Morgunblaðið - 24.11.1999, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Héraðsdómur Norðurlands eystra fellir dóma í nokkrum árásarmálum
Dæmdur í skilorðsbundið
fangelsi fyrir lfkamsárás
TVÍTUGUR karlmaður hefur verið
dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands
eystra í tveggja ára skilorðsbundið
fangelsi fyrir líkamsárás.
Maðurinn var kærður fyrr á ár-
inu fyrir að hafa á dansleik á
Breiðumýri í Reykjadal í Suður-
Þingeyjarsýslu í nóvember á liðnu
ári slegið mann í höfuðið með bjór-
flösku. í gögnum málsins kemur
fram að árásin hafi verið tilefnis-
laus, en með því að nota glerflösku
hafði árásin töluverða hættu í för
með sér fyrir brotaþola sem hlaut
þó ekki alvarlega áverka. Maðurinn
viðurkenndi verknaðinn.
Héraðsdómnur Norðurlands
eystra hefur einnig dæmt mann um
tvítugt fyrir líkamsárás, en hann
skallaði rúmlega fertugan mann í
félagsheimilinu Þórsveri á Þórshöfn
í janúar síðastliðnum með þeim af-
leiðingum að hann hlaut djúpan
skurð í andliti. Dómurinn hljóðaði
upp á 30 daga fangelsi en fullnustu
refsingar frestað og hún mun niður
falla að tveimur árum liðnum haldin
hann almennt skilorð.
Þá var rúmlega tvítugur maður á
Akureyri dæmdur í tvegga ára skil-
orðsbundið fangelsi í Héraðsdómi
Norðurlands eystra fyrir líkams-
árás, en hann var kærður fyrir að
hafa slegið mann hnefahögg í and-
litið þannig að hann hlaut sár af.
Bótakrafa brotaþola hljóðaði upp á
tæpar 250 þúsund krónur, en mað-
urinn greiddi fullar skaðabætur
meðan á meðferð málsins stóð fyrir
dómi.
Atján ára pOtur hefur í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra verið
dæmdur til sektargreiðslu í ríkis-
sjóð en hann var kærður fyrir ölvun
og óspektir á almannafæri, m.a.
með því að klifra upp á húsþak,
öskra, hrækja og láta öllum illum
látum þegar lögregla hafði af hon-
um afskipti. Með broti sínu rauf
hann skilorð héraðsdóms frá því á
síðasta ári.
Réðst að lögreglu-
mönnum
Loks hefur Héraðsdómur Norð-
urlands eystra dæmt rámlega tví-
tugan mann í 60 daga fangelsi, skil-
orðsbundið til þriggja ára en hann
var kærður fyrir brot gegn vald-
stjórninni með því að hafa við fé-
lagsheimilið Tjamarborg í Ólafs-
firði ráðist að tveimur lögreglu-
mönnum með hótunum um ofbeldi
er þeir voru að gegna skyldustörf-
um auk þess að hindra þá í að færa
bróður hans, sem þá var handtek-
inn, í lögreglubifreið. Þá sló hann og
sparkaði í annan lögreglumanninn
og beit hann í kjálkann þannig að
hann hlaut meiðsl af.
Maðurinn viðurkenndi að hafa
viðhaft það athæfi sem áður er lýst
en kvaðst hafa verið mjög drukkinn
umrædda nótt, hann sæi eftir gjörð-
um sínum og hefði greitt fullar
skaðabætur þegar eftir var leitað.
Skákþing
Norðlend-
inga í opn-
um flokki
SKÁKÞING Norðlendinga
fyrir árið 1999 í opnum flokki
verður haldið að Skipagötu 18,
2. hæð, og hefst það fimmtu-
daginn 25. nóvember kl. 20.
Tefldar verða sjö umferðir
eftir norræna Monrad-kerf-
inu. Mótið hefst með því að
tefldar verða tvær umferðir,
atskákir.
Hraðskákmót
á sunnudag
Þá verða tefldar tvær um-
ferðir á föstudag og laugardag
en ein á sunnudag, 28. nóvem-
ber, og með því lýkur Skák-
þingi Norðlendinga.
Hraðskáksmót Norðlend-
inga verður einnig haldið á
sunnudag, 28. nóvmeber, og
hefst það kl. 15.
Hjartagæslutæki af fullkomnustu gerð afhent Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
Stórbæta þjónustu
við sjúklinga með
hj artasj úkdóma
HJARTAGÆSLUTÆKI af full-
komnustu gerð hafa verið tekin
í notkun á lyflækningadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri. Tækin eru gefin af Félagi
hjartasjúklinga á Eyjafjarðar-
svæðinu og Landssamtökum
hjartasjúklinga, auk framlags úr
gjafasjóði lyflækningadeildar.
Tækin, sem kosta um 11 millj-
ónir króna, eru gefín til minn-
ingar um Þorstein Svanlaugs-
son, sem var einn af stofnendum
félagsins á Eyjaíjarðarsvæðinu
og var virkur þátttakandi í
starfí þess. Þessi nýju hjarta-
gæslutæki stórbæta alla þjón-
ustu á FSA við sjúklinga með
hjartasjúkdóma, bæði hvað
Sigurhæðir
Ástarljóð
ÁTTUNDA ljóðakvöld vetrar-
ins verður í kvöld, miðviku-
dagskvöldið 24. nóvember í
Sigurhæðum, Húsi skáldsins.
Þar sem skammdegismán-
uðurinn ýlir fer í hönd verður
Ijóðakvöldið helgað ástinni í ís-
lenskum kveðskap.
Húsið er opið írá kl. 20 til
22, en flutningur dagskrár
hefst kl. 20.30.
varðar öryggi þeirra svo og
fljótari greiningarmöguleika á
sjúklingum með yfírvofandi
kransæðastíflu.
Meðal nýjunga í hugbúnaði
þessra hjartagæslutækja er svo-
kallað MIDA-kerfí, sem gefur
möguleika á að fylgjast með
starfsemi hjartans mun nákvæm-
ar en áður hefur tíðkast, þá sér-
staklega með tilliti til blóðþurrð-
arsjúkdóma í hjarta. Þetta er
mjög mikilvægt hvað varðar nú-
tíma meðferðarmöguleika gegn
bráðum hjartasjúkdómum.
Eftirlit með átta
sjúklingum í einu
Hjartagæslutækin er þau
fyrstu af þessari kynslóð sem
tekin eru í notkun hér á landi.
Hugbúnaðurinn er frá tölvufyr-
irtækinu Hewlett Packard og
gefur hann möguleika á eftirliti
með átta sjúklingum, þremur
hjartagæslutækjum fyrir sjúk-
linga á rúmlegu og fimm sendi-
tækjum sem gera kleift að fylgj-
ast með sjúklingum sem komnir
eru með fótaferð.
Landssamtök hjartasjúklinga
hafa stutt vel við bakið á heil-
brigðisstofnunum í gegnum tíð-
ina og á þessu ári hafa samtökin
gefíð tæki til heilbrigðisstofnana
víða um land fyrir yfir 30 miHj-
ónir króna.
Blaðbera
vantar í eftirtalin hverfi
HuldugilA/ættagi.l
Oddeyrargötu/Brekkugötu
Blaðburður verður að hefjast um
leið og blaðið kemur í bæinn
Góður göngutúr sem borgar sig
Morgunblaðið
Kaupvangsstræti 1, Akureyri
sími 461 1600
Morgunblaðiö leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og
upplýsingar. Morgunblaöiö er eina dagblaðið á íslandi sem er ( upplagseftirliti og eru seld að
meðaltali rúmlega 54.000 eintök á dag. Höfuöstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík
þar sem eru yfir 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913. Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
í
!B« í f
|S|
' *
' < - ! 'Il|
Gísli J. Eyland, formaður Landssamtaka hjartasjúklinga, og formaður Félags hjartasjúklinga á Eyjafjarð-
arsvæðinu, afhendir Birni Guðbjörnssyni, yfirlækni lyflækningadeildar, gjafabréf fyrir hjartagæslutækin.
Fundur á Fosshóteli KEA á Akureyri
Aform um svifbraut
upp á Hlíðarfjall
ÁHUGAMENN um uppsetningu
svifbrautar upp á Hlíðarfjall við
Akureyri boða til fundar á Fosshót-
eli KEA á morgun, fimmtudaginn
25. nóvember, kl. 20.
Ralth Nachbaur, verkfræðingur
hjá Doppelmaier í Austurríki, flytur
erindi á fundinum og einnig þeir
Jónas Frímannsson, yfirverkfræð-
ingur hjá Istaki, og Jón Bjömsson,
sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Norð-
lendinga.
Hugmyndir um uppsetningu svif-
brautar upp á Hlíðarfjall hafa verið
lengi í umræðunni og hefur Sveinn
Jónsson, framkvæmdamaður í
Kálfsskinni, farið þar fremstur í
flokki. Sveinn sagði að fundurinn á
morgun væri haldinn til að upplýsa
þá aðila sem áhuga hafa á því að
reisa slíkt mannvirki í Hlíðarfjalli.
Hann sagði málið komið á vinnslu-
stig og að m.a. væri unnið að við-
skiptaáætlun fyrir verkið.
Samveru-
stund eldri
borgara
SAMVERUSTUND með eldri
borgurum verður í Safnaðar-
heimilinu á Akureyri fimmtu-
daginn 25. nóvember og hefst
hún kl. 15. Ræðumaður verður
Björn Þorleifsson skólastjóri.
Harmonikkunemendur úr Tón-
listarskólanum á Akureyri
leika og þá verður almennur
söngur og endað með helgi-
stund auk þess sem boðið verð-
ur upp á kaffiveitingar. Bílferð
verður frá Kjarnalundi kl.
14.15, frá Hlíð kl. 14.30 og úr
Víðilundi kl. 14.45.
Þórshafnar- og Svalbarðshreppur
Ferðamálafélagið Súlan stofnað
FERÐAMÁLAFÉLAGIÐ Súlan
var nýlega stofnað í Þórshafnar- og
Svalbarðshreppi, en nafnið skírskot-
ar til hinnar miklu súlubyggðar á
Langanesi.
Markmið félagsins er að treysta
norðausturhorn landsins í sessi sem
áhugaverðan kost ferðamanna, inn-
lendra sem erlendra. Svæðið Þistil-
fjörður-Langanes er æði mörgum
óþekkt þó sífellt fleiri ferðamenn
leggi þangað leið sína. Engu að síð-
ur er það svo að til að mynda Langa-
nesið er því sem næst ónumið land
en möguleikar sem þar bjóðast mikl-
ir og mun félagið í samvinu við aðra
í ferðaþjónustu vinna að uppbygg-
ingu þess.
Óvíða á íslandi er jafnauðvelt að
kynnast andrámslofti liðins tíma og
á þessum slóðum, víða blasa við
verksummerki gamalla atvinnuhátta
og merkum, gömlum byggingum
hefur verið sýnd mikil virðing og
rækt segir í frétt frá félaginu. í sam-
vinnu við Þjóðminjasafn er gamli
prestbústaðurinn á Sauðanesi í end-
urbyggingu og mun ásamt umhverfi
verða opnaður gestum árið 2000 eða
2001 eftir því sem verki miðar.
I stjórn félagsins voru kosin þau
Mirjan Blekkenhorst, formaður,
Guðni Hauksson, gjaldkeri, Karen
Konráðsdóttir, ritari og Bjarnveig
Skaftfeld og Magnús Már Þorvalds-
son.