Morgunblaðið - 06.08.1999, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1999 31
______________UMRÆÐAN
Rannsókn hafin
í TILEFNI greinar
Jóhannesar Gunnars-
sonar, formanns Neyt-
endasamtakanna, sem
birtist í Mbl. sl. mið-
vikudag um kampýlo-
bakter sé ég mig
knúna til að koma á
framfæri nokkrum at-
hugasemdum.
Ymsar fullyrðingar í
greininni eru þannig
settar fram að halda
mætti að umhverfis-
ráðherra væri ósam-
stiga Hollustuvemd
ríkisins og landlækni
varðandi hvort inn-
kalla ætti kjúklinga
frá Ásmundarstaðabúinu sem
komnir eru í verslanir. Svo er alls
ekki. Ég, Hollustuvernd og land-
læknh' erum öll sammála um að
ekki beri að innkalla afurðir frá Ás-
mundarstöðum. Frekari rannsókna
er þörf til að staðfesta uppruna
sýkinga.
Sama dag og beiðni Neytenda-
samtakanna um tafarlausar að-
gerðir og opinbera rannsókn vegna
kampýlobakter sýkinga barst brást
ég við með neytendavernd að leið-
arljósi og óskaði eftir áliti Holl-
ustuvemdar ríkisins og landlæknis
á málinu, í samræmi við lög nr.
7/1998 um hollustuhætti og meng-
unarvarnir. Með bréfi, dags. degi
síðar, barst mér ráðgjöf þeirra og
var hún ótvíræð í þá vem að hvorki
bæri að innkalla kjúklinga né láta
fara fram opinbera rannsókn. í
svari Hollustuvemdar og land-
læknis segir:
Svar HoIIustuverndar
ríkisins og landlæknis
,Árið 1991 gerði Hollustuvernd
ríkisins úttekt á tíðni Campylo-
bacter í frystum kjúklingum á
markaði. í ljós kom að hátt hlutfall
(69-100%) kjúklinga frá öllum slát-
urleyfishöfum (5 sláturhús) sem
framleiddu kjúklinga á þeim tíma
innihéldu Campylobacter sýkilinn.
Árið 1991 vom aðeins staðfestar 10
sýkingar af völdum Campylobacter
sem taldar voru eiga sér upprana
innanlands, skv. gögnum frá Sýkla-
fræðideild Ladspítala. Heilbrigðis-
eftirlit Reykjavíkur-, Hafnarfjarð-
ar-, Kópavogs- og Kjósarsvæðis
hafa í sameiningu gert litlar úttekt-
ir á tilvist Campylobacter í
kjúklingum og öðrum kjötvömm í
september 1998 og febrúar og maí
á þessu ári. Af 47 kjúklingasýnum
reyndust 27 sýni innihalda sýkil-
inn. Vegna lítils sýnafjölda er
ómögulegt að fullyrða um tíðni
Campylobacter hjá einstökum slát-
urleyfishöfum, og ennþá síður um
tíðni hjá einstaka innleggjanda
eins og t.d. Ásmundar-
staðabúinu.
Fram til ársins 1995
var einungis heimilt að
selja kjúklinga fyrsta.
I kjölfar þess að sala á
ferskum kjúklingum
var heimiluð, jókst
neysla á kjúklingum
hérlendis. Á sama tíma
hefur Campylobacter
sýkingum í fólki fjölg-
að vemlega. Áður en
núverandi faraldur
Campylobacter sýk-
inga hófst greindust
um 50 tilvik sýkinga
hérlendis árlega, þar
sem um helmingur tU-
fella var af erlendum uppmna. í
júnímánuði einum vom tilvikin um
60 og í gær höfðu greinst 85 tilvik
Kampýlobakter
*
Eg, Hollustuvernd og
landlæknir erum öll
sammála um að ekki
beri að innkalla afurðir
—
frá Asmundarstöðum,
segir Siv Friðleifsdótt-
ir. Frekari rannsókna
er þörf til að staðfesta
uppruna sýkinga.
það sem af er júlímánuði. Nærfellt
öll þessara tilfella em innlend.
Sterkar líkur eru á að fjölgun sýk-
inga megi rekja til meðhöndlunar á
hráum kjúklingum eða neyslu á
kjúklingum sem ekki hafa fengið
nægjanlega hitameðferð. Vonast er
til að vísindarannsóknir muni stað-
festa uppmna sýkinga.
Hvorki á Norðurlöndum, né ann-
arsstaðar, hafa að því er best er
vitað verið settar sérstakar reglur
um Campylobacter í hráu kjöti og
ekki er gripið til innköllunar eða
sölustöðvunar á hráu kjöti þó það
reynist innihalda þennan sýkil. Á
Norðurlöndum vinna yfirvöld hins
vegar að því í samstarfí við fram-
leiðendur að finna leiðir til að út-
rýma eða draga úr tíðni sýkilsins í
kjúklingarækt.
Samhengi er á milli umgengni
við dýrahald og í matvælafyrir-
tækjum og möguleikum á út-
breiðslu sýkla í framleiðsluvörar.
Miðað við þá vitneskju sem við bú-
um yfir í dag er þó ekki hægt að slá
því föstu að beint samhengi sé á
milli Campylobacter smits í alifulg-
um og umhverfismála í tilteknu ali-
fuglabúi á tilteknum tíma.
Hollustuvemd ríkisins og Land-
læknir telja ekki rétt að grípa til
innköllunar eða sölustöðvunar á
vömm frá Ásmundarstöðum. Rétt
er að ítreka lögboðnar leiðbeining-
ar um meðhöndlun og matreiðslu
alifuglakjöts, sbr. rg. 260/1980 um
útbúnað alifuglasláturhúsa, verkun
þeirra og heilbrigðisskoðun, með
síðari breytingum og gera átak í
fræðslumálum til neytenda um
meðhöndlun á hráum kjötvömm.
Markmiðið er að draga úr
Campylobacter mengun í alifugla-
afurðum. Þetta verður einkum
gert með rannsóknar- og þróunar-
vinnu sem Hollustuvemd ríkisins
og Landlæknir hafa nú þegar hrint
af stað í samvinnu við yfirdýra-
lækni, Tilraunastöð Háskóla ís-
lands í meinafræði að Keldum,
Sýklafræðideild Landspítala og
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðar-
ins.“
Varðandi beiðni Neytendasam-
takanna á opinberri rannsókn segir
í svarbréfi Hollustuverndar og
landlæknis.
„Faraldsfræðileg rannsókn á
uppruna sýkinganna er að hefjast.
Rannsókn í öðm formi er ástæðu-
laus á þessu stigi.“
Niðurstaða mín
Féllst ég á ráðgjöf Hollustu-
verndar og landlæknis og var hún
tilkynnt Neytendasamtökunum og
fjölmiðlum þann sama dag.
Á vegum Hollustuvemdar, land-
læknis og yfirdýralæknis er þegar
hafin rannsókn á kampýlobakter
smitun sem mun ná til framleiðslu-
staða, sláturhúsa og umhverfis
þeirra staða, dreifingar matvæla
og sýkingar í mönnum. Þessi rann-
sókn mun taka nokkrar vikur og er
ætlað að varpa ljósi á ástandið og
verða gmndvöllur til aðgerða reyn-
ist þær nauðsynlegar.
Ráðuneytið hefur nú sem
endranær lagt ríka áherslu á að op-
inberar stofnanir, jafnt á vegum
ríkis sem sveitarfélaga, fræði neyt-
endur um rétta meðhöndlun mat-
væla og hvernig við skuli brugðist
ef eitthvað ber út af. Fyllsta
ástæða er til að vera vel á verði
gagnvart kampýlobakter sýkingum
sem og öðmm matarsýkingum og
vonandi tekst að stemma stigu við
þessum vágesti með sameiginlegu
átaki eins og tókst með salmonella
sýkingar.
Höfundur er umhverfísráðherra.
Siv
Friðleifsdóttir
Bögubósar og
árið 2000
HORMULEGT um-
ferðarslys í okkar
menningu er að
menntamannaklíkur
hafa sameinast um að
„stuðlanna þrískipta
gi'ein" skipti ekki leng-
ur neinu máli íyrir
ljóðagerð okkar. Við
varðveittum þessa
gersemi að mestu
ómengaða fram á
miðja þessa öld.
I tímaritsgrein get-
ur Guðmundur Andri
Thorsson ekki neitað
sér um þá ánægju að
vitna til gatslitinnar
setningar Steins Stein-
arr: „Hið háttbundna ljóðform er
nú loksins dautt.“ Ég segi gatslitin,
vegna þess að eftir að skáldið lét
Ljóðlist
*
A ekki þjóðin líka kröfu
á að kynnast margróm-
uðum yfírburðum nú-
tíma ljóðlistar, spyr
Guðmundur Guðmund-
arson, sem sífellt er
verið að dásama eða
verðlauna?
þessi orð falla í glensi, þá breytti
það engu í ljóðagerð sinni. Hann
hélt áfram að hagnýta sér stuðla,
enda em ljóð hans yfirleitt mjög
bundin.
Hinsvegar er býsna furðulegt að
aldrei skuli vitnað til að í ritdeilu
upplýsti Steinn; „íslenskt Ijóðskáld,
sem skortir hagmælsku og em þar
að auki ófrumleg köllum við í dag-
legu tali „bögubósa“.“ Taki þeir til
sín sem eiga!
Ættjarðarljóð era talin hefjast
með ljóði Eggerts
Ólafssonar, íslands-
minni (ísland ögmm
skorið). Síðan höfum
við eignast ótal ljóð
landi og lýð til heilla.
Jafnframt hafa mjög
mörg ljóð höfðað til
tónskáldanna, sem
upptendruðust og
sömdu hugljúf lög,
sem auka mjög á gildi
og vinsældir ljóðanna.
Okkur em minnis-
stæð ættjarðarljóðin
1930 og við lýðveldis-
stofnun 1944, fleiri til-
efni mætti nefna. Jafn-
framt var viðhöfð sam-
keppni um lög, sem reyndust frá-
bær. Þessi ljóð og lög hafa síðan
verið í hávegum höfð og heillað
þjóðina.
Nú fara í hönd aldamót og jafn-
framt 1000 ára afmæli kristnitök-
unnar. Er ekki einstakt tækifæri
nú til að efna til samkeppni um há-
tíðarijóð, sem hæfa þessum stór-
kostlegu tímamótum og síðan fá
tónskáldin kærkomið tækifæri til
að sanna snilli sína. Ætlar hátíðar-
nefnd kirkjunnar að gefa trúar-
skáldum tækifæri að þessu glæsta
tilefni? Væri ekki rétt að láta öðr-
um eftir að kistuleggja ljóðhefðina?
Kirkjuna prýða ávallt fögur ljóð,
söngur og tónlist.
Aleitin spurning er einnig hvort
þeir sem eru styrkþegar í ljóða-
gerð eigi ekki heimtingu á að láta
ljósið sitt skína, svo þjóðin kynnist
hæfíleikum þeirra.
Á ekki þjóðin líka kröfu á að
kynnast margrómuðum yfirburð-
um nútíma Ijóðlistar, sem sífellt er
verið að dásama eða verðlauna?
Hvernig í ósköpunum er hægt að
láta grafarþögn ríkja um ljóða-
gerðina á þessum einstæðu tíma-
mótum?
Höfundur er fyrrverandi
framkvæmdastjóri.
Guðmundur
Guðmundarson
Glæsilegir amerískir rafmagnsnuddpottar
Acrylpottur í rauðviðargrind.
Innb. hitunar- og hreinsikerfi.
Vatns- og loftnudd. Engar leiðslur
nema rafm. 16 amp.
Einangrunarlok með læsingum.
Sjálfv. hitastillir.
Tilbúnir til afhendingar.
IMokkrir pottar á ótrúlegu uerói kr. 410.000 staðgr.
VESTAIM ehf., Auðbrekku 23, 200 Kópavogur,
s. 554 6171, fars. 898 4154
ðuelle- ÚTSÖLULOK
Þökkum frábærar viðtökur á útsöiunni og Ijúkum henni á ótrúlegan hátt
Verslunarhús Quelle Dalvegi 2 - Kópavogi - S: 564