Morgunblaðið - 12.05.1999, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 12.05.1999, Qupperneq 46
DR7IM7I The Chanp ('31) j/ Fræg mynd, w kassatykki á sínum tíma. Tvær af skærustu stjörnum MGM í fararbroddi. Jackie Cooper sem ungur drengur sem hefur ekki misst trúna á föður sinn, (Wallace Berry), fyllibyttu og fyrrverandi meistara í hnefaleikum. Maltin segir myndina fjögurra klúta tilfinninga- drama, hælir stjörnunum og leik- stjóm Kings Vidor. TNT, 18.05. Don Juan De Marco ('95) j/ Snjöll hugmynd að leiða sam- w, an tvo af helstu stórleikurum samtíðarinnar, Johnny Depp og Mar- lon Brando. Efniviðurinn er frumlegur og fjarstæðukenndur. Ungur maður (Depp) er vistaður á geðsjúkrahúsi þar sem hann gengur með þá mein- loku (eða hvað?) að hann sé sjálfur Don Juan endurborinn. Fær geðlækn- irinn Brando manninn sem sitt síð- asta verkefni á starfsferlinum. Veit ekki hverju skal trúa. Minnisstæðust fyrir góða takta hjá Depp, einkum í forfæringaratriði í byrjun. Gamla Ijón- ið orðið rámt, en lætur vel í sér heyra. Bíórásin, 13.05. Hasar í Minnesota - Feeling Minnesota ('97) / Bræðurnir Keanu Reeves og w Vincent D 'Onofrio bítast um ástir Cameronar Diaz í mislukkaðri frumraun Stevens Baigleman sem handritshöfundur og leikstjóri. Leik- hópurinn, sem m.a. telurTuesday Weld, Delroy Lindo og Dan Aykroyd, svíkur engan, en fær lítið að spreyta sig. Bíórásin, 20.05. Heiður föður mfns - La Gloire de Mon Páre ('90) j/ Ljúfsár mynd um náðuga sum- W ardaga franska rithöfundarins Marcels Pagnols hjá foreldrum sín- um í Provence á fyrri hluta aldarinn- ar. Mótandi áhrif umhverfisins og fé- lagsskaparins á drenginn. Firnavel gerð og leikin. Philippé Caubere, Nathalie Roussell, Julien Giamaca. Stöð 2, 16.05. Jude ('96) / Stórleikkonan glæsilega, Kate : w‘ Winslet, glæðir þessa kvik- Frumsýningar í sjónvarpi myndagerð nítjándu aldar skáldsögu Thomasar Hardy.s því litla lífi sem hún hefur. Christopher Eccleston er ráðvilltari í hlutverki manns sem ger- ist kennari í kjölfar skilnaðar við konu sína og verður yfir sig ástfang- inn af frænku sinni (Winslet). Stirð- lega skrifuð og gerð. Stöð 2, Stúlkan mín - My Girl ('91) / Duggunarlítil klútamynd um W4 feðgin, útfararstjóra (Dan Aykroyd), og ellefu ára dóttur hans (Anna Chlumsky), semtelursig bera ábyrgð á fráfalli móður sinnar. Chlumsky stendur sig óneitanlega vel sem stúlkan, sem verður að takast á við erfið vandamál en efnið er yfirmáta vellulegt. Jamie Lee Curt- is. RUV, 21.05. Sjö ár i' Tíbet - Seven Years in Tibet ('98) :lm Svipmikið drama af gamla w skólanum um erfiðleika austur- rískra fjallgöngumanna ÍTÍbet á tím- um seinni heimsstyrjaldarinnnar. Ekki sfður af kynnum forsprakka þeirra (Brad Pitt) af trúarieiðtoganum Dalai Lama og þeim jákvæðu áhrifum sem hann hefur á hinn hrokafulla Vestur- landabúa. Bíórásin, 16.05. Skór fiskimannsins - Shoes of the Fisherman ('68 ) / Stjörnufans (Lord Olivier, Leo w. McKern, Sir John Gielgud, Vitt- orio De Sica), bjargar litlu í slakri kvikmyndagerð Michaels Andersons metsölubókar Morris L. West. Því síður Anthony Quinn sem rússneskur páfi sem setið hefur í Gúlaginu og hyggst bjarga heiminum frá tortím- ingu í kjamorkustríði með því að selja eigur Páfastóls. Forvitnileg fyrir íburð og gengna leikara. TNT, 14.05. Stjörnustrákurinn - Frankie Starlight ('95) j/ Ungur rithöfundur rifjar upp w bernskuár sín á írlandi. Móðir hans (Anne Parrilaude), missti for- eldra sína í Frakklandi, þaðan var henni smyglað til írlands á stríðsár- unum. Við sögu koma mennirnir í lífi hennar (Matt Dillon, Gabriel Byrne). Maltin hælir myndinni, sem hann segir litríka og Ijúfa og flakka áreynslulaust á milli tímaskeiða. Bíórásin, 23.05. Á förum frá Vegas - Leaving Las Vegas('95) i/, Ofdrykkjuvandamálið er ekki W tekið vettlingatökum í raun- særri mynd um sjálfseyðingarhvöt og áfengissýki. Nicolas Cage leikur listavel útbrunninn blaðamann sem kemur til borgar neonljósanna til að drekka sig í hel. Kynnist gleðikon- unni Seru (Elisabeth Shue), sem er á svipuðu, andlegu róli. Með þeim takast ástir. Þegar kemur að alvar- legum málefnum grípur Hollywood oftar en ekki til silkihanskanna svo úrverða auðgleymdarvellur. Hjarta myndarinnar er þó ekki brennivínið, heldur hið einstaka samband sem verður á milli Seru og Sandersons. Hún er einmana, auðsærð og varn- arlaus persóna sem laðast að fylli- byttunni þar sem hún finnur að á bak við brennivínsstækjuna og vax- andi sljóleika býr góðmenni með vandað hjartalag. Þau sjá í gegnum fingur sér hvað göllunum viðvíkur, hæfa hvort öðru einsog kjaftur skel. Slík sambúð endar ekki öðruvísi en með ósköpum. Bíórásin, 14.05 Vonbiðlar Amy - Chasing Amy ('97) j/ Holden og Banky, góðir vinir w ogfélagar, kynnastAmy, kollega sínum í teiknimyndabóka- gerð. Holden verður yfir sig ástfang- inn en Banky afbrýðisamur og sár. Málin gerast enn flóknari þar sem Amy er kynhverf. Ekkki veit ég hvort lesbíur snúast jafn trúverðuglega og Amy, hitt er á hreinu að myndin er fyndin og fordómalaus, óvenjuleg og einkar vel leikin, ekki síst af Joey Ad- ams í titilhlutverkinu. Stöð 2,15.05. QAMANMYNDIR Á ferð og flugi - Planes, Trains and Automobiles ('87) j/ Markaðsfræð- w ingur(Steve Martin) frá New York, sem er á leið til Chicago til að halda upp á þakk- argjörðardaginn með fjölskyldu sinni, verður samferða svolítið skringilegum manni (John Candy) og lendir í miklum hremmingum. Fjör- kálfarnir tveir fara á kostum. Leik- stjóri: John Hughes. RUV, 15.05. Blóraböggullinn - The Hudsucker Proxy ('94) a Coen-bræður og aðalkarlleikar- ■ W, arnir tveir eru nánast í guða- tölu á þessum bæ. Allt kemur fyrir ekki. Satíra um valdabrölt og bak- tjaldamakk í fyrirtækjareskstri er undirmálsmynd frá Ethan, Joel, Tim Robbins og Paul Newman. Jennifer Jason Leigh sannar hins vegar það sem maður óttaðist - að hún er of- metin. Of langt á milli góðu kafl- anna. Sýn, 15.05. Herra Deed fer til borgarinnar - Mr. Deed Goes to Town ('36) ii. Cary Cooper leikur sveitamann W sem erfir offjár og heldur í bæ- inn. Jean Arthur kemst í kynni við harðsnúna blaðakonu sem leggur sig fram við að finna veikar hliðar á hrekklausu góðmenninu. Mikil skemmtun, ein af hinum sígildu gam- anmyndum, kenndum við leikstjór- ann, Frank Capra. Stöð 2,16.05. Herra Smith fer á þing - Mr. Smith Goes to Washington ('39) u. Ein besta mynd Franks Capras W virkar óneitanlega barnaleg í dag, en er sem fyrr hrífandi skemmtun. James Stewart fer á kostum sem saklaus sveitamaður sem kjörinn er á þing af slægvitrum stjórnmálamönnum sem hyggjast hafa hann í vasanum. Stewart er sannur skáti og lætur ekki gabbast. Jean Arthur, Claude Rains. Stöð 2, 23.05. Krókur á móti bragði - A Life Less Ordinary ('97) / Nýjasta mynd Dannys Boyles * (Trainspotting), veldur nokkr- um vonbrigðum. Fjallar um mislukk- 46

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.