Morgunblaðið - 06.08.1999, Page 39

Morgunblaðið - 06.08.1999, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1999 39 I I I i ■I stundir voru á starfsvettvangi eða utan hans. Gunnlaugur og fjölskylda hans urðu fyrir þungri raun er sonur hans ágætur, Eggert læknir, dó eftir lang- vinn veikindi langt um aldur fram og skömmu síðar kona Eggerts frá fjór- um bömum. Síðustu ár Gunniaugs voru honum erfið, bundinn við rúm og hjólastól, en andlegu atgervi sínu hélt hann fram undir það síðasta. Hann beið þess síðast sem verða vildi. „Ailir gömlu vinirnir mínir em farnir, nú hef ég ekkert meira hér að gera, Sveinbjörn minn,“ sagði hann við mig fyrir nokkm. Gunnlaugur kvaddi lífið sáttur við guð og menn, en saddur lífdaga. Kristján heitinn Sveinsson, augn- læknir, heiðursborgari Reykjavíkur, segir um Gunnlaug í endurminning- um sínum sem út komu 1983, en þeir vom tengdir ævilöngum vináttu- böndum, allt frá menntaskólaárun- um, að hann hafi verið „einn besti maður, sem hann hafi fyrir hitt á lífs- leiðinni“. Ég vil á kveðjustund, eftir nær 50 ára kynni, taka undir þessi orð Kri- stjáns. Blessuð sé minning Þóm og Gunn- laugs E. Briem. Sveinbjöm Dagfinnsson. Gunnlaugur E. Briem fyrrv. ráðu- neytisstjóri er látinn 96 ára að aldri. Með honum er genginn einn traustasti og farsælasti embættis- maður StjómaiTáðs íslands. Hann átti ekki langt að sækja fæmi sína og trúmennsku í embættisstörfum því forfeður hans og frændur ótal margir höfðu unnið landi sínu og þjóð mikil- væg störf á baráttutímum og verið hvort heldur var veraldlegir eða and- legir forystumenn. Gunnlaugur E. Briem hóf störf í Stjómarráði íslands árið 1927, þá ný- útskrifaður lögfræðingur, og gerðist aðstoðarmaður og síðar fulltrúi og settur skrifstofustjóri atvinnu- og samgönguráðuneytisins. Árið 1947 var Gunnlaugur skipaður ráðuneytis- stjóri í atvinnumálaráðuneytinu, sem varð ráðuneyti sjávarútvegs- og land- búnaðarmála. Við skipulagsbreyting- ar Stjómarráðsins 1970 var ráðu- neytinu skipt og kaus Gunnlaugur að ljúka embættisferli sínum sem ráðu- neytisstjóri landbúnaðarráðuneytis- ins og því starfi gegndi hann til árs- ins 1973 að hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Á löngum starfsferli fjallaði Gunn- laugur um fjölmarga málaflokka, auk sjávarútvegs og landbúnaðar, við- skipti, iðnað, samgöngur og félags- mál. Það var sama hvar hann bar nið- ur. Störf hans öll vom sérstök og á hann hlóðust hin fjölþættustu trún- aðarstörf. Þegar hin vandasömustu mál vora til úrlausnar hjá ríkisstjórn- um var gjaman leitað til Gunnlaugs, svo ráðhollur og traustur var hann. Honum var líka einkar lagið að fá menn ólíkra sjónarmiða til samstarfs og sátta. Það urðu vitanlega miklar breyt- ingar á Stjórnarráði íslands á þess- um 46 ámm sem Gunnlaugur E. Briem starfaði þar. Starfshættir breyttust, ríkisstjórnir komu og fóm og með nýjum ráðheirum oft nýjar og breyttar áherslur. Reyndar tók þjóðlífið allt miklum stakkaskiptum á þessum tímum. Við öllu því brást hinn trausti embættismaður rétt. Framþróunin var eðlileg og sjálfsögð með þeim breytingum sem nýir tím- ar kölluðu á. Gunnlaugur var þar æv- inlega í forystu með þeirri kjölfestu sem hann taldi nauðsynlega. Áhrif hans urðu líka mikil. Það skipti ekki máli hvort ráðherramir hétu Ólafur Thors, Hermann Jónasson, Emil Jónsson eða Lúðvík Jósepsson, svo nokkur nöfn séu nefnd. Gunnlaugi E. Briem treystu þeir allir og ráð hans ævinlega með þeim hætti að tillit var tekið til þeirra og þau oftast til mót- unar ákvarðanatöku ráðherra. Ég naut þess sem ungur lagastúd- ent að komast í sumarvinnu í at- vinnumálaráðuneytinu, til Gunnlaugs E. Briem. I nokkur sumur og í eitt ár eftir að ég lauk námi starfaði ég í ráðuneytinu undir handleiðslu Gunn- laugs. Það var mér ómetanlegur skóli, hvort sem um var að ræða að læra af yfirmanninum Gunnlaugi eða honum sem ráðgjafa yfirmanna sinna. Þegar mér svo síðar á lífsleiðinni vom falin opinber trúnaðarstörf reyndist hann mér ævinlega hinn holli ráðgjafi er ég leitaði til hans. Þar til fyrir nokkrum áram að ald- urinn sagði til sín stóð heimili þeirra Gunnlaugs E. Briem og eiginkonu hans, Þóm Garðarsdóttur Briem, að Tjarnargötu 28. Þar hafði Gunnlaug- ur alist upp ásamt systur sinni, Sig- ríði, á heimili foreldra þeitra, Guð- rúnar og Eggerts Briem, hæstarétt- ardómara. Þar nutu þau hjónin lífsins og umhyggju hvort annars og barn- anna þeirra þriggja og fjölskyldna þeirra. I janúar sl. lést Þóra en áður höfðu þau misst son sinn, Eggert Þóri lækni, og eiginkonu hans, Hall- dóm Kristrúnu. Góður maður er genginn og merk- um æviferli lokið. Frábær störf Gunnlaugs em þökkuð og þeirra verður lengi minnst. r Ég kveð Gunnlaug E. Briem með þakklæti fyrir ómetanlega vináttu hans og velvilja. Við biðjum honum Guðs blessunar og sendum bömum hans og fjölskyldu samúðarkveðjur. Matthías Á. Mathiesen. í dag er jarðsunginn þjóðkunnur maður, Gunnlaugur E. Briem, fyrr- verandi ráðuneytisstjóri. Ég kynntist Gunnlaugi fyrst á sjöunda áratugn- um og tókst þá þegar með okkur mikil og góð vinátta sem aldrei bar skugga á. Þegar á þeim tíma hafði Gunnlaugur starfað þrjár tylftir ára í stjómarráðinu og þjónað eða veitt leiðsögn í það minnsta tveim tylftum ráðherra, sumum þeirra tvisvar og jafnvel oftar. Að sjálfsögðu dundi margt yfir þjóðina og margt gerðist á þessum tíma. Mér er enn í fersku minni, þegar Gunnlaugur sagði með hægð: „Ráðherrarnir koma og fara. Mikið sé ég eftir þeim öllum.“ Síðan var þögn og hann eins og horfði á tærnar á sér og bætti við: „Maður verður samt lítið var við stefnubreyV ingar.“ Ef við varðveitum ekki hið liðna og það sem ávinnst með hverri kynslóð, stöðnum við í grárri fomeskju. Ekki er þó nóg að varðveita þá menningu og þekkingu, sem við höfum öðlast, það verður sífellt að breyta og bæta eftir því sem reynslan kennir okkur. Ihaldssemi og breytingar þurfa því að haldast í hendur. Bæði þessi sjón- armið eiga sér ætíð málsvara í hverju þjóðfélagi. Jafnan er það svo, að hinir ungu vilja breyta, en hinir eldri halda í. Ef til vill væri eðlilegra, að sá sem byrjar lífið, reyni að halda í þann ávinning, sem þegar er fenginn, en sá eldri breyti í samræmi við þá reynslu, sem hann hefur aflað sér í lífinu. Ég nefni þessa þverstæðu, af því að hlutverk embættismanna vill oft vera að halda uppi vöm fyrir fengna reynslu, sem er hið íhalds- samara hlutverk. Mörgum hættir þó til að telja hitt hlutverkið meira virði. Hlutverk Gunnlaugs var alla tíð hið íhaldssama. Hann hafði þó aldrei þann hátt á að geyma mál, eyða þeim eða svæfa. Atvinnumálaráðuneytið var aldrei söltunarstöð. Öll mál voru jafnan afgreidd án tafar, ef Gunn- laugur gat á annað borð ráðið þar um. Ósjaldan var það hið óvinsæla hlutverk ráðuneytisstjórans að gera grein íyrir af hverju erindum var synjað. Ósérhlífni og hreinskilni Gunnlaugs kostaði hann að sjálf- sögðu oft óvinsældir, en sæi hann vit í tillögum eða von til betra lífs, hikaði hann aldrei við að leggja því máli lið. Þótt Gunnlaugur hafi verið með- mæltur nýjungum og endurbótum, var hann þó jafnan lítið ginnkeyptur fyrir byltingarkenndum nýmælum. Holskeflum nýtískulegra stjórntækja og aðferða tók