Morgunblaðið - 06.06.1999, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1999 E 9
)
, I
SPENNANDISTORFI
FRAMSÆKNU FYRIRTÆKI
Fyrirtæki á fjármálamarkaði óskar eftir að ráða sérfræðinga í eftirfarandi stöður.
Sérfræðingar í sölu- og markaðsmálum
Starfið felst í ráðgjöf og upplýsingagjöf um afurðir fyrirtækisins, markaðssetningu og þróun
nýrra afurða ásamt því að viðhalda tengslum við viðskiptavini.
Við leitum að öflugum viðskipta-/ rekstrarmenntuðum einstaklingum á háskólastigi sem
hafa brennandi áhuga á að taka þátt í uppbyggingu nýrrar þjónustu við fólk á fjármálamarkaði.
Hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði sem og framúrskarandi þjónustulund. Nýútskrifaðir
einstaklingar koma vel til greina.
Söluráðgjafar
Starfið felst í sölu og afgreiðslu á afurðum fyrirtækisins. Viðkomandi tekur einnig þátt í
markaðs- og söluátökum sem í gangi eru á hverjum tíma.
Við leitum að fólki sem er vel að sér í almennum bankastörfum, er sölu- og tæknisinnað
og tilbúið að veita góða þjónustu. Sveigjanlegur/breytilegur vinnutími kemur til greina.
Sölumenn
Starfið felst í sölu og kynningu á afurðum fyrirtækisins.
Við leitum að einstaklingum sem hafa mikla sölu- og kynningarhæfileika, góða framkomu
og hæfni í mannlegum samskiptum. Mikilvægt er að viðkomandi búi yfir metnaði til að
standa sig vel í starfi. Til greina kemur að ráða aðila sem vinna hluta úr viku/degi hvort
heidur sem er verktaka eða launþega.
í boði eru spennandi tækifæri til að takast á við nýjung
á íslenskum fjármálamarkaði og ná árangri í starfi.
Nánari upplýsingar veita Helga Jóhanna Oddsdóttir og Torfi Markússon
hjá Ráðgarði hf.frá kl. 9-12 í síma 533 1800.
Vinsamlegast sendið umsóknirtil Ráðgarðs fyrir 13. júní n.k. merktar:
„Ný þjónusta" og viðeigandi starfi
wmamm*
j
■m dsMi éÁ
loppfíavet
Loppa sveitarfélagið liggur við Lopphavet vestast i Finnmörku, umkringt
óspilltri og fallegri náttúru. Næstu sjúkrahús í Hammerfest, 250 km fjar-
lægð, og i Tromso, 350 km, sjóleiðin er þó styttrí. Heilbrigðisþjónusta
svæðisins ræður yfir hraðskreiðum sjúkrahraðbátum, auk sjúkrabila. Við
erum með mest notaða sjúkrahraðbátinn í Noregi, sem þjónar 8 stöð-
um sem eru án vegasambands. Þetta skapar fjölbreyttan vinnudag
með sterkrí náttúruupplifun. 3 stöður lækna eru i sveitarféiaginu, þ.á.m.
tumus-kandidat. I Loppa búa um 1550 íbúar sem allir bjóða þig vel-
kominn til okkar.
SVÆÐISLÆKNIR I
Laus er staða sveitarfélagslæknis I. Stöðukódi 7310. Laun eftir
samkomulagi.
SVÆÐISLÆKNIR II
Laus er staða sveitarfélagslæknis II. Stöðukódi 7311 og laun
skv. launaramma 17 (framhalds-/sérfræðimenntun launast tveim-
ur launaþrepum ofar grunnlaunum). Staðan er laus nú þegar.
Sameiginlegt báðum stöðum:
0Sveitarféiagiö er tilbúið til að ræða e.t.v. önnur kjör, og
með samræðum skapa réttar aðstæður þannig að staðan
sé bæði faglega og launalega aðlaðandi fyrir umsækjanda.
0Við bjóðum 6 vikna frí á launum.
0Launað leyfi i 4 mán. eftir 3ja ára starf.
0Viðbót vegna stöðugleika („Stabilitetstilleg"), veitt eftir
reglum sveitarfélagsins.
0Aðrar viðbætur ef um er að ræða eftir samkomulagi.
0Sveitarfélagið aðstoðar við útvegun húsnæðis og leikskóla-
rýmis.
0Sérstakar skattareglur gilda um Finnmörku.
0Barnabætur, með norður-Noregs viðbót, greiðast skv.
lögum um barnabætur.
Nánari upplýsingar veitir heilbrigðis- og félagsmálaforstjóri í
síma 0047 78 45 97 24 eða skrifstofustjóri, í síma
0047 78 55 85 85, lína 6.
Ráðning fer að öðru leyti eftir gildandi lögum, reglum og launa-
töxtum.
Umsóknir, ásamt staðfestum skírteinum og meðmælum, sendist
fýrir 25. júní til:
KOMMUNEHELSETJENESTEN I LOPPA,
ADMINISTRASJONEN, N-9551 0KSFJORD,
NOREGUR.
GARÐABÆR
Sálfræðingur
Garðabær auglýsir laust til umsóknar
hálft starf sálfræðings á fræðslu- og
menningarsviði Garðabæjar,
skóladeild frá 1. ágúst nk.
Æskilegt er að viðkomandi sé
skólasálfræðingur eða hafi reynslu
af skólastarfi.
Launakjör samkvæmt kjarasamningum
Launanefndar Sveitarfélaga og
Starfsmannafélags Garðabæjar.
Umsóknarfrestur er til 21. júní nk.
Umsóknum skal skila til forstöðumanns
fræðslu- og menningarsviðs,
sem jafnframt veitir nánari upplýsingar
í síma 525 8500.
Forstöðumaður
frœðslu- og menningarsviðs
Fræðslu- og menningarsvið
PRENTSTOFA
Prentari óskast
Prentstofan Hvíta Örkin óskar eftir að ráða
prentara eða mann vanan fjölritun og aðstoð-
armann í prentsal.
Upplýsingar veita Hjalti og Ögmundur í síma
551 0255. Reyklaus vinnustaður. Með allar um-
sóknir verður farið sem trúnaðarmál.