Morgunblaðið - 24.11.1999, Page 38
"88 MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Tímatal - dagatal
- ártal - aldamót
SÁ ER þetta ritar
hefur lengi haft
áhuga á tímatali og
margt lesið um það
efni. Þessi grein er
einkum rituð til að
sýna fram á hvenær
. -aldamót verða næst,
en ýmsir virðast vera
nokkuð^ ruglaðir í
þessu. í sumar heyrð-
ist t.d. sagt í útvarpi
að nú hefði verið
haldin síðasta þjóðhá-
tíð í Vestmannaeyjum
á þessari öld. Virtist
þá gert ráð fyrir að
20. öld endaði með 31.
desember 1999. Það fær ekki stað-
ist, því að samkvæmt formlegu
tímatali lýkur henni ári síðar.
Til að henda reiður á framvindu
tímans hafa menn fyrir löngu
skipt honum niður í einingar sem
síðan eru taldar. Gleggstu eining-
^rnar eru sólarhringur, miðaður
við einn jarðarsnúning, (tungl)
mánuður, miðaður við tunglkomu,
og ár, miðað við eina umferð jarð-
ar um sólu. Segja má að tímatals-
fræði (kronologi) sé fræðigrein á
mörkum sagnfræði og stjörnuf-
ræði.
Rómverjar hinir fornu töldu ár-
in frá upphafi Rómaborgar. Dion-
ysius Exiguus (d. í Rómaborg á 6.
öld), fór fyrstur að miða tímatalið
við fæðingu Krists, að talið er.
Hann fann út að Kristur hefði
fæðst er 753 ár voru liðin frá upp-
hafí Rómaborgar. Margar síðustu
aldirnar hefur tímatalið um hinn
vestræna heim verið miðað við
reikning Dionysiusar. Ekki skiptir
máli að nú telja flestir sagnfræð-
ingar líklegt að Kristur hafí fæðst
heldur fyrr en Dionysius áleit,
e.t.v. 2-6 árum fyrr.
Af þeim sið að telja tímaeining-
ar eru leidd orð eins og tímatal,
ártal, dagatal. Tímatalið er byggt
á venjulegri talningu, menn telja
einn, tveir o.s.frv. og upp í tíu, sem
fyllir tuginn. Byrjað er að telja
með heilli fyrstu einingu og alltaf
talið í heilum tölum,
án aukastafa. I daga-
tali okkar hefst 1. jan-
úar um leið og 31.
desember er lokið.
Enginn 0. janúar er
til. Á sama hátt er
janúar 1. mánuður ár-
sins, o.s.frv. I dags-
etningu, svo sem
15.11.99, er átt við
fímmtánda dag ellefta
mánaðar á nítugasta
og níunda ári (í öld).
Artölin eru því í
reynd raðtölur, eins
og dagar og mánuðir.
Þetta á stoð í þeirri
venju tímatalsfræðinga, sem
Dionysius kom á, að gera ráð fyrir
því að Kristur hafí fæðst á mörk-
um áranna 1 fyrir Krist og 1 eftir
Krist, þ.e. ekkert ár merkt sem 0
er til í þessum tímareikningi.
Þetta allt sýnir að við lok ársins
2000, en ekki fyrr, verða liðin full
2000 ár frá hinu reiknaða upphafí
tímatals okkar og þá verða alda-
mótin. Hið sama kemur skýrt
fram í hinu íslenska Almanaki um
árið 2000. Frá því mun hafa verið
greint í Morgunblaðinu á sl. vetri,
að bandarísk stjórnarstofnun sem
fer með tímatalsfræði, sé sammála
þessu áliti, og hið sama á við um
flesta ef ekki alla aðra aðila sem
fást við þetta mál með fræðilegum
hætti. Nokkuð hefur verið skrifað
um þetta efni í Morgunblaðið á
síðustu mánuðum, en misfróðlegt.
Við aldamótin 1900 varð það op-
inber niðurstaða hérlendis, að
gömlu öldinni lyki með 31. desem-
ber 1900, og voru hátíðahöld við
það miðuð, m.a. mikil aldamótahá-
tíð í Reykjavík sem greint er frá í
Öldinni okkar, en í þeirri bók er
réttilega miðað við að 20. öld hafí
byrjað með árinu 1901. Á ísafirði
sat Hannes Hafstein við og orti
frægt aldamótaljóð sitt einmitt
eitt af síðustu kvöldum í desember
1900 og kvæðið flutti hann síðan á
öðru hótelinu í bænum á nýársdag
1901.
Tímatal
Þetta allt sýnir að við
lok ársins 2000, en ekki
fyrr, segir Björn Teits-
son, verða liðin full 2000
ár frá hinu reiknaða
upphafí tímatals okkar
og þá verða aldamótin.
Spyrja má af hverju ýmsum
þyki nú frekar en áður vafi leika á
þvi hvenær aldamótin verði og
vilji jafnvel gera það að tilfínn-
ingamáli. Það ruglar líklega ein-
hverja að ártalið hefst á 2 í staðinn
fyrir 1 frá og með árinu 2000. Þá
eru sennilega einnig erlend áhrif
hér á ferð, t.d. hafa menn á 20. öld
oft talað um „the twenties" eða
„the eighties" í hinum enskumæl-
andi heimi, og þá átt við þau tíu ár
þegar talan 2 eða 8 var í þriðja
sæti í ártalinu. Loks má giska á að
ýmsir tölvuáhugamenn eigi hér
hlut að máli, en þeir hafa komið af
stað umræðu um „2000-vandann“,
sem er aðallega til í tölvuheimin-
um og virðist snúast um peninga.
Segja má að kenningin um alda-
mót við árslok 1999 byggist á
skynvillu, og hún er að dæmi und-
irritaðs hinn sanni „2000-vandi“.
Ekkert er athugavert við að
kalla síðasta ár aldar „aldamótaár-
ið“ og halda eitthvað upp á komu
þess. Reyndar má benda á að
margir virðast ætla sér að hagnast
á aldamótunum, t.d. með sölu
bjórs, minjagripa eða flugelda, og
vafalítið vilja þeir að hátíðahöldin
standi sem lengst yfir og verði
endurtekin. Þannig er líklega ætl-
unin að reyna að „selja“ aldamótin
tvisvar.
Höfundur er sagnfræðingur og
skólameistari.
Björn Teitsson
Oheppilegar og
ljótar vegalagnir
í óbyggðum
BEYGJUBESEF-
AR nútímans láta sér
ekki segjast þótt hest-
vagnaöldin sé liðin og
skottur og mórar horf-
in úr sveitum. Bregður
þeim enn fyrir með
sínar skýrsluskjóður í
héruðum sem ráðgjaf-
armeistarar, svo sem
þegar tengja þurfti
saman Þjórsárdalsveg
og Sultartangaveg,
töldu þeir hagkvæm-
ast að brölta upp á og
yfir Skeljafellið, en
kunnugir töldu veg-
stæði ekki álitlegt
vegna veðurhörku og snjóþyngsla,
ásamt ísingarhættu í bröttum S- og
U-beygjum, klúðrið var fullkomnað
í sumar. Aftur á móti liggur gamli
afréttarvegurinn (þjóðvegur á tíma-
bili) inn dalinn norðan fellsins um
greiðfæra sanda og brunnin hraun,
svo um vægar brekkur upp á Hafið
sunnan Sandafells en þar stendur
stöðvarhús Sultartangavirkjunar.
Með ofangreindum vinnubrögðum
er búið að útiloka framtíðarsýn þá
um hálendisveg inn Þjórsárdalinn
norðan Skeljafells sem vaknaði eftir
breytingar á þjóðveginum við
Gaukshöfða og Bringur, síðan eru
nokkur ár. Landsvirkjun og ekki
síður Vegagerðin, ásamt öðrum
þeim sem treysta á ráðgjafarstofur,
verða greinilega að auka hæfnis-
kröfur sínar gagnvart ráðgjöfum
sem eru lítt kunnugir viðkomandi
staðháttum.
Sagan endurtekin
Verið er að leggja veg að Vatns-
fellsvirkjun, frá Sigölduvegi norðan
Sporðöldu, að væntanlegu stöðvar-
húsi virkjunarinnar.
Ekki vildi betur til en svo að al-
ókunnugir beygjubesefar af verk-
fræðistofu völdu vegstæðið, án um-
sagnar starfsmanna við Hraun-
eyjafoss sem eru kunnugir svæðinu
vegna daglegra ferða að Sigöldu-
stöð og einstakra eftirlitsferða að
Vatnsfellslokum, en þeir munu í
framtíð annast dag-
lega umhirðu orku-
versins frá Hrauneyja-
fossstöð. Þykir
mörgum vegstæðið
víða undarlega valið;
snjóþungt og beygju-
fjöldi illskiljanlegur
(stefnu varla haldið en
þarna er u.þ.b. 30 ára
greiðfær slóð frá
Vatnsfelli, vestur á
Þóristungur og
Trippavað. Hefði nú
einhver úr verkfræð-
ingastóðinu haft fyrir
því að líta niður fyrir
Samgöngur
Landsvirkjun og ekki
síður Vegagerðin, ásamt
öðrum þeim sem treysta
á ráðgjafarstofur, segir
Halldór Eyjólfsson,
verða greinilega að auka
hæfniskröfur sínar
gagnvart ráðgjöfum
sem eru lítt kunnugir
viðkomandi staðháttum.
sig áður en hafist var handa hefði
mátt greina sendið og jafnlent
svæði, næstum beint að væntanlegu
stöðvarhúsi. Þarna er að vísu ekki
um fjölfarinn þjóðveg að ræða, held-
ur veg sem þjónar byggingarfram-
kvæmdum við orkuver við Vatnsfell
og síðar við rekstur þess.
P.s. Ferðalög á Veiðivatnasvæðið
fara að sjálfsögðu fram með
óbreyttum hætti þrátt fyi'ir virkjun-
arframkvæmdir.
Höfundur er eftirlaunaþegi og
áhugamaður um samgöngur og
umhverfismál.
Halldór Eyjólfsson
ATVINNA, ORKA,
UMHVERFI, BYGGÐ
Framsóknarflokkurinn boðar fund um
ORKUFREKAN IÐNAÐ OG ATVINNUMÁL
dagana 24. og 25. nóvember.
Fundirnir hefjast allir kl. 20.30 og verða haldnir á
eftirtöldum stöðum:
Akureyri, Fosshótel KEA
Miðvikudaginn 24. nóvember kl. 20.30.
Ræðumenn: Finnur Ingólfsson, iðnaðarráðherra,
Valgerður Sverrisdóttir, alþingismaður,
Jón Kristjánsson, alþingismaður.
Reykjavík, Grand Hótel
Miðvikudaginn 24. nóvember kl. 20.30.
Ræðumenn: Halldór Asgrímsson, utanríkisráðherra,
Ólafiir Örn Haraldsson, alþingismaður,
Hjálmar Árnason, alþingismaður.
Egilsstaðir, Hótel Valaskjálf
Fimmtudaginn 25. nóvember kl. 20.30.
Ræðumenn: Finnur Ingólfsson, iðnaðarráðherra,
Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráðherra,
Kristinn H. Gunnarsson, alþingismaður.
Fundir eru opnir og er allt áhugafólk hvatt til þess að mæta.
4
Framsóknarflokkurinn
Christian Dior dagar
Míðvikudaginn 24. og
fimmtudaginn
25. nóvember.
Kynning á CAPTURE RIDE
línunni og nýja farðanum
TEINT DIORLIFT.
Glæsileg handtaska
að eigin vali ef
keyptar eru vörur frá
Christían Dior fyrir
OOO kr. eða meira.
Fjóla Díana
Gunnarsdóttir snyrti- og
förðunarfræðingur
verður á staðnum og
vertir ráðgjöf.
LAUGAVEGI 80 SÍMl 561 1330