hann með stöku jafn- aðargeði og ró, á meðan aðrir máttu vart mæla af hrifningu. Gunnlaugur skilaði til okkar yngri mannanna hefðbundnum stjómunaraðferðum sem eiga sér aldalanga þróun og reynslu. Gunnlaugur átti mikið samstarf við aðra embættismenn. Ég man eftir því, hve samstarf hans og Sig- tryggs heitins Klemenzsonar var gott. í þá daga lokaði Sigtryggur sig af í eina viku í septemberlok og samdi fjárlagaframvarpið, sem síð- an kom úr prentun og varð litlu breytt úr þvi. Nú er þetta langur og flókinn ferill, sjálfsagt sanngjarnari, en hefur í för með sér meiri út- gjaldahættu. í gegnum tíðina unnu Gunnlaugur og Sigtryggur saman að farsælli lausn margra, flókinna úrlausnarefna. Hér hefi ég aðeins tæpt á nokkmm eiginleikum Gunnlaugs E. Briem, en hann var jafnan léttur maður í lund og gat bragðið á leik þegar við átti. Nutu menn glaðlyndi hans ríkulega. Hann var mikill stemningsmaður, en lagði þó meira upp úr raunsæi en orðræðum. Menn era oft metnir eftir framanum og okkur hættir mörgum til að meta okkur sjálfa eftir þeim mælikvarða. Höfuðkostur Gunnlaugs var, að hann var rótfastur og sjálfum sér samkvæmur. Hann kunni góð skil FINNUR G. K. DANÍELSSON + Finnur Guðjón Kristján Daní- elsson fæddist á Vöðlum í Önundar- firði 25. nóvember 1909. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Seli á Akureyri 26. júlí siðastliðinn. Foreldrar hans voru Daníel Bjarna- son bóndi, f. 14. október 1865, d. 25. aprfl 1944, og eigin- kona hans Guðný Kristín Finnsdóttir, f. 26. ágúst 1870, d. 16. júlí 1954. Systkini Finns voru Guðný Rósinkransa, Guð- mundur Jón, Berta, Bjarni og Daníel Ágúst. Þau eru öll látin. Eiginkona Finns (26. september 1940) er Guðmunda Sigurlaug Pétursdóttir, f. 24. október 1914. Synir þeirra eru Valur Georg, f. 3. júlí 1935, vélfræð- ingur á Akureyri, og Guðmund- Nafn Finns Daníelssonar bar oft á góma á æskuheimili mínu í Reykja- vík. Þrátt fyrir það minnist ég þess ekki að hafa séð hann á æskuáram mínum. Hann var Vestfirðingur eins og foreldrar mínir. Móðir mín og hann voru jafnaldra og ég held þau hafi öll kynnst á unglingsáram á Isa- firði. Verið gæti að faðir minn og Finnur hafi verið saman á sjónum. Báðir útskrifuðust þeir úr Stýri- mannaskólanum í Reykjavík, Finnur ur Jón Bjarni, f. 18. maí 1942, pípulagn- ingameistari í Gr- indavík. Þá átti Finnur son áður en hann kvæntist, Sig- mund Hagalín, f. 22. janúar 1934, en hann drukknaði með togaranum Júlí 8. febrúar 1959. Finnur útskrifaðist úr Stýrimannaskól- anum í Reykjavík árið 1935 og starf- aði lengst af ævinn- ar sem sjómaður, síðari árin sem togaraskipstjóri á skipum Útgerðarfélags Akur- eyringa. Eftir að hann hætti á sjónum starfaði hann sem fisk- matsmaður og síðar sem skrif- stofumaður á Bifreiðaverkstæð- inu Baugi á Akureyri. Útför Finns fór fram frá Akur- eyrarkirkju þriðjudaginn 3. ágúst. þó líklega á undan föður mínum. Þá var sonur Finns, sem hann átti áður en hann giftist, Sigmundur, sem kallaður var Bútur, leikfélagi minn í æsku, en Bútur drukknaði með tog- aranum Júlí 1959. En vegir okkai- Finns áttu eftir að liggja saman er ég kynntist eigin- konu minni því Finnur og eiginkona hans, Guðmunda Pétursdóttir, voru tengd órjúfanlegum og ævilöngum vináttuböndum við fjölskyldu eigin- á muni þess að sýnast eða vera og að greina á milli hugarburðar og raun- veruleika. Um leið og ég kveð vin minn Gunn- laug þakka ég honum ánægjulega samfylgd. Ég votta afkomendum og öðram aðstandendum samúð mína. Jón L. Arnalds. Mikill höfðingi er fallinn, kominn talsvert á tíræðisaldur. Svo háum aldri náði Gunnlaugur E. Briem, að okkur er farið að fækka, sem munum þá tíð, þegar engum ráðum þótti vel ráðið um mörg mikilsverðustu við- fangsefni í Stjórnarráðinu, að Gunn- laugur væri þar ekki til kallaður. Og í sáttanefndum í vinnudeilum þótti hann sjálfsagður. Ástæðan var ein- föld. Þar fór á þeim tíma sá embætt- ismaður Stjórnarráðsins, sem lengst> an og farsælastan embættisferil hafði átt og unnið sér allra manna traust, bæði meðal kollega og stjómmála- manna, sem til ráðherradóms höfðu valist. Trúmennska hans gagnvart hveiju verlri, sem honum var falið og hverjum manni hafði aldrei bragðist og því var honum treyst til vanda- samra verka umfram aðra menn. Ungur hafði Gunnlaugur þegar á þriðja tug aldarinnar ráðist tfl starfa í Stjómarráðinu með þeim mönnum, sem þá vora ennþá til og höfðu byrj- að sína embættisfærslu með hinum fyrsta ráðherra íslands 1904. Hinar rótgrónu hefðir stjómsýslu þess tíma hafði hann tileinkað sér og nýtt sér út í hörgul, alltaf með trúnaðinn við sinn stjómmálalega forystumann hvers tíma að leiðarljósi. Inn í þessa veröld leiddi Gunnlaug- ur E. Briem mig, sem þetta skrifa, 23 ára gamlan og nýbakaðan lögfræðing 1958 og þeirrar leiðsagnar naut ég á áttunda ár. Sagt er, að lengi búi að lyrstu gerð. Svo mikið er víst, að ég hef alla tíð litið á Gunnlaug E. Briem sem nestor minn í öllum þeim marg- breytilegu stjórnunarverkum, sem ég vann eftir að ég lauk störfúm und- ir hans beinu stjóm. Ófá era þess dæmi á mínum ferli, að ég hef að. kvöldi lagt til hliðar hvatskeytlegt bréf eða minnisblað af einhverju tagi, minnugur þess, þegar ég hafði lagt slíkt bréf fyrir Gunnlaug og hann sagði með sinni eðlislægu hægð og Ijúfmennsku, að þetta sé einmitt bréf af því tagi, sem maður á að láta bíða að minnsta kosti næsta dags. Raunar fylgdi ráðleggingunni saga úr hans eigin reynslu, þar sem honum hafði orðið á að skrifa slíkt hvasst bréf fyr- ir ráðuneytisisins hönd til sendi- manns Dana á Islandi. Sendimannin- um mislíkaði bréfið svo mjög, að snemma næsta morgun var hann kominn í viðtal til ráðherra Gunn^-- laugs, sem þá var Ólafur Thors. Þannig hagaði til, að gengt var beint milli skrifstofa Ólafs og Gunnlaugs. Það fregnaði Gunnlaugui- fyrst af heimsókn hins danska sendimanns, að dyrunum milli skrifstofanna var lokið upp og Gunnlaugur heyrði Ólaf segja eitthvað í áttina við: „Hvað er eiginlega að athuga við þetta bréf? Ég dikteraði það sjálfur." Við þetta lækkaði risið á hinum danska sendi- manni og hvarf hann á braut, en Ólafúr gekk inn í skrifstofu Gunn- laugs og spurði: „Hvaða djöfuls bréf var þetta eiginlega?“ Slíkt var traustf þessa ráðherra á því, sem Gunnlaug- ur hafði gert og þannig var um þá flesta. Lengst af starfsævinnar varð það hlutskipti Gunnlaugs E. Briem að þjóna þeim stjómmálaforystumönn- um, sem þjóðin kaus sér um áratugi. Flestir era þeir nú neðar moldu og geta ekki þakkað þá þjónustu. Ég, sem fékk ungur færi á að taka þátt í henni, vil hins vegar þakka það og allt, sem það hefur verið mér. Jafn- framt vil ég nota tækifærið til að óska þess, að í stjórnsýsluna sæki menn og konur, sem hafa eitthvað af þeim eiginleikum, sem Gunnlaugur E. Briem var svo ríkur af. Börnum og tengdabömum Gunnlaugs og<r Þóra og afkomendum öllum bið ég blessunar. Jón Sigurðsson. Kveðja frá Skógræktarfélagi íslands Gunnlaugur E. Briem heillaðist snemma á ævinni af skógræktar- hugsjóninni og lét veralega til sín taka á þeim vettvangi af rökvísi, baráttugleði og heilindum hvortj- sem var í einkalífi eða í tengslum við ævistarfið sem ráðuneytisstjóri í landbúnaðarráðuneytinu. Hvar