Morgunblaðið - 24.11.1999, Page 1

Morgunblaðið - 24.11.1999, Page 1
STOFNAÐ 1913 268. TBL. 87. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Breska lögreglan á varðbergi Varað við hrinu hermdar- verka um jólin London. Reuters, AP. LÖGREGLUMÖNNUM í Bret- landi hefur verið skipað að vera á varðbergi þar sem talið er að klofn- ingshópar úr írska lýðveldishern- um (IRA) séu að undirbúa hrinu hermdarverka um jólin og áramót- in, að sögn breskra dagblaða í gær. Blöðin höfðu eftir háttsettum leynilögreglumönnum að leyni- þjónustumenn hefðu aflað upplýs- inga sem gæfu tilefni til þess að vara við hermdarverkum um hátíð- amar. Vopnahlé helstu skæruliðahreyf- inganna á Norður-írlandi hefur haldist til þessa og leiðtogar norð- ur-írsku stjómmálaflokkanna virð- ast nú nær því en nokkra sinni fyrr að ná samkomulagi um varanlegan frið. Bresku blöðin segja hins vegar að klofningshópar úr IRA, sem eru andvígir friðarviðræðunum, kunni að vera að undirbúa hermdarverk til að torvelda friðaramleitanirnar. The Guardian sagði að yfírmenn Hins sanna írska lýðveldishers, sem kiauf sig út úr IRA árið 1997, hefðu komið saman um helgina til að ræða aðgerðir til að hindra frið- arumleitanimar. Hreyfingin lýsti yfír vopnahléi eftir að hafa orðið 29 manns að bana í Omagh í ágúst á síðasta ári í mannskæðasta hryðju- verkinu í sögu Norður-írlands. The Guardian sagði að lögreglan hefði varað stjórnmálamenn, yfir- menn hersins og stjórnendur allt að 30 fyrirtækja við hættunni á hryðjuverkum. Fleiri lögreglumenn verða á göt- um London og öryggisgæslan verð- ur hert við þinghúsið og fleiri opin- berar byggingar í Westminster, í fjármálahverfi borgarinnar óg verslunarmiðstöðvum út um allt landið. PH'UPP houmann ■ Œ Arbeilslos = OfodachloS C Nagladekkja- skattur í Osló Ósld. Morgunblaðið. EITUREFNI úr malbikinu og viðarbrennsla flýta fyrir dauða 419 Óslóarbúa árlega. Kemur þetta fram í nýrri skýrslu þar sem segir, að þessi mengun kosti Norðmenn um 40 milljarða ísl. kr. á ári. I Ósló eru jafnan miklar vetr- arstillur og þá safnast fyrir í and- rúmsloftinu reykurinn frá viðar- brennslunni og eiturefnin, sem nagladekkin rífa upp úr malbik- inu. Era vetrarmánuðirnir oft mikill þrautatími fyrir aldrað fólk, asma- og hjartasjúklinga og mikið um alls konar sjúkdóma. Borgarstjórnin í Ósló ætlar nú að ráðast gegn þessum vanda og efst á blaði er að leggja 10.000 ísl. kr. skatt á alla þá, sem ætla að nota nagladekk. Mánaðarkort á að kosta 3.500 kr. og dagskortið 250 kr. Þeir, sem koma til borg- arinnar utan af landsbyggðinni, verða líka að greiða sitt og verða sektaðir um 5.000 kr. geri þeir það ekki. Verða þessi gjöld inn- heimt þar til 80% allra bfla í Ósló verða orðin nagladekkjalaus. Auk þessa verður unnið að því að fá fólk til að hætta notkun gamalla viðarbrennsluofna og fá sér nýja, sem menga minna, og til athugunar er að banna stund- um akstur hvarfakútslausra bif- reiða. Hvatt til sátta í Kosovo BILL Clinton Bandaríkjaforseti fór til Kosovo í gær og hvatti alb- anska meirihlutann í héraðinu til