Morgunblaðið - 24.11.1999, Síða 64
Drögum
í dag
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
Heimavörn
Sími: 580 7000
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ(gMBL.lS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Prófessor við HI um
Flj ótsdalsvirkjun
Stærðar-
— hagkvæmni
ekki nýtt
FLJÓTSDALSVIRKJUN er það lít-
il að hagkvæmni stærðarinnar er
ekki nýtt, að því er fram kom í erindi
Egils B. Hreinssonar, prófessors við
verkfræðideild Háskóla íslands, á
ráðstefnu Tæknifræðingafélags ís-
lands og Verkfræðingafélags Islands
um arðsemi virkjana og beina eign-
araðild Islendinga að stóriðju í gær.
Hann sagði að því væri nauðsyn-
legt að tryggja hagkvæmni virkjun-
arinnar með stækkun í nánustu
framtíð. A þessu væri þó sá galli að
virkjanaleyfi Alþingis væri aðeins
'"Uil staðar fyrir tiltekna stærð Fljóts-
dalsvirkjunai-. „Það er heppilegra
að vii-kja stærra í Fljótsdal, þá er
verið að nýta hagkvæmni stærðar-
innar. Almennur markaður nýtur
góðs af því og verð lækkar til stór-
iðju,“ sagði Egill einnig.
Steinþór Pálsson, viðskiptafræð-
ingur hjá Islandsbanka, gerði grein
fyrir undirbúningi að stofnun álfyr-
irtækis sem kannar forsendur fyrir
þátttöku íslenskra fjárfesta í álveri í
Reyðarfirði.
„Ákv'örðun um að ráðast í bygg-
ingu álvers mun væntanlega ein-
göngu verða tekin ef svarið við
spurningunni verður jákvætt. Verk-
ið er enn í vinnslu og þeir samningar
sem eftir er að gera munu varpa
skýrara ljósi á arðsemi og áhættu og
hvort líklegt verði að fjármögnun fá-
ist til verkefnisins,“ sagði Steinþór.
Áhættusöm fjárfesting
Jón Sigurðsson íyrrverandi for-
stjóri Járnblendifélagsins rakti
reynsju íslendinga af þátttöku í stór-
iðju. I máli hans kom fram að fjár-
festing í slíkum stórrekstri sem
komin væri upp á heimsmarkaðinn
yrði alitaf áhættusöm. Hann sagðist
t ^haida að fyrst Norsk Hydro vildi ein-
göngu eiga 20-25% hlut í álverinu
myndu þeir leggja sáralítið ef nokk-
urt fé fram. Samstarf við erlendan
aðila sem hætti litlum eða engum
fjármunum skorti það að sameigin-
legir hagsmunir væru í húfi, og væri
þar af leiðandi varasamara en ef
gengið væri til samstarfs við erlend-
an aðila sem hætti verulegum eigin
fjármunum í týrirtækið.
■ Arðsemi og áhætta/32
---------------
Vinnslustöðin slítur við-
ræðum um sameiningn
STJÓRN Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmanna-
eyjum hefur slitið viðræðum um sameiningu
Vinnslustöðvarinnar, ísfélags Vestmannaeyja,
Krossaness og Óslands, og telur stjómin eftir ít-
arlega umfjöllun um málið undanfamar vikur að
hagsmunum félagsins og hluthafa þess sé best
borgið með því að reka fyrirtækið áfram. Sigurð-
ur Einarsson, forstjóri ísfélagsins, segir þetta
mikil vonbrigði og sennilega hafi Vinnslustöðin
ekki lagt í sameininguna þegar til hefði átt að
taka.
Viðræður um sameiningu fyrirtækjanna fjög-
urra hófust síðastliðið sumar og í lok ágúst var
undirrituð viljayfirlýsing um að stefnt skyldi að
því að ganga frá formlegