Morgunblaðið - 24.11.1999, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stóra hassmálið
Gæsla
tveggja
manna
framlengd
í 3 vikur
TVEIR karlmenn á fertugs-
aldri voru úrskurðaðir í
áframhaldandi gæsluvarðhald
í þrjár vikur í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær vegna
rannsóknar fíkniefnadeildar
lögreglunnar í Reykjavík á
stóra hassmálinu. Unnið er að
rannsókninni í samstarfí við
spænsku lögregluna og ríkis-
lögreglustjórann.
Lagt var hald á 30 kg af
hassi á Spáni um miðbik þessa
mánaðar áður en það barst til
Islands og leiddi rannsókn
málsins til handtöku þriggja
íslendinga hérlendis auk
handtöku manna erlendis.
Mennimir, sem eru 37 og 39
ára gamlir höfðu setið í gæslu-
varðhaldi frá 16. nóvember og
fór lögreglan fram á þriggja
vikna framlengingu, sem hér-
aðsdómur samþykkti.
Einn fertugur karlmaður til
viðbótar situr í gæsluvarð-
haldi vegna málsins, sem
rennur út hinn 14. desember.
Eftir úrskurð dómara nær því
gæsluvarðhald allra mann-
anna þriggja til þess dags.
Trilla fékk
á sig brot
TRILLAN Víðir KE kom inn
á höfnina í Amarstapa á
fimmta tímanum í gær en hún
fékk á sig brot við Malarrif í
gærmorgun og biluðu stjóm-
tæki bátsins. Tveir menn vom
um borð í Víði og sakaði þá
ekki.
Armann Stefánsson, skip-
stjóri á Jóni Gunnlaugssyni
GK, sem fylgdi Víði áleiðis að
Amarstapa, sejgir að trillan
Mónika frá Olafsvík hefði
fylgt Víði síðasta spölinn inn
að Arnarstapa.
„Við vomm að toga suður af
Malarrifmu. Við hejrrðum í
þeim en þeir heyrðu aldrei í
neinum. Það tók hins vegar
langan tíma að finna trilluna.
Mennimir vom aldrei í neinni
hættu. Það brotnuðu gluggar í
brúnni og tækin urðu óvirk.
Það var hvasst en tiltölulega
slétt og þess vegna gátu þeir
lítið keyrt,“ segir Ái-mann.
Nýtt Rannsókna- og fræðasetur Háskóla Islands í Hveragerði
Ahersla lögð á hvera-
•• « >1
AIICI ðlct lugu d IIVCI d-
líffræði og örverufræði
KMIÐ nýs Rannsóknar- og fe'# r'fl Iv. A» r>'éi'Æ: jÉÍl~ ,r” ^
MARKMIÐ nýs Rannsóknar- og
fræðaseturs Háskóla íslands í
Hveragerði er að efla vísindarann-
sóknir og fræðastai-f í Hveragerði
og á Olfussvæðinu. Samstarfs-
samningur um stofnun setursins
var undirritaður í Hveragerði í
gær en að samningnum standa,
auk Háskóla Islands, Hveragerðis-
bær, Garðyi-kjuskóli ríkisins,
Rannsóknastofnunin á Neðra-Asi
og Islenskar hveravörur ehf.
Rannsóknar- og fræðasetrinu er
ætlað að vera miðstöð rannsókna í
umhverfismálum og náttúruvísind-
um í byggðalaginu, með áherslu á
hveralíffræði og hagnýta örveruf-
ræði. Leitast verður við að taka
mið af sérstöðu byggðarlagsins til
þessara rannsókna og stefnt verð-
ur að frekari uppbyggingu þekk-
ingar á svæðinu, byggt á grund-
velli þess starfs sem þar hefur
þegar verið unnið og þeim aðstæð-
um og aðstöðu sem þar er fyrir
hendi.
Ahersla á hveralíffræði og
hagnýta örverufræði
Helstu viðfangsefni setursins
verða í upphafi á sviði hveralíf-
fræði og hagnýtrar örverufræði.
Meðal fyrstu verkefna verða um-
sjón með umhverfis- og lífríkis-
rannsóknum á hverasvæðum á
Hengils og Ölfussvæðinu og fagleg
umsjón með hverasvæði bæjarins.
