Morgunblaðið - 24.11.1999, Page 51

Morgunblaðið - 24.11.1999, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999 51 BRÉF TIL BLAÐSINS Yitinn - kristið sj ómannastarf Frá Konráði Friðfínnssyni: TRÚBOÐ hefur verið stundað í heiminum allar götur síðan að kristniboðssMpunin kom frá Jesús. Hún lítur svona út: „Farið því og gjörði allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda, og kennið þeim að halda alit það, sem ég hef boðað yður. Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraidar." (Matt:28:19-20) Islendingai- lifa á fiskveiðum. Að stærstum hluta fá þeir tekjur sínar af sjávarfangi og því sem sjórinn gefur þeim. Og þannig hefur þetta verið svo lengi sem elstu menn muna. Alla þessa öld hefir verið stundað hér sjómannatrúboð. Það hófst með starfi Odds V. Gíslasonar, sem var prestur í Vestmannaeyjum. Sjómannastarf Odds byrjaði fyrir síðustu aldarmót er hann hvatti sjó- menn til guðrækni og gaf í kjölfarið út blað í ársbyrjun 1892. Oddm- hafði hjarta fyrir slysavömum sjó- manna og margir líta svo á að hann hafi verið „faðir“ Slysavamafélags íslands. Síðan hafa margir menn fengið köllun til að sinna þessu starfi. En það verður að segjast eins og er að þetta starf hefur gengið svona í bylgjum. Sum árin hefur ver- ið feikna kraftur í sjómannatrúboð- inu á íslandi en stundum hefur það nánast legið alveg niðri. Sigfús B. Valdimarsson á Isafirði er sá maður á þessari öld sem hvað ötulegast hefur gengið fram í starfi. Sigfús var með bæMstöðvar vestur á Isafirði og samkvæmt minni bestu vitund fór hann um borð í hvem bát og hvert sMp sem kom til hafnar á Isafirði, á þeim tíma sem hann starf- aði. Og þá með bæMinga og Biblím- á móðurmáli sMpverja, sem hann rétti köllunum. Margir sjómenn minnast Sigfúsar með hlýjum huga og tala um hann og það starf sem þessi maður innti af hendi, fyrir náð og miskunn Jesú Krists. Starfstími Sig- fúsar var í um hálfa öld eða svo. Sig- fús lést fyrir tveimur áram. Vitinn, kristið sjómannastarf er trúboðs- og útbreiðslufélag sem stofnað var með formlegum hætti í janúar 1998. Markmið félagsins er eins og segir í lögum þess að koma fagnaðarerind- inu um Jesú Krist til sem flestra, markhópurinn er sjómenn, innlend- ir sem erlendir og fjölskyldur þeiira. Starfsmenn Vitans era nokk- ir í dag. Stofnandi Vitans.Guðmund- ur Sigurðsson, starfar á ísafirði, við annan mann. Þrír menn sinna stór Reykjavíkursvæðinu og einn fer íyr- ir þessu starfi í Reykjanesbæ. En allir hafa sama hugarfar. Sem er að koma fagnaðarerindinu til sem flestra sjómanna, hvort sem þeir era innlendir eða erlendir sæfarendur. Fara um borð í sMpin til að spjalla við sjómennina. Ýmislegt er á döfinni hjá Vitan- um. Nú þegar er búið að opna sjó- mannastofu á Hvaleyrarbraut 2 í Hafnarfirði og er opnunartími alla virka daga frá M. 16-20. Þar er boðið upp á kaffi að gömlum og góðum ís- lenskum sið. Hægt er að fletta Morgunblaðinu. Og aldrei er að vita nema Meinur fylgi með í kaupbæti, ef einhver elsuleg kona færir stof- unni þær. Símanúmerið á sjómann- astofu Vitans er 5656909. Einnig er fyrirhugað að fara af stað með myndbönd, í samvinnu við kristilegu sjónvarpsstöðina Ómega og dreifa þeim tfi sjómanna. Þar getur margt komið tO greina. Eins og fræðsluefni sem tekur á vandamálum manna sem leiðir þeim fyrir sjónir að unnt er að fá lausn við ýmsum vanda. Mai-gir eiga í erííðleikum í hjóna- bandi, aðrir glíma við vín og fíkn- iefni, sumir era þunglyndir. Vanda- málin era svo ótal mörg. Jesú Kristur hefur svar við þeim öllum og getur læknað öU okkar mein. En stundum þarf að benda fólM á leið- imar til lausnar. Við hjá Vitanum teljum að góð, vönduð kristUeg myndbönd, þessi öflugi miðUl, þjóni alveg sérstökum tUgangi tU að leiða mann tíl Jesú. Einnig má hafa á svona myndböndum öfluga kennslu í orði Guðs sem er sett upp á aðgengi- leg hátt. Nútíma tækni býður trúboðum nútímans ótal möguleika tíl að ná tíl manna. Möguleika sem forverar okkar höfðu ekíd. Að ekM sé talað um netið, sem fer um alla heimsbyggðina. Að lokum má geta