Morgunblaðið - 22.06.1999, Blaðsíða 16
/
Örlygur
með Njarð-
víkingum
KÖRFUKNATTLEIKUR
Keflvíkingurinn Falur Harðarson gerist atvinnumaður í Finnlandi
Það er alttaf gaman
að prófa eitthvað nýtt
Falur Harðarson, körfuknatt-
leiksmaður úr Keflavík, hefur
gengið frá eins árs samning við
finnska liðið Torpan Pojat frá
Helsinki. Torpan leikur í Evrópu-
keppninni í vetur og eins í Norður-
Evrópudeildinni. Liðið hefur verið
eitt besta lið Finnlands undanfarin
ár og var meistari fjögur ár í röð,
1995-1998, en komst aðeins í 8-liða
úrslit deildarinnar sl. vetur.
„Það er mjög spennandi fyrir
mig að reyna mig í fmnsku deild-
inni, sem er mun sterkari en hér
heima. Eg ákvað að slá til því það
er alltaf gaman að prófa eitthvað
nýtt. Ég tel að ég eigi að geta bætt
mig sem leikmaður og það er
ástæðan fyrir því að ég tók tilboði
finnska liðsins. Nú get ég eingöngu
einbeitt mér að körfuboltanum án
þess að hafa einhverjar peningaá-
hyggjur,“ sagði Falur, sem verður
31 árs í haust. „Með því að fara út á
ég meiri möguleika á að lengja
körfuboltaferilinn, en ég verð ekk-
ert ríkur af því að spila þar.“
Falur. sem var kosinn besti leik-
maður Islandsmótsins sl. vetur,
heldur til Finnlands um miðjan
næsta mánuð og fer síðan með lið-
inu í æfingabúðir til Frankfurt í
Þýskalandi í ágúst. Þrír erlendir
leikmenn verða með Torpan í vetur,
auk Fals kemur skotbakvörður frá
Litháen og bandarískur framherji.
KNATTSPYRNA
Blikar stöðv-
uðu sigur-
göngu Vals
Blikastúlkur stöðvuðu sigur-
göngu Vals í efstu deild
kvenna í gærkvöldi með því að
sigra 2:0 í Kópavog-
Stefán inum og skoraði
Stefánson Katrín Jónsdóttir,
skrifar gem er j ft-íj frá
norskri knatt-
spymu, fyrra markið eftir 10 mín-
útur. „Það er frábært að spila með
gömlu vinkonunum," sagði Katrín
r' eftir leikinn en hún nær að spila
tvo leiki með Blikum áður en hún
heldur aftur utan. „En ég verð að
segja að það er mildli munur á fót-
boltanum hér heima og í Noregi. I
fyrsta lagi er hraðinn mun meiri í
Noregi og svo er meira um kerfi en
það eru samt nokkrir leikmenn hér
sem gætu sómt sér í deildinni í
No_regi.“
Áhorfendur voru varla búnir að
koma sér fyrir í sólskininu í Kópa-
voginum þegar Margrét Ólafsdótt-
ir gaf fyrir mark Vals á Katrínu,
sem skallaði boltann í netið. Leik-
menn reyndu að halda uppi hraða
og kom það mikið niður á gæðum
knattspyrnunnar en Blikastúlkur
virtust þó hafa flest tök á leiknum.
Gestirnir frá Hlíðarenda slógu að-
eins af eftir markið og enn meira
eftir að Erna Sigurðardóttir bætti
við öðru marki Breiðabliks eftir
hálftíma leik þegar hún skoraði eft-
ir fyrirgjöf Hildar Sævarsdóttur.
Eftir hlé komust Valsstúlkur meira
inn í leikinn og fengu nokkur ágæt
færi en Þóra Helgadóttir, mark-
vörður Kópavogsliðsins, sá við
þeim.
Katrín, Þóra, Sigrún Óttarsdótt-
ir, Bára Gunnarsdóttir og Rakel
Ögmundsdóttir, sem lék sinn
fyrsta leik í sumar, voru góðar hjá
Breiðabliki og Margrét sýndi
skemmtilega takta en þeir skiluðu
ekki miklu. Hjá Val áttu Ásgerður
H. Ingibergsdóttir, Bergþóra Lax-
dal, Soffía Ámundadóttir, Katrín
H. Jónsdóttir og Rakel Logadóttir
ágætan leik.
Morgunblaðið/Arnaldur
KATRÍN Jónsdóttir fagnar hér marki sínu, sem hún skoraði fyrir
Blika eftir ellefu mínútur.
GENGIÐ var frá því um helg-
ina að Orlygur Sturluson leiki
með Njarðvík í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik á næsta
vetri. Örlygur, sem er 18 ára,
hefur leikið undanfarin tvö ár
með menntaskólaliði í Banda-
ríkjunum þar sem hann hefur
vakið mikla athygli fyrir
frammistöðu sína. Skólinn
sem hann hefur ieikið með er
í Norður-Karólínufylki og
þykir með þeim betri í fylk-
inu. Örlygur lók mjög vel með
skólanum siðasta vetur og var
meðal annars valinn í úr-
valslið deildarinnar sem hann
lékí.
