Morgunblaðið - 24.11.1999, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999 3T
Koma blökku-
svínsins
ÞAÐ verður margs
að minnast frá árinu
1999, síðasta ári 20. al-
darinnar á íslandi.
Eitt og annað gerðist í
einkalífinu eins og
gengur og það gekk á
ýmsu í þjóðmálaum-
ræðunni sem marka
mun þetta ár. Það
voru kosningar til Al-
þingis þar sem ullar-
peysu kommúnismi
reis upp til virðingar
um áratug eftir hrun
Berlínarmúrsins. Það
var rifist heiftarlega
um hálendisblett sem
þjóðin uppgötvaði á
árinu. Fjölmiðlar og yfirvöld fyllt-
ust fíkniefnafári og klámæði og
Mick Jagger hjólaði um Isafjörð
eins og hver annar útgerðarmaður.
En minnisstæðast verður árið
fyrir þomu blökkusvínsins og með-
ferð íslendinga á því. Þjóðin deildi
nefninlega nokkuð um það á síðasta
ári aldarinnar hvort hún væri for-
dómafull, t.a.m. í tengslum við
kristni og hómósexúalisma og sam-
kynhneigð og ættleiðingar. Þjóðin
var líka afskaplega ánægð með
sjálfa sig þegar veita þurfti flótta-
fólki frá horfnum ríkjum Júgósla-
víu skjól. En svo kom blökkusvínið.
Farðu beina leið í steininn
Þegar blökkusvínið kom til
landsins var skilmerkilega greint
frá því í öllum fjölmiðlum landsins.
Blökkusvínið, sem er brúnt svín frá
Noregi, birtist á skjánum, rataði á
síður Morgunblaðsins, Dagblaðsins
og Dags og það var sagt frá því í
Netmogganum og á Vísi og út-
varpsstöðvarnar voru með beinar
útsendingar þar sem sagt var frá
ævintýrum þessa svíns sem var
fyrsta blökkusvínið sem lagði leið
sína til Islands.
Og hvað var svo gert við blessað
blökkusvínið? Jú, því var að sjálf-
sögðu skutlað beina leið í einangr-
un á fangaeyju í Eyjafirði.
Fjölmiðlar fengu ekki að taka viðtal
við blökkusvínið - þannig að við vit-
um ekki svar þess við spumingunni
sem íslandsvinir fá gjarnan að
spreyta sig á, þ.e. hvernig því líkar
ísland. Ekki var heldur rætt við
önnur svín, íslensk og bleik, um það
hvað þeim þætti um komu blökku-
svínsins og því greinilegt að all-
sherjar samsæri var í gangi um að
þegja niður alla umræðu um skoð-
anir blökkusvínsins og viðhorf ann-
arra svína um komu þess til Is-
lands. Blökkusvínið fór beina leið í
steininn.
í sjálfheldu á fangaeyju
Blökkusvínið var ekki spurt
hvort það vildi flytja til
íslands. Það var ein-
faldlega hrakið frá
heimili sínu í Noregi
þar sem það undi hag
sínum með öðrum
blökkusvínum, þangað
til bleiknefjar fluttu
það nauðugt til ís-
lands. Engu að síður
hélt utanríkisráðherra
og formaður Fram-
sóknarflokksins engan
blaðamannafund í
flugskýlinu, þótt mað-
ur skyldi ætla að hon-
um væri málið skylt út
frá mörgum hliðum.
Flokkur hans hefur
t.d. verið málsvari hófdýra og
klaufdýra af öllum hugsanlegum
gerðum í áratugi. Bæði klaufdýra
sem ætluð eru til matar og klauf-
Svínainnflutningur
Ég mun minnast þessa
árs fyrir það eitt, segir
Heimir Már Pétursson,
að 1999 var árið sem
---------------------------7---
blökkusvínið kom til Is-
lands.
dýra sem kljúfa og flytja sig milli
framboðslista, eða kljúfa þjóðina í
herðar niður vegna heiðar og gæsa
sem sökkva á undir vatn. Gott að
gæsir eru bæði syntar og fleygar.
En það er öllu verr komið fyrir
blökkusvíninu sem fékk enga ráð-
herramóttöku. Það getur hvorki
synt né flogið og er þess vegna í al-
gem sjálfheldu úti í Hrísey og veit
ekki að til stendur að misnota það
kynferðislega.
Nú er það þannig með íslensku
þjóðina að hún sleppir engu tæki-
færi sem henni gefst til að ræða
stór og mikil þjóðþrifamál. Það sést
á umræðu íslenskra fjölmiðla og
það má heyra bergmálið af þessari
þjóðþrifaást óma út á Austurvöll
stóran hluta ársins. Þess vegna
hlýtur þjóðin að kveikja íturvaxna
umræðu um hagi og réttindi
blökkusvínsins, um kynferðislega
misnotun þess, hreppaflutninga og
frelsissviptingu.
