
KR-INGAR minntust í gær aidar-
afmælis félagsins ineð fjölmennri
móttöku í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Flutt voru ávörp í tilefni dagsins,
félaginu færðar kveðjur og gjafir
og fyrstu eintökin af nýútkominni
sögu félagsins, Fyrsta öldin - saga
KR í 100 ár, voru afhent. Þar sem
Ráðhúsið stendur við Tjörnina
stóð lengi Báraii; íþróttahús og fé-
lagsheimili KR. I tilefni afmælisins
hefur verið sett upp sýning á Ijós-
myndum úr starfi félagsins í heila
öld. Margir afmælisgestir notuðu
tækifærið í gær og virtu fyrir sér
myndirnar, þeirra á meðal Aðal-
steinn Daimann Októsson sem
virðir fyrir sér ljósmynd af Bár-
unni og keppnisflokki KR um
1930.
■ Þrír formenn/Bl og B2
Morgunblaðið/Golli