Morgunblaðið - 06.05.1999, Side 16
*
Viðskiptablað
Morgunblaðsins
Fimmtudagur
6. maí 1999
Aðal-
fundur
VSÍ
• Aðalfundur Vinnu-
veitendasambandsins
verður haldinn 12. maí
nk. á Hótel Loftleiðum.
Sérstakur gestur fund-
arins verður Dirk Hu-
dig framkvæmdastjóri
UNICE - samtaka
evrópskra iðn- og at-
vinnurekenda.
ut.is
• Samtök iðnaðarins
og Samtök íslenskra
hugbúnaðarframleið
enda hafa opnað vef-
síðu þar sem nálgast
má upplýsingar um
upplýsingatækniiðnað
á Islandi.
Bifrastar-
vefur
%
• Félag útskriftar-
nema á Bifröst hefur
opnað vef með upplýs-
ingum um brautskráða
rekstrarfræðinga 1999,
sem eru nú alls 40
talsins. Slóðin er
www.vesturland.is
/1999.
Farbanki
sparisjóðanna
• Sparisjóðimir hafa opnað Farbanka sparisjóð-
anna þar sem ýmsar fjármálaupplýsingar eru að-
gengilegar fyrir lófatölvur á heimasíðu sparisjóð-
anna, www.spar.is.
Þær fjármálaupplýsingar sem nú eru aðgengi-
legar í Farbanka sparisjóðanna fyrir lófatölvur
eru: Gengi gjaldmiðla, leiðbeinandi innláns- og
útlánsvextir, viðskipti á Verðbréfaþingi, kaup- og
sölutilboð á VÞI og yfírlit hlutabréfaviðskipta.
Aðalfundur Islensk
sænska verslunar-
ráðsins
• Aðalfundur íslensk-sænska verslunarráðsins verður haldinn í Stokk-
hólmi 18. maí nk. kl. 15-17 í húsakynnum Alþjóða verslunarráðsins í Sví-
þjóð. Þetta er í annað sinn sem ISV heldur aðalfund sinn, en félagið var
stofnað i Reykjavík vorið 1997.
Auk almennra aðalfundarstarfa verður kynning á hvernig samskipti og
viðskipti eru farin að færast í auknum mæli yfir á Netið. Framsögumenn
verða Skúh Mogensen framkvæmdastjóri OZ.COM, Harry HSkansson
framkvæmdastjóri hjá Ericsson og Viveka Blom markaðsstjóri E-TRADE
NORDIC. Tell Hermanson, aðalritari Alþjóða verslunarráðsins í Svíþjóð,
mun stjóma fundinum. Að fundinum loknum mun sendiherra íslands í Sví-
þjóð, Hörður H. Bjamason, bjóða fundargestum til móttöku í sendiherra-
bústaðnum.
Að morgni hins 19. maí verður farið í heimsókn í aðalstöðvar Ericsson
þar sem OZ.COM og Ericsson kynna samstarfsverkefni sitt á sviði netvið-
skipta.
AUtaf sama góðærid?
Navision Financials
Navision Financials er viðskiptaforrit sem hefur meiri
möguleika til að stækka með þér en flest önnur viðskiþta-
forrit. Kynntu þér málið hjá fyrirtækinu sem kynnti
Navision Financials fyrst á íslandi.
ÁRMÚLA 7, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 550 9000, www.strengur.is
FÓLK/Guöný Hansdóttir
Toppurinn
á tilverunni
Morgunblaðið/Ásdís
GUÐNÝ Hansdóttir,
nýráðin yfírflug-
freyja hjá Flugleið-
um, er yngsta konan sem
gegnir þehTÍ stöðu frá upp-
hafi, aðeins 32 ára.
Guðný hefur nám
markaðs- og rekstrarhag-
fræði að baki og er einnig
sérhæfð í starfsmanna-
stjómun. Meðfram náminu
vann hún hjá Flugleiðum
við ýmis störf, en hóf síðan
störf sem flugfreyja hjá fé-
laginu fyrir sex áram.
En af hverju skyldi hún
hafa gerst flugfreyja að
loknu þessu námi, í stað
þess að setjast inn á skrif-
stofu hjá einhverju fyrir-
tækjanna í borginni?
„Eg hafði sótt um sem
flugfreyja áður, og eins og alhr vita
er erfitt að komast að. Mig langaði
að prófa flugfreyjuna fyrst ég
komst að, svo ég þyrfti ekki að sjá
eftir því seinna að hafa ekki prófað.
Svo reyndist þetta svo skemmtilegt
starf að mig hefur ekki langað að
hætta, og er mjög ánægð í starfinu."
Þannig að flugfreyjustarfíð er
jafnt skemmtilegt og talað er um?
