Morgunblaðið - 10.08.1999, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1999 B 3
ÍÞRÓTTIR
Helgi hugsanlega
frá Stabæk
AUKNAR líkur eru á að Helgi Sigurðsson, framherji úrvalsdeildar-
liðsins Stabæk og íslenska landsliðsins, fari frá norska félaginu er
tímabilinu lýkur í haust. Nokkur félög hafa sýnt leikmanninum
áhuga.
Forráðamenn norska liðsins hafa lýst yfír vilja til þess að fram-
lengja samning þess við Helga, en hann á tæpt ár eftir af samingi.
Helgi sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði gert félaginu
tilboð og þó að það yrði samþykkt væri ekki víst að hann yrði
áfram. Reyndar væru meiri líkur á að hann færi frá liðinu er tíma-
bilinu lyki. „Mér lýkar vel hjá Stabæk en vill nýta tækifærið og
komast til stærra liðs, ef það býst. Mér hefur gengið vel það sem af
er móti og neita því ekki að nokkur lið eru í sigtinu,“ sagði Helgi
sem vildi ekki greina frá hvaða lið væri um að ræða
Helgi sagði að Stabæk hygðist selja einn til tvo leikmenn er tíma-
bilinu lyki í haust og svo gæti farið að hann yrði þar á meðal. Hann
sagði að félagið hefði veitt umboðsmanni hans heimild til þess að
leyfa félögum að skoða hann. Helgi hefur skorað 13 mörk á tíma-
bilinu og er þriðji markahæstir leikmaður úrvalsdeildar.
Arnar ekki á leið
aftur til Bolton
ENSKT dagblað skýrði frá því um
helgina að líkur væru til þess að ís-
lenski landsliðsmaðurinn Arnar
Gunnlaugsson væri á förum aftur til
Bolton Wanderers, liðsins sem seldi
hann til úrvalsdeildarliðsins
Leicester City á síðustu leiktíð.
Sagði í frétt blaðsins að Amar færi
til Bolton, en í staðinn fengi
Leicester tvo sterka leikmenn
Bolton, dönsku landsliðsmennina
Per Frandsen og Claus Jensen og
greiddi að auki einhverja fjárhæð.
Skemmst er frá því að segja að
umræddri frétt var snarlega vísað á
bug, bæði í herbúðum Bolton og
Leicester. Var haft eftir Colin
Todd, knattspyrnustjóra Bolton, á
heimasíðu félagsins á Netinu, að
aðra eins vitleysu hefði hann sjald-
an heyrt. „Amari bauðst á sínum
tíma að vera hjá okkur, en hann
hafnaði afar hagstæðum samningi
og var seldur í kjölfarið á þrjár
milljónir punda. Hvers vegna í
ósköpunum ætti eitthvað að hafa
breyst?“ spurði Todd og var ekki
skemmt.
Arnar Gunnlaugsson var ekki í
leikmannahópi Leicester i íyrsta
leik liðsins í úrvalsdeildinni á nýrri
leiktíð - gegn Arsenal á Highbury.
Hann hefur átt við meiðsli að stríða
og gat því ekki leikið, en líklegt er
að hann verði að minnsta kosti í
hópnum í næsta leik.
Tottenham
sneri blað-
inu við
•'áBfr
TOTTENHAM náði að snúa
blaðinu við með góðum 3:1-
sigri á Newcastle á heimavell-
inum White Hart Lane í Lund-
únum í fyrsta leik 2. umferðar
úrvalsdeildarinnar í gærkvöldi.
Bæði lið töpuðu með engu
marki gegn einu í fyrsta leik
sínum og raunar komst
Newcastle yfir snemma leiks
með marki Nolberto Solanos.
Leikmenn Tottenham létu þó
ekki deigan síga og jöfnuðu
eftir um hálftíma leik með
skallamarki Norðmannsins
Steffens Iversens. Áður en kom
að leikhléinu hafði gamla brýn-
ið Les Ferdinand náð foryst-
unni fyrir Tottenham með
góðu skoti af stuttu færi eftir
fyrirgjöf Mauricios Tariccos.
Tottenham hafði frumkvæð-
ið lengstum í seinni hálfleik og
komst nokkrum sinnum nærri
því að skora þriðja markið.
