Morgunblaðið - 10.08.1999, Page 16
FRJALSIÞROTTIR
Jón Arnar rændur á Spáni
BROTIST var inn í farangurs-
geymslu bílaleigubifreiðar Jóns
Arnars Magnússonar tugþraut-
armanns og þjálfara hans, Gísla
Sigurðssonar, fyrir utan hótel
þeirra í Osuna á Spáni. í fyrr-
inótt. Jón og Gísli hafa verið þar
í æfingabúðum síðustu tvær vik-
ur. I farangursgeymslu bifreið-
arinnar geymdi Jón allt skótau
sitt, þar með talda gaddaskó og
sérstaka kast- og stökkskó, Er
um eitthvert tjón að ræða en að
sögn Gísla, þjálfara Jóns, var
bifreiðin tryggð og því verður
kostnaður þeirra félaga ekki
umtalsverður af þessum sökum.
Þá fær Jón alla skó bætta hjá
hjá Reebok-umboðinu, en það
sér honum fyrir íþróttafatnaði
til æfinga og keppni.
„Þetta gerist þegar æfinga-
búðunum er að ljúka svo þetta
kemur ekki mjög að sök,“ sagði
Gísli í gær. Þeir félagar koma
heim á morgun og Jón tekur
þátt í bikarkeppninni í frjálsí-
þróttum um helgina. Jón fer síð-
an utan strax eftir helgi og verð-
ur í Portúgal þar til heimsmeist-
aramótið hefst í Sevilla 20.
ágúst.
„Okkur hefur gengið vel við
æfingar hér á Spáni þannig að
ég er ágætlega bjartsýnn, en
maður er aldrei viss um hverju
þær skila fyrr en fyllilega fer að
reyna á kappann. Fyrsta prófið
verður í bikarkeppninni um
helgina. Reyndar tognaði Jón
aðeins í kviðnum á dögunum en
ég vona að það komi ekki að sök
og dragi ekki dilk á eftir sér,“
sagði Gísli Sigurðsson.
GUDRÚN Arnardóttir í keppni á Meistaramóti íslands.
Mikið
lyfjamagn
fannst í
Linford
Christie
WILHELM Schanzer læknir,
sem rannsakaði sýnið sem
felldi Linford Christie á lyfja-
próíí á dögunum, segir að
magn það sem fannst af stera-
lyfinu nandroline í sýninu sé
langt umfram það sem eðli-
legt getur talist, sé eitthvað til
sem eðlilegt getur er þegar
þetta efni á í hlut. Christie
hefur dregið niðurstöðuna í
efa og sagt að þarna hijóti að
vera um mistök að ræða því
hann hafði aldrei notað ólög-
leg lyf sér til framdráttar á
hlaupabrautinni.
„ Af öllum þeim sýnum sem
okkur hafa borist síðustu
mánuði, og hafa innihaldið
nandrolin, var þetta það
skýrasta að því leytinu að
magnið var svo mikið,“ sagði
Schanzer um helgina.
Upp á síðkastið hafa nokk-
ur tilfelli komið upp í Evrópu
þar sem iþróttamenn hafa
fallið á prófum vegna
nandrolinsnotkunar, magnið
hefur verið lítið og jafnvel
ekki fundist í svo kölluðu B-
sýni sem ævinlega er rannsak-
að ef eitthvað misjafnt kemur
fram í A-sýni. Þá er íþrótta-
maður sýknaður.
f hvert sinn sem lyfjapróf er
tekið af íþróttamanni eru tek-
in tvö próf, svo kölluð A- og B-
próf. Siðara prófinu er eytt
reynist allt með felldu í fyrra
prófinu.
„Það er á hreinu að notkun
á nandrolini leiðir til sakfell-
ingar finnist það í báðum próf-
unum,“ sagði Brigir Guðjóns-
son, læknir og formaður heil-
brigðisnefndar Iþrótta- og
ólympíusambands fslands.
„Þetta er steralyf sem ekki er
til í líkamanum og er einungis
hægt að fá með sprautugjöf
þannig að það er útilokað að
það sé fyrir hendi í líkamanum
af eðlilegum ástæðum," sagði
Birgir ennfremur en vildi ekk-
ert ræða mál Christies þar
sem hann þekkti það ekki.
Birgir sagði nandroline aðeins
vera notað í einum tilgangi í
læknisheiminum - til þess að
byggja upp vöðva eyðnisjúk-
linga eftir að lyíjameðferð
þeirra væri lokið. „Að öðru
leyti er það ekki notað.“
Guðrún Arnardóttir
sækir í sig veðrið
GUÐRÚN Arnardóttir, hlaupa-
kona úr Ármanni, varð í fjórða
sæti í 400 metra grindahlaupi á
stigamóti Alþjóða frjálsíþrótta-
sambandsins í Köln á sunnudag-
inn. Guðrún kom í mark á tíman-
um 55,78 sekúndur sem er henn-
ar besti tími síðan í lok maí að
i, hún varð fyrir meiðslum. Bendir
þetta til þess að Guðrún sé að ná
sér á strik á nýjan leik eftir
meiðslin. Guðrún hefur keppt
talsvert síðustu tvær vikur eftir
að hún náði sér af meiðslunum
og hefur hún á þeim tíma ekki
náð að hlaupa undir 56 sekúnd-
,um fyrr en nú. Besti tími hennar
á þessu ári er frá því í vor, 55,31
sekúnda. Eftir þetta mót er Guð-
rún í áttunda sæti í stigakeppn-
inni í greininni, hefur 36 stig að
loknum 7 mótum. Átta stiga-
hæstur keppendur hverrar
greinar taka þátt í lokakeppni
mótaraðarinnar í Berlín 7. sept-
ember.
Sigurvegari í 400 metra
grindahlaupinu í Köln varð
Sandra Glover-Cummings frá
Bandaríkjunum á 43,90 sekúnd-
um. Andrea Blackett, Barbados,
hreppti annað sætið á 54,68 sek-
úndum og Tacko Mame Diouf,
Senegal varð þriðja á 55,47.
Einar Kari felldi
byvjunarhæð
EINAR Karl Hjartarson úr ÍR,
í ' ' ' ............ ■
ilslandsmethafi í hástökki karla,
felldi byrjunarhæð sína, 2,08 metra,
á Evrópumeistaramóti unglinga 19
ára og yngri, í Ríga í Lettlandi um
helgina. Var Einar þar með úr leik
sem voru geysileg vonbrigði fyrir
hann þar sem vonast var til að hann
gæti verið í baráttu um efstu sætin í
hástökkinu enda hafði hann stokkið
keppenda hæst á þessu ári, 2,22
metra. Einar stökk auðveldlega yfir
2,10 metra í undankeppni hástökks-
ins á fimmtudaginn.
Svíinn Christian Olsson, stökk
hæst keppenda og varð Evrópu-
meistari, fór yfir 2,21 metra.
Gregory Gabella, Frakklandi, varð
annar með 2,19 og Rússinn Jaroslav
Rybakov varð þriðji, vippaði sér yfir
2,16 metra. Fimm af tólf keppend-
um hástökksins lentu í sama basli
og Einar Karl, þ.e.a.s. felldu byrj-
unarhæð og því börðust aðeins sjö
keppendur um Evrópumeist-
aratignina.
Silja Úlfarsdóttir, FH, tók þátt í
undanrásum 200 metra hlaups
kvenna. Hún hafnaði í 19. sæti af 21
á 24,96 sekúndum, en meðvindur í
hlaupinu var 2,6 metrar á sekúndu
og því fær Silja tíma sinn ekki stað-
festan.