Morgunblaðið - 10.08.1999, Page 13

Morgunblaðið - 10.08.1999, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1999 B 13* Flugeldasýning á Stamford Brídge CHELSEA hóf keppnistímabilið í úrvalsdeildinni vel er liðið lagði Sunderland 4:0 á laugar- dag. Englandsmeistar Man- chester United urðu að sætta sig við 1:1-jafntefli gegn Ever- ton og Arsenal vann Leicester með sjálfsmarki er komið var fram yfir hefðbundinn leik- tíma. Bradford, sem hafði ekki leikið í efstu deild í 77 ár, kom hins vegar flestum á óvart og vann Middlesborough 1:0. Stjörnum prýtt lið Chelsea vann stórsigur á nýliðum Sunderland 4:0. Gustavo Poyet, sem var meidd- ur lungann úr liðnum vetri, kom heimamönnum yfír og Italinn Gian- franco Zola skoraði annað mark Chelsea. Chris Sutton, sem kostaði Chelsea um 1,2 milljarða, fékk í það minnsta tvö góð færi en náði ekki að skora og var skipt út af fyrir Norðmanninn Tore Ándre Flo, sem skoraði þriðja markið. Poyet bætti fjórða markinu við eftir laglegan undirbúning frá Zola. Peter Reid, knattspyrnustjóri Sunderland, prísaði sig sælan í leikslok og sagði að Chelsea hefði getað skorað mun fleiri mörk. Nýliðarnir frá Bradford tryggðu sér þrjú dýrmæt stig á útivelli gegn Middlesborough með marki frá gamla brýninu Dean Saunders, sem fékk frjálsa sölu frá Benfica. Saunders hafði komið inn á sem varamaður en tryggði Bradford sigur með marki á 89. mínútu. Paul Jewell, knattspyrnustjóri Bradford, hældi leikmönnum sínum á hvert reipi og sagði varnarleik liðsins framúrskarandi. „Við áttum í vök að verjast í upphafi en vörnin gaf engin færi. Eg er alsæll með sigur- inn, en það eru margir leikir eftir og ég sé ekki fyrir mér að liðið verði ofarlega í deildinni. Við hugs- um hins vegar ekki um hvort við föllum, markmið okkar er að spila góðan fótbolta." Fimm mörk litu dagsins Ijós hjá Watford og Wimbledon. Lærisvein- ar Egils Olsens höfðu betur 3:2, en sigurmarkið var sjálfsmark. Gra- ham Taylor, knattspyrnustjóri Watford, var ómyrkur í máli í leiks- lok og sagði að lið sitt ætti ekki mikla framtíð fyrir sér í deildinni með sama varnarleik. „Við gætum ekki einu sinni spjarað okkur með sama varnarleik í 3. deild,“ sagði Taylor. Allt annað hljóð var í Egil Olsen hjá Wimbledon. „Það sem mestu máli skipti var að leikmenn lögðu sig fram og uppskáru þrjú stig, en við gerðum alltof mikið af mistökum.“ Shearer sá rautt Alan Shearer, fyrirliði enska landsliðsins, vill sjálfsagt gleyma 100. leiknum er hann lék fyrir Newcastle. Shearer var vikið af velli í fyrsta sinn á ferlinum er hann lék gegn Aston Villa á laugar- dag, fékk annað gult spjald í leikn- um 20 mínútum fyrir leikslok fyrir óíþróttamannslega hegðun, að mati Uriah Rennie, dómara - sem taldi að Shearer hefði rekið olnbogan í Colin Calderwood. Dómurinn þótti strangur. Fimm mínútum síðar skoraði Julian Joachim sigurmark leiksins fyrir Villa. Ruud Gullit, knattspyrnustjóri Newcastle, var æfareiður í garð dómara leiksins og sagði að leikurinn hefði verið eyði- lagður fyrir sitt lið. Gullit gerði sig líklegan til þess að lesa yfir hausa- mótum dómarans í leikslok en var stöðvaður á leið sinni. Knatt- spyrnustjórinn gæti átt yfir 'nöfði sér sekt vegna framkomu sinnar, Reuters GUSTAVO Poyet fagnar öðru marki sínu sem hann skoraði fyrir Chelsea gegn Sunderland á Stamford Bridge. en hann kvaðst ekki sjá eftir einu eða neinu. „Dómarinn tók margar rangar ákvarðanir í leiknum og fyr- ir þær urðum við að gjalda dýru verði.“ Heppnin með Arsenal Leikmenn Arsenal geta hrósað happi er liðið vann Leicester 2:1. Sigurmarkið var sjálfsmark Frank Sinclair er komið var fram yfir venjulegan leiktíma. Hinn 34 ára Tony Cottee náði forystu fyrir Leicester en Dennis Bergkamp jafnaði leikinn fyrir Arsenal skömmu síðar. Arsene Wenger, knattspymustjóri Arsenal, sagði að sínir menn væru lánsamir að ná þremur stigum undir lokin, en bætti við að liðið hefði fengið nokkur góð færi til þess að skora mörk og benti meðal annars á að Thierry Hem-y, sem nýgenginn er til liðs við Ar- senal, hefði getað skorað tvö mörk. Houllier hældi Fowler Gerard Houllier, knattspyrnu- stjóri Liverpool, hældi Robbie Fowler fyrir frammistöðu leik- mannsins í 2:l-sigurleik gegn Sheffield Wednesday á Hills- borough. Houllier, sem hefur stutt við bakið á Fowler, þrátt fyrir erf- iðleika utan vallar sem innan, segir að Fowler hafi stolið senunni í leiknum. „Fowler hefur tekið fram- förum í sumar og ég vænti mikils af honum. Leikmaðurinn gafst ekki upp þrátt fyrir mótbyr í leiknum og marldð sem hann skoraði breytti gangi leiksins fyrir Liverpool," sagði Houllier. Stam með sjálfsmark Manchester United, þrefaldir meistarar á liðnu keppnistímabili, gerðu l:l-jafntefli í fyrsta leik gegn Everton. Dwight Yorke skoraði fyrsta mark leiksins á 8. mínútu og allt leit út fyrir að þannig færu leik- ar. En á 87. mínútu átti Nicky Barmby skalla að marki United, Jaap Stam, varnarmaður Manchester-liðsins, ætlaði að skalla boltann í burtu en þess í stað hafn- aði knötturinn í markinu. Walter Smith, knattspymustjóri Everton, var lukkulegur með stigið og sagði að sínir menn ættu heiður skilinn fyrir frammistöðu sína. „Ef strák- arnir halda áfram að spila með þessum hætti er aldrei að vita hvað gerist.“ Alex Ferguson, knatt- spyrnustjóri Manchester United, var hins vegar súr yfir úrslitunum og sagði að sitt lið hefði átt að klára leikinn enda hefði það fengið tæki- færi til þess að gera fleiri mörk. ru Lr\ ■ KEN Bates, framkvæmdastjóri Chelsea, hvatti um helgina evr- ópskar knattspyrnuþjóðir til að hundsa lokakeppni heimsmeistara- mótsins í knattspyrnu sem fram á að fara í S-Kóreu og Japan eftir þrjú ár hefjist keppnin 23. maí. ■ FORRÁÐAMENN Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA,. vilja hefja keppnina svo snemma til þess að henni verði lokið þegar regntíminn hefst í júnílok. Bates segir þetta ekki ganga upp því keppnistímabilinu í mörgum Evr- ópuríkjum ljúki ekki fyrr en í lok maímánaðar ár hvert. ■ ARSENE Wenger, knattspyrnu- stjóri Arsenal, tók undir skoðanir Bates um helgina og sagði það vera út í hött að hefja heimsmeistara- keppnina svo snemma, hún eigi að vera á sama tíma og áður. ■ JOHN Toshach, þjálfari Real Madrid, segir Nicolas Anelka vera í lítilli æfingu og hefur komið hon- um í hendur einkaþjálfara sem á að koma honum í leikæfingu á skömm-.. um tíma. Keppnistímabilið í spænsku deildinni hefst um aðra helgi. ■ GREAME Souness hefur verið orðaður við starf knattspymustjóra skoska félagsins Hearts og er ekki ósennilegt að hann taki við á næstu dögum. Hearts tapaði, 4:0, um helg- ina fyrir Rangers. ■ BRONSSTYTTA af Billy Bremner, fyrrverandi fyrirliða Leeds og skoska landsliðsins, var afhjúpuð á Elland Road á laugar- daginn áður en heimamenn í Leeds hófu leik við Derby County. Bremner var einn þeirra leikmanna sem skipuðu sterkt lið Leeds í lok sjöunda áratugsins og í byrjun þess áttuna. Hann lést í desember 1997. ■ MIGUEL Angel Nadal, leikmað- ur Barcelona, hefur gengið frá þriggja ára samningi við Mallorka, en Nadal, sem er 33 ára og hefur leikið 45 landsleiki fyrir Spán, hef- ur verið í herbúðum Katalóníuliðs- ins sl. átta ár. ■ EDWIN Congo, framherji lands- liðs Kólombiu og Real Madrid, hef- ur verið lánaður í eitt ár til Valla- dolid. Congo kom til Real í sumar en sökum þess að liðið hefur fleiri^ leikmenn utan Evrópu en leyfilegt er kom það í hlut Congos að verða að sækja á önnur mið á næstu leik- tíð. Ríkharður með tvö mörk fyrir Viking Ríkharður Daðason gerði tvö mörk fyrir Viking, sem lagði Kongsvinger, 3:1, í norsku úrvals- deildinni á sunnudag. Hefur Rík- harður gert 7 mörk fyrir Viking á tímabilinu. Auðun Helgason lék einnig með Viking og Steinar D. Adolfsson var í liði Kongsvinger, sem er í neðsta sæti úrvalsdeildar- innar. Með sigri komst Viking í 7. sæti deildarinnar. Rosenberg er efst en liðið lagði Bodo/Glimt 4:2. Heiðari Helgusyni og Rúnari Kristinssyni og félögum í Lil- lestrpm tókst ekki að fylgja eftir góðri frammistöðu í undanförnum leikjum því liðið tapaði 2:1 fyrir Odd Grenland. Heiðar fékk tæki- færi til þess að skora fyrir Lil- lestrpm en brást bogalistin er hann skaut yfir inni í vítateig. Rúnar var ekki með en hann tók út leikbann. Þrátt fyrir ósigur er Lillestrpm í þriðja sæti deildarinnar. Tryggvi Guðmundsson hjá Tromsp mætti félögum sínum í í&~ lenska landsliðinu, Helga Sigurðs: syni og Pétri Marteinssyni í Sta- bæk, og urðu lyktir leiksins 3:3. Stabæk er í fimmta sæti að loknum 18 leikjum en Tromsp fylgir fast á eftir í sjötta sæti eftir 17 leiki. Þá var Stefán Gíslason í liði Strpmgod- set sem tapaði fyrir Molde, 2:0. Strpmgodset er í 11. sæti af 14 liði um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.