Það er alger óþarfi að eyða mikl-
um tíma í umræður um hagstjóm-
armistök ríkisstjómarinnar, hag
þeima sem vita ekki að árið 1999 á
víst að vera hápunktur góðæris og
slíka vitleysu. Þjóðin hlýtur að vera
sjálfri sér samkvæm og ræða má-
lefni blökkusvínsins í nokkra mán-
uði - frá morgni til kvölds - og
Heimir Már
Pétursson
Orka
Það er auðvelt að ætla
að bjarga heiminum,
segir Guðmundur E.
Sigvaldason, meðan
maður situr spenntur í
sætisólar ofan við
veðrahvörf.
virðist smitaður af þessum málf-
lutningi og gerir hann að sínum án
athugasemda, og hnykkir á með því
að gera Islendinga siðferðilega
ábyrga gagnvart mannkyninu. Það
er óhjákvæmilegt að spyrja á móti
hver sé siðferðileg ábyrgð Islend-
inga gagnvart sjálfum sér og land-
inu, sem þeim er trúað fyrir? Hvort
vegur meira stórfelld röskun á ís-
lenskri náttúm eða ávinningur af
notkun hreinnar raforku til að fram-
leiða agnarsmáan hluta þess áls,
sem heimurinn telur sig þurfa? Er
hugsanlegt að siðferðið sé ekki tvöf-
alt, heldur margfalt? Getur verið að
formaður Iðnaðarnefndai' Alþingis
hafi eitthvað allt annað í huga en að
bjarga heiminum? Er hann að koma
sér upp siðferðilegri afsökun fyrir
nefndaráliti, sem hann þarf að mæla
fyrir? Væri ekki betra að segja
hreint út að virðing hans fyrir land-
inu vegi minna en vonin um fjár-
hagslegan ágóða af orkusölu? Slíkt
væri að minnsta kosti heiðarlegt.
Jákvæða hliðin á grein Hjálmars
ijallar um nýtingu vetnis. Hann hef-
ur verið ötull baráttumaður fyrir
rannsóknum og tilraunum með
notkun vetnis í stað hefðbundins
eldsneytis. Ekki kann ég skil á
hversu raunhæfar þær tilraunir eru,
en ef vel tekst til þá er hér um mjög
athyglisverða þróun að ræða. Eins-
leit, orkufrek stóriðja, byggð á gam-
alli, innfluttri tækni, er falskur tónn
í jieim framtíðannúsík.
kljúfa sig niður í hæla í afstöðunni
til blökkusvínsins og bæta þeirri
umræðu við einstaklega gefandi og
innihalds miklar pælingar sínar um
stúlkur sem renna sér klofvega á
stöngum og menn með stöng að
horfa á og við endalausar fréttir af
handtökum unglinga með hassmola
í vasanum eða tæki og tól til fíkni-
efnaneyslu í aftursæti bíls. Svo ekki
sé nú minnst á geypilega safaríka
umræðu um það hvort Vinstri
grænir séu örugglega ekki vinstri
sinnaðisti flokkurinn sem stofnaður
hefur verið í heiminum íyrir og eft-
ir faU Berlínarmúrsins og um leið
allra mesti græninginn.
Það er gott að vera Islendingur
og gaman að vera til á þessari eyju
skömmu íyrir byrjun nýrrar aldar.
Og það er margs að minnast frá
þessu merkilega ári sem nú er að
líða. En ég er þess full viss að ef
mér auðnast það lán að verða gam-
all maður - mun ég minnast þessa
árs fyrir það eitt að 1999 var árið
sem blökkusvínið kom til Islands og
þjóðin lét sér heldur betur koma
það við. Hvemig skyldi það vera á
bragðið?
Höfundur er frnmkvæmdnsfjóri.
SOKKABUXUR
íii®is&\íSafeli
SIMI557 7650
BURNHAM INTERNATIONAL
VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI
SÍMI 510 1600
Hitastilltir ofnlokar
■ Fínstilling “með einu handtaki"
■ Auðvelt að yfirfara stillingu
• Lykill útilokar misnotkun
• Minnstu rennslisfrávik
■ Hagkvæm rennslistakmörkun
Heimeier - Þýsk nákvæmni
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sfmi: 5641088 • Fax: 564 1089
HORPU
TILBOÐ
Gæða innimálning
GLJÁSTIG
10
Vönduð íslensk
innimálning á
einstöku tilboðsverði.
í verslununum HÖRPU veita reyndir
sérfræðingar þér góða þjónustu og
faglega ráðgjöf við val á hágæða
málningarvörum.
HARPA IVIÁLNINGARVERSLUN,
BÆJARLIND 6, KÓPAVOGI.
Sími 544 4411.
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
SKEIFUNNI 4, REYKJAVÍK.
Sími 568 7878.
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
STÓRHÖFÐA 44, REYKJAVÍK.
Sími 567 4400.
MÁLHIIIðAIIViRSLAHIR
__________________________________'
Höfundur erjarðfræðingur.
I.UI i b/ggingíiyöwvkfSluiiiim nrrt Iktul nlll