Einnig verður lögð áhersla á að
kynna aðstöðu og starfsemi seturs-
ins bæði á almennum vettvangi og
innan Háskólans og stuðlað að því
að sem flestir innan Háskólans
nýti sér þá aðstöðu sem þar býðst.
Rannsóknar- og fræðasetrið hef-
ur aðsetur í húsnæði Rannsóknar-
stofnunarinnar á Neðra-Ási sem
Morgunblaðið/Ásdís
Sveinn Guðmundsson, skólameistari Garðyrlyuskóla ríkisins, Hálfdán Kristjánsson, bæjarstjóri Hvera-
gerðis, Jakob Kristjánsson, framkvæmdastjóri íslenskra hveraörvera ehf., Páll Skúlason, rektor Háskóla
Islands, og Gísli Páll Pálsson, framkvæmdastjóri Rannsóknarstofnunarinnar á Neðra-Ási, undirrituðu í
gær samstarfssamning um stofnun Rannsókna- og fræðaseturs Háskóla Islands í Hveragerði.
leggur auk þess til tæki fyrir skrif-
stofur, rannsóknarstofu og bóka-
safn. Rannsóknarstofnunin á
Neðra-Ási hefur starfað við ýmis-
konar líffræðirannsóknir, þar á
meðal örverurannsóknir, frá því
hún var stofnuð árið 1965. I grein-
argerð með samningnum segir að
leitast verði við að halda nafni
Rannsóknarstofnunarinnar á lofti
og því merkilega starfi sem stofn-
unin og aðstandendur hennar hafi
unnið.
Að Háskóli Islands sé í raun
Háskóli íslands
Gísli Páll Pálsson, framkvæmda-
stjóri Rannsóknarstofnunarinnar
á Neðra-Ási, sagði við undirritun
samningsins að þeim væri mikill
heiður að því að Háskóli Islands
skyldi koma að þessu samstarfi.
Hann sagðist vona að þetta yrði til
að efla rannsóknir á svæðinu enn
frekar og benti á hversu viðeigandi
það væri að hafa rannsóknarsetur
sem legði áherslu á rannsóknir af
þessu tagi í Hveragerði, þar sem
hverasvæði væri í miðjum bænum.
Hann sagði að mjór væri mikils
vísir og þó að setrið byrjaði smátt í
sniðum þá ætti það örugglega eftir
að vaxa og dafna vel með starfi
sínu.
Páll Skúlason, rektor Háskóla
íslands, sagði það vera mikið
ánægjuefni fyrir Háskólann að
taka þátt í þessu samstarfi. Hann
sagði að til að Háskóli íslands væri
í raun Háskóli alls íslands væri
aukið samstarf við heimafólk á
landsbyggðinni mjög æskilegt.
Nokkrar mikilvægar forsendur
væru fyrir slíku samstarfi og sú
mikilvægasta væri áhugi sveitar-
eða bæjarfélags á samstarfinu. Svo
yrðu stofnanir, fyrirtæki eða ein-
staklingar á svæðinu að vera reiðu-
búnir að taka þátt, sem og fólk frá
Háskólanum. Einnig væri æskilegt
að eitthvað sérstakt væri við svæð-
ið, sem gæfi tilefni til rannsókna.
Páll sagðist vona að á Rannsókn-
ar- og fræðasetrinu í Hveragerði
yrði smám saman blómlegt starf
sem gæti síðar jafnvel orðið á enn
fleiri sviðum en lagt væri upp með.
*
Skipulagsályktim samþykkt samhljóða á sambandsstjórnarfundi ASI
Rafíðnaðarmenn hefja
aftur störf innan ASI
TILLAGA^ sem forsetar Alþýðu-
sambands Islands lögðu fram sam-
eiginlega til ályktunar um skipu-
Tilboð
vikunnar
3ðna» Hiltflrímnon ■ iiviiagi
Tímamót i bókmenntasögu íslendinga:
Ævisaga Jónasar Hallgrimssonar, lista-
skáldsins góða, eftir Pál Valsson. Heilsteypt
mynd af lífi og starfi margbrotins manns.
kr. Verð áður 4.980 kr.
Einar Benediktson Slóð fiðrildanna
SiÖD
Gildir til þriðjud. 30. nóv. 1999
Nýjar bækur
daglega
I vmimdsson
Austurstræli 5111130* Kringlunní 533 1 130 • Hafnarfirðt 555 0045
lagsmál var samþykkt samhljóða
eftir miklar umrseður á sambands-
stjórnarfundi ASÍ, sem lauk í gær.