Friðrik Rúnarsson, þjálfari
Njarðvíkinga. er mjög ánægð-
ur með að fá Örlyg í sínar
raðir og segir hann vera einn
efnilegasta leiksijórnanda
landsins. „Það muna margir
hvemig hann lék með okkur
fyrir tveimur árum, þá aðeins
16 ára gamall. Nú er hann
tveimur árum eldri og á
sennilega eftir að styrkja liðið
mikið.“
Þegar Örlygur lék síðast á
íslandi var hann valinn nýliði
ársins og var einn af máttar-
stólpum íslandsmeistaraliðs
Njarðvíkur.
Eyjamenn
kæra ekki
í SAMRÁÐI við þjálfara meist-
araflokksliðs ÍBV í kvenna-
flokki hefur sijóm knatt-
spyrnudeildar ÍBV ákveðið að
kæra Valsmenn ekki fyrir að
nota ólöglegan leikmann í
viðureign félaganna í meistara-
deild kvenna í sl. viku sem
greint var frá í Morgunblaðinu.
Segir í fréttatilkynningu frá
IBV að um mannleg mistök
hafi verið að ræða af hálfu Vals
við útfýllingu leikskýrslu leiks-
ins. Fjórir varamenn hafi verið
skráðir í stað fímm eins og
leyfilegt er, en þessi fimmti
maður var einmitt notaður.
Leikmaðurinn hafi komið við
sögu í síðari hálfleik en hafi
ekki haft afgerandi áhrif á
gang leiksins.
I tilkynningu sinni bendir
ÍBV ennfremur á „gat“ í lögum
KSÍ er varðar útfyllingu á leik-
skýrslum því hvergi mun vera
kveðið á um viðurlög við mis-
tökum á borð við þau sem áttu
sér stað í leik Vals og ÍBV. Val-
ur vann áðumefndan leik, 2:1.
GOLF / U.S. OPEN
Slewait fagnaði sigri
Deschamps
til Chelsea
FRANSKI landsliðsmaðurinn
Didier Deschamps gekk til
liðs við Chelsea í gær. Liðið
borgaði Juventus 360 miiy.
ísl. kr. fyrir Deschamps, sem
skrifaði undir þriggja ára
samning.
Marceiino
til Newcastle
NEWCASTLE tryggði sér í
gær Spánveijann Marcelino
Elena frá Mallorca -
kaupverð var 689 millj. ísl. kr.
Elena skrifaði undir íjögurra
ára samning.
Payne Stewart sigraði U.S. Open
í annað sinn á sunnudaginn.
Mótið var æsispennandi og úrslit
réðust ekki fyrr en á lokaholunni.
Stewart grét af gleði eftir að hafa
tryggt sér titilinn og eignaði drottni
sigurinn að hætti trúaðra manna.
Stewart lék lokahringinn ásamt
Phil Mickelson og lék sá síðarnefndi
betur framanaf og flestir héldu að
hann myndi fara með sigur af hólmi.
Tiger Woods og Vijay Sing
blönduðu sér einnig í baráttuna á
tímabili.
Þegar Stewart og Mickelson
stigu á teiginn á 18. holu hafði sá
fyrmefndi eins höggs forystu. En
blikur voru á lofti. Holan þykir með
þeim erfiðari og er mjög löng miðað
við að hún er par fjögur. Stewart
átti slæmt upphafshögg og lenti
utan brautar á meðan Mickelson lék
örugglega og var kominn inn á flöt
eftir tvö högg. Mickelson þurfti að
setja niður 5 metra langt pútt til að
ná fugli og eiga með því möguleika
á bráðabana og ef til vill sigri ef
Stewart næði ekki pari. En
Mickelson brást bogalistin þótt litlu
hefði munað að kúlan færi ofan í
holuna. Stewart náði hins vegar að
bjarga sér fyrir hom, hann var
kominn inn á flöt eftir þrjú högg og
gat tryggt sér sigur með því að
setja 6 metra langt pútt ofan í. Það
tókst og Stewart stóð uppi sem
sigurvegari.
Stewart og Miekelson skiptust á
forystunni á síðustu níu holunum.
Stewart fékk þrjá skolla á meðan
Mickelson var öryggið uppmálað.
En púttin komu Stewart til bjargar
og hann setti þrjú erfið pútt niður á
lokaholunum. Þegar blaðamenn
spurðu Stewart um galdurinn á bak
við hin góðu pútt sagði hann að
Tracey, eiginkona sín, hefði bent
honum á kvöldið fyrir lokahringinn
að hann hreyfði höfuðið full mikið
við púttin en það þykir ekki líklegt
til árangurs.
Sigurinn var sætur fyrir Stewart
því að hann glutraði niður nánast
öruggum sigri á sama móti í fyrra.
En þá hafði hann fjögurra högga
forystu fyrir síðasta keppnisdag en
lét að lokum í minni pokann fyrir
Lee Janzen.
■ Úrslit / B15