Morgunblaðið - 24.11.1999, Side 55

Morgunblaðið - 24.11.1999, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999 55 FOLKI FRETTUM Ekki nóg af James Bond fyrir heiminn TVÍEYKIÐ James Bond og Ich- abod Crane átti upp á pallborðið hjá gestum kvikmyndahúsa í Bandaríkjunum um helgina. Heim- urínn erekki nógreyndist réttnefni á nítjándu Bond-myndinni því hún rakaði saman hátt á þriðja milljarð króna og varð í efsta sæti aðsóknar- listans vestra. Næst á eftir fylgdi myndin „Sleepy Hollow" sem leikstýrt er af Tim Burton. Hún náði einnig rúm- um tveimur milljörðum og er Johnny Depp þar í hlutverki lög- reglumannsins Crane sem rannsa- kar raðmorð sem sögð eru hafa verið framin af höfuðlausum hesta- manni. Pví hefur verið spáð að heildaraðsókn þetta árið í Banda- ríkjunum nemi um 530 milljörðum króna og er hún um 35 milljörðum meira en í fyrra. Teiknimyndin Leikstjórinn Luc Besson, ásamt leikaranum Chris Tucker við frumsýningu myndarinnar Sendiboðinn: Saga Jóhönnu af Örk. Pokemon: Fyrsta kvikmyndin féll í þriðja sæti en náði þó góðri inn- komu eða tæpum milljarði. Búast má við mikilli spennu um næstu helgi þegar tvær nýjar stór- myndir munu bætast í hópinn. Leikfangasaga II náði rúmum 20 milljónum í kassann í aðeins einu kvikmyndahúsi um síðustu helgi og sýnir það vel áhugann sem er á myndinni sem frumsýnd verður um gjörvöll Bandaríkin um næstu helgi. Þá verður frumsýnd mynd Arnolds Schwarzeneggers „End of Days". Engin Bond-mynd hefur náð meiri tekjum fyrstu sýningarhelg- ina en Heimurinn er ekki nóg. Gullauga eða „Golden Eye" átti fyrra metið og voru tekjur þeirrar myndar 1,8 milljarðar fyrstu sýn- ingarhelgina árið 1995. BORGARLEIKHÚSIÐ Kvikmynd um Johönnu af Ork Frelsishetja full efasemda EITT sinn er leikkonan Milla Jovo- vich kom heim til eiginmanns síns, leikstjórans Luc Besson, sýndi hún honum magnaða ljósmynd af sér sem ítalski tískuljósmyndarinn Paolo tók af henni. Á myndinni mátti sjá veru, sem hvorki var hægt að þekkja sem konu eða karl með úfið hár og magnaða andlitsförðun í anda Blade Runner. „Væri það ekki frábært ef einhver myndi túlka Jó- hönnu af Örk á þennan hátt?“ spurði Jovovich mann sinn og innan skamms voru þau farin að kasta á milli sín hugmyndum um hina bar- dagaglöðu táningsgyðju Frakka sem að lokum leiddi til gerðar myndar Bessons „The Messenger: The Story of Joan of Arc“ eða Sendiboðinn: Saga Jóhönnu af Örk. Þar fer Jovovich með aðalhlutverk- ið á móti Dustin Hoffman, John Malkovich og Faye Dunaway. Myndin kostaði yfir 4.200 milljónir og er frönsk/bandarísk. Draumkennd atriði Stuttu efth- að vinnu við myndina lauk tilkynntu Besson og Jovovich að þau væru skilin eftir að hafa tek- ist á farsælan hátt að fjalla um eina dularfyllstu hetju mannkynssög- unnar. Myndin er full af furðulegum, draumkenndum atriðum, blóðug- um átökum og tilkomumiklum áhlaupum á kastala og hallir og er Jóhanna túlkuð sem manneskja full efasemda. Jóhanna af Örk var bóndadóttir sem leiddi Frakka til sigurs yfir Bretum á sextándu öld en var í kjölfarið svikin af konungi sínum, fönguð af óvinum sínum, úrskurðuð nom og brennd lifandi aðeins nítján ára gömul. 25 árum síðar var hún dæmd saklaus og gerð að dýrlingi af kaþólsku kirkjunni á þessari öld. Jovovich fæddist í Uki-aínu en ólst upp í Kaliforníu og vakti fyrst athygli í auglýsingu fyrir L’Oreal fyrirtækið. Hún á nokkuð fjöl- breyttan leikferil að baki og lék meðal annars í „Return to the Blue Lagoon“, „Chaplin", „Dazed and Confused“ og „He Got Game“. Það var þó ekki fyrr en hún lék í mynd Bessons „The Fifth Element“ að hún vakti athygli fyrir leikhæfileika sína. Hún gitist Besson í desember árið 1997 en þau skildu eftir aðeins 16 mánaða hjónaband. Mörgum MiIIa Jovovich leikur Jóhönnu af Örk í nýrri mynd. þótti ólíklegt að hún gæti leikið hina frönsku frelsishetju á sann- færandi hátt en Besson vai- á öðru máli. „Ég vissi að hún var tilvalin fyrir hlutverkið,“ sagði hann á bjagaðri ensku. „Hún er haldin sömu ástríðu og Jóhanna og veistu, hún getur hlegið af öllu hjarta en grátið síðan tveim sekúndum síðar. Hún er mjög tilfinninganæm og vindurinn einn saman gæti fengið hana til að gráta. Þess vegna finnst mér hún vera eins og Jóhanna að vissu leyti.