„Já, en auðvitað em álagstímar í
því. Þetta getur verið erfið vinna en
það er svo margt skemmtilegt sem
vegur upp á móti. Maður er alltaf
að hitta nýtt og nýtt fólk, bæði far-
þega og áhafnir, sem em mismun-
andi í hverju flugi.
Vinnutíminn er einnig mjög
þægilegur auk þess sem það er
gaman að geta farið reglulega til út-
landa og fá að sjá vorið á nýjum og
nýjum stöðum.“
Guðný segir að ýmislegt geti
gerst í háloftunum, og flugfreyjur
lendi í mörgum skemmtilegum upp-
ákomum í vinnunni. Hún segir að
farþegar um borð missi stundum
stjóm á sér.
„Það er eins og fólki finnist það
ekki vera statt í siðmenningunni og
átti sig allt í einu á að þama um
borð er engin löggæsla. Til dæmis
er ofbeldi um borð að færast í auk-
ana en talið er að það sé vegna þess
hve loftið er þunnt í vélinni og það
stigi fólki til höfuðs. Það er ekki
langt síðan flugfreyjur lentu í því að
þurfa að binda mann niður vegna
óláta.“
Guðný segir að það sé þó ekki al-
gengt, yfirleitt sé hægt að tala fólk
til og róa það.
„Maður verður mikill mann-
þekkjari af því að starfa sem flug-
freyja. Þegar maður stendur fremst
í vélinni og býður fólk velkomið fær
maður strax mynd af því hvemig
flugið á eftir að verða. Ef maður
►Guðný Hansdóttir er fædd árið
1967 í Reykjavík. Hún er með BS-
próf í markaðsfræði frá Florida
Institute of Technology og MBA í
starfsmannastjómun og rekstrar-
hagfræði frá sama skóla. Eigin-
maður Guðnýjar er Kristján Grét-
arsson, framleiðslustjóri hjá Stöð
2, fæddur 1966 í Reykjavík. Þau
eiga einn son, Hans Grétar Krist-
jánsson, fæddan 1990.
fær á tilfinninguna að það verði óró-
leiki um borð byrjar maður á að
breiða út svona rólega stemmningu
í vélinni," segir Guðný og brosir.
Þannig að þið eruð í og með að
gera úttekt á farþegunum þegar þið
takið á móti þeim?
„Já, og allar flugfreyjumar em
orðnar mjög góðir mannþekkjarar.
Við erum líka orðnar mjög flihkar í
að segja góðan daginn við Islending-
ana og „Good Moming" við erlenda
farþega,“ segir Guðný og hlær.
Munt þú fíjúga jafn oft og áður,
nú eftir að þú ert orðin yfírflug-
freyja?
„Eg flýg náttúrulega miklu
minna. Þetta felst í skrifstofuvinnu
og snýst m.a. um að efla liðsheild og
gera starfsfólk og farþega ánægða.
Einnig fylgist ég með öryggismál-
um og þjónustunni um borð. Flug-
freyjur hjá Flugleiðum era um 500
talsins, þannig að þetta er viðamik-
ið starf.“
Hefurðu tíma fyrir eitthvað ann-
að en starfíð?
„Ef ég hef hann ekki bý ég hann
bara til. Þá vakna ég aðeins fyrr og
sofna aðeins seinna.
Áhugamál mín snúast aðallega
um samvistir við fj'ölskylduna og við
föram oft saman á skiði og t.d. för-
um við alltaf einu sinni á ári í skíða-
ferð til útlanda. Það er toppurinn á
tilveranni."
Gagnabanki
Islenskra
fyrirtækja
á geisladiski
ÞESSA dagana er verið að afla
upplýsinga fyrir gagnabanka við-
skiptaskrárinnar Islensk fyrirtæki
sem hefur verið gefin út til fjölda
ára í bókarformi og síðastliðin ár í
tveimur bindum, annars vegar fyr-
irtækjaskrá og hins vegar vöru- og
þjónustuskrá. Næstu útgáfu mun
að auki fylgja viðamikil netfanga-
skrá.
Síðan í ágúst sl. hefur gagna-
bankinn einnig verið aðgengilegur
á Netinu, nánar tiltekið á slóðinni
www.islenskf.is. Þar má nálgast ít-
arlegar upplýsingar um fjölda fyr-
irtækja og hægt er að framkvæma
leit eftir mjög takmörkuðum upp-
lýsingum, til dæmis símanúmeri
eða hluta af kennitölu. Upplýsing-
ar gagnabankans eru uppfærðar
vikulega og aðgangur er öllum op-
inn. Hins vegar greiða fyrirtækin
fyrir skráningar sínar í gagna-
bankann.