að fyrirgefa Serbum grirnmdar- verk þeirra og hætta árásunum á serbneska minnihlutann. „Enginn getur neytt ykkur til að fyrirgefa það sem ykkur hefur verið gert. En þið verðið að reyna,“ sagði Clinton þegar hann ávarpaði um 2.000 Kosovo-Albana á íþróttaleikvangi í bænum Uros- evac. Um 200.000 Serbar bjuggu í Kosovo áður en átökin hófust og um helmingur þeirra hefur flúið úr héraðinu vegna árása Kosovo- Albana. Atvinnu- leysi mót- mælt Ráðherrar ræða samruna Yestur-Evrópusambandsins og ESB NATO-ríki utan ESB STARFSMENN Philipp Holz- mann, næststærsta byggingarfyr- irtækis Þýskalands, efndu til mót- mæla við Brandenborgarhliðið í Berlín í gær vegna yfirvofandi gjaldþrots þess. Fyrr um daginn hafði fyrirtækið lagt fram gjald- þrotsbeiðni eftir að viðræður við lánardrottna þess höfðu farið út um þúfur. Heinrich Binder, forstjóri Phil- ipp Holzmann, sagði þó að beiðnin yrði afturkölluð ef tilraunir Ger- hards Schröders,*kanslara Þýska- lands, til að bjarga fyrirtækinu bæru árangur. Tugþúsundir manna missa at- vinnuna verði fyrirtækið gjald- þrota og sljórn Schröders leggur þvímikið kapp á að bjarga því. Á borðanum stendur „Atvinnu- laus = heimilislaus". Lúxemborg. AP, AFP. láta í ljósi áhyggjur RAÐHERRAR varnar- og utanrík- ismála frá þeim sex löndum sem að- ild eiga að Atlantshafsbandalaginu (NATO) en ekki að Evrópusam- bandinu (ESB) ítrekuðu á ráð- herrafundi Vestur-Evrópusam- bandsins (VES) í Lúxemborg í gær áhyggjur sínar af þeim vinnubrögð- um sem ESB-ríkin í VES, sem eru þau einu sem þar hafa fullan at- kvæðisrétt, viðhafa við undirbún- ing samrana VES við Evrópusam- bandið. Eitt meginverkefni Lúxemborg- arfundarins var að semja tilmæli um evrópsk varnar- og öryggismál, sem leggjast skulu fyrir leiðtoga- fund ESB í Helsinki í byrjun des- ember. Var helst fjallað um þróun sameiginlegrar evrópskrar örygg- is- og vamarmálastefnu Evrópu- sambandsins og með hvaða hætti auka mætti bolmagn Evrópuríkja á hernaðarsviðinu. Samþykkt var að mæla með efldum tengslum VES og ESB, bæði með því að VES láti ESB í auknum mæli í té upplýsing- ar og aðgang að stofnunum og með samþykki sérstaks skjals um skrá- setningu VES á búnaði og liðsafla sem VES-ríki gætu lagt af mörkum til aðgerða á vegum ESB, óháð NATO. Fyrirstaða og trejgða gegn sjónarmiðum Islands Aður hafði fastaráð VES sam- þykkt að skipa Javier Solana, fyrr- verandi framkvæmdastjóra NATO sem gegnir nú hlutverki æðsta tals- manns ESB í utanríkis- og öryggis- málum, í stöðu framkvæmdastjóra VES. Tekur hann við því hlutverki á morgun, fimmtudag. Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra, sem sat fundinn fyrir ís- lands hönd, sagði í samtali við Morgunblaðið strax að loknum fundinum, að sum ESB-ríkin sýndu „fyrirstöðu og tregðu“ hvað það varðar að taka tillit til sjónarmiða aukaaðildarríkjanna að VES, NATO-ríkjanna Islands, Noregs, Tyrklands, Póllands, Tékklands og Ungverjalands. Sagði Halldór íslendinga hafa bókað óánægju með framgang mála. ■ ísland bókar/26

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.