Morgunblaðið - 06.06.1999, Qupperneq 2
2 E SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNUAUGLÝSINGAR
RANNÍS
Staða forstöðumanns
tæknisviðs RANNÍS
Rannsóknarráð íslands óskar að ráða í stöðu forstöðumanns tæknisviðs
RANNÍS.
Starfssvið
Starfið felur í sér yfirumsjón með málefnum á tæknisviði RANNÍS undir yfir-
stjórn framkvæmdastjóra Rannsóknarráðs, þ.m.t. afgreiðslu á umsóknum til
Tæknisjóðs, aðstoð við fagráð og úthlutunarnefnd sem tengist sjóðnum; eftirlit
með verkefnabókhaldi, framvindu verkefna og fjármálum sjóðsins. Það felur ein-
nig í sér umsjón með tilteknum alþjóðlegum samskiptum við erlendar stofnanir
á tæknisviðinu samkvæmt ákvörðunum Rannsóknarráðs í samráði við fram-
kvæmdastjóra og starfsmenn á alþjóðasviði RANNÍS.
Hæfniskröfur
Krafist er tæknilegrar sérmenntunar (lágmark M.Sc eða jafngildi þess) á sviði
verkfræði eða raunvísinda og reynslu af rannsóknastörfum eða þróunarvinnu í
atvinnulífi. Áhersla er lögð á skapandi hæfileika, ríkt frumkvæði, góða samskipt-
ahæfni og metnað til að beita vönduðum vinnubrögðum. Góð kunnátta í
íslensku og færni í ensku og einu Norðurlandamáli er skilyrði. Reynsla í notkun
algengra tölvukerfa er æskileg.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum við viðkomandi stéttarfélag.
Þess er vænst að umsækjandi geti hafið störf eigi síðar en í byrjun ágúst nk.
Fyrirspurnum um starfið svarar Vilhjálmur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Rann-
sóknarráðs íslands í síma 562 1320.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist framkvæmdastjóra
Rannsóknarráðs íslands, Laugaveg 13 , 101 Reykjavík, eigi síðar en 11. júní nk.
Súðavík
góður kostur — nýtt umhverfi
Grunnskólakennarar
Er erill þéttbýlisins orðinn þreytandi? Ertu búin
að fá nóg af of stórum bekkjardeildum, ófull-
nægjandi vinnuaðstöðu og stofnanalegu yfir-
bragði? Eða eru tilbúin/n að koma og takast
á við spennandi verkefni í fámennum skóla
sem staðsettur er í fallegu sjávarþorpi á Vest-
fjörðum?
Þá skaltu lesa þetta vel
Súðavíkurhreppur er sveitarfélag við ísafjarð-
ardjúp og er kauptúnið Súðavík við Álftafjörð
þéttbýlasti hluti hreppsins. Hreppurinn skartar
mjög fallegri og ósnortinni náttúru og veður-
sæld mikil. Á síðustu þremur árum hefur
byggðin verið flutt um set og byggt upp nýtt
og glæsilegt þorp í landi Eyrardals. Einungis
ertíu mínútna aksturá ísafjarðarflugvöll og
tekur 40 mínútur að fljúga til Reykjavíkur.
Skólahúsnæðið er glæsiiegt og vel búið og
samanstendur af grunnskóla, leikskóla, tónlist-
arskóla ásamt íþróttahúsi og mötuneyti. Skól-
inn er einsetinn með fámennum aldurs-
blönduðum bekkjardeildum, vel búinn tækjum
og góðri vinnuaðstöðu. Meðal kennslugreina
eralmenn bekkjarkennsla, valgreinar, íþróttir
og tónmennt.
Súðavíkurhreppur greiðir laun eftir sérkjara-
samningi. Umsóknarfresturertil 21. júní 1999.
Nánari upplýsingar veita Anna Lind Ragnars-
dóttir, skólastjóri, í hs. 456 4985 og vs.
456 4924 og Friðgerður Baldvinsdóttir, form.
skólanefndar, í vs. 456 4912 og hs. 456 4940.
Grindavíkurbær
TónlistarsKólastjóri
— kirkjuorganisti
Grindavíkurbær og sóknarnefnd Grindavíkur-
sóknar óska eftir að ráða skólastjóra við Tón-
listarskólann og organista við Grindavíkur-
kirkju.
Umsækjandi þarf að hafa haldgóða tónlistar-
menntun, réttindi til kennslu í tónlist og góða
færni sem organisti og kórstjóri. Umsækjandi
þarf að geta hafið störf sem fyrst til að undir-
búa skólastarf á næsta skólaári og kórstarfið
í kirkjunni.
Launakjör við tónlistarskólann fara eftir kjara-
samningum Launanefndar sveitarfélaga og
Félags tónlistarkennara og samkomulagi við
sóknarnefnd.
Upplýsingar um starfið veita Jón Hólmgeirs-
son, formaður sóknarnefndar og bæjarritari,
og Einar Njálsson, bæjarstjóri, á bæjarskrifstof-
unni í síma 426 7111.
Umsóknum skal skila á bæjarskrifstofuna á
Víkurbraut 62 eigi síðar en föstudaginn 18. júní
1999.
Formaður sóknarnefndar Grindavíkursóknar.
Bæjarstjórinn í Grindavík.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Miðasala
Starfsmaður óskast í miðasölu Þjóðleikhúss-
ins. Umsækjendur þurfa að vera vanir að vinna
við tölvuskráningu. Unnið er á vöktum. Laun
fara eftir kjarasamningi SFR við ríkissjóð.
Umsóknir þurfa að berast skrifstofu Þjóðleik-
hússins, Lindargötu 7, fyrir 16. júní nk.