Morgunblaðið - 18.04.1999, Side 2

Morgunblaðið - 18.04.1999, Side 2
2 SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Marinex ehf. sólningarverksmiðja í Hveragerði hefur framleiðslu til útflutnings Samningar í höfn um sölu á erlendum mörkuðum MARINEX ehf. sem er ný sólningarverksmiðja í Hveragerði hóf í gær framleiðslu hjólbarða til út- flutnings og á innanlandsmarkað eftir tilrauna- framleiðslu, sem gefið hefur góða raun, að sögn forsvarsmanna fyrirtækisins. Gengið hefur verið frá sölusamningum á erlendum mörkuðum um alla framleiðsluna út þetta ár og til næstu ára, að sögn Jóns Einars Jakobssonar, lögmanns fyrir- tækisins. Hefur verið samið um sölu hjólbarða til nokk- urra landa s.s. Bretlands, Kúbu, Rússlands og Kanada og mun Marinex m.a. framleiða hjól- barða í afbrigðilegri stærð fyrir svörtu leigubíl- ana á Bretlandseyjum. Nýta ódýra hveraorku til framleiðslunnar „Nýjungin felst í því að hér er að langmestu leyti um útflutning að ræða. Hann byggist á því að við nýtum umhverfisvæna, ódýra varmaorku til framleiðslunnar og erum samkeppnishæfir við keppinauta okkar sem eru fyrst og fremst er- lendir. Við fengum síðast í gær viðbótarpantanir frá útlöndum og gætum selt langt umfram það sem við getum framleitt á þessu ári,“ segir Jón. Ilann sagði að fyrirtækinu hefði tekist með góð- um samböndum að komast inn á markaðina er- lendis en samkeppnin væri hörð. Hann sagði að áhersla væri lögð á að kaupa eingöngu gæðahrá- efni til endurvinnslunnar. Erlendir fjárfestar hafa áhuga á að kaupa hlut Gengið hefur verið frá fjármögnun fyrirtækis- ins. Hlutafé verður 40 milljónir kr. til að byrja með, en verður fljótlega aukið. Allir hluthafar eru innlendir en skv. upplýsingum forsvars- manna fyrirtækisins hafa öflugir fjárfestar frá Kanada og Svíþjóð, sem sumir eru jafnframt kaupendur hjólbarða, óskað eftir að eignast hlut í félaginu. Áætluð velta á fyrsta ári eru tæpar 200 milljónir kr. en reiknað er með að veltan aukist í 340 millj. kr. við aukin afköst. Fyrirtækið nýtir ódýra varmaorku í Hvera- gerði við framleiðsluna, sem mun vera einsdæmi við endurvinnslu á hjólbörðum. Var vélakostur keyptur erlendis í samráði við danskt og breskt ráðgjafarfyrirtæki, sem hafa haft umsjón með uppsetningu framleiðslutækjanna og þjálfun starfsmanna. Verksmiðjan er til húsa á 1.000 fermetra fleti í nýlegu iðnaðarhúsnæði við Austurmörk í Hvera- gerði. Starfsmenn eru í upphafi tíu til tólf talsins en þeim mun fjölga fljótlega með auknum afköst- um. Jón sagði að ýmsir hefðu lagt hönd á plóginn við undirbúning verkefnisins s.s. Atvinnuþróun- arsjóður Suðurlands og Byggðastofnun auk þess sem Arni Johnsen alþingismaður hefði veitt fyr- irtækinu mikla aðstoð. Norsk stjórnvöld Smugusamn- ingur sam- þykktur Ósló. Morgnnbtaðið. NORSKA stjórnin samþykkti í gær Smugusamninginn milli Noregs, ís- land og Rússlands en með honum verður bundinn endi á veiðar Islend- inga í Smugunni gegn veiðiheimild- um innan norskrar og hugsanlega rússneskrar landhelgi. Samningurinn er til fjögurra ára og mun þorskkvóti íslendinga í Barentshafi verða lagaður að þeim breytingum, sem heildarkvótinn tekur hverju sinni. Það sama gildir um loðnukvótann, sem Norðmenn fá við ísland, og verður hann hverju sinni ákveðinn með hliðsjón af þorskkvóta íslendinga við Noreg. Þessar gagnkvæmu veiðiheimildir falla hins vegar niður fari heildar- þorskkvótinn í Barentshafi niður fyrir 350.000 tonn. --------------- Féll milli skips Og bryggju KARLMAÐUR féll milli skips og bryggju í Bolungarvík um klukkan 4 aðfaranótt laugardags er hann var á leið út í skipið ásamt félaga sínum. Féll maðurinn um þrjá metra og var nokkrar mínútur í sjónum áður en félaga hans og leigubifreiðastjóra, sem ók þeim að skipinu, tókst að bjarga honum á þurrt meðal annars með hjálp krókstjaka. Maðurinn var fluttur á Sjúkrahús- ið á ísafirði til aðhlynningar vegna kælingar, en hann mun ekki hafa hlotið teljandi áverka við fallið. Að sögn vakthafandi læknis var líðan hans eftir atvikum góð í gær. Keppt í hjólreiðum UM 60 ungmenni á þrettánda aldursári tóku þátt í hjólreiða- keppni á vegum Umferðarráðs, lögreglu og Bindindisfélags öku- manna, við Perluna í gær. Að sögn Guðmundar Þorsteins- sonar, deildarstjóra Umferðar- ráðs, fór keppnin vel fram, fjöl- margir foreldrar mættu á stað- inn og einkennandi var hve unga fólkið var kurteist, en það er ekki slæmur kostur fyrir öku- mann framtíðarinnar. Það voru þau Elma Sif Einarsdóttir og Guðjón Baldvinsson úr Garða- skóla, sem unnu til fyrstu verð- Iauna, en nemendur úr Hamra- skóla og Fossvogsskóla fylgdu þar á eftir. Alls er Iandinu skipt í 5 riðla og var þetta sá fyrsti, en keppt verður í hinum síðar. Sérstök úr- slitakeppni verður siðan haldin í fyrri hluta september. Flóttamenn frá Kosovo fá 45 tonn af mat frá íslandi Allir matarpakk- arnir seldust MATARPAKKARNIR, sem senda á til hjálpar flóttamönnum frá Kosovo í Albaníu, kláruðust í verslun Hag- kaups í Skeifunni um klukkan eitt í gærdag. Þórður Þórisson hjá Hag- kaupi sagði að viðbrögð almennings við þessari hjálparbeiðni hefðu verið betri en nokkur þorði að vona. Alls seldust um 7.500 matarpakk- ar, eða um 45 tonn af mat, og verða pakkarnir sendir með skipi til Alban- íu á þriðjudag, þar sem þeir verða færðir flóttamönnum. Sigrún Ámadóttir, framkvæmda- stjóri Rauða kross íslands, sagði að um 60 til 70 sjálfboðaliðar hefðu tek- ið þátt í verkefninu, en sérstaka at- hygli hefði vakið að flóttamennirnir, sem komu til landsins þann 8. aprfl, hjálpuðu við pökkunina. Kvaðst hún vilja koma á framfæri þökkum til sjálfboðaliðanna og almennings fyrir þátttökuna. Sigrún sagði að fyrir um 10 dögum hefði borist neyðarbeiðni frá Alþjóða Rauða krossinum, þar sem kom fram að 7 milljarða króna þyrfti til að halda uppi hjálparstarfi fyrir fórnarlömb stríðsátakanna á Balkanskaga næstu 6 mánuði. Sigrún sagði að Islendingar gætu lagt hönd á plóginn á þessum vettvangi með fjárframlögum, en Rauði krossinn hefur reikning númer 12 í Sparisjóði Reykjavíkur og ná- grennis á Seltjamamesi. Nú þegar hafa safnast um 16,5 milljónir króna. Þar af em um 4 milljónir frá almenn- ingi, 5 milljónir frá ríkisstjóminni en afgangurinn er frá Rauða krossi Is- lands og deildum hans. Morgunblaðið/Kristinn Forsætisráðherra um Reykjanesbraut Tvöföldun verði flýtt DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á stjómmálafundi í Stapa sl. föstudagskvöld að hann styddi það baráttumál frambjóðenda flokksins á Reykjanesi að tvöföldun Reykjanes- brautar verði flýtt og henni lokið á næsta kjörtímabili, að sögn Kristjáns Pálssonar frambjóðanda flokksins á Reykjanesi. Þetta kom fram í svari Davíðs við fyrirspum á fundinum um tvöfóldun Reykjanesbrautar en frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu hafa lagt áherslu á að því verki verði flýtt. Kristján sagðist í samtali við blaðið í gær líta á það sem merk tíma- mót þegar forsætisráðherra lýsti yfir stuðningi sínum við að þessari fram- kvæmd yrði flýtt þannig að henni mætti ljúka á næstu fjórum árum. -----------♦♦♦------ Bjargað úr Bröttubrekku BJÖRGUNARSVEITIN Heiðar í Stafholtstungum var kölluð út klukk- an 3.30 aðfaranótt laugardags og sótti ökumann úr bifreið sem sat föst í snjó nálægt Miðdalsgili í Bröttubrekku. Hafði ökumaður annarrar bifreið- ar, sem ók fram á bifreiðina, einnig fest sína bifreið og afráðið að ganga um 6-8 km að bænum Hvassafelli, til að biðja um aðstoð lögreglu, sem kallaði björgunarsveitina út. Tók gönguferðin um tvær klukkustundir í fjúki og nokkum ofankomu en varð manninum lítil raun að sögn ábúanda að Hvassafelli. BLAÐINU í dag fylgir 20 síðna blað frá Félagi íslenskra bóka- útgefenda í tilefni af viku bókar- innar. Að rannsaka með opnum hug ► Úlfur Árnason prófessor í Lundi hefur sett fram kenningar um að maðurinn sé 400 þúsund ára, en ekki 175 þúsund ára. /10 Veraldleg velgengni á kostnað gæða? ► Hafa gæði ensku knattspyrn- unnar ekki aukist á umliðnum ár- um í takt við aukinn fjölda er- lendra stórstjarna í úrvalsdeild- inni? /14 Vandamál Júgóslavíu verða að vandamáli NATO ► Stríðsátökin við Serba eru inn- an Evrópu. Þau gætu haft alvar- leg áhrif fyrir tilveru Atlantshafs- bandalagsins og skipulag öryggis- mála í Evrópu, ef svo illa fer að þau breiðist út. /26 Torfærur á leið Litháa til NATO og ESB ►Litháar reyna nú að feta sig í átt að NATO og Evrópusamband- inu en leiðirnar að því marki eru torsóttar og grýttar. Hindranirnar á þessum tveimur leiðum eru þó af ólíkum toga. /6 ► l-24 Ef kapaliinn gengur upp ... ►Landsliðið í knattspyrnu hefur tekið stakkaskiptum síðan Guðjón Þórðarson var ráðinn þjálfari. /1&12-14 Undir heillastjörnu ► Sara Bartels Bailey starfaði í andspymuhreyfingu Dana og var túlkur við herréttarhöldin í Nm-nberg. /8 Fyrstu landnemar Ameríku ►Þegar Leifur heppni og Kól- umbus sigldu tii Ameríku höfðu Indíánar verið þar í þúsundir ára. En hvaðan komu þefr, hverjir voru þeir og hversu lengi höfðu þeir bú- ið í Ameríku? /16 c FERÐALOG ► 1-4 Saxland ► Undraveröld fyrir náttúruunn- endm- -og þar er virkið König- stein. /2 Vélsleðaferð um Hengilssvæðið ► Jarðhita- og hverasvæði við borgarmörkin /4 D BÍLAR ► l-4 Land Rover Discovery ► Sígildm- og með alhliða eigin- leikum. /4 E ATVINNAJ RAÐ/SMÁ ► l-24 Bjóða þjónustu á sviði skattaréttinda ► Sérhæfing hjá Taxis sf. /1 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/Wbak Idag 50 Leiðari 32 Brids 50 Helgispjall 32 Stjömuspá 50 Reykjavíkurbréf 32 Skák 50 Skoðun 36 Fólk í fréttum 54 Viðhorf 37 Utv/sjónv. 5 1,62 Minningar 38 Dagbók/veður 63 Myndasögur 48 Mannl.str. 12b Bréf til blaðsins 48 Dægurtónl. 14b INNLENDAR FRÉTTIR: 24-8-BAK ERLENDAR FRETTIR: 1&6

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.