sem hann fór gat hann sér orð fyrir ráðvendni, vingjamlegt viðmót og fágaða framkomu, og réð því miklu um framgang skógræktar á Islandi um árabil. Þannig lifir hann í minningu okk- ar skógræktarmanna. Hafi hann ævinlega þökk fyrir. F.h. Skógræktarfélags íslands, Hulda Valtýsdóttir. konu minnar, enda vora Guðmunda og tengdamóðir mín skyldar. Öll verk Skaparans eru undursam- leg. Sum þeirra hrífa mann strax við fyrstu sýn. Önnur þarf að skoða vel og vandlega til að njóta dásemdar þeirra og oft verður ánægjan meiri eftir því sem lengur er skoðað. Það þurfti að kynnast manninum Finni Daníelssyni til þess að njóta þeirra góðu eiginleika sem hann var gædd- ur. Ég tel að ekki hafi allir haft greiðan aðgang að dyrum hjarta hans. Þó fór það svo, líklega fyrir kynni við foreldra mína og vináttu við tengdaforeldra, að þessar dyr opnuðust mér og frá þeirri stundu eignaðist ég einn minn besta vin. Hann var ekkert ólíkur þeirri tignarlegu en hrikalegu fegurð sem einkennir Vestfirði og skaplyndi hans mætti einnig líkja við veðurlag- ið sem ríkir á þeim slóðum, sem get- ur verið undurblítt en einnig fjarska hart. Finnur var vel gefinn, mjög minnugur og vel lesinn og fróður um marga hluti. Það var því uppbyggj- andi fyrir ungan mann að eyða frí- stundum með honum og njóta frá- sagnar hans um menn og atburði lið- inna tíma, oft á tíðum í tjaldi eftir veiðidag. Finnur gat verið afskap- lega skemmtilegur þegar því var að heilsa. Hann gat að mínu mati Iíka verið harður í horn að taka og stundum fannst mér hann taka ákvarðanir sem enginn mannlegur máttur gat haggað. Mér datt það svo sem í hug við sérstakar aðstæð- ur að jafnvel æðri máttarvöld gætu lent í basli með hann. Ég minnist sérstaki-a og rösklegra hreyfinga þegar áhersla var lögð á frásögn, dugnaðar og keppnisskaps. Þá minnist ég sérkennilegra og skemmtilegra nafngifta og orða sem léku honum á vörum í hita leiks við hraðskák, en við fóram fljótt að tefla saman í skammdeginu og leiddi það síðar til vikulegra „skákmóta" á vetram ásamt fleiri kunningjum etf" slík mót vörðu í nokkur ár til skiptis á heimilum hvers og eins. Þegar daginn tók að lengja fórum við sam- an á lax- og silungsveiðar. í hópnum var oft annar félagi, Magnús Stef- ánsson, sem var á þeim aldri að hann hefði einnig getað verið faðir minn. Fannst mér ég njóta sér- stakra fríðinda að fá að vera í návist þessara heiðursmanna og deila með þeim þeirri gleði og unaði sem því fylgir að vera úti í íslenskri náttúru við fagra veiðiá eða við silungsvatn. Ég minnist hófsemi þeirra og nægjusemi og enn í dag þegar ég sé myndir af tískuklæddum veiðimönn- um okkar tíma minnist ég þess hvemig mér fannst veiðibúnaður og * klæði sérhvers sanns veiðimanns verða að bera þess merki að hafa verið mikið notuð og lengi eða allt að því lúin af sliti. Seint mun ég gleyma hjálpsemi Finns þegar ég var að ljúka byggingu íbúðarhúsnæðis. Þá mætti Finnur hvert einasta kvöld eftir vinnutíma, líklega í nokkrar vikur, til að sparsla og mála. Þannig var vinátta hans og tryggð, hún var sýnd í verki, sjaldnar með orðum. Við leiðarlok leitar hugur okkar hjóna til Guðmundu, sem nú dvelst á Dvalarheimilinu Hlíð. Við biðjum al- góðan Guð að blessa hana og« styrkja. Við vottum henni, sonum hennar og fjölskyldum þeirra samúð okkar. Við þökkum þessu góða fólki fyrir áralanga vináttu og tryggð. Guð blessi þau öll. Við vottum Finni virðingu okkar og þakklæti fyrir einstaklega ljúfan kunningsskap og vináttu. Guð veri með honum og blessi hann. Ragnar Ásgeir Ragnarsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.