Morgunblaðið - 24.11.1999, Page 14

Morgunblaðið - 24.11.1999, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fjölsótt málþing haldið um akstur eldra fólks Akstur aldr- aðra er mann- réttindamál * A málþingi um akstur eldri borgara kom fram að hlutfall þeirra í umferðinni fer vaxandi. Einnig kom fram að akstur þeirra er ekki vandamál eins og ýmsir hafa haldið fram. MÁLÞING um akstur eldri borgara var haldið í gærdag í Asgarði, fé- lagsheimili Félags eldri borgara í Reykjavík. Til þess var stofnað af Umferðarráði, Félagi eldri borgara í Reykjavík og nágranni og Lands- sambandi eldri borgara. Talið er að rúmlega 300 manns hafi sótt þingið. Fjallað var um flestar hliðar á akstri eldra fólks, þ.á m. út frá ör- yggi og heilsu. Skýrt kom fram að akstur eldri borgara er ekki vanda- mál í sjálfu sér en hins vegar sé sjálfsagt að huga að þeim breyting- um sem fylgi aldri og kunni að hafa áhrif á akstur. Formaður Umferðaráðs, Þórhall- ur Ólafsson, setti málþingið en fundarstjóm var í höndum Salome Þorkelsdóttur, fyrirverandi forseta Alþingis. Þórhallur benti á að hlut- fall aldraðra ökumanna ykist stöðugt bæði hérlendis og annars staðar í heiminum. Það væri m.a. ástæða þess að þörf væri á sérstakri fræðslu. Hann tUkynnti m.a. um að á næsta ári yrði umferðaröryggis- vika tileinkuð eldri borgurum. Sólveig Pétursdóttir dómsmála- ráðherra áréttaði að akstur eldri borgara væri ekki sérstakt vanda- mál, það væru t.d. yngstu ökumenm imir sem yllu flestum slysum. I sambandi við framkomna óánægju eldri borgara með hækkuð ökuskír- teinagjöld, frá því um síðustu ára- mót, tók hún fram að hún hefði þeg- ar farið þess á leit við fjármálaráð- herra að gjaldið yrði tekið tU skoð- unar. I ávarpi Benedikts Davíðssonar, formanns Landssambands eldri borgara, kom fram að líta mætti á málþingið sem sjálfstæða forvam- araðgerð sem stuðlað gæti að ör- uggari umferð. Hann benti á að við- kvæmt væri fyrir marga aldraða að taka ákvörðun um að hætta að aka bU. Líta mætti á bUakstur sem mannréttindamál sem auðveldaði samskipti við fólk og gerði öldmð- um kleift að vera þátttakendur í þjóðfélaginu. Dagskráin á þinginu var fjöl- breytt. Fyrir utan fyrirlestra var t.d. sýnt myndband Umferðarráðs „Gott er heilum vagni heim að aka“ með þeim Marinó Þorsteinssyni og Sólrúnu Yngvadóttur í aðalhlut- verkum. TU að liðka þingmenn stjómaði Soffía Stefánsdóttir íþróttakennari leikfimiæfmgum við harmoníkuleik Emsts F. Backmans íþróttakennara. Sigrún Helgadóttir, deildarstjóri manntals- og mannfjöldadeUdar Hagstofu íslands, skýrði frá ald- ursskiptingu íslensku þjóðarinnar, þróun í þeim efnum undanfarin ár og áætluðum fjölda aldraðra tU árs- ins 2010. Fram kom að hlutfall þeirra sem em 65 ára og eldri hefur vaxið jafnt og þétt og með auknum hraða síðustu áratugi vegna lækk- Morgunblaðið/Ásdís Áhugi á málþingi um akstur eldri borgara var mikill og sóttu yfir 300 manns þingið. andi fæðingartíðni. Um síðustu aldamót var þetta hlutfalla 6,6% en um mitt ár 1998 var þetta hlutfall 11,6%. Spár gera ráð fyrir að þetta hlutfall verði komið í 12,3% árið 2010. HeUsufarslegir þættir hafa áhrif á getu fólks tU að stýra bifreið. Helga Hansdóttir, læknir á öldmn- ardeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, Landakoti, fjallaði um áhrif öldmn- ar og sjúkdóma á aksturshæfni aldraðra. Þar vegur sjónin vegur þungt og getur hæfni fólks til að meta aðstæður komið til af eðlUegri öldmn eða sjúkdómum en það er einstaklingsbundið. í máli Helgu kom fram að sterk fylgni er mUli skertrar rúmskynjunar og bUslysa. En til að meta rúmskynjun er tU sérstakt próf sem ætti að mati Helgu að ráða úrslitum um það hvort fólk aki eða ekki. Aldraðir aki á sjálf- skiptum bflum Ýmislegt má gera til þess að auka öryggi í akstri, eins og Sig- urður Helgason, upplýsingafulltrúi Umferðaráðs, og Guðbrandur Bogason, formaður Ökukennarafé- lags Islands, bentu á í sameiginleg- um fyrirlestri. Meðal atriða sem þeir bentu á var að vera ekki á ferðinni á háannatímum að þarf- lausu. Þá væri mikUvægt að gera sér grein fyrir sínum takmörkum, t.d. hvað sjónina varðaði. Bentu þeir á að sjálfsagt væri fyrir aldr- aða að aka á sjálfskiptum bflum en þannig gæfíst betra tóm til að ein- beita sér að umhverfinu og aðstæð- um. Einar Guðmundsson, forvamar- fulltrúi Sjóvá-Almennra trygginga hf. sem einnig komu að málþinginu, fjallaði um hvers konar tjónum eldri ökumenn lentu helst í en Guðmund- ur Þorsteinsson skýrði frá því hvað væri erfiðast fyrir aldraða ökumenn í akstri. Sjónarmið eldri bílstjóra komu einnig fram í erindi Guðrúnar S. Jónsdóttur, sem enn ekur bfl, og Páls Gíslasonar, sem hættur er akstri. Páll beindi því til fólks að það sætti sig við orðinn hlut þegar ökuhæfni væri ekki lengur fyrir hendi og sagðist sjálfur hafa góða reynslu af almenningssamgöngum í borginni. Hjördís Jónsdóttir, yfír- læknir á Reykjalundi, fjallaði um bestu leiðina til að fá ökumenn sem ekki eru lengur færir um að aka, til þess að láta af því. I síðasta erindinu velti Ólafur Ólafsson, formaður FEB í Reykja- vík og nágrenni, fyrir sér takmörk- unum, áhættu, og sérstökum kostn- aði sem fylgdi akstri þegar komið er yfír sjötugt. Hann lýsti yfir óánægju sinni með hækkun á öku- skírteinagjöldum og beindi því til stjómvalda að hún yrði tekin til endurskoðunar. Óli H. Þórðarson, framkvæmda- stjóri Umferðarráðs, sleit málþing- inu. Aðspurður kvaðst hann afar ánægður með fjölsótt þing og að margt athyglisvert hefði komið fram. „Auðvitað er akstur eldri borgara ekki sérstakt vandamál en því er ekki að neita að öldrun hefur það í fór með sér að sérstakir þættir í aksturslagi breytast. Menn fara sér kannski hægar og geta valdið töf en við slíku ber okkur að bregð- ast af tillitssemi. Aðstandendur þingsins voru að fiska eftir samskiptum við þennan hóp ökumanna, til að fá þeirra sjón- armið og skoðanir, og það gekk eft- ir. Við lærum heilmikið af þessu. Það geta reyndar allir gert því öll stefnum við jú að því að verða aldr- aðir ökumenn," sagði Óli. Islenskir listamenn senda Norðmönnum áskorun EITT hundrað íslenskir listamenn hafa sent Norsk Hydro áskorun um að draga sig út úr samningum við íslendinga um álver á Reyðar- firði meðan lögformlegt umhverfis- mat hefur ekki farið fram. Jafn- framt hafa listamennirnir sent rík- isstjórn Noregs áskorun um að beita sér fyrir því að Norsk Hydro dragi sig út úr samningum við Is- lendinga. í áskorun listamannanna til ríkis- stjórnar Noregs segir m.a.: „Ríkisstjóm okkar virðist ætla að Undirskriftimar Hér fer á eftir listi yfir nöfn þeirra 100 listamanna, sem rituðu undir áskorunina: Andri Snær Magnason rithöfund- ur, Anna Eyjólfsdóttir myndlistar- maður, formaður Myndhöggvarafé- lagsins, Anna Líndal myndlistar- maður, Amar Herbertsson mynd- listarmaður, Amar Jónsson leikari, Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari, Ásta Amardóttir leikari, Baldvin Halldórsson leikari, Baltasar mynd- listarmaður, Benedikt Erlingsson leikari, Birgir Sigurðssoil rithöfund- ur, Björg Þorsteinsdóttir myndlist- armaður, Björk tónlistarmaður, Borghildur Oskarsdóttir myndlist- armaður, Bragi Ólafsson rithöfund- ur, Bryndís Halla Gylfadóttir selló- leikari, Brynja Benediktsdóttir leik- kona, Bubbi Morthens tónlistarmað- ur, Edda Björgvinsdóttir leikkona, Edda Þórarinsdóttir leikkona, for- maður Leikarafélags Islands, Egill sniðganga vflja meirihluta þjóðar- innar um mat á umhverfisáhrifum og fóma ómetanlegum náttúmverð- mætum - Eyjabökkum. Það svæði tilheyrir stærsta ósnortna víðemi í Eðvarðsson, kvikmyndagerðarmað- ur og myndlistarmaður, Egill Ólafs- son, leikari og tónlistarmaður, Einar Bragi skáld, Einar Jóhannesson klarinettleikari, Einar Már Guð- mundsson rithöfundur, Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur, Eyvindur P. Eiríksson rithöfundur, Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndagerðar- maður, Fríða Á. Sigurðardóttir rit- höfundur, Gísli Rúnar Jónsson leik- ari, Guðbergur Bergsson rithöfund- ur, Guðbjörg Lind Jónsdóttir mynd- listarmaður, formaður Félags ís- lenskra myndlistarmanna FIM, Guðmundur Páll Ólafsson rithöfund- ur, Guðmundur Andri Thorsson rit- höfundur, Guðni Franzson tónlistar- maður, Guðný Halldórsdóttir kvik- myndagerðarmaður, Guðný Magn- úsdóttir myndlistarmaður, Guðrún Gunnarsdóttir myndlistarmaður, Guðrán Helgadóttir rithöfundur, Guðrán Sigríður Birgisdóttir flautuleikari, Gunnar Öm Gunnars- son myndlistarmaður, Gunnsteinn Vestur-Evrópu og hefur einnig ómetanlegt alþjóðlegt gildi sem stærstu fellistöðvar heiðargæsar- innar í heiminum. Við viljum að staldrað sé við og málið skoðað frá Ólafsson hljómsveitarstjóri, Gyrðir Elíasson rithöfundur, Hafdís Helga- dóttir myndlistarmaður, Hafsteinn Austmann listmálari, Hákon Aðal- steinsson skáld, Hannes Pétursson skáld, Harpa Amardóttir leikkona, Helga Hauksdóttir fiðluleikari, tón- leikastjóri Symfóníuhljómsveitar Is- lands, Helga I. Stefánsdóttir leik- myndahönnuður, Helgi Bjömsson tónlistarmaður og leikari, Helgi Gíslason myndhöggvari, Hilmar Þórðarson tónskáld, Hilmir Snær Guðnason leikari, Hjalti Rögnvalds- son leikari, Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld, Hjörleifur Sigurðsson list- málari, Hörður Áskelsson, orgelleik- ari og tónlistarstjóri, Ingibjörg Har- aldsdóttir skáld, Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaður, Jó- hanna Bogadóttir myndlistarmaður, Jóhanna Þórðardóttir myndlistar- maður, Jón Reykdal listmálari, Kar- ólína Eiríksdóttir tónskáld, Kol- beinn Bjamason flautuleikari, Krist- björg Kjeld leikkona, Kristinn öllum hliðum, hvað séu verðmæti til framtíðar. Þama er um að ræða Fljótsdalsvirkjun og álver í Reyðar- firði en álver eða önnur stóriðja er forsenda virkjunaráætlana. Norsk Hrafnsson myndlistarmaður, Krist- inn Sigmundsson óperusöngvari, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá myndlistarmaður, Kristjana Samper myndlistarmaður, Kristján Hreins- son rithöfúndur, Kristján Þ. Steph- ensen óbóleikari, Laufey Sigurðar- dóttir fiðluleikari, Lára Stefánsdótt- ir dansari, Lárus Ýmir Óskarsson kvikmyndagerðarmaður, Magnús Pálsson myndlistarmaður, Magnús Tómasson myndlistarmaður, Mart- ial Guðjón Nardeau flautuleikari, Messíana Tómasdóttir leikmynda- hönnuður, Mist Þorkelsdóttir tón- skáld, Ólafur Gunnarsson rithöfund- ur, Ósk Vilhjálmsdóttir myndlistar- maður, Páll Steingrímsson kvik- myndagerðarmaður, Pétur Gunn- arsson rithöfundur, Ragnhildur Gísladóttir leikkona og söngvari, Ragnhildur Stefánsdóttir mynd- höggvari, Rúrí myndlistarmaður, Sigrid Valtingojer grafíklistamaður, Sigrán Eðvaldsdóttir fiðluleikari, Sigrán Hjálmtýsdóttir óperusöng- Hydro er þátttakandi í áætlunum um fyrirhugað álver og er stór hluti þess í eigu norska ríkisins," segir í áskoruninni. Skorað er á ríkisstjórn Noregs að virða leikreglur og lög um mat á umhverfisáhrifum sem gilda t.d. í Noregi og voru sett á Islandi 1993 en „ríkisstjórn okkar virðist vera tilbúin að sniðganga. Við skorum á ríkisstjóm Noregs að beita sér fyrir því að Norsk Hydro dragi sig út úr samningum við íslendinga á meðan slík vinnubrögð eru viðhöfð." kona, Siguijón Birgir Sigurðsson (Sjón) skáld, Snorri Sigfús Birgis- son tónlistarmaður, Steinunn Mar- teinsdóttir leirlistarkona, Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur, Stein- unn Þórarinsdóttir myndhöggvari, Tinna Gunnlaugsdóttir leikkona, formaður Bandalags íslenskra lista- manna BÍL, Tómas R. Einarsson tónlistarmaður, Valgerður Bergs- dóttir myndlistarmaður, Valgerður Hauksdóttir myndlistarmaður, Vignir Jóhannsson myndlistarmað- ur, formaður Sambands íslenskra myndlistarmanna SÍM, Vilborg Halldórsdóttir leikkona, Þorbjörg Þórðardóttir myndlistarmaður, Þor- kell Sigurbjömsson tónskáld, Þor- lákur H. Morthens (Tolli) myndlist- armaður, Þorsteinn frá Hamri skáld, Þorsteinn Hauksson tón- skáld, Þorvaldur Þorsteinsson myndlistarmaður og rithöfundur, í Þórður Hall myndlistarmaður, Þórður Helgason rithöfundur og Öm Þorsteinsson myndlistarmaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.