Morgunblaðið - 18.04.1999, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Dýraglens
EKkJ KAST*
þESSO/H MÚR-
smw-í "
£KK£-fZr)
'AUDAMAL. >
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Súnbréf 569 1329
m H • Bpfi
M ~ jjf
Leikskóli í Bessastaða-
hreppi, enginn biðlisti
Ljóska
Smáfólk
Ég verð taugaóstyrkur þegar ég spila á móti Svarta-
Jóa, hinum heimsfræga fljótabáta-fjárhættuspilara..
Ég hef aldrei tekið eftir því áður... Spilin líta eins út
á hvolfi og þegar rétta hliðin snýr upp...
Frá Guðmundi G. Gunnarssyni:
NÚ í byrjun marsmónaðar var við
hátíðlega athöfn opnuð viðbygging
við leikskólann Krakkakot í Bessa-
staðahreppi. Með þessari aðgerð
var biðlistum á leikskólann eytt. Og
það sem meira er, stækkunin er vel
við vöxt, nú eigum við leikskóla á
lager.
Húsnæði leikskólans rúmar full-
nýttur 120-130 böm. í dag era um
100 böm í leikskólanum. Við leik-
skólann starfar mjög hæft starfs-
fólk og er ekki skortur á vinnuafli.
Aðstaða öll í húsnæðinu er frábær.
Það er til þess tekið hve skemmti-
lega hefur tekist að samræma eldri
bygginguna þeirri nýju. Mjög góð
samvinna var með stjómvaldi í
Bessastaðahreppi, arkitekt, hönn-
uðum, verktaka, eftirlitsaðilum og
starfsfólki.
Sérstaklega vekur það mikla eft-
irtekt hve innréttingar eru smekk-
legar. Andrúmsloft heimilislegs
vinnustaðar svífur yflr, öllum, sem
að koma, til mikillar ánægju. Ótrú-
leg en ánægjuleg staðreynd er að
leikskólanum var einungis lokað í
einn dag vegna þessara miklu
breytinga. Það er full ástæða til
þess að þakka öllum sem að verkinu
komu, það er öllum til sóma.
Þessi staða er sérstaklega
ánægjuleg þegar umræða um upp-
byggingu í Bessastaðahreppi er í
hámæli, en nýlega var samþykkt
breyting á aðalskipulagi á mið-
svæði. Og nú er vinna við nýtt
deiliskipulag miðsvæðis sveitarfé-
lagsins á lokastigi. En í skipulagi
þessa svæðis er gert ráð fyrir bygg-
ingu íbúða fyrir yngri og eldri, svo
og aðstöðu fyrir ýmsa þá þjónustu,
sem nauðsynleg er í sveitarfélagi af
þeirri stærð sem fyrirhuguð er.
Aætlanir um fólksfjölgun hafa
staðist um árabil og hafa auðveldað
sveitarstjórn að ætla uppbygging-
aráformum tíma. Þar á ég sérstak-
lega við_ uppbyggingu skólamann-
virkja. íbúar í Bessastaðahreppi
búa við þá ánægjulegu staðreynd að
grunnskólinn er einsetinn og nú er
hafinn undirbúningur mikillar
stækkunar grunnskólans. En í þess-
ari stækkun skólans er gert ráð fyr-
ir fjölgun almennra kennslustofa,
raungreinastofum, aðstöðu til tón-
listarkennslu og ýmissi sérhæfðri
starfsemi.
Auk uppbyggingar grunnskólans
er á þriggja ára áætlun sveitar-
stjórnar að hefja framkvæmdir við
stækkun íþróttahússins, en það er
vissulega eðlilegt framhald aukinna
umsvifa grunnskólans. En einnig er
mikil gróska í tómstunda-, félags-
og íþróttastarfí í sveitarfélaginu.
Uppbygging skólamannvirkja er
metnaðarmál sveitarstjórnar, því
hér viljum við að foreldrar séu ör-
uggir um bömin sín, hér sé gott að
búa fyrir alla fjölskylduna utan al-
faraleiðar í rómuðu umhverfi.
GUÐMUNDUR G. GUNNARSSON,
oddviti hreppsnefndar
Bessastaðahrepps.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
GLERLISTARNÁMSKEIÐ
Myndlistai’maðurimt Jónas Bragi
heldur námskeið í glerbnæðslu, steindu glepi og
kpistalssteypu sem heljast dagana 20., 21. og 26. apríl.
Innnitun og nánari upplýsingap í símum 554 6001 / 895 9013
á milli kl. 14.00 og 20.00 alla daga.