Morgunblaðið - 24.11.1999, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuters
Hrapaði á rafmagnslínur
Óþekkt
veira fellir
tíu manns
TÍU manns hafa látist í Hol-
landi síðustu tíu daga af völd-
um óþekktrar veiru. Fórnar-
lömbin dvöldu öll á
hjúkrunarheimili í bænum
Wassenaar í útjaðri Haag, en
15 aðrir vistmenn munu vera
alvarlega sjúkir.
Niðurstöður bráðabirgðar-
annsókna á blóð- og þvagsýn-
um benda ekki til þess að um
sé að ræða salmonellusýk-
ingu eða hermannaveiki, eins
og talið var í fyrstu. Heil-
brigðisyfirvöld í Hollandi
hafa verið á verði síðan 28
manns létust af völdum her-
mannaveiki á blómasýningu
nálægt Amsterdam í febrúar.
Mun það vera alvarlegasta
tilfelli hermannaveiki sem
upp hefur komið síðan sjúk-
dómurinn var fyrst greindur
í Bandaríkjunum árið 1976.
Fella kosn-
ingarétt
kvenna
ÞING Kúvaíts felldi í gær úr
gildi tilskipun emírsins um að
konum yrði veittur kosninga-
réttur og kjörgengi. Stuðn-
ingsmönnum þess að konur
fengju þessi réttindi tókst þó
að koma frumvarpi þess efnis
á dagskrá þingsins, og verð-
ur það tekið til umfjöllunar á
þriðjudag.
41 af 62 viðstöddum þing-
mönnum greiddi atkvæði
gegn tilskipun emírsins, en
flestir þeirra eru súnní-músl-
imar og höfnuðu henni af
trúarlegum ástæðum. Aðrir
felldu tilskipunina vegna
þess að lög kveða á um að
emír taki ekki ákvarðanir án
þess að ráðfæra sig við þingið
nema mikið liggi við. Flestir
þeirra sem samþykktu til-
skipunina eru sjítar.
Engin
leiftursókn
að Grosní
UTANRÍKISRÁÐHERRA
Rússlands, ígor Sergejev,
sagðist í gær telja að rúss-
neski herinn gæti náð Grosní,
höfuðborg Tsjetsjníu, á sitt
vald án blóðsúthellinga, og
útilokaði að gerð yrði leift-
ursókn á borgina. Sagðist
hann búast við að öldungar
borgarinnar myndu ráð-
leggja skæruliðum að leggja
á flótta svo Grosní yrði
þyrmt, eins og gerst hefði í
Gudermes, annarri stærstu
borg Tsjetsjníu.
Rússar hafa tekið sér
stöðu við útjaðra Grosní til
norðurs, austurs og vesturs,
en skæruliðar styrktu í gær
lið sitt suður af borginni, til
að reyna að koma í veg fyrir
að Rússar næðu að um-
kringja hana algerlega.
Utgefandi
handtekinn
ÍSRAELSKA lögreglan
handtók í gær Ofer Nimrodi,
útgefanda dagblaðsins Ma-
ariv, nokkrum vikum eftir að
hann var sakaður um að hafa
lagt á ráðin um morð á tveim-
ur keppinautum sínum.
JAPÖNSK herflugvél á æfinga-
flugi hrapaði í fyrradag á raflínur
við bæinn Sayama, skammt norð-
ur af Tókýó. Tveggja manna
IRAKAR stöðvuðu í gær allan olíu-
útflutning til að mótmæla fyrirhug-
aðri ályktun öryggisráðs Samein-
uðu þjóðanna en þeir segja, að hún
sé ígildi stríðsyfirlýsingar. A mánu-
dag stöðvuðu þeir útflutning um
hafnarborgina Ceyhan í Tyrklandi
og það olli því, að olíuverðið fór í 27
dollara hvert fat í New York. Hefur
það ekki verið hærra í níu ár.
Iraska stjómarmálgagnið Al-Ir-
aq sagði í gær, að Irakar gætu ekki
sætt sig við áframhaldandi refsiað-
gerðir og ályktunin, sem væri til
umræðu í öryggisráðinu, væri
„samsæri Bandaríkjamanna og
zíonista og ígildi stríðsyfirlýsingar
á hendur Irökum“.
Segja Irakar, að í ályktuninni,
sem Bretar hafa lagt fram, sé gert
ráð fyrir stofnun nýrrar vopnaeftir-
litsnefndar með sama umboð og
„njósnanefndin", sem þeir kalla
svo, vopnaeftirlitsnefndin, Unscom,
sem írakar ráku úr landi fyrir ári.
SUDRAJAT hershöfðingi, tals-
maður indónesíska hersins, sagði í
gær að full ástæða væri til að
setja herlög í Aceh-héraði, þar
sem hreyfmgu aðskilnaðarsinna
hefur vaxið fiskur um hrygg und-
anfama mánuði. Sagði hann að
herinn myndi enn um sinn bíða át-
ekta, en væri tilbúinn að grípa inn
í ef til óeirða kæmi. Indónesíska
stjórnin hefur eindregið lagst
gegn setningu herlaga í Aceh.
Widodo Adisutjipto aðmíráll, yf-
irmaður indónesíska hersins, var-
aði í gær við uppgangi aðskilnað-
arsinna í Aceh. Sagði hann í ræðu
á indónesíska þinginu að skærul-
iðar hefðu haft frjálsar hendur til
að breiða út áróður gegn stjórn-
áhöfn þotunnar fórst og um
800.000 manna byggð varð raf-
magnslaus.
Skall þotan til jarðar skammt
Síðan hafa þeir neitað að fallast á
skipan nýrrar vopnaeftirlitsnefnd-
ar og krefjast þess, að refsiaðgerð-
unum, sem hafa verið í gildi síðan
1990, verði aflétt.
Hafna
framlengingu
Samkvæmt samkomulagi við
Sameinuðu þjóðimar hefur Irökum
verið leyft að selja olíu fyrir um 384
milljarða ísl. kr. á hverju misseri og
átti þriðjungurinn af tekjunum að
fara til kaupa á matvælum, lyfjum
og öðmm nauðsynjum. Samkomu-
lagið er runnið út en SÞ framlengdi
það um tvær vikur meðan verið er
að ræða framhald þess og stefnuna
gagnvart Irak almennt.
Irakar féllust ekki á framleng-
inguna og segjast ekki una þessum
inni í Jakarta og grafa undan
trausti á getu hennar og vilja til
að leysa deiluna. Adisutjipto sagði
að ekki færri en 259 manns, þar af
88 indónesískir hermenn, hefðu
fallið í skærum í héraðinu á und-
anfömu ári. Lögregla ber nú
ábyrgð á öryggismálum í Aceh, en
aðmírállinn sagði að herinn væri
reiðubúinn að „aðstoða" við að
koma á lögum og reglu ef þess
gerðist þörf
Tilkynnt var í gær að sérstök
þingnefnd yrði skipuð til að rann-
saka ásakanir í garð hersins um
mannréttindabrot í Aceh. Munu
núverandi og fyrrverandi yfir-
menn hersins verða kallaðir fyrir
nefndina. Sagði Adisutjipto að
frá barnaskóla. Hér rannsaka lög-
reglumenn og sérfræðingar frá
japanska flughemum verksum-
merki á slysstað í gær.
samningum lengur þar sem þeir
séu ekkert annað en hluti ai refsi-
aðgerðunum gegn þeim. A mánu-
dag stöðvuðu þeir olíudælingu um
900 km langa leiðslu frá Kirkuk til
tyrknesku hafnarborgarinnar
Ceyhan og í gær átti að stöðva út-
flutning um írösku hafnarborgina
Mina al-Bakr við Persaflóa.
V arahlutaskortur
Innan öryggisráðsins er ágrein-
ingur milli vestrænna ríkja og
Rússlands um stefnuna gagnvart
írak. Vilja þau fyrmefndu endur-
reisa vopnaeftirlitsnefndina og
framlengja fyrri samning um „olíu
fyrir matvæli" en Rússar vilja, að
refsiaðgerðum verði aflétt, fallist
írakar á nýja vopnaeftirlitsnefnd.
Þá vilja þeir einnig, að írakar fái að
saksóknarar hersins hefðu á þessu
ári ákært 151 hermann fyrir glæpi
gegn óbreyttum borgumm í Aceh,
þar á meðal fyrir pyntingar og
nauðganir.
Átök á afmæli samtaka
aðskilnaðarsinna?
Lögregluyfirvöld í Indónesíu
sendu í gær 870 sérþjálfaða lög-
reglumenn til Aceh. Munu þeir
verða til taks ef til óeirða kemur í
tengslum við 23 ára afmæli sam-
taka aðskilnaðarsinna 4. desember
næstkomandi, en leiðtogar sam-
takanna krefjast þess að stjórn-
völd verði þá búin að svara því
hvort verði af almennri atkvæða-
greiðslu um sjálfræði héraðsins.
Hitler beitt
gegn kulda
á Taívan
Taípei. AP.
TAÍVANSKT fyrirtæki, sem selur i
þýzka rafmagnsofna, hefur sannar-
lega tekizt að vekja athygli með 1
nýjustu auglýsingaherferð sinni. Á [
vegum fyrirtækisins hafa verið sett
upp risastór veggspjöld á neðan-
jarðarjárnbrautarstöðvum í Taípei,
höfuðborg eyríkisins, þar sem
Adolf Hitler, teiknaður í skrípó-
myndastíl, stendur brosandi með
útréttan arminn að nazistasið. Yfir
myndinni stendur: „Lýsum yfir
stríði á hendur kuldaskilunum!"
Enginn hakakross sést í auglýs- j
ingunni, en á rauðu armbindinu á
vinstri upphandlegg Hitlers er nafn I
þýzka framleiðandans, DBK, skrif-
að í hvíta hringinn í hans stað.
Þýzkir erindrekar í Taívan hafa
fordæmt auglýsinguna og þýzka
ofnaverksmiðjan hefur krafizt þess
að auglýsingarnar verði tafarlaust
teknar niður.
„Við ákváðum að nota Hitler því
að um leið og maður sér hann hugs- ,
ar maður um Þýzkaland. Það er eft-
ir því tekið,“ segir Yu-shan Shen, §
fulltrúi K.E. and Kingstone-heild- v
sölunnar, sem lét gera auglýsing-
kaupa varahluti fyrir olíuiðnaðinn
fyrir 44 milljarða ísl. kr. en Rússar
segja, að Irakar hefðu hvort eð er
neyðst til að draga úr útflutningi
vegna varahlutaskorts.
Meira en samdrátturinn
hjáOPEC
Irakar hafa flutt út rúmlega 2,3
milljónir olíufata á dag og munar
um minna á heimsmarkaði. Til
samanburðar má nefna, að OPEC,
Samtök olíuútflutningsríkja,
ákváðu í mars sl. að minnka fram-
leiðsluna um 2,1 milljón olíufata á
dag og hefur það orðið til að hækka
verðið verulega.
Fátækt í
Moskvu
ÖLDRUÐ rússncsk kona falbýður
notaða peysu fyrir utan fatabúð í
neðanjarðarlestarstöð f Moskvu í
gær. Fólk á eftirlaunaaldri í
Rússlandi býr nú við mjög kröpp
kjör, sem knýr marga til að reyna
að verða sér úti um smáviðbótar-
aura með öllum tiltækum ráðum.
amar.
Irakar ákveða að stöðva
allan olíuútflutning
Bagdad, New York. AFP, AP, Reuters.
Getur haft veruleg áhrif á olíuverð
standi stöðvunin í einhvern tíma
Indónesíski herinn hefur áhyggjur af einingu ríkisins
Telur ástæðu til að
setja herlög í Aceh
Jakarta. AFP, AP, Reuters.