Morgunblaðið - 10.08.1999, Síða 4

Morgunblaðið - 10.08.1999, Síða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA Nánast eins og tap Jafntefli eftir tvo siguríeiki BÆÐI lið höfðu borið sigur úr býtum í tveimur síðustu viður- eignum sinum í deildinni. Keflvíkingar unnið Víkinga og Framara á heimavelli, en Skagamenn skellt Valsmönnum og Víkingum á útivelli. Þau urðu þó að sætta sig við skiptan hlut á sunnudag og Skagamönnum tókst ekki að hefna fyrir 2:0-ósigur í Keflavík í upphafí móts. Logi Ólafsson, þjálfari Skaga- manna, var heldur súr á svip eft- ir leikinn, enda sagði hann að jafn- tefli í þessari stöðu væri nánast eins og tap. „Við náðum tveimur mörk- um í fyrri hálfleik og ræddum um það í leikhléi að þeir myndu eflaust mæta brjálaðir til leiks í þeim síðari og við yrðum að vera tilbúnir í þau átök,“ sagði hann. „Staða okkar var vissulega orðin vænleg og leikmenn hafa greinilega talið að þetta væri í höfn. En það er náttúrlega aldrei þannig og það er eins og menn hafi ætlað að geyma einhverja krafta til leiksins gegn IBV. En þetta var hreinlega alveg skelfilegt hjá okkur í seinni hálfleik, sérstaklega frá því þeir minnkuðu muninn og þar til þeir jöfnuðu met- in. Þá náðu mínir menn að rétta að- eins úr kútnum og skapa færi á nýj- an leik. Þau nýttust því miður ekki.“ Logi benti þó á að sínir menn hefðu fengið færi á að klára leikinn í upphafi seinni hálfleiks, m.a. skot Kára Steins í slána. „Við áttum að vera búnir að klára þennan leik en gerðum mistök í vöminni. í upphafi leiktíðar var það þannig að við skor- uðum ekki mörk. Nú er það þannig að við fáum á okkur klaufamörk eft- ir að hafa skorað sjálfir og erum greinilega orðnir sérfræðingar í að koma okkur í vandræði. Við lentum líka í þessu á móti Val og Víkingi, náðum tveggja marka forystu en fengum svo á okkur mark.“ Morgunblaðið/Jim Smart KRISTJÁN Brooks og Gunnlaugur Jónsson kljást um knöttinn. Skagamenn og Keflvíkingar skiptu stigunum á Akranesi Ekki er flas til fagnaðar sinni í leikhléi, heldur gerði hann aukinheldur tvær breytingar á henni - setti inn á Rút Snorrason og Zoran Ljubicic í stað þeirra Hjartar Fjeld- sted og Guðmundar Oddssonar. Skilaboðin voru skýr; nú skyldi til sóknar blásið og leikmennirnir létu fljótlega kné fylgja kviði. Mikil áhætta fylgir jafnan slíkum sóknarskiptingum og títtnefndur Kári Steinn komst nærri því í upp- hafi seinni hálfleiks að skora þriðja markið og gera þannig út um leikinn. Til allrar ólukku fyrir Skagamenn hafnaði þrumuskot hans þó á þver- slánni og litlu síðai’ mistókst Heimi Guðjónssyni að leggja knöttinn fyrir sig í upplagðri stöðu. Þriðja markið lét þannig sumsé á sér standa og smám saman komust Keflvíkingar meira inn í leikinn. Vörn Skaga- manna virtist annars hugar og það nýttu gestirnir sér rækilega og jöfn- uðu metin með tveimur góðum mörkum á skömmum tíma. I fyrra sinnið var að verki Gunnar Oddsson, með öðru marki sínu í jafnmörgum leikjum eftir brottvísun sína sem þjálfari liðsins, og litlu síðar kom enn að þætti Þórarins bjargvættar Krist- jánssonar. Enn og aftur sýndi sá drengur að þar fer markaskorari af guðs náð - bakfallsspyrna hans_ var metfé, en að sama skapi hlýtur Ólaf- ur Þór markvörður að vilja gleyma úthlaupi sínu sem fyrst. Óhætt er að segja að Skagamenn á áhorfendapöllum hafi gerst súrir mjög við þessa atburði og létu þeir tilfinningar sínar í ljós með ýmiss konar hætti, annaðhvort uppbyggi- SKAGAMENN, þetta fornfræga stórveldi íslenskrar knattspyrnu, hefur mátt súpa marga fjöruna í sumar og stuðningsmenn liðs- ins hafa þurft að sætta sig við annars konar úrslit og spila- mennsku en tíðkaðist í þeirra heimabyggð á fyrri helmingi ára- tugarins. Eftir afleitt gengi á mótinu framan af hefur þó heldur rofað til á síðustu vikum og því er kannski ekki að undra þótt einhverjir í hópi þeirra gulu hafi gerst giaðir á nýjan leik og sett sig í sigurstellingar fyrir leik Skagamanna og Keflvíkinga á sunnudagskvöld. Hætt er þó við að gleði þeirra sömu í leikhléi yfir afbragðsleik hinna gulklæddu hafi breyst í hina megnustu ógleði í seinni hálfleik, því enn ollu Skagamenn vonbrigðum og glutruðu niður ákjósanlegri stöðu og þremur sigurstigum. í stöð- unni 2:0 virtist sem Skagamenn teldu leikinn unninn og hafa máske farið að velta fyrir sér mikilvægum undanúrslitaleik í bik- arkeppninni annað kvöld gegn Eyjamönnum. Enn og aftur sýndi sig hins vegar að ekki er flas til fagnaðar og sigurinn hrundi nið- ur í 2:2-jafntefli á örskömmum tíma, annars vegar fyrir mikla herkænsku Kjartans þjálfara Mássonar og hins vegar fyrir hreinn aulahátt Skagamanna sjálfra. legum eða alls ekki. Upplögð staða þeirra manna var fyrir borð borin á mettíma og útlit fyrir taugastrekk- andi lokamínútur - skyldu Keflvík- ingar hirða öll stigin? Svo fór ekki og raunar voru Skagamenn nálægt því að skora þriðja markið en höfðu Framan af leik benti fátt til annars en sanngjams og sannfærandi stórsigurs heimamanna. Þeir sóttu ■■■■■■ stíft, sumpart meira af Böm Ingi kappi en forsjá og Hrafnsson sköpuðu hvað eftir skrifar annað mikinn glund- roða í vörn gestanna með lipru spili. Fremstir fóru þar í fiokki Stefán Þór Þórðarson og Kári Steinn Reynisson og nutu þar hnit- miðaðra sendinga Jóhannesar Harð- arsonar og Heimis Guðjónssonar þegar þannig bar undir. Fyrsta mark Skagamanna kom eftir átta mínútna leik. Guðmundur Oddsson, varnarmaður Keflvíkinga, gerði sig þá sekan um klaufalegt brot á Kára Steini innan vítateigs og Eyjólfur Ólafsson, dómari leiks- ins, átti vart annars úrkosta en að benda á vítapunktinn sem hann og gerði. Mikill kliður fór um áhorf- endur á bandi heimamanna við þau tíðindi, enda hafa fjögur síðustu víti Akurnesinga farið í súginn. Varnar- jaxlinn og sjávarútvegsfræðingur- inn Sturlaugur Haraldsson skildi að hans tími var kominn, brá sér aldrei þessu vant inn í vítateig andstæð- inganna og kom þaðan aftur mark- inu ríkari. Spyrna Sturlaugs var sérlega örugg, föst og alveg út við stöng. Skagamenn héldu áfram að sækja, fengu til þess ríflegt pláss og grun- samlega góðan frið af hálfu and- stæðinganna sem á stundum virtust steinsofandi. Kenneth Matijane nýtti ekki upplagt færi er hann skaut rétt framhjá eftir frábæra rispu Kára Steins, sem ruslaði upp Keflavíkurvörninni að vild á þessum kafla. Það var því ekki að undra er mark númer tvö leit dagsins ljós. Aftur var sérdeilis laglega að því staðið, Heimir Guðjónsson tók auka- spyrnu utan teigs, spyrnti utanfótar á Gunnlaug Jónsson sem skallaði fyrir á Stefán Þór Þórðarson og sá þakkaði fyrir sig með öðrum skalla - hnitmiðuðum í nærhornið. Tveggja marka forysta heimamanna stað- reynd og fyllilega verðskulduð, enda á köflum ekki ljóst hvort leikmenn Keflavíkurliðsins voru að koma eða fara. Eitt er þó hálfleiksstaða og annað lokastaða og því fengu Skagamenn heldur betur að kynnast í seinni hálf- leik. Þeir gerðu sig þá seka um víta- vert kæruleysi, töldu leikinn unninn og virtust hálfpartinn fara að spara sig fyrir stórleikinn þann. Slík tækifæri eiga andstæðingar að notfæra sér, sama þótt útlitið sé ekki gott og spáin slæm. Kjartan Másson, hinn gamalreyndi þjálfari Keflvíkinga, er eldri en tvævetur í boltanum og ekki aðeins lét hann sér nægja að lesa duglega yfir herdeild Borgaði sig að taka áhættu KJARTAN Másson, þjálfari Keflvíkinga, þótti tefla djarft í leikhléi er hann bætti hressilega í sóknina. „Það var ekkert um annað að ræða, eitthvað varð ég að gera,“ sagði hann og sam- sinnti því að leikur Keflvík- inga í fyrri hálfíeik hefði verið slakur. „En ég er jafn- framt mjög ánægður með seinni hálfleikinn. Það má segja að þetta sé í fyrsta sinn í sumar sem við náum að sigra í seinni hálfleik.“ Hvað hugsaðirðu í leik- hléi, tveimur mörkum uadir? „Að þetta gæti ekki versn- að og við yrðum að taka áhættu. Það er segin saga að maður verður stundum að þora að taka áhættu og í þessu tilfelli borgaði það sig. Við lékum að mínu viti skín- andi vel í seinni hálfleik en þeir sóttu kannski meira síð- ustu mínútumar." Ertu sáttur við eitt stig? „Já, égget ekki verið ann- að, enda þótt við höfum svo sannarlega stefnt að sigri í byijun. Það er mjöggott að krækja í eitt stig uppi á Skaga, ég tala nú ekki um eftir að hafa lent tveimur mörkum undir. Eg er mjög ánægður með strákana, ég held að við séum að gera góða hluti og fyrsta og eina markmið okkar nú um stundir er að bjarga okkur frá falli.“ Telurðu að þessi lið séu bæði laus úr fallhættu? „Já, ég held að þessi lið hljóti að vera að komast upp úr þeim vandræðum sem þau hafa verið í. Eitt stig er vissulega ekki mikið en ég tel Skagamenn vera að koma upp og vona heitt og inni- lega að við séum einnig að koma. Ég er ekki tilbúinn að ræða möguleikana á Evr- ópusæti strax en við erum að minnsta kostið að bjarga okkur frá falli. Það er fyrsta skrefið.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.