Morgunblaðið - 13.06.1999, Síða 42

Morgunblaðið - 13.06.1999, Síða 42
42 SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ARNI GUÐMUNDSSON + Árni Guð- mundsson, mál- arameistari fæddist í Reykjavík 20. nóv- ember 1933. Hann lést á krabbameins- deild Landspítalans 4. júní síðastliðinn og fór útför hans fram frá Árbæjar- kirkju ll.júní. Vinur minn og félagi '-fÁrni Guðmundsson málarameistari lést á Landspítalanum föstu- daginn 4. júní síðastlið- inn eftir langvarandi sjúkdóm sem enn hefur ekki fundist lækning við. Árni var fæddur 20. nóvember 1933 í Reykjavík og var því 66 ára er hann lést. Foreldrar voru Guð- mundur Jónsson og Olína Guðbjörg Þorgrímsdóttir frá Stökkum á Rauðasandi. Árni missti móður sína þegar hann var þriggja ára gamall og fór þá í fóstur til móðursystur sinnar Guðmundínu og manns hennar Guðbjarts á Hvallátrum í Rauðasandshreppi. Þar sleit Árni barnsskónum í nábýli við stórbrotin ~ náttúruöfl, þau mestu sem þekkjast á byggðu bóli á Islandi. Árni bar mikla virðingu fyrir sínum æsku- stöðvum og fólkinu sem þar bjó og einnig frænku sinni og fósturmóð- ur. Frásagnir af þessum undrum veraldar bar oft á góma þegar rætt var um uppvaxtarárin. Flestum er í fersku minni frækilegt björgunara- frek við Látrabjarg, þegar breskur togari strandaði undir bjarginu í desember 1947. Bænd- um í þessu afskekkta byggðarlagi tókst giftusamlega að bjarga mannslífum við erfiðar aðstæður. Ami var einn björgunarmanna aðeins 14 ára og hlaut hann fyrir það viður- kenningu frá Slysa- varnafélaginu. Árni lærði málara- iðn hjá Ásgeiri hálf- bróður sínum í Reykjavík. Hann lauk sveinsprófi og loka- prófi frá iðnskóla 1958 og fékk meistarabréf fjórum árum síðar. Síðan starfaði hann sem mál- ari í Reykjavík, lengst af í sam- starfi við Ingólf Guðmundsson mál- arameistara og hefur samstarf þeirra ætíð einkennst af gagn- kvæmu trausti og vináttu. Fleiri málarar hafa komið inn í vinnuhóp- inn, um lengri eða skemmri tíma, sem réðst að þeim verkefnum sem fyrir lágu hverju sinni. Kynni okkar Árna hófust þegar hann var við nám hjá bróður sínum. Þessi ungi maður vakti athygli mína og með okkur tókst góð vinátta, sem hefur haldist síðan. Árni sat í stjórn Mál- arafélags Reykjavíkur sem ritari 1961, en félagsstörf að því tagi höfðuðu ekki til hans, þótt hann kynni að meta afl félagasamtaka í víðtækum skilningi. Árni giftist Katrínu Kristjánsdóttur frá Felli í Biskupstungum 1963. Þau eignuð- ust fimm mannvænleg börn; Hjalti er elstur, næstur er Þórhallur, þá t Þökkum hlýhug og vinsemd við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, ELÍNAR ÞORGILSDÓTTUR. Kristján Þorbergsson, Hrönn Óskarsdóttir, Helga Þorbergsdóttir, Sigurgeir Már Jensson, Sigurbjörn Þorbergsson, Helga Loftsdóttir, Þorgils Hlynur Þorbergsson og barnabörn. t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru móður, tengdamóður og ömmu, RAGNHEIÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Króki I Ásahreppi, Stífluseli 11. Guðrún Marta Sigurðardóttir, Óskar ísfeld Sigurðsson, Sólveig Ágústsdóttir, Helga Sigurðardóttir, Ágúst Óskarsson, Erlendur Isfeld Sigurðsson, Fanney Kristjánsdóttir og barnabörn. tvíburarnir Sigurbjörg og Guð- bjartur og yngstur er Kristján. Þau hafa nú öll stofnað sitt heimili og fjölskyldu. Samskipti minnar fjöl- skyldu og Árna hafa frá upphafi verið náin, og þó einkum eftir að við fluttum í Árbæjarhverfið, þegar uppbygging þess hófst 1966. Við fórum saman hringveginn árið sem hann var opnaður. Þau hjónin og fjölskylda þeirra voru tíðir gestir í sumarhúsi okkar við Langavatn. Þá má ekki gleyma sviðamessunum þar sem húmorinn hans Árna naut sín vel. Árni og Kata áttu sitt síð- asta heimili í Barrholti í Mosfells- bæ og lífið brosti við þessari mann- vænlegu fjölskyldu, en þá urðu skyndileg þáttaskil í lífi þeirra, Kata veiktist og lést eftir stutt en erfið veikindi, þá 52 ára gömul. Sem betur fer voru börnin að mestu orðin sjálfbjarga, það yngsta 15 ára. Hinn 17. júní 1990 giftist Árni öðru sinni eftirlifandi konu sinni Ruth Woodword kennara, hún hafði þá misst mann sinn frá fjórum dætrum, sú yngsta var fimm ára Bryndís Osk. Arni hefur gengið henni í föðurstað enda var hún svo ung þegar faðir hennar dó að hún þekkir ekki annan pabba. Ruth þekki ég frá samvinnu okkar að fé- lagsmálum hér í Árbæjarhverfi, hún var í stjórn kvenfélagsins í hverfinu og um tíma sat hún með mér í stjórn Fylkis, en þessi félög hafa frá upphafi unnið saman í fyrstu við mjög frumstæðar að- stæður. Mér er minnisstætt atvik þegar við hjónin höfðum boðið Ama í kvöldmat, þá spyr hann mig í símanum hvort hann megi koma með vinkonu sína með sér, þetta vakti forvitni okkar og undrun þeg- ar Ruth birtist í dyrunum. Þar með hófust samskipti okkar á öðrum vettvangi. Það hefur verið vanda- samt hlutverk sem þau Árni og Ruth stóðu frammi fyrir að tengja saman tvær stórar fjölskyldur, þar getur margt gripið inn í af tilfinn- ingatoga. Þau hjón Ámi og Rut bjuggu yfir greind og þroska og ekki verður annað séð en að þetta erfiða hlutverk hafi tekist giftusam- lega. Þá grípa örlögin inn í öðru sinni óvænt og ögrandi, Árni greindist með ólæknandi blóðsjúk- dóm aðeins spurning um hve nær lokakallið kæmi. Árni var gæddur mörgum eiginleikum, sem gagnast vel í mannlegum samskiptum, glað- vær, raunsær og tillitssamur, húmorinn tengdi þessa eðlisþætti saman. Hann var skarpgreindur en undir húmor og glensi blundaði funheitt skap, en hann skynjaði sín takmörk, þótt út af gæti brugðið í einstaka tilvikum. Honum var lagið að flétta gamanmál inn í alvarlega umræðu og tilsvör hans gátu verið tvíræð, en þannig fram sett að þau vöktu frekar hlátur en andmæli eða deilur. Hann var fjölhæfur fagmað- ur hafði næmt auga fyrir list, góður teiknari, í skopmyndum sem hann dró upp við ýmis tækifæri aðallega á vinnustað, endurspeglaðist glettni og húmor, sjálfur leit hann ekki á sig sem fagmann á þessu sviði. Hann var fróður og víðlesinn, þjóð- rækinn og áhugasamur um allt sem snerti land og þjóð. Hann hafði næmt tóneyra og átti auðvelt með að kasta fram vísu í bundnu máli. Tillitssemi við vini sem áttu við erfiðleika að stríða. Mér er minnis- stætt í veikindum mínum fyrir nokkrum árum þá var Árni tíður gestur í Hraunbæ 152 til að hug- hreysta mig og aðstoða, jafnvel til taks á miðjum vinnudegi ef ég þyrfti að mæta hjá læknis. Það var mér því sönn ánægja að fá tækifæri til að gjalda í sömu mynt, með því að keyra vin minn stöku sinnum þegar hann þurfti aðhlynningar við. Árni sýndi einstakt þrek og æðru- leysi í sínum veikindum hann barð- ist af festu til síðustu stundar, vor- kunnarorð frá öðrum áttu ekki við. Nú þegar þessu erfiða stríði er lok- ið leitar hugurinn til aðstandenda ég sendi börnum Árna og afkom- endum hugheilar samúðarhveðjur, hún Ruth sem misst hefur tvo lífs- förunauta með stuttu millibili, það er erfitt að finna orð við hæfi við þetta tækifæri. Þær voru margar stundimar sem hún Ruth dvaldi við sjúkrarúmið hans Árna síðustu vik- ur og mánuði. Henni hefur verið frá upphafi ljóst að hverju stefndi en engu að síður skilur lokastundin eftir sár, sem vonandi grær með tímanum. Framundan eru verkefni sem krefjast raunsæis og lífsorku, þá eiginleika á hún Ruth til í ríkum mæli, megi Guð og góðir vættir vera með í för. Hjálmar Jönsson. Okkur langar til að minnast þín, kæri vinur, þar sem samstarf okkar spannaði yfir 30 ár. Það bar margt á góma á þeim langa ferli. Við byrj- uðum saman í Iðnskólanum í Reykjavík 1954 og lukum saman námi eftir fjögur ár og þegar við náðum fullgildum réttindum í mál- araiðn hófum við samstarf sem var mjög farsælt og ánægjuríkt. Ámi var skemmtilegur og samvinnufús vinnufélagi, dagfarsprúður og mjög listrænn. Ógleymanlegar eru veiði- ferðirnar og ferðir erlendis. Á góð- um stundum var gaman að eiga við- ræður við Árna. Hann var