Morgunblaðið - 24.11.1999, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
i_________________________&_____»_____________ , . i. ,aa n r r v, wpaar,., ,.ir ______i____________
Helena Steinþórsdóttir, Brautarhoiti, og Valgerður Kristmundsdótt- Veggskreytingar í skólanum vöktu athygli.
ir, Haga, sneiða afmælistertu í kaffiboðinu.
Flúðaskóli 7 0 ára
Fjölmenn afmælishátíð og kynning á skólastarfínu
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Nemendur í Flúðaskóla voru sumir vel skreyttir á afmælishátíðinni.
Hrunamannahreppi - Vegleg af-
mælishátíð var haldin í Flúða-
skóla fimmtudaginn 18. nóvember
þar sem þess var minnst að sjötíu
ár eru síðan skólinn tók til starfa.
Athöfnin hófst í íþróttahúsinu
með ávarpi skólastjórans, Bjarna
H. Ansnes. Nokkrir tóku til máls
og færðu skólanum gjafír fyrir
hönd félagasamtaka eða einstakl-
inga um leið og þeir fluttu skólan-
um árnaðaróskir. Aðaldagskráin
var fjölbreytt kynning á skóla-
starfinu.
Nemendur og kennarar
skreyttu veggi í skólastofum og á
göngum með margvíslegum teikn-
ingum og úrklippum. Sjá mátti
sögusýningu frá starfsemi skól-
ans, sem var afar fróðleg, einnig
sýningu af myndbandi frá ýmsu í
skólastarfinu og tölvuverið var
opið og sýndu nemendur nokkuð
af þeirri tækni sem tölvur hafa
uppá að bjóða, svo eitthvað sé
nefnt. íþróttastarfið var kynnt,
en það er mjög öflugt og má geta
þess að nemendur hafa náð góð-
um árangri í körfubolta í sínum
aldurshópum í keppni víðsvegar á
landinu. Nemendurnir stóðu fyrir
kaffihúsi þar sem meðal annars
voru bornar fram veglegar af-
mælistertur. Fjölmenni heimsótti
skólann á afmælishátíðinni sem
þótti takast vel.
I Flúðaskóla eru nú 167 nem-
endur í 1.-10. bekk, kennarar eru
19 auk þroskaþjálfa og þriggja
skólaliða. Alls vinna 30 manns við
skólann og eru skólabílstjórar þá
ekki taldir með.
Barnaskólinn á Flúðum tók til
starfa 27. október 1929 og var
skólahúsið reist þá um sumarið og
þótti vegleg bygging á þeirra
tíma mælikvarða. Mun það hafa
verið þriðja barnaskólahúsið á
landinu með heimavist, en Arnes-
þing var fyrst allra sýslufélaga að
leggja niður gömlu farskólana.
Landið sem skólinn var byggður á
er úr jörðinni Hellisholtum og
mun góður aðgangur að jarðhita
hafa skipt nokkrum sköpum um
staðarval. Einnig það að Flúðir
eru miðsvæðis í sveitinni.
Nýr skóli var síðan tekinn í
notkun haustið 1968. Var þá gert
ráð fyrir 60 nemendum og flest-
um í heimavist. Gagnfræðapróf
tóku nemendur við skólann fyrst
1975, en með nýju grunnskólalög-
unum lagðist það af þegar sam-
ræmdu prófin tóku við og 6 ára
nemendur urðu skólaskyldir.
Heimavist lagðist endanlega af
1991 og hafði þá verið að fjara út
um nokkurt skeið og akstur nem-
enda til og frá skóla tók við. Hús-
næði skólans er fyrir löngu orðið
of lítið, eru nemendur í 8.-10.
bekkjum einnig úr Skeiða- og
Gnúpverjahreppi. Er tveimur
bekkjardeildum kennt í félags-
heimilinu. Haustið 1998 fékk skól-
inn mjög fullkomið tölvukerfi sem
allt er nettengt, en 23 tölvur eru
notaðar í skólanum.
Skólastjórar hafa verið 11 frá
upphafi og var Ingimar H. Jó-
hannesson fyrsti skólastjórinn en
Bjarni H. Ansnes hefur gegnt
stöðu skólastjóra síðan 1972. Þá
er leikskóli rekinn í tengslum við
skólann með þeirri námskrá fyrir
leikskóla sem nýlega tók gildi og
eru nú 52 börn í leikskólanum en
munu fjölga nokkuð eftir áramót-
in. Skólastjóri leikskólans er
Hanna Málmfríður Harðardóttir.
Gaulverja-
bæjarkirkja
Fjöl-
menni í
90 ára
afmælis-
messu
Gaulverjabæ - Fjöldi gesta,
alls um 140 manns, mættu í
messu og afmælishóf vegna 90
ára vígsluafmælis kirkjunnar í
Gaulverjabæ.
Vígslubiskup, séra Sigurður
Sigurðarson í Skálholti, flutti
prédikun. Einnig heimsótti
staðinn séra Magnús Guðjóns-
son fyrrum sóknarprestur, en
séra Valgeir Ástráðsson
komst ekki vegna veru erlend-
is. Séra Sigurður bar lof á
kirkjuna sjálfa og umhverfi
hennar. Hins vegar væri sókn-
in það fámenn að í raun bæri
ekki lengur skylda tO að halda
úti sóknarstarfi, en slíkt væri
alfarið í höndum sóknarbarna
og góð mæting bæri vott góð-
an hug fólks til kirkjunnar.
Að messu lokinni var af-
mælishóf í félagsheimilinu Fé-
lagslundi. Formaður sóknar-
nefndar, Guðrún
Jóhannesdóttir, Fljótshólum,
setti samkomuna og að loknu
veislukaffi söng Berglind Ein-
arsdóttir nokkur lög við góðar
undirtektir. Píanóundirleik
annaðist Robert Darling.
Að því loknu flutti Helgi ív-
arsson í Hólum, bóndi og
fræðaþulur, sögu kirkjunnar í
ítarlegu og fróðlegu erindi.
Prestakallið var eftirsótt fyrr
á öldum og tengsl náin við
Skálholt og Skálholtsbiskupa.
Hann kvað Gaulverjabæjar-
prestakall hafa verið eitt hið
fjölmennasta á landinu í byrj-
un 18. aldar. Einnig ávarpaði
séra Magnús samkomuna, en
hann þjónaði kirkjunni í 20 ár,
en séra Úlfar Guðmundsson
kvaðst vera að ná honum,
búinn með 19 ár í starfi. Hann
kvað gæfu kirkjunnar að eiga
trútt starfsfólk en hins vegar
vildi hann sjá meira af yngra
fólkinu koma að safnaðar-
starfinu.
MOGGABÚÐIN _
íslandspóstur hf
er ný verslun á mbl.is. Þar getur þú keypt boli, töskur, klukkur o.fl. á einstöku verði beint af Netinu og á öruggan
hátt. Þú skoðar vörurnar og pantar á mbl.is og (slandspóstur sendir þær heim til þín eða á vinnustað.
EINFALT 0 G ÞÆGILEGT!
<|>mbl.is
Þú getur iíka komið við hjá okkur í Morgunblaðshúsinu Kringlunni 1 og keypt vörurnar þar. ^alltaf eitthvao hýtt~
mbL.i