Það kom síðan í hlut fyrirlið-
ans Tims Sherwoods að skora
það eftir laglegan undirbúning
AP
PERÚMAÐURINN Nolberto Solano skoraði fyrsta mark leiksins - fyrir Newcastle, en Tottenham
svaraði með þremur mörkum.
Darrens Andertons, besta
manns vallarins.
Leikmenn Newcastle léku
ágætlega í byrjun leiks, en síð-
an tók að halla undan fæti og
tap í tveimur fyrstu leikjum
liðsins þykir ekki gæfuleg upp-
skera í þeim herbúðum. Alan
Shearer lék í fremstu víglínu
Newcastle, en hann var rekinn
af velli með umdeildum hætti í
fyrstu umferðinni. Shearer
náði þó Iítið að sýna í framlín-
unni, skoraði raunar mark, en
það var ekki dæmt gilt vegna
rangstöðu.
Rivaldo til Man. Utd?
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri
Man. Utd, lýsti því yfir um helg-
ina að hann þyrfti að kaupa tvo
sterka leikmenn til félagsins, ef það
ætti að halda í við stærri félög úr-
valsdeildarinnar sem keypt hafa
fjölda heimsþekktra leikmanna að
undanförnu.
Ferguson lét þessi ummæli falla í
viðtali þar sem hann var spurður
hvers vegna United hefði ekki reynt
að styrkja leikmannahóp sinn fyrir
komandi átök í deild og Meistara-
Óánægja með brott-
rekstur Hermanns
RON Noades, knattspyrnusljóri Brentford, var óhress með að
Hermanni Hreiðarssyni var vikið af velli gegn Bristol Rovers í 1.
umferð í 2. deildinni í knattspyrnu í Englandi. Hermanni var vikið
af velli á 88. múiútu og fer í eins leiks bann á næstu vikum.
Noades var ánægður með 0:0-jafntefli gegn Rovers og sagði að
Hermann hefði átt skínandi Ieik. Honum fannst hins vegar brott-
reksturinn strangur dómur. „Þetta þýðir einfaldlega að einhver
annar fær tækifæri til þess að spreyta sig með Iiðinu,“ sagði Noa-
des á spjallsiðu Brentford, en félagið hefur fest kaup á tveimur
varnarmönnum, frá Ipswich Town og Southampton, á liðnum
dögnm.
keppni Evrópu. Talið barst einnig að
hinu fræga launaþaki liðsins og sagði
Ferguson Ijóst að það þurfi að end-
urskoða mjög bráðlega. Þykir ljóst
að þar hafi stjórinn verið að mælast
til þess að samið verði við fyrirliðann
Roy Keane, sem farið hefur fram á
umtalsverða launahækkun.
Þegar eru enskir fjölmiðlar teknir
að velta fyrir sér þeim leikmönnum
sem hugsanlega eru á leið til Old
Trafford í Manchester. Ljóst er að
einn leikmaður kemur þar mjög
sterklega til greina, brasilíski snill-
ingurinn Rivaldo hjá Barcelona.
Hann er metinn á ríflega 20 milljónir
punda og aðdáendum United er enn í
fersku minni bakfallsspyrna hans í
leik Barcelona og Man. Utd í Meist-
aradeildinni á síðustu leiktíð.
Þórður skoraði
í ævintýraleik
ÞÓRÐUR Guðjónsson skoraði eitt
mark fyrir lið sitt Genk í fyrstu um-
ferð belgísku knattspymunnar um
helgina. Genk gerði þá 6:6-jafntefli
við Westerlo í sannkölluðum ævin-
týraleik, þar sem alls voru dæmdar
fimm vítaspyrnur og tveir leikmenn
úr hvoru liði fengu að líta rauða
spjaldið. Aukinheldur fengu tólf
leikmenn liðanna áminningu.
Toni Brogno, framherji Westerlo,
skoraði fernu í leiknum, þar af tvö
mörk úr vítum, en hinumegin skor-
aði Branko Strupar, leikmaður
Genk, þrennu úr vítaspymum.
Anderlecht, sem margir telja að
muni gera harða atlögu að meist-
aratitlinum, sigraði í fyrsta leik sín-
um, 3:2, en þótti alls ekki sannfær-
andi. Sigurinn á Excelsior
Mouscron á heimavellinum var þó
sanngjarn og 25.000 áhorfendur
skemmtu sér vel. Á þessum sama
velli mun Anderlecht taka á móti
Leiftri nú á fimmtudagskvöld í Evr-
ópukeppni félagsliða.