A næstu vikum stendur til að
mæta þörfum þeirra sem ekki hafa
Netaðgang með því að gefa gagna-
banka viðskiptaskrárinnar út á
geisladiski. Á disknum fylgir sér-
stakt forrit sem gefur kost á ýmiss
konar leit og útprentun gagna.
♦ ♦♦
Reykjavíkurborg
og Sjóvá-Almennar
Samið um
vátryggingar
REYKJAVÍKURBORG og Sjóvá-
Almennar tryggingar hf. undirrit-
uðu samning um vátryggingar í gær
en samningurinn er gerður í kjölfar
útboðs er fram fór í mars sl.
í fréttatilkynningu kemur fram
að um langtímasamning sé að ræða
og tekur hann til allra vátrygginga
fyrirtækja og stofnana Reykjavík-
urborgar. Á samningstímanum
verða vátryggingar skoðaðar reglu-
lega og aðlagaðar að þörfum á
hverjum tíma.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóri og Ólafur B. Thors
framkvæmdastjóri Sjóvár-Al-
mennra trygginga undirrituðu
samninginn.
INNHERJI SKRIFAR...
ÞORBJÖRN HÆKKAR OG HÆKKAR
•Sérfræöingum á veröbréfamarkaðin-
um hefur orðið nokkuð starsýnt á
hækkun á gengi hlutabréfa í Þorbirni
hf. í Morgunpunktum Kaupþings á
þriðjudag sl. er til að mynda vakin at-
hygli á því að hlutabréfagengi Þor-
bjarnar hefði hækkað um 4,9% daginn
áður í 6,4 og að bréf félagsins hafi
hækkað um 28% frá áramótum. Gengi
f hlutafjárútboði félagsins í árlok
1997 var 7,57 en í lok síöasta árs og
í kringum áramótin stóð það í 5 og
sáralítil hreyfing á bréfunum. Hins
vegar tóku þau nokkurn kipp í mars
en aðallega þó seinnihluta april og
fyrstu daga yfirstandandi mánaðar, og
eru einatt umtalsverð viðskipti á bak
við þessar hækkanir, eins og sjá má
á meðfylgjandi korti.
Engin skýring hefur komiö fram á því
hvað kunni að vera á seyöi í fyrirtæk-
inu, og því velta menn talsvert vöngum
yfir því hvað valdi. Almennt talað hefur
gengi hlutabréfa í sjávarútvegslyrirtækj-
um, og þá einkanlega hinum smærri,
Gengi hlutabréfa í Þorbirninum hf.
Velta
Gengi millj. kr.
6,5 J25
6,0 1 J 20
|- Gengi -Í/
55 u 15
5,0 ** 10
* c Velta—^ 4,5 5
4,0 , r , . 0
nóv. 98 des. 98 jan. 99 feb. 99 mar. 99 apr. 99
ekki veriö á neinni sérstakri siglingu
um skeið, og hækkunin á bréfum í Þor-
bimi því greinilegt frávik frá'hinu við-
tekna. Allt hefur þetta oröið til þess að
orörómur hefur kviknað um að einhver
frekari sameiningaráform séu uppi f fyr-
irtækinu. Beinast sjónir manna þá
einkanlega að því hvort einhverjar við-
ræður séu hafnar á ný við annað sjáv-
arútvegsfyrirtæki í Grindavík, Fiskanes
hf., en forsvarsmenn Þorbjamar og
Fiskaness áttu f viðræðum fyrir
nokkrum misserum en sameining gekk
þá ekki eftir. En það er rétt að ítreka
að allt eru þetta hreinar vangaveltur.
FBA SÆKIR UM LÓÐ
•Innan borgarkerfisins er til skoðunar
lóðarumsókn frá Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins. Lóðin er á óskipulögðu
svæði við Bústaöaveg í grennd við
Veðurstofu íslands. Máliö er á frum-
stigi og getur liðið talsverður tími þar
til ákvörðun veröur tekin um hvort FBA
fær grænt Ijós á umsóknina.
f dag er Fjárfestingarbanki atvinnu-
lífsins til húsa að Ármúla 13a á sama
stað og Kaupþing hf. en Kaupþing hef-
ur nýverið fest kaup á húsnæði
Bifreiða og landbúnaðarvéla að Ármúla
13. Auk þess sem fyrirtækið veröur
áfram með starfsemi að Ármúla 13a.
FBA hefur til umráða tvær hæðir að
Ármúla 13a. Þar sem gríðarleg aukn-
ing hefur orðið í starfsemi beggja fýrir-
tækjanna virðist Ijóst að annaö þeirra
verður aö finna langtímalausn í hús-
næðismálum sínum annars staðar.
y