Morgunblaðið - 10.08.1999, Síða 10

Morgunblaðið - 10.08.1999, Síða 10
4l0 B ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ LANDSMÓT í GOLFI Ólöf María Jónsdóttir sneri blaðinu við eftir tímabil vonbrigða í fyrra „Sannfærð um að ég myndi sigra“ FYRIR Landsmótið var búist við miklu einvígi Ólafar Maríu Jóns- dóttur, íslandsmeistarans frá 1997, og Ragnhildar Sigurðardótt- ur, sem átti titil að verja. Keppnin varð þó aldrei spennandi er til kastanna kom og Ólöf María sigldi framúr á þriðja degi, laugar- degi - hafði sex högga forskot fyrir lokahringinn. Ragnhildi tókst aldrei að ógna Ólöfu á sunnudag. Bilið var orðið átta högg eftir þrjár holur, Ragnhildur minnkaði það um tvö högg, en að því loknu stakk Ólöf María af með fugli á sjöundu braut, þar sem Ragnhildur fékk skolla. Munurinn varð því átta högg þegar Ólöf María setti lokapúttið í og fagnaði sigri - sigri sem hún bjóst ef- laust við að yrði erfiðari en raun varð á. Olöf María sigldi lengstum lygn- a 'an sjó í lokahringnum í keppni meistaraflokkskvenna á sunnudag. pggm Hún lauk leik á 297 Eftir höggum, þrettán Edwin höggum yfír pari og Rögnvaldsson sjg^gj meg átta högga mun - bætti Landsmótsmetið um jafnmörg högg. En kom það henni á óvart, hversu öruggt og auðvelt mótið reyndist henni. „Já og nei. Eg var allan tímann sannfærð um að ég myndi sigra. En átta högga munur - jú, þetta gekk vonum framar,“ sagði hún. Hvað, öðru fremur, lagði grunn- inn að sigrinum? „Eg held að æfingar í kringum flatimar, sem ég hafði stundað síð- ustu tvær vikumar fyrir mótið, hafi borið árangur. Ég sló þokkalega beint og járnahöggin vom mjög var að auka blóðflæðið í mjóbakinu og það var ótrúlegt hversu mikið gagn það gerði.“ Þú virtist sérstakiega ákveðin og einbeitt í mótinu, mun meira en oft áður. Ertu sammála því? „Já, ég fór bara með því hugar- fari að vinna. Það kom ekkert ann- að til greina. Ég var staðráðin í að endurheimta titilinn eftir lélegt tímabil í fyrra. Ég held að sigurinn hafi verið verðskuldaður. Eg hef leikið vel í sumar, þ.e.a.s. eftir að ég byrjaði loksins að æfa,“ sagði Ólöf María, en hún útskrifaðist frá íþróttaháskólanum að Laugarvatni í vor og gat því ekki leildð í öðm stigamóti tímabilsins. „Ég æfði í viku fyrir fyrsta stigamótið og það tók mig allan maímánuð að komast í gang. Við fómm líka í æfíngaferð til Spánar um mánuði fyrr og hún Morgunblaðið/Golli EINBEITINGIN skín úr andliti Ólafar Maríu Jónsdóttur er hún fylgist með afdrifum bolta sins á flötinni. Ragnhildur gætir stangarinnar. góð, þannig að ég lagði mein áherslu á að æfa stuttu höggin." Varstu þá ánægð með þann hluta leiksins í mótinu? „Já, en ég var samt ekki mjög ánægð með vippin. Þau em líklega veikasti hlekkurinn í leik mínum.“ Púttæfíngarnar hafa væntanlega komið þér til góða, sérstaklega vegna þess hve erfíðar fíatirnar voru. „Ég lagði mikla áherslu á púttin. Þau em mjög mikilvæg og ég reyndi eftir fremsta megni að koma púttstrokunni í lag, að takturinn í henni væri góður. Það skiptir miklu ,máli á svona „hröðum" flötum, því þá er boltinn ekki laminn í, eins og tíðkast á mörgum öðmm völlum héma.“ Var eitthvað, frekar en annað, sem gerði sigurinn sérstaklega ánægjulegan ? „Mér fannst mjög ánægjulegt að slá Landsmótsmetið - að bæta það um átta högg. Það fannst mér meiriháttar. Eg hafði stefnt að því að slá metið í nokkurn tíma og að leika undir þrjú hundmð höggum á eigin heimavelli. Þetta gerði ég að ^markmiði mínu í mótinu, burtséð 'frá höfuðmarkmiðinu sem var vita- skuld að sigra.“ Þú kvartaðir yfír bakverkjum eftir annan hringinn og fórst þá til sjúkraþjálfara. Hvernig leið þér hina tvo dagana? „Það lagaðist, en ég var alls ekki góð. Ég fékk reglulega nudd á milli ■högga - jákvæðar strokur frá for- eldrum mínum. Tilgangur þeirra Ragnhildur Sigurðardóttir náði ekki að veita Ólöfu Maríu keppni Reyndi að bíta á jaxl- inn en það gekk ekki RAGNHILDUR Sigurðardóttir, sem varð önnur í meistaraflokki kvenna, lék hringina fjóra á 305 höggum. Það hefði í eina tíð nægt til sigurs á landsmóti, t.d. jafnaði hún landsmótsmetið er hún lauk leik á undan Ólöfu á síðustu flötinni, en ekki tókst henni að verja titilinn. Flestir bjuggust við harðari keppni á milli Ólafar Maríu og Ragnhildar. Sú síðamefnda náði þó ekki að veita Ólöfu mikla keppni á síðasta degi, en fyrir hann hafði Keiliskonan sex högga forskot. „Sex högg er slatti, en samt var raunhæfur möguleiki á að brúa bilið. Ég veit að ég get leikið undir pari og það var það sem ég þurfti að gera. Ég sá þó fljótlega að ég fann mig ekki vel. Ég reyndi að bíta á jaxlinn, en það gekk ekki. Þetta var „einn af þessum dög- um“,“ sagði Ragnhildur. „Ég hefði viljað gera betur, en það þýðir ekkert annað en að snúa sér að næsta móti,“ sagði Ragn- hildur, en næsta mót er einmitt sveitakeppni GSÍ, sem fer fram á heimavelli hennar í Grafarholti. „Ég ætlaði að gera vel og reyna að gera mitt besta en það gekk ekki upp. Þrátt fyrir það vildi ég ekki gefast upp en ég sá fljótt að ég myndi ekki hafa þetta. Ég vil bara þakka fólkinu, bæði frá Keili og Golfklúbbi Reykjavíkur, sem gekk hringinn með okkur, þótt spennan væri ekki mikil. Það er gaman að sjá að fólk vill horfa á okkur spila.“ Hvað var það helsta sem betur mátti fara í leik þínum ? „Það var sambland af ýmsu. Að- allega voru það púttin, a.m.k. til að byrja með, en þau fóru að lagast undir lokin. Ég var ekki nógu ánægð með hvemig ég lék síðasta daginn og leikur minn einkenndist af óstöðugleika. Hann orsakast hugsanlega vegna þess að ég hef spilað rosalega mikið að undan- förnu og þetta gæti verið þreyta." Heldurðu þá að undirbúningur þinn fyrir mótið hafí verið fullstíf- ur? „Já, það getur verið.“ Þú skiptir um pútter skömmu fyrir mótið. Heldurðu að það hafí verið mistök? „Nei, nei. Ég er ekkert viss um að ég hefði gert nokkuð betur með hinum pútternum. Púttstrokan mín var frekar veik á Akureyri [í stigamóti fyrir hálfum mánuði]. Þar voru flatirnar erfiðar. Ég tók það því til bragðs að skipta yfir í þyngri pútter, því hann hjálpar við að laga púttstrokuna. Hins vegar er ekki gott að vera með þungan pútter á „hröðurn" flötum eins og á Hvaleyrinni. En þetta er allt að koma og strokan er orðin nokkuð góð núna. Ég er til dæmis ánægð með hvernig ég púttaði á seinni níu.“ Geturðu ímyndað þér einhverja sárabót það sem eftir lifir sumars? „Auðvitað vill maður íslands- meistaratitilinn. Það em þó tvö stigamót eftir og auðvitað stiga- meistaratitillinn. Sveitakeppnin er næst og síðan förum við á Evrópu- mót í Tékklandi sem er auðvitað miklu stærra mót en þetta.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.