Lazorik far-
inn frá KA
Tékkinn Ratislav Lazorik er
hættur að leika með 1. deildar-
liði KA og hyggst halda til
heimalands síns. Lazorik, sem
var í láni frá efstudeildarliði
Leifturs, kvaðst óánægður hjá
félaginu og tilkynnti sljórn
knattspyrnudeildar KA um
helgina að hann væri hættur.
Hann lék níu leiki með liðinu f
sumar og skoraði tvö mörk.
Lazorik hefur leikið hér á
landi undanfarin ár, fyrst með
Breiðabliki en gekk til liðs við
Leiftur árið 1996.
■ ÓLAFUR Örn Bjarnason skoraði
annað mark Malmo í 2:0-sigri liðsins
á Hammarby í sænsku úrvalsdeild-
inni í gærkvöldi. Örgryte, lið
Brynjars Björns Gunnarssonar,
tapaði heima fyrir Djurgárden, 1:0
og Elfsborg sigraði Norrköping á
heimavelli, 2:1. Haraldur Ingólfsson
lék allan tímann í liði Elfsborg og í
marki Norrköping stóð Þórður
Þórðarson að venju.
■ PÉTUR Björn Jónsson var í liði
Hammarby i leiknum, en sagt var
frá því á dögunum að hann hefði
skrifað undir samning við Chester,
þriðju deildar lið í Englandi.
■ ÓLAFUR Páll Snorrason skoraði
fyrir ungmennalið Bolton sem tap-
aði 3:2 fyrir Huddersfíeld um helg-
ina.
■ BOLTON gerði markalaust jafn-
tefli gegn Tranmere í fyrstu umferð
1. deildar. Eiður Smári Guðjohnsen
lék með Bolton og fékk nokkur góð
færi til þess að skora. Guðni Bergs-
son er meiddur og gat ekki leikið
með Bolton.
■ WALSALL, lið Bjarnólfs Lárus-
sonar og Sigurðar R. Eyjólfssonar,
gerði markalaust jafntefli gegn
Swindon í 1. deild. Báðir voru í leik-
mannahópi Walsall og kom Bjarn-
ólfur inn á í leiknum.
■ ARNAR Gunnlaugsson var ekki í
leikmannahópi Leicester sem tapaði
2:1 fyrir Arsenal í úrvalsdeildinni,
en hann er meiddur. Þá lék Jóhann
Guðmundsson ekki með Watford
gegn Wimbledon, sem vann 3:2.
■ HERMANN Hreiðarsson og fé-
lagar í Brentford gerðu markalaust
jafntefli gegn Bristol Rovers í 2.
deild í Englandi. Hermanni var vik-
ið af velli undir lok leiksins. Þá töp-
uðu Lárus Orri Sigurðsson og félag-
ar í Stoke 2:1 fyrir Oxford. Bæði
Hermann og Lárus voru með sínum
liðum. Chester City, sem Pétur
Björn Jónsson hefur dvalið hjá, tap-
aði 2:0 fyrir Barnet í ensku 3. deld-
inni.
■ DUNDEE United, sem Sigurður
Jónsson leikur með, vann
Motherwell 4:3 i skosku úrvalsdeild-
inni. Þá unnu Kilmarnock, andstæð-
ingar KR í Evrópukeppninni, Aber-
deen 2:0 í skosku úrvalsdeildinni á
laugardag.
■ HIBERNIAN, sem Ólafur Gott-
skálksson leikur með, vann 4:3-sigur
á Dundee í skosku úrvalsdeildinni.
Ólafur stóð í marki Hibs í leiknum.
■ DIETMAR Hamann sem g:ekk til
liðs við Liverpool í sumar meiddist í
íyrsta leik liðsins um helgina gegn
Sheffíeld Wednesday. Hann er
meiddur í ökkla og ekki vitað hve
hann verður lengi frá keppni.
■ SOUTHAMPTON hafði ekki unn-
ið fyrsta leik í móti frá því að liðið
vann West Ham 4:0 árið 1988 fyrr
en það lagði Coventry 1:0 á laugar-
dag. Egil Ostenstad gerði mark dýr-
linganna um helgina.
■ DAVID O’Leary, knattspyrnu-
stjóri Leeds, er sagður- vilja fá
Robbie Fowler, leikmann Liver-
pool, í sínar raðir og sé reiðubúinn
að borga um 1,4 milljarða króna.