Morgunblaðið - 24.11.1999, Síða 2

Morgunblaðið - 24.11.1999, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR__________________ Fullgilding Schengen- samnings verði heimil Sænskur tölvuþrjótur dæmdur til að greiða Snerpu skaðabætur SÆNSKUR námsmaður var í gær dæmdur til að greiða Snerpu ehf., tölvu- og netþjónustu á Isafirði, rúmlega 140.000 íslenskar krónur í skaðabætur fyrir að gera tilraun til að brjótast inn í tölvukerfi fyrirtæk- isins. Námsmaðurinn, sem heitir Dani- el Hammarberg og er 23 ára, braust inn í tölvukerfí nokkurra erlendra fyrirtækja og kom þar fyrir forriti sem útvegaði honum notendanöfn og aðgangsorð. Snerpa ehf. kærði málið til sænskra yfirvalda og fór fram á um 900.000 krónur í skaðabætur, en fær um 140.000 krónur. „Þú segir mér fréttir, ég var ekki búinn að heyra af þessum dómi,“ sagði starfsmaður Snerpu þegar Morgun- blaðið hafði samband við fyrirtækið. Gassprengingin á Suðurnesjum Þrennt enn á sjúkrahúsi ÞRJU af þeim fjórum ungmennum sem flutt voru slösuð á Landspítal- ann á sunnudagskvöld eftir öfluga gassprengingu í bifreið á Stafnes- vegi skammt sunnan Sandgerðis liggja enn á Landspítalanum. Tvær fimmtán ára stúlkur í hópn- um liggja á Barnaspítala Hringsins í umsjón lýtalækna og eru þær á batavegi. Sextán ára piltur liggur á iýtalækningadeild Landspítalans eft- ir að hafa verið á gjörgæsludeild að- faranótt mánudags. Líðan hans er eftir atvikum góð og mun hann dveija áfram á lýtalækningadeildinni til áframhaldandi meðferðar. Sautján ára piltur úr hópnum er farinn heim af sjúkrahúsi en hann mun verða undir eftirliti og fá frekari meðferð á göngudeild Landspítalans. Ungmennin komust af eigin rammleik undir læknishendur í Keflavík eftir slysið, þaðan voru þau svo send til Reykjavíkur á sjúkrahús. Rannsóknardeild Keflavíkurlög- reglunnar fer með rannsókn á til- drögum slyssins. ----------------- Lögð fram beiðni um lögbann LÖGMAÐUR eiganda kýpverska flutningaskipsins Nordheim hefur lagt fram beiðni um lögbann við að- gerðum fulltrúa Alþjóðasamtaka flutningaverkamanna, ITF. Samtökin hafa stöðvað losun úr skipinu þar sem það liggur við fest- ar í Sundahöfn en það er í leigu- flutningum fyrir Eimskipafélagið. ITF hefur fullyrt að laun skipverja séu 300 dollarar á mánuði. Lögregla hefur ekki haft afskipti af þessari deilu þar sem hún telur að hún falli undir vinnudeilur. Kerfisstjórinn, sem séð hefur um málið, var ekki við en starfsmaður- inn sagði að 140.000 krónur í skaða- bætur væri betra en ekki neitt. Snerpa var eina fyrirtækið sem fór í mál vegna þessa en pilturinn braust meðal annars inn í tölvukerfi nokkurra háskóla í Lundúnum, Epinet Communication PLC í Englandi, DK-Net í Kaupmanna- höfn og net háskólans í Luleá í Sví- þjóð. Hammarberg var einnig dæmdur til að greiða um 30.000 íslenskar krónur í sekt auk 3.000 króna í sjóð sem notaður er til að styðja fómar- lömb glæpa. RÍKISSTJÓRNIN hefur lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu þar sem lagt er til að henni verði heimil- að að fullgilda fyrir Islands hönd samning sem ráð Evrópusambands- ins, Island og Noregur hafa gert með sér um þátttöku hinna síðar- nefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna sem und- irritaður var í Brussel í maí síðast- liðnum. I greinargerð með þingsályktun- artillögunni segir að með Schengen- samkomulaginu hafi verið skil- greind almenn markmið um að koma á í áföngum frjálsri för ein- staklinga yfir innri landamæri að- ildarríkjanna. „Nánar tiltekið kveð- ur samkomulagið á um að aðildar- ríkin skuli með tilteknum hætti ein- falda eftirlit með fór fólks á sameig- inlegum landamærum. Enn fremur kveður samkomulagið á um að að- ildarríkin styrki samstarf sitt í bar- áttunni gegn alþjóðlegri afbrota- starfsemi." Segh' ennfremur í greinargerð að íslendingar hafi orðið áþreifanlega varir við það að undanfömu að skipulögð afbrotastarfsemi, sem komi í