“ Játaðí syndir sínar Besson segist almennt óánægður með myndir sem gerðar hafa verið um Jóhönnu af Örk, einnig með ný- lega sjónvarpsmynd sem sýnd var á CBS-sjónvarpsstöðinni í sumar við miklar vinsældir. Hann heldur því fram að þótt Jóhanna hafi gert marga stórkostlega hluti hafi hún verið full efasemda vegna þeirrar eyðileggingar og blóðbaðs sem fylgdi í kjölfar hennar. „Fyrir mér varð hún ekki dýrlingur fyrr en við enda ævi sinnar af því að þá viður- kennir hún að hún hafði rangt fyrir sér. Það er eina leiðin sem hún sér færa til að hreinsa sig af því sem hún gerði.“ Besson játar að hafa tekið sér skáldaleyfi við gerð myndarinnar. „Ég er ekki sagnfræðingur í leit að sannleikanum. Ég er aðeins lista- maður sem raða púslum saman í spil svo það virðist rökrétt.“ Ath. bnevttur svninaarh'mi um holqar Stóra svið: féláa herbergið eftir David Hare, byggt á veno Arthurs Schnitzler, Reigen (l_a Ronde) Þýðandi Veturliði Guðnason Leikarar Baldur Trausti Hreinsson og Martha Nordal Leikmynd Sigurjón Jóhannsson Búningar Helga Stefánsdóttir Ljós Lárus Bjömsson Hljóð Baldur Már Amgrimsson Leikstjórn María Sigurðardóttir Frumsýning fös. 3/12 kl. 19.00 2. sýn. sun. 5/12 kl. 20.00 3. sýn. fös. 10/12 kl. 19.00 4. sýn. sun. 12/12 kl. 19.00 Jólahlaðborð oa leikhús Að sýnirtgu lokinni er framreitt gimilegt jólahlaðborð af meistara- kokkum Eldhússins - Veisla fyrír sál og líkama - Líttá kujttUUjíÍÚðÍH eftir Howard Ashman, tónlist eftir Alan Menken. Rm. 25/11 kl. 20.00, uppselt, lau. 27/11 kl. 19.00, örfá sæti laus, lau. 4/12 kl. 19.00. U í Svtri eftir Manc Camoletti. 113. sýn. fös. 26/11 kl. 19.00, síðasta sýning fyrir jól. Stóra svið kl. 14.00: Sun. 28/11, sun. 5/12, síðasti sýningardagur. Litla svið: Fegurðardrottningín frá Línakri eftir Martin McDonagh. Rm. 25/11 kl. 20.00, fim. 2/12 kl. 20.00. Sýningum fer fækkandi. Litla svið: ^eítír) a<í n/ísberxttnvu í alheítníníii^ eftir Jane Wagner. Lau. 27/11 kl. 19.00, sun. 28/11 kl. 19.00, sýning túlkuö á táknmáli. Miðasalan er opin virka daga frá kl. 12—18, frá kl. 13 laugardaga og sunnudaga og fram að sýningu sýningardaga. Símapantanir virka daga frá kl. 10. Greiðslukortaþjónusta. Sími 568 8000, fax 568 0383. AÐSÓKN 19.-21. nóv. BÍÓAÐSÓKN í Bandaríkjunum BÍÓAÐSÓKN helgina 19.-21. nóv. BÍÓAÐS í Bandaríl Titill Síbasta vika fllls 1. (-) The World is Not Enough 2.557 m.kr. 35,5 m$ 35,5 m$ 2. (-) SleepyHollow 2.164 m.kr. 30,1 m$ 30,1 m$ 3.(1) Pokemon: The First Movie 868m.kr. 12,5 m$ 67,4 m$ 4.(2) The Bone Collector 470m.kr. 6,5 m$ 45,1 m$ 5.(3) Dogma 294m.kr. 4,1 m$ 15,7 m$ 5.(5) Anywhere But Here 234m.kr. 3,2 m$ 10,1 m$ 7.(6) Thelnsider 204m.kr. 2,8 m$ 18,3 m$ 8. (4) TheMessenger 9. (7) TheBachelor 175 mkr. 2,4 m$ 164m.kr. 2,3 m$ 17,9 m$ 10,5 m$ 10.(10) BeingJohn Malkovich 134m.kr. 1,7 m$ 8,8 m$ Aldamútaveisla á Kanarí 26. desember frákr. 29>855 Siðustu Nú bjóðum við 20 SSPtin 30 sæti til Kanarí um aldamótin á hreint ótrúlegum kjörum. Nú getur þú haldið uppá aldamótin í sól og hita á þessum vinsælasta vetraráfanga- ✓ stað Islendinga. Flogið með beinu flugi Heimsferða í nýjum Boeing 757-þotum LTE- flugfélagsins og notið traustrar þjónustu Heimsferða allan tímann. Til að tryggja þér lága verðið bókar þú núna og tryggir þér sæti. Fimm dögum fyrir brottför hringjum við í þig og látum þig vita hvar þú gistir. ALDAMOTAFERÐ 26. desember, 1 eða 2 vikur. Verð frá kr. 29.855 26. des. vikuferð, m.v hjón með 2 böm. Aukavika frá kr. 7.700. Verð kr. 39.990 Miðað við 2 í íbúð, 1 vika. Hvenær 12. des. 19. des. 26. des. 2. jan. 9. jan. 30.jan. 6. feb. 20. feb. 27. feb. er laust? - 40 sæti - 29 sæti - 30 sæti - uppselt - 28 sæti - 19 sæti - 26 sæti - 27 sæti - uppselt Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.