víðlesinn og fróður um marga hluti. Það var mikið áfall í lífi Árna er hann missti konuna sína, Katrínu Kristjánsdóttur frá Felli í Biskups- tungum, frá fimm bömum á ung- lingsaldri og það var honum jafn- framt mikil gæfa þegar hann kynntist seinni konu sinni, Ruth, sem reyndist honum góður fóru- nautur. Það var okkur mikið áfall þegar Ami greindist með illkynja sjúk- dóm sem leiddi til þess að hann þurfti að vera langtímum á sjúkra- húsi. Ruth vék aldrei frá sjúkrabeði hans. Við biðjum Guð að styrkja Ruth og alla fjölskylduna á þessum erfiðu stundum. Ingólfur Guðnason, Hákon Oddgeirsson. Okkur langar að minnast Árna með nokkram orðum. Við voram svo lánsamar að kynn- ast Árna þegar hann og móðir okk- ar hófu sambúð. Árni og mamma áttu einstaklega vel saman og bjuggu sér fallegt heimili þar sem allir voru velkomnir. Það var yndis- legt að sjá hversu hamingjusöm þau vora saman allt frá fyrstu kynnum. Þau stóðu þétt saman og styrktu hvort annað bæði í gleði og sorg. Árni var listelskur maður og ekki síður listrænn. Eftir hann liggja mörg falleg málverk, sem prýða heimili þeirra mömmu sem og vina og vandamanna. Árni var einnig víðlesinn og ljóðelskur. Hann vitnaði oft í sögur og ljóð eft- ir ýmsa höfunda og sagði svo skemmtilega frá að við hrifumst með og vildum vita meira og hann hvatti okkur óspart til að lesa Is- lendingasögurnar, ævisögur, ferða- sögur, skáldsögur og ljóð og lánaði okkur þær bækur sem hann átti. Hann hafði líka gaman af að yrkja vísur við ýmis tækifæri, bæði gam- ansamar og alvarlegar. Árni bjó yf- ir mörgum öðram kostum og í huga okkar koma upp margar minningar um góðan mann. Hann var hæverskur, hugrakkur og umburð- arlyndur. I hans huga vora allir menn jafnir. Skoðanir, trúarbrögð eða kynþættir breyttu engu, allir vora fyrst og fremst manneskjur í hans augum. Börnum okkar var hann einstakur afi, hann hlustaði á það sem þau höfðu að segja, sagði þeim þjóðsögur og sögur frá upp- vaxtaráram sínum og var ávallt til- búinn til að taka við þau eina skák. Þau munu ávallt búa að því að hafa kynnst honum. Við eram öll ríkari eftir samskipti okkar við Árna og getum ornað okkur við allar fallegu minningarnar. Blessuð sé minning hans. Arndís, Margrét, Erla og fjölskyldur. HJÖRDÍS JÓNS- DÓTTIR + Hjördís Jónsdóttir fæddist í Reykjavík 27. júní 1970. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu 30. maí síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Bústaðakirkju 8. júní. t Ástkær eiginkona mín, móðir, dóttir og systir, BERGLJÓT GUDJÓNSDÓTTIR Vesturási 41 andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, föstudaginn 11. júní. Helgi Bergmann Ingólfsson, Ólafur Ragnar Helgason, Guðjón Eymundsson, Ingólfur A. Guðjónsson, Kolbrún Guðjónsdóttír, Áslaug Sif Guðjónsdóttir, Hörður Guðjónsson. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför HAUKS HALLGRÍMSSONAR málarameistara, Kirkjusandi 5. Sérstakar þakkir til Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík. Ásta Jenný Guðlaugsdóttir, Marta Hauksdóttir, Brandur Gfslason, Halla Hauksdóttir, Baldur J. Baldursson, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför GUÐMANNS GUÐBRANDSSONAR, Álfaskeiði 64 4c, Hafnarfirði. Bára Guðmannsdóttir, Karl Ólafsson , Kolbeinn Guðmannsson, Júlía Adolfsdóttir, Borgþór Sigurjónsson, íris Kristjánsdóttir Birgir Sigurjónsson, Sigrún Jóhannsdóttir, Herdís Sigurjónsdóttir, Guðmmundur Jóhannsson, Þórhildur Sigurjónsdóttir, Jón Ólafsson og barnabörn. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um Ijósið lát mig dreyma ogljúfaenglageyma öll bömin þín, svo blundi rótt. (M.Joch.) Kæra Þóroddur Elmar, Þórunn, Þorbergur ísak, Sólveig, Jón, Bryn- dís, Svandís, Valdís, Fanný amma og Helgi afi, Guð geymi ykkur og gefi ykkur styrk í ykkar miklu og sára sorg. Blessuð sé minning kærrar frænku okkar. Birna, Brynjar og Fanný Berit.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.