Guðmundur Gunnarsson, for-
maður Rafiðnaðarsambandsins,
segir að í ályktuninni sé tekið und-
ir þau sjónarmið sem rafiðnaðar-
menn hafi sett fram. „Við erum
fyllilega sátt við hana og ég veit
ekki betur, miðað við þær sam-
þykktir sem við fulltrúar Rafíðnað-
arsambandsins höfum á bak við
okkur, en að við munum hefja störf
aftur innan Alþýðusambandsins
frá og með deginum í dag,“ sagði
hann.
Guðmundur sagði að komið hefði
fram í umræðum á sambands-
stjórnarfundinum í gær að forset-
um ASÍ yrði gefinn vinnufriður
fram á vorið til að vinna að skipu-
lagsmálum sambandsins.
„Mjög góð niðurstaða"
Hann sagðist vona að tækist að
lenda þessu máli með þeim hætti
að allir gætu við unað. „Ef þessi
vinna fer í hund og kött í vor eða
sumar munu menn einfaldlega
mæta á þing Alþýðusambandsins
næsta haust til að tilkynna að þeir
séu hættir. Ég vona að ekki komi
til þess,“ sagði Guðmundur.
Harðar deilur urðu um skipu-
lagsmál á vettvangi ASÍ sl. vor
sem lyktaði með því að Rafiðnaðar-
sambandið taldi, sér ókleift að
starfa innan ASI. Ályktunin um
skipulagsmál bar hæst á sam-
bandsstjórnarfundinum sem stóð
yfir frá mánudegi til þriðjudags og
urðu miklar umræður um málið.
„Þetta er mjög góð niðurstaða,"
sagþi Grétar Þorsteinsson, forseti
ASÍ, í samtali við Morgunblaðið
þegar niðurstöður atkvæðagreiðsl-
unnar lágu fyrir í gær. „Það er
ekki að merkja annað af umræðun-
um bæði í gær og í dag en að þessi
sambandsstjórnarfundur sé sam-
mála því að ganga nú til verksins
með þeim hætti sem gert er ráð
fyrir í ályktuninni. Hér hafa ýmsir
komið í pontu, sem hafa verið ger-
endur í þessum málum á seinustu
mánuðum, og lagt mikla áherslu á
að tíminn verði notaður vel til að
freista þess að finna sameiginlega
niðurstöðu. Ég er mun bjartsýnni
heldur en ég var fyrir fundinn á að
okkur takist þetta,“ sagði Grétar.
Skv. ályktuninni felur sam-
bandsstjórnin forsetum ASÍ að
vinna að þeim markmiðum sem
sett eru fram í ályktuninni á næstu
mánuðum og kalla til formlegs
samráðs fulltrúa aðildarfélaga og
sambanda til að vinna að tillögu-
gerð. Eiga tillögur á þessum
grunni að vera tilbúnar fyrir lok
aprílmánaðar á næsta ári.
„Ýmsir þættir enn óljósir"
Björn Grétar Sveinsson, for-
maður Verkamannasambands Is-
lands, segir það rangt að fallist hafí
verið á sjónarmið Rafiðnaðar-
sambandsins, eins og Guðmundur
Gunnarsson hafi haldið fram í
fréttum ljósvakamiðlanna í gær-
kvöldi.
„Tillaga forsetanna var sam-
þykkt en gerðir voru fyrirvarar um
ýmsa þætti sem eru óljósir. Þetta
var gert til þess að menn gætu sest
að viðræðuborði. Ekki var hreyft
við kröfum Rafiðnaðarsambands-
ins um að breyting yrði gerð á
ákvörðunum skipulagsnefndar og
miðstjórnar Alþýðusambandsins.
Það standa allar ákvarðanir sem
hafa verið teknar í Alþýðusam-
bandinu og stofnunum þess um
deilumálin sem hefur verið tekist á
um. Ég býð menn velkomna aftur
til starfa en menn verða að segja
rétt frá. Mér finnst þetta ekki
drengilegur málflutningur af hálfu
Guðmundar Gunnarssonar og
þetta er kannski í fyrsta skipti sem
við svörum ýmsu sem þaðan kem-
ur,“ sagði Björn Grétar.