Morgunblaðið - 14.04.1999, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 14.04.1999, Blaðsíða 47
ár, þegar hann er afísaður anno 2032, til að handsama gamlan erkió- vin sinn (Wesley Snipes), sem sloppið hefur úr ísskápnum og ógnar dúllulegum borgarbúum Los Angeles. Glórulaus, hröð og skemmtileg della, með fínum átakaatriðum. Nigel Hawt- horne og Bob Gunton hressa enn frekar uppá leikhópinn. RUV, 17.04. Captain Blood, ('35) jj Ein frægasta sjóræningjamynd * um titilpersónuna, írskan lækni (Errol Flynn), sem gerist hrellir úthaf- anna. Rómantísk ævintýramynd með stjörnuna í fínu formi í sínu fýrsta stórhlutverkLíSkylmingaatriðin þykja sígild. Maltin lofar myndina í hástert. TNT, 14.04. Donnie Brasco, ('97) Allt öðruvísi mafíumynd, byggð á minningum Alríkislögregluu- mannsins Joe Pistone (Johnny Depp), sem býr svo vel um sig í glæpasamtökunum í New York, sem skálkurinn Donnie Brasco, að hann veit tæpast lengur í hvom fótinn hann á að stíga. Aðalkennari hans og vinur í Mafíuheiminum, er Lefty (Al Pacino), klókur smákarl í samtökun- um. Gripandi afþreying um vináttu undir ógnvekjandi kringumstæðum þar sem Pistone reynir að bregðast hvorki Lefty né húsbændunum, FBI. Pacino er stórkostlegur. Stöð 2, 16.04. Dómarinn - Judge Dredd, ('95) fStallone er slappur í vondum framtíðartrylli, sem harðsnúinn dómari með glæpalýðinn vokandi yfir sér. Armand Assante því síður líklegur sem illmenni. Bíórásin, 14.04. Eilrft sumar - Endless Summer 2, ('94) Óvænt skemmtun og forvitnileg, leikin heimildarmynd um brim- brettakappa sem komast í hann krappann í stanslausri leit, víða um lönd, að rétta brimrótinu. Bíórásin, 25.04 Kelly's Heros, (70) Grínaktugt léttmeti um skrið- drekaforingjann Clint Eastwood og áhöfn hans (Telly Savala, Don Rickles, Donald Sutherland), sem gleyma því að þeir eru að berjast í seinna stnði er þeir fá nasasjón af nasistagulli. TNT, 24.04. £ Lögga í ham - The Detective, ('68) jy Frank Sinatra f ham sem lög- w regluforingi á Mannhattan, sem á við margvíslega erfiðleika að etja. Er að fást við óvenjulega snúið mál þar sem fórnarlambið er hommi, kona hans (Lee Remick), vergjörn, saklaus maður dæmdur, hann missir starfið. Óvenjulega raunsæ og jarð- bundin löggumynd, óaðfinnalega leikstýrt af Gordon Douglas, fínum B- mynda manni (sem hér var kominn í betri verk). Með úrvals aukaleikurum, m.a. Robert Duvall og Al Freman, Jr. Sýn, 20.04. Mulholland hæðir - Mulholland Falls, ('96) / Lítill munur er á vinnubrögðum “ löggugnegisins hans Nick Nolte og starfsaðferðum glæpamanna í Los Angeles um miðja öldina. Flott fyrir augað því meiri áhersla er lögð á hattana, fötin og bílana en klisju- kennt efnið. Fyrsta Hollywoodmynd Nýsjálendingsins Lee Tamahori (Once Were Warriors), er vonbrigði. Chazz Palminteri, Melanie Griffith. Bíórásin, 26.04. Operation Crossbow, ('65) Jj Myndir með hliðstæðu nafni, ” gjarnan spennumyndir úr seinna stríði með fjölda alþjóðlegra keikara, voru vinsælar á sjöunda áratugnum. Þessi engin undantekn- ing. George Peppard og Sophia Lor- en fara fyrir hópi ofurmenna úr liðsafla Bandamanna sem sendir eru bak við víglínur óvinarins til að koma eldflaugasmiðjum nasista í Peenemunde fyrir kattarnef. Breski stórleikarahópurinn er með ólíkdum. TNT, 18.04. Samsæriskenning - Conspiracy Theory, ('97) / Gengur fyrir geðveikisblikinu í * fasi stjömunnar Mel Gibson, sem leikur snarruglaðan bílstjóra heltekinn ofsóknarbrjálæði. Samsær- iskenningar hans ná eyrum saksókn- ara (Julie Roberts), sem hlustar ekki fyrr