Morgunblaðið - 12.05.1999, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 12.05.1999, Blaðsíða 26
Baráttan um enska meistaratitilinn harðnar míþróttir Hverjum þykir sinn fugl fagur Á íslandi eru starfræktir fjölmargir stuóningsmannaklúbbar enskra knattspyrnulióa. Sunna Ósk Loga- dóttir ræddi vió formenn fjögurra þeirra er flestir styója lió sem eru f toppbaráttunni um þessar mundir. STUÐNINGSMANNA- KLÚBBUR MANCHESTER UNITED Á ÍSLANDI Klúbbur stuón- ingsmanna Manchester United var stofn- aóur f Grindavík í október árið 1991 af fimmtíu áhugasömum einstaklingum. Á svipuðum tíma var stofnaóur klúbbur f Reykjavík og sameinuðust þeir fljótlega. Skráðir meðlimir eru nú um 1500, af þeim borga um 700 árgjald sem er 1.500 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn. Klúbburinn er með aðstöðu aö Smiöjuvegi 4d þar sem meðlimir hittast reglulega og horfa á leiki. Árlega er einnig staðið fyrir 2-3 feröum á leiki liðsins til heimavallar- ins, Old Trafford. Formaður klúbbsins, Guðbjörn Ævars- son, segir leikferðirnar hafa breyst mikið undanfarin ár. „Núna eru þetta mikið til fjöl- skylduferðir. Síðasta feró var nokkurs konar „mekkaferð", það sást varla vín á nokkrum manni. Stjórn klúbbsins tók upp ákveðna fjölskyldustefnu og t.d. eru ekki leyföar reyking- ar á Smiðjuveginum." Guðbjörn er mjög ánægður með sitt liö á yfirstandandi leiktíð. „Við erum komnir í úr- slit í bikar- og meistarakeppn- inni og erum við toppinn í deildinni. Ég get ekki sagt ann- að en að við séum bestir," segir hann hlæjandi. Guðbjörn er því bjartsýnn um úrslitin. „Ég gæti trúað að deildin myndi ekki ráðast fyrr en í síö- asta leik, bikarinn veróur erfið- ur en ég held að við höfum það. Ég spái úrslitaleiknum 2:1 fyrir okkar mönnum," segir hann ákveðinn en á erfiöara með að svara því hver eftirlæt- isleikmaðurinn er. „Þeir eru svo margir, eiginlega ellefu! En þó standa Ryan Giggs og Da- vid Beckham upp úr." En spilar Guðbjörn sjálfur fótbolta? „Nei, ég er orðinn nokkuö mörgum kílóum of þungur til þess," svarar hann hlæjandi. „Það á þó alls ekki við um alla í klúbbnum. Við höfum tekiö þátt í stuönings- klúbbamóti Ölvers og þar eru ávallt sýndir feiknataktar!" Áhugasamir sem vilja ganga í Stuðningsklúbbinn geta sent nafn, kennitölu og heimilis- fang í pósthólf 12170, 132 Reykjavík. ARSENAL-KLÚBBURINN Á ÍSLANDI form'anni. og Hilmari Hólmgeirssyni. Meðlimum hefur fjölgað jafnt og þétt og f dag eru 900 virkir félagsmenn búsettir um allt land en víða eru starfrækt nokkurs konar útibú frá klúbbnum. Árgjaldið er 1.500 kr. og fá þeir sem það greiða fréttabréf, Ifmmiða, plaköt og sitthvað fleira. Félagsmenn eru á öllum aldri, sá yngsti að- eins fjögurra mánaða og sá elsti á áttræöisaldri. Markmiö klúbbsins eru aðallega tvö; annars vegar að standa fyrir feröum til Bretlands á leiki og hins vegar að gefa út frétta- bréf. Þegar hefur ein ferö ver- ið farin á þessu ári og önnur verður farin á leik liösins og Aston Villa þann 16. maí. „Þá vonumst við til að sjá liöið hampa Englandsbikarnum," segir Kjartan formaður von- góöur. „Við fórum 50 saman á leik í fyrra og upplifðum að sjá þá lyfta bikarnum og það var ein af stórkostlegustu knatt- spyrnustundum lífs míns." Kjartani finnst Arsenal hafa staðið sig ágætlega í vetur. „Þetta hefur verið sígandi lukka og liðið smám saman unnið á. Það er erfitt að spá einhverju, en eins og staðan er í dag [5. maíj þá hef ég fulla trú á mínum mönnum og að þeir muni fá bikarinn. Þá munum við hlusta á lagið „We are the Champions" með Qu- een eins og við geröum í fyrra- vor." Honum finnst allir liðs- menn góðir og því erfitt að gera upp á milli þeirra. „Ég hef alltaf haft miklar mætur á lan Wright en nú er hann farinn til West Ham þannig að ég verð að finna mér einhvern annan." Að sögn Kjartans er mjög misjafnt hvort meðlimir Ar- senal-klúbbsins spili sjálfir fótbolta. „Flestir meðlima sem komnir eru á miðjan aldur eru frekar „sjónvarpsfótbolta- menn" en hitt, en unga fólkiö í klúbbnum æfir knattspyrnu." Kjartan vill hvetja alla áhugasama meðlimi að skrá sig á Stuöningsklúbbamót Öl- vers sem fram fer þann 13. maí. „Okkur hefur gengið ágætlega á því móti og í ár ætlum við að vinna," bætir hann við hlæjandi. Þeir sem vilja ganga í Ar- senal-klúbbinn geta sent bréf með persónulegum upplýsing- um í pósthólf 1, 802 Selfoss. STUÐNINGSKLÚBBUR CHELSEA Á ÍSLANDI Stuðningsklúbb- ur Chelsea var stofnaður í febr- úar árið 1997 og er því rétt að slíta barnsskón- um. Meðlimir eru um 90 talsins og á öllum aldri. Klúbburinn stendur ár- lega fyrir a.m.k. einni skipu- lagðri feró á leik liðsins í Bret- landi, oftast aö hausti, en auk þess hittast félagar á Ölveri og víðar þegar leikir eru sýndir í beinni útsendingu. „Það er frekar hættulegt að nefna eftirlætis leikmann því þeir eru alltaf seldir um leið," segir Eyjólfur Þórðarson, for- maöur klúbbsins, og hlær. „Þegar ég fór út f hitteöfyrra lét ég setja nafn Ruuds Gullit aftan á peysuna mfna. Stuttu seinna var hann rekinn. Svo í haust var Brian Laudrup ráð- inn og nafn hans var á peys- unni minni en hann var seldur eftir mánuð." Chelsea hefur náð ágætum árangri f deildinni í vetur en Eyjólfur er þó ekki fyllilega sáttur. „Ég er ekki ánægður með aó viö séum dottnir úr öllum bikarkeppnum en ég gæli við að liðið nái öðru sæti í deildinni. Við höfum ekki ver- ið að tapa mikiö en það eru jafnteflin sem eru að ganga frá okkur. Ég vona að United taki Arsenal og vinni deildina." Eyjólfur segir misjafnt hvort fótboltaáhugi klúbbsmeðlima nái út fyrir sjónvarpsskjáinn þar sem flestir séu þeir komn- ir af keppnisaldri. „En margir spila f vinahópum, með vinnu- félögum eða slíkt. Þannig að við veröum með alveg geysi- lega sterkt liö á Ölversmótinu get ég sagt þér," segir hann og hlær. Áhugasamir geta gengið í 26

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.