kjölfar aukinnar fíkniefna- neyslu, virðist ekki ætla að láta Is- land ósnert. Reynsla annarra þjóða sýni að í kjölfarið megi reikna með annars konai’ skipulagðri afbrota- starfsemi, svo sem peningaþvætti, vændi og skipulögðu smygli á fólki. Nýta sér lögsögumörk Segir í greinargerðinni að af- brotahringir nýti sér lögsögumörk markvisst til að komast undan armi laganna í heimi sem verði stöðugt minni fyrir áhrif nútímasamskipta og -samgangna. „Viðurkennt er að eina leiðin til að bregðast við þessu er að stórauka alþjóðlega lögreglu- samvinnu," segir í greinargerð. Að- gangur lögreglu að Schengen-upp- lýsingakerfinu sé þar einn mikil- vægasti þátturínn. Morgunblaðið/Sverrir Starfsmenn Landssimans fylltu Þjóðleikhúsið í gærkvöldi. Á myndinni til hliðar er Þórarinn V. Þórarinsson forstjóri Landssímans í ræðustól. 1,9 milljarða í hagnað til að standa undir arðsemiskröfu ÞÓRARINN V. Þórarinsson, forstjóri Landssíma Islands hf., sagði á fjölmennum starfsmannafundi í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi, þar sem nýtt skipu- rit fyrirtækisins var kynnt, að kjamakrafan í rekstri fyrirtækisins væri arðsemin og allt annað yrði að lúta henni. Bókfært eigið fé Landssímans hefði í upphafi árs verið rámar 12.800 milljónir króna. Þetta fé væri ekki til endurgjaldslausra af- nota. Af því yrði að reikna 15% endurgjald eftir skatt og það þýddi að hagnaðurinn yrði í ár að ná rúmlega 1.900 milljónum kr. aðeins til að standa undir kröfu um arðsemi eigin fjár. Þórarinn sagði að lögð yrði enn frekari áhersla á gæðamálin á næstunni. „Staða okkar á mark- aðnum er slík að samkeppnisyfirvöld telja brýnt að gæta þess alveg sérlega vel að við förum okk- ur ekki að voða í verðsamkeppni. Þetta höfum við fengið að reyna bæði í farsíma- og intemetþjón- ustu og við þetta verðum við að búa. Við verðum því að miða starfsemina við að geta fengið og haldið viðskiptavinum í samkeppni við aðra sem kunna tímabundið að bjóða betra verð. Þá era það gæðin sem ráða úrslitum," sagði Þórarinn. Undirskriftakvöð viðskipta- vina verður aflétt Stefnan að fjárfesta í öðrum félögum Viðskiptavinfr fyrirtækisins verði t.d. leystir undan þeini kvöð að þurfa að koma sjálffr á starfsstöðvar fyrirtækisins til að skrifa undir beiðni um að opna eða loka síma. Þjónustuvefur Símans verður meginfarvegur samskipta við við- skiptavinina. Markmiðið sé að viðskiptamenn geti pantað þjónustu á vefnum og fengið ýmsa sérþjónustu afgreidda beint með þeim hætti. Þórarinn sagði að markmið Landssímans væru þau að vera ávallt í forystuhlutverki í fjarskipta- og upplýsingatækni á Islandi og bjóða viðskipta- vinum bestu tæknilausnir sem völ er á. Nýtt skipurit Landssíma fslands kynnt á starfsmannafundi i Þórarinn sagði að huga yrði að landvinningum á öðrum sviðum til að tryggja heilbrigðan vöxt í sterku fyrirtæki. Þess vegna væri það hluti af stefnunni að fjárfesta í öðrum fyrirtækjum, eink- um á sviði upplýsingatækni, til að sækja nýja þekkingu, þróa nýjar tæknilausnfr og auka arð- semi félagsins. „Mín spá er sú að þessi þáttur í starfsemi okkar eigi eftir að aukast þar sem Landssíminn kemur inn sem virkur þátttakandi í dóttur- og hlutdeildarfélög. Vera má að við setj- um einhvern hluta okkar eigin starfsemi í slík sjálfstæð félög, sem við eigum ýmist ein eða með öðmm, allt eftir því sem hentar hverju sinni. Við skulum heldur ekki útiloka að Síminn færi út starfsemi sína og taki þátt í erlendum verkefn- um,“ sagði Þórarinn. blöð í dag Sáiveifc SZ ; sntszj ► í VERINU í dag er greint frá mikilli lækkun á sfld- verði, farið heimsókn í sæeyrnaeldi í Vogunum, sagt frá vísbendingum um sterkan þorskárgang á þessu ári og fiskverkun Fjölnis hf. á Þingeyri. Eliluíirii,ii|i:Ii.iim BnuidVflriLiíllíiliS ‘99 ÍÞRÓmR Kristinn gerði vel f í Colorado / C1 Glæsimark Einars Þórs og óskabyrjun Guðjóns hjá Stoke/C1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.