en um seinan. Ótrúverðug sga og ástamál, plöguð af einum ómerkileg- asta endi kvikmyndanna. Gibson er slíkur nagli að hann heldur manni við efnið. Stöð 2, 21.04. Tvíeykið - Double Team, ('97) / Belgíska buffið Jean-Claude Van w Damme, ásamt fleirum sömu tegundar, Dennis Rodman, Mickey Rourke, Paul Freeman. Þeir halda á sér hita með barsmíðum. Dæmigerð buffmynd, hröð en innhaldsrýr. Bíó- rásin, 26.04. Tólf Ruddar - The Dirty Dozen, ('67) jj Stríðsmyndin um óbótamenn- ® ina sem Lee Marvin þjálfar til að vinna hetjudáðir að baki víglín- unnar í seinna stríði, er löngu sígilt afþreyingarefni. Tylftin telur m.a. John Cassavetes, Charles Bronson og Telly Savalas. Auk þess koma við sögu m.a. Robert Ryan og Emest Borgnine. Ein af mörgum, góðum "karlrembu- myndum" frá Robert Aldrich. RUV, 23.04. Umskiptingar - Face Off, ('97) Uj Upphafsatriðið eitt er margfalt * betur gert og ofsafengnara en tugur meðalspennumynda, Enda snill- ingur Hong Kong - tryllanna, John Woo, við stjórnvöl fínnrar sögu um klókan lögreglumann (John Travolta) og stórhættulegan glæpamann (Nicolas Cage). f einni bestu sögufléttu síðari ára skipta erkióvinim- ur um hlutverk í hamslausum eltinga- leik við að koma óberminu á grillið. Frábær í alla staði. Stöð 2, 24.04. Uppá líf og dauða - Mortal Combat, ('95) / Tölvuleikurinn frægi dubbaður * uppí bíómynd með tilheyrandi slagsmálum og blóðsúthellingum. Christopher Lambert er kjörinn í að leika vélmenni. Bíórásin, 23.04 BflRNA-Oq_______ FJÖLSKYLDUMYNDIR ftmjw—r| Brúðkaup besta vinar - 4^1 | míns - My Best Fri- I 1 | ends Wedding, ('97) I / Vinsæl, rómatísk w gamanmynd um Júllu (Julia Roberts), sem telur sig eiga gamlan kærasta (Dermot Mulroney) og verður því æf er hann býður henni óforvarendis í brúðkaup sitt og nýrrar kæmstu (Cameron Diaz): Diaz tekur Roberis i nefið, keppikeflið Mulroney minnir á náungana utaná Macintos- hdós og er ofurtiði borin af sjarma hommans, vinar Júlíu, sem Rupert Everett leikur af innsæi. Fonnerkin eru röng en myndin engu að síður bærileg skemmtun. Stöð 2, 24.05. HDemon Seed, (77) j Minnisstæð dóna- w hrollvekja um of- urtölvu sem vísinda- maðurinn Fritz Weaver glæðir full miklum mannlegum eigin- leikum því maskínan nauðgar konunni hans (Julie Christie). Afkvæmið mun boða mannkyni mikla ógæfu. Gerð eftir reyfara Dean Koontz. TNT, 19.04. |P7)NS- OQ SÖNQVAMYNDIR Girl Happy, ('64) /f Dæmigerð w Presleymynd, þær eru flestar einsog þessi, í B-dúr. Kóngur- inn leikur æðislegan gæja og syngur nokkur lög einsog honum er einum lagið. Annað er mestmegnis blaður um mafíupíur í sólinni í Fort Lauder- dale. Fyrir konungssinna. TNT, 23.04. \VESTRAR Welcome to Hard Times, ('67) jj Vestravítamínin 9 eru til staðar; leikstjórinn Burt Kenn- edy, stjömurnar Henry Fonda, Warren Oates og Janice Rule og tökustjórinn Harry Stradling, Jr. í mynd byggðri á sögu E.L. Doctorows um íbúa smá- bæjar sem verða að snúa bökum saman þegar óæskilegur náungi kemur í heimsókn. TNT, 27.04. Westworld, (73) Jj Framtíðarvestri um tvo borgar- * uppa (Richard Benjamin, James Brolin), sem bregða sér í Vestragarðinn yfir helgina. Til að freta niður vélmenni í hlutverkum byssubófa. Heldur kárnar gamanið þegar róbótinn (Yul Brynner) fer að dæla í þá alvöru blýi. Höfundurinn, Michael Chrichton, leikstýrir og skrifar handritið og gerir hvorttveggja vel. Brynner og Bemjamin em fínir og skemmtunin hressileg. TNT, 20.04. Sæbjörn Valdimarsson Meistaraverk $ Góð Sæmileg ^ Léleg 47

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.