Morgunblaðið - 10.08.1999, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.08.1999, Blaðsíða 12
,12 B ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1999 LANDSMÓT í GOLFI MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Golli HALLDÓR Halldórsson, yfirdómari Landsmótsins fyrir miðri mynd, útskýrir fyrir Erni Ævari Hjartarsyni, sem beygir sig yfir boltann til hægri, að hann megi ekki færa moldarköggulinn sem lá fyrir aftan bolta hans í karganum hægra megin níundu braut- ar. Björgvin Sigurbergsson stendur og fylgist með gangi mála. Á myndinni hér til hliðar sést Örn Ævar slá boltann. Fáheyrðir yffir- burðir Hilmars IILMAR Sighvatsson, kylfingur úr Oddi og fyrrverandi knatt- spymumaður úr Val sem vakti mikla athygli á fimmtudag fyrir góðan leik, sigraði með fáheyrðum yfirburðum í þriðja flokki karla - 22 högga mun. Hann lék 72 holur á 329 höggum, en næstur kom Rúnar Oli Einarsson, GS, á 351 höggi. Ingvi t>. Elliðason, GR, varð þriðji á 353 höggum. Hilmar lék fádæma vel af 3. flokks kylfingi að vera á öðrum keppnisdegi, kom þá inn á 74 högg- um, tveimur yfir pari. Keppni í öðrum flokki kvenna var mjög spennandi. Regína Sveinsdótt- ir úr GR, sem hafði forystu fyrir síðasta hringinn, hélt naumlega velli og lauk keppni einu höggi á undan Ragnheiði Sigurðardóttur úr GKG. Regína lék síðasta hringinn á 91 höggi og holurnar 72 á 368 höggum. Ragnheiður lék síðustu átján hol- urnar á 93 höggum. Olafur Jóhannesson, Golíklúbbn- um Setbergi, kom öllum að óvörum og sigraði í fyrsta flokki karla er hann lék síðasta hringinn á 71 höggi - pari vallarins á Hvaleyri. Hann lék hringina fjóra á þrjú hundruð höggum, fjórum höggum færra en Þórbergur Guðjónsson frá Akranesi, sem lék á áttatíu höggum á sunnudag. Jónas Hagan Guð- mundsson, Keili, varð þriðji á 306 höggum. Alda Ægisdóttir, GR, sigraði með sjö högga mun í fyrsta flokki kvenna, en hún lék best allra á síð- asta hring - 79 höggum, sem var besti árangur sem náðist í flokkn- um. Helga Gunnarsdóttir, Keili, varð önnur á 335 höggum, en Anna Jódís Sigurbergsdóttir, einnig úr Keili, hafnaði í þriðja sæti, fimm höggum á eftir Helgu. Pétur V. Georgsson, Setbergi, sigraði örugglega í 2. flokki karla - með átta högga mun. Hann lék á 81 höggi á sunnudag, sem gerði keppi- nautum hans ókleift að komast upp að hlið hans. Hilmar Viðarsson, klúbbfélagi Péturs, lék á 332 högg- um, en það gerðu þeir Árni E. Örn- ólfsson, NK, og Sverrir Valgarðs- son einnig. Halldór Halldórsson, yfirdómari ' tægjur úr hnausn- um niður í svörðinn“ TVEIR úrskurðir Haildórs Halldórssonar, yfirdómara Landsmóts- ins í golfi, í umspili Björgvins Sigurbergssonar og Arnar Ævars Hjartarsonar um íslandsmeistaratitilinn í golfi á sunnudag voru umdeildir. Annars vegar er um að ræða þann úrskurð hans að leyfa Björgvini Sigurbergssyni að stilla bolta sínum upp utan brautar eftir að áhorfandi hafði spyrnt honum óviljandi úr stað og hins vegar þegar Erni Ævari var meinað að færa moldar- köggul frá bolta sínum. Halldór segir að áhorfandi á göngu hafi rekist í bolta Björgvins rétt utan fyrstu braut- arinnar, sem var einnig fyrsta braut umspilsins. Segir dómarinn að boltinn hafi færst um þrjátíu sentimetra og að annar dómari, Tryggvi Þór Tryggvason, hafi vit- að hvar boltinn lá upphaflega. „Oviðkomandi áhorfandi færir boltann til með öðrum fætinum þegar hann er á göngu. Annar dómari á svæðinu, Tryggvi Þór Tryggvason, sá þetta gerast og - vissi hvaðan hann hreyfðist og hvert.“ Reglurnar segja að til þess að fá að stilla bolta upp, verði stað- urinn sem boltinn lá á að vera ákvarðaður nákvæmlega. í síðara atvikinu hafði Öm sleg- ið upphafshögg sitt of mikið til hægri, út fyrir brautina í hátt gras við kletta. Moldarköggull lá í gras- inu fyrir aftan boltann, um fimmt- án sentimetra frá honum, og gerði Emi erfitt um vik að koma kylf- unni að boltanum með góðu móti. Halldór sagði honum að köggull- inn væri gróinn við grassvörðinn og því teldist hann ekki „lausung" samkvæmt reglunum. Því hafi Örn ekki mátt færa hann. Örn sló vind- 'högg í kjölfarið og í næstu tilraun mjakaði hann boltanum upp að brautinni. Þaðan sló hann inn á flöt og tvípúttaði - lék holuna á sex höggum, en Björgvin fékk fjóra og tók tveggja högga forystu er ein hola var eftir í umspilinu. „Bolti Ai-nar var holumegin við það sem virtist vera moldarhnaus. Þá þurfti að taka ákvörðun um hvort þetta væri jarðvegur á staðnum eða lausung. Eftir að hafa skoðað þetta sá ég að þetta gat verið lausung. Ég kannaði hnaus- inn betur og lyfti honum eilítið öðmm megin, og sá þá tægjur úr hnausnum niður í svörðinn," segir ' Halldór. Hópur áhorfenda kom að köggl- inum eftir að Örn hafði slegið og lýsti hástöfum óánægju sinni með úrskurðinn - vildi meina að kögg- ullinn hefði ekki verið gróinn við jörðina. Halldór segir að Örn hafi slegið í köggulinn, þannig að hans skoðun á honum eftir höggin hafi ekki verið marktæk. „Öm sló í fyrsta lagi að hluta til í hann er hann reyndi að slá boltann. Síðan barði hann kylfunni í gegnum hann aftur eftir síðara höggið. Auðvitað geta áhorfendur orðið heitir, en ég hlusta ekki á slíkt. Það er bara eins og hvert annað þvaður,“ segir Halldór. Sjálfur lýsir Örn stöðunni þannig: „Boltinn lá upp við þennan moldarköggul og við pældum í því hvort ég mætti færa hann. Um ;.tvennt var að ræða. Ég hefði getað slegið hann yfir á fyrstu brautina Hópur áhorfenda lýsti hástöfum óánægju sinni með úrskurðinn - vildi meina að köggullinn hefði ekki verið gróinn við jörðina eða reynt að slá hann áleiðis að ní- undu brautinni." Hann segist ekki hafa viljað taka víti. „Þá hefði ég þurft að fara aftur fyrir klettana og hefði auk þess þurft að láta boltann falla í háa grasinu ef ég hefði mælt tvær kylfulengdir til hliðar," segir Örn. Aðspurður um hvað hann hefði getað gert í högginu ef kögguljinn hefði ekki truflað hann, sagði Öm: „Þá hefði ekki verið mikið mál að slá boltann langleiðina niður að tjöminni.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.