þess að á Lindinni, fm 102,9 sem er kristlegt útvarp, er þáttur á laugar- dögum sem er sérstaMega handa sjómönnum. Þátturinn heitir „Úr ólgusjó í friðarhöfn" og hefst Mukk- an 15 og er tU M. 17.1 þættinum er víða komið við. Kannar enda kristin- dómurinn allar lendur mannlífsins og honum er heldur ekkert óviðkom- andi er snýr að sköpun Guðs. KONRÁÐ FRIÐFINN SSON, Vesturgötu 18, Hafnarfirði. Gæða frostlögur fyrir hita og kælikerfi •Vörn gegn frosti og tæringu • Hentugt fyrir alla málma • Eykur endingartíma • Kemur í veg fyrir gerlamengun • Vörn allt niður að -30”C • Engin eiturefni-umhverfisvænt • Léttir dælingu FSRIMOX IMttlULIMJUl mnftl f r—t - _________________________Hringás Heildsöludreifing Skemmuvegur 10 • Simi 567-1330 Bravó Margrét J. Pálmadóttir Frá Helgu R. Ingvarsdóttur: FRÁBÆRT, var hrópað og dynj- andi lófaklapp kvað við í hinum hlómgóða sal Langholtskirkju við lok afmælistónleika Barnakórs Grensáskirkju 19. nóv. sl. Kirkju- salurinn var þéttsetinn og hrifn- ingin var mikil og greinileg hjá áheyrendum, því það sem þeir höfðu fengið að heyra og líka sjá þetta góða kvöld var vissulega frábært, já, stórkostlegt. Stjórna- ndinn, Margrét, er löngu búin að sanna sig sem frábær, já, yfir- burða stjórnandi, en hvernig hún getur haldið áfram að koma á óvart - í þjálfun barnanna sér- staklega. Það er miMð gleði- og undrunarefni. Ungur nemur, gamall temur. Þar sannast, að „hin ljúfa sönglist leiðir / á lífið fagran blæ/ hún sorg og ólund eyðir / og elur himinsfræ". Svo mælti réttilega eitt af skáldunum okkar góðu. Auk barnakórs Grensáskirkju - 10 ára afmælis- barnsins - komu þarna fram Kammerkór I og II., Kvennakór- inn Vox Feminae, píanóleikarinn Svana Víkingsdóttir og sópran- söngkonan Björk Jónsdóttir. Listilega vel gerð, litrík og mynd- skreytt söngskrá kom út í tilefni þessara afmælistónleika, þar sem sagður er og sýndur ferill og ferð- ir kórsins erlendis. Þar er m.a. opnumynd í stærðinni 2xA4, teMn fyrir framan Péturskirkjuna í Róm af nær fimmtíu fríðum fljóð- um í englahvítum búningi, skósíð- um og léttum dökklitum vestum. Án efa hafa Rómverjar hrifist mjög af þessari englahjörð og not- ið söngsins. Dýrð sé Guði í upp- hæðum. í skránni er „saga kórs- ins“ sögð af stofnanda hans og stjórnanda. Þar er ávarp mennta- málaráðherra, Björns Bjarnason- ar, ávörp fv. og núv. sóknarprests Grensáskirkju, _sr. Halldórs S. Gröndals og sr. Olafs Jóhannsson- ar, svo og ávarp form. foreldrafé- lags. Þar er og félagatal 1999- 2000, kammerkórs og barnakórs. Einnig eru þar birt ljóð er verð- laun hlutu í ljóðsamkeppni um „Lauf ‘ og þar má sjá stóra mynd í litum af hinum ávallt glaða stjórn- anda í ísl. búningi, upphlut. Og þar eru loks þakkarorð og ham- ingjuósMr frá Helgu 18 ára og Ástþóri 12 ára. Svo auðvitað hin fjölbreytta efnisskrá tónleikanna, sem kunnáttusamir munu - vona ég - fjalla um í fjölmiðlum. í því ágæta tímariti Úrvali gat eitt sinn að lesa greinina: „Segðu meiningu þína, einnig þegar þér líkar vel“ og vel, stórvel, líkaði mér þetta eftirminnilega kvöld í LangholtsMrkju, kirkju Guð- brands biskups, og yfir því vil ég ekki þegja, heldur þakka af hlýj- um og heilum hug. Ég vona og bið að forráða- mönnum Grensáskirkju auðnist að þakka og búa svo vel að stjórna- ndanum, Margréti að hún sjái sér fært að starfa áfram með börnum Mrkjunnar að „hinni ljúfu söng- list“ til mikillar gleði og blessunar fyrir marga. HELGA R. INGVARSDÓTTIR Espigerði 2, Reykjavík. STEINAR WAAGE Kuldaskór á alla fjölskylduna VerS 4.995,- Stærðir: 26-35 Litir: Rauðir, bláir. Verð 6.995,- Stærðir: 39-46 Litur: Svarur. Verð 5.995,- Stærðir: 41-46 Litur: Svartur. DOMUS MEDICA við Snorrabraut - Reykjavík Sími 551 8519 KRINGLAN Kringlunni 8-12 - Reykjavik Sími 568 9212 PÓSTSENDUM SAMDÆGURS 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR Verð 2.995,- Stærðir: 25-36 Litir: Rauðir, bláir, silfur. Verð 5.995,- Stærðir: 36-42 Litur: Svartur. Verð 5.995,- Stærðir: 36-42 Litur: Svartur. k

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.