Morgunblaðið - 06.06.1999, Page 1

Morgunblaðið - 06.06.1999, Page 1
ATVINNU/RAÐ- OG SMÁAUGLÝSINGAR PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ1999 BLAÐ E AWINNUAUGLÝSINGAR Garðyrkjustjóri útisvæða STAÐA garðyrkjustjóra útisvæða við Garðyrkj uskóla rík- isins, Reykjum, Olfusi er laus til umsóknar. I starfinu felst m.a. bókleg og verkleg kennsla á umhverfissviði skólans auk stjórn umhirðu útisvæða skólans. Krafist er skrúð- garðyrkjumenntunar, framhaldsnáms í skrúðgarðatækni- fræði og meistararéttinda í skrúðgarðyrkju. Konrektor við MR STARF konrektors/aðstoðarskólameistara við Mennta- skólann í Reykjavík er laust til umsóknar. Aðstoðarskóla- meistari er staðgengill skólameistara og vinnur með hon- um við daglega stjóm skólans og rekstur. Fulltrúi í farand- vinn u véladeild VINNUEFTIRLITIÐ í Reykjavík óskar eftir að ráða full- trúa í farandvinnuvéladeild. Starfið felst m.a. í símsvörun, upplýsingagjöf, tölvuskráningu og almennum skrifstofu- störfum og hentar jafnt körlum sem konum. Viðkomandi þarf að vera vanur/vön vinnu við tölvur. Fólk í uppröðun FYRIRTÆKIÐ Uppröðun éhf., sem þjónustar stóra keðju matvöruverslana í Reykjavík, vill ráða starfsfólk í heils- dags eða hálfsdagsstöður, sem vant er uppröðun í mat- vöruverslanir. Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og Iðntæknistofnun gera samning um framkvæmd fímm nýrra verkefna Morgunblaðið/Þorkell SAMNINGURINN undirritaður, f.v.: Hallgrímur Jónasson, forsijdri Iðntæknistofnunar, Magnús G. Friðgeirsson, stjómarfor- maður Iðntæknistofnunar, Arnar Sigurmundsson, stjórnarformaður Nýsköpunarsjóðs, og Gísli Benediktsson, sérfræðingur hjá Nýsköpunarsjóði. Þjónanemar á Hótel Holt HÓTEL Holt óskar eftir framreiðslunemum í veitingasal. Um er að ræða þriggja ára nám. RAÐAUGLÝSINGAR Gæði á reyktum laxi NIÐURSTÖÐUR Evrópuverkefnis um áhrif hráefnis og vinnslu á gæði á reyktum laxi verða kynntar í húsi Iðn- tæknistofnunar í Keldnaholti, mánudaginn 7. júní kl. 13-16.30. Verkefnið er samstarfsverkefni Rannsóknastofn- unar landbúnaðarins og Iðntæknistofnunar. Trésm íðaverkstæði til sölu AUGLÝST er til sölu trésmíðaverkstæði á höfuðborgar- svæðinu. Um er að ræða trésmíðaverkstæði sem sérhæfir sig í framleiðslu innihurða. íbúðir erlendis til leigu í sumar ÍBÚÐ í hjarta Florens er laus í fjórar vikur í sumar. Einnig er íbúð til leigu fyrir ferðamenn á besta stað í mið- borg Kaupmannahafnar. SAW\UGLÝSINGAR Esjudagur FI og Spron. GENGIÐ verður á Esjuna sunnudaginn 6. júní kl. 11.00 með brottför frá bílastæði við Mógilsá. Leiðsögn verður á Pverfellshom á vegum FÍ og um skógræktarsvæði Mógils- ár í boði rannsóknarstöðvarinnar. 60 milljón króna samningur NÝSKÖPUNARSJÓÐUR atvinnulífsins og Iðn- tæknistofnun gerðu í gær með sér samning um framkvæmd fimm nýrra verkefna fyrir sjóðinn. Samningurinn hljóðar upp á 60 milljónir króna og gildir út næsta ár. Gísli Benediktsson, sérfræðing- ur hjá Nýsköpunarsjóði, segir samninginn að mörgu leyti marka tímamót. „Þetta er tímamótasamn- ingur varðandi þjónustu við frum- kvöðla og fyrirtæki, þar sem samið er til tveggja ára. Við teljum að það verði atvinnulífmu mjög tO fram- dráttar," segir hann. Helmingurinn beinn styrkur Eins og fyrr segir hljóðar samn- ingurinn upp á 60 milljónir króna. „Helmingur þeirrar upphæðar er beinn styrkur til fyrirtækjanna, en stór hluti af hinum helmingnum má segja að sé ígildi styrks, þar sem hann felst í endurgreiðslu aðstoðar til fyrirtækjanna," segir Gísli. Styrkurinn er þó ekki aðeins fjárhagslegur, því einnig er frum- kvöðlum og fyrirtækjum veitt hag- nýt þjónusta, sem verður eftir í fyrirtækjunum. Gísli segir að stefnan sé að gera svipaða samninga við aðrar stofn- anir sem Nýsköpunarsjóður hafi verið að vinna með í hinum ýmsu verkefnum. „Þar má til að mynda nefna Útflutningsráð, Rannsóknar- þjónustu Háskólans og fleiri aðila,“ segir hann. Þau fimm verkefni sem Nýsköp- unarsjóður og Iðntæknistofnun sömdu um eru ætluð frumkvöðlum, uppfinningamönnum og fyrirtækj- um í öllum starfsgreinum. Þau bera heitin Þjónusta við frum- kvöðla og uppfinningamenn, Frum- kvöðlastuðningur, Snjallræði, Skrefi framar og Vöruþróun. Fyrstu þremur verkefnunum er sérstaklega beint til frumkvöðla, uppfinningamanna og smáfyrir- tækja. Skrefi framar er ætlað ör- og sprotafyrirtækjum og Vöruþró- un er ætluð fýrirtækjum sem leggja áherslu á vöruþróun og hafa bolmagn og metnað til að þróa nýj- ar afurðir. Atvinnuvegasýning á Vesturlandi ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda at- vinnuvegasýningu í og við íþrótta- miðstöðina í Stykkishólmi dagana 18.-20. júní nk. „Sýningin er haldin til að kynna hvers konar atvinnu, fyrirtæki, þjónustuaðila og handverksfólk sem eru með starfsemi á Vesturlandi. í íþróttamiðstöðinni verða settir upp sýningarbásar, handverkstæði og einnig verður aðstaða fyrir stærri hluti á útisvæði s.s. sumar- hús, báta, bíla, vélar o.fl. Á sýning- unni verður bryddað upp á ýmsum skemmti- og menningarviðburðum. T.d. taka 5 ára börn úr leikskólum og nemendur úr 5. og 10. bekk frá grunnskólum á Vesturlandi þátt í málverkasýningu þar sem þema þeirra er „Atvinnulífið í mínum bæ/minni sveit“. Á sýningunni gefst fólki kostur á að sjá með hvaða aug- um bömin/unglingarnir líta á at- vinnulífið og hvernig hugmyndir þeirra breytast með auknum þroska. Tónlistarmenn og kórar af Vesturlandi koma fram,“ segir í fréttatilkynningu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.