Morgunblaðið - 24.11.1999, Side 45

Morgunblaðið - 24.11.1999, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVTKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999 45 MINNINGAR HALLDÓRI. ARNARSON + Ha!Idór Ingi- berg Arnarson fæddist á Sauðár- króki 17. júlí 1951. Hann lést í Sjúkra- húsi Reykjavikur 15. nóvember síð- astliðinn og fór út- för hans fram frá Sauðárkrókskirkju 20. nóvember. Okkur langar með nokkrum orðum að minnast mágs okkar og svila, Halldórs Am- arsonar, sem fallinn er frá eftir erfiða og snarpa baráttu við þennan vágest sem fellt hefur margan manninn á besta aldri. A stundum sem þessum er erfitt að sætta sig við orðinn hlut. Öll héld- um við í vonina um að Halldór næði heilsu á ný, hann barðist hetjulega við sjúkdóminn og af miklu æðru- leysi. En örlögin voru ráðin. Við viljum ekki minnast þessara erfiðu mánaða á árinu heldur allra þeirra skemmtilegu stunda sem við áttum með Halldóri og Ólu til margra ára. Upp úr standa allar þær skemmtilegu fjallaferðir sem við fórum saman. Halldór hafði yndi af því að vera á fjöllum og erf- itt er til þess að hugsa að fara næstu ferð án hans og fjallabílsins góða, honum Indriða. Við munum til dæmis sakna stundanna sem við áttum yfir grillhlóðunum. Hver hafði þar sitt fasta hlutverk og hlut- verk Halldórs var m.a. að sjá um kartöflurnar. I þeim efnum var hann orðinn algjör sérfræðingur. Halldór var traustur maður og yfirvegaður öllum stundum, hvað sem á gekk. Kurteis og kom vel fyr- ir. Sannur vinur vina sinna og þrælduglegur til verka. Margra ára farsæl störf hans hjá steypustöð- inni á Króknum sanna það og eng- inn var betri kranamaður en hann. Þau eru nefnilega ófá handverkin, og fleiri en margan grunar, sem hann hefur lagt til í uppbygging- unni á Króknum og í öllum Skagafirði. Þol- inmæði var hans dyggð og af henni hafði hann nóg þegar t.d. þungur kraninn læddist um allar sveit- ir Skagafjarðar. Margmáll var Hall- dór ekki en þegar hann tók til máls þá var eftir því tekið. Hann kom með ný og skemmtileg sjónar- horn á hlutina og oftar en ekki þau, spaugi- legu. Þessum einkenn- um hélt hann þrátt fyrir veikindin og minnisstæð er sú góða stund er við áttum með honum í Hjaltadaln- um í sumar. Þar bar hann sig vel og innst inni vonuðumst við eftir að geta átt fleiri slíkar samverustund- ir. Nú verður bið á því. Eg sendi þér kæra kveðju, núkominerlífsinsnótt Þig umhveríi blessun og bænir, égbið aðþúsofirrótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þásælteraðvitaafþví þú laus ert úr veikindaviðjum, þín veröld er björt á ný. Eg þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfmn úr heimi, éghittiþigekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir oglýsirumókomnatíð. (Þórunn Sig.) Elsku Óla, Halldór Heiðar, Örn Sölvi, Elva og Andrea Anna. Við biðjum algóðan Guð að vera með ykkur á þessari sorgarstund og um alla framtíð. Við færum ykkur einn- ig hugheilar samúðarkveðjur frá foreldrum okkar, systkinum og fjölskyldum þeirra. Þorsteinn og Sólveig, Alda og Trausti. ELÍAS JÓHANN LEÓSSON + Elias Jóhann Leósson fæddist í Reykjavík 23. nóv- ember 1946. Hann lést á heimili tví- burabróður síns 12. október sl. Útför Elíasar var gerð frá Fossvogskirkju 20. október sl. Elsku besti pabbi minn. f gær var af- mælisdagurinn þinn. Þú hefðir orðið 53 ára sem er ekki hár aldur. Eg veit að þér líður betur núna því þú varst alltaf svo veikur. Mér finnst mjög sárt að þú skulir vera farinn frá mér, en allir eru búnir að vera góðir við mig, ír- isi, Braga, Kæju og Ella. Mér þótti þú fara frá okkur allt of fljótt því við ætluðum saman til Ella um helgina. Þú varst alltaf besti pabbi í öllum heiminum, og ef mér leið eitthvað illa vildi ég alltaf kom- ast til þín því þú varst aldrei reiður, bara glaður. Þú djókaðir með allt og vai’st alltaf brosandi. Mér fannst alltaf gaman að koma til þín í Kolaportið og passa básinn þinn þegar þú fórst að ná í kaffi eða eitthvað annað. í hvert sinn sem ég kom þangað fengum við okkur ís, nammi eða eitthvert annað góð- gæti. Þú varst okkur alltaf góður pabbi og Elli var alltaf glaður að sjá þig. í hvert sinn sem ég hugsa um þig tárast ég, því mér þótti svo voðalega vænt um þig, og ég mun alltaf sakna þín. Ég reyni samt að hugsa sem svo að þér líði nú vel hjá Guði. Þín dóttir, Jóhanna Yr. Uinalína Rauða krossins - Ókeypis símaþjónusta þegar þér er uandi á höndum - Ert þú 18 ára eöa eldri og þarft að ræða uið einhvern í trúnaði? - Uinalínan sími 800 6464 frá kl. 20-23 öll kuöld Afmælis- og minn- ingar- greinar MIKILL fjöldi minningargreina birtist daglega í Morgunblaðinu. Til leiðbeiningar fyrir greinahöf- unda skal eftirfarandi tekið fram um lengd greina, frágang og skila- tíma: Lengd greina Um hvem einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar minningar- greinar um sama einstakling tak- markast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2200 slög (um 25 dálksenti- metrar í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Formáli Æskilegt er að minningargrein- um fylgi á sérblaði upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dá- inn, um foreldra hans, systkini, maka, og böm, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í grein- unum sjálfum. Undirskrift Greinarhöfundar em beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Frágangur og móttaka Mikil áherzla er lögð á að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt að disklingur fylgi út- prentuninni. Það eykur öryggi í textamenferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enníremur unnt að senda greinar í símbréfi - 569 1115 - og í tölvupósti (minn- ing@mbl.is). Vinsamlegast sendið gi-einina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Skilafrestur Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skila- frestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í miðvikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birt- ingardag. Þar sem pláss er tak- markað, getur þurft að fresta birt- ingu minningargreina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skila- frests. Berist grein eftir að skila- frestur er útranninn eða eftir að út- för hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. ÚTFARARST OFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfiröi, simi 565 5892 Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsla. AUan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GYÐA JÓNSDÓTTIR, Hávallagötu 15, lést á Landakotsspítala mánudaginn 22. nóv- ember. Sigurður Jónsson, Ásgeir Sigurðsson, Anna Hrönn Jóhannsdóttir, Jón Viðar Sigurðsson, Unnur Svavarsdóttir og barnabörn. t Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, SIGRÍÐUR ELÍN MAGNÚSDÓTTIR, Skólavörðustíg 22c, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur mánudaginn 22. nóvember. Skúli Matthíasson, Marta Guðnadóttir, Sólveig Matthíasdóttir, Magnús Matthíasson, Þorbjörg Þorvarðardóttir. t Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma LILJA SIGURÐARDÓTTIR frá Bólstað, Eyrarbakka, andaðist á Landspítalanum mánudaginn 22. nóvember. Emil Ragnarsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir, barnabörn og fjölskyldur þeirra. t Ástkær móðir mín, GUÐFINNA JÓNSDÓTTIR, Skútagili 2, Akureyri, lést á heimili sínu mánudaginn 22. nóvember. Fyrir hönd systkina, barna- og barnabarna, Amalía Sörensdóttir. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ALDA SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, frá Brekku við Kaupvangssveit, sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur föstu- daginn 5. nóvember sl., verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstudaginn 26. nóvember kl. 13.30. Synir, tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, AXELSJÓHANNESSONAR frá Gunnarsstöðum, Aflagranda 40, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Sigurbjörg Malmquist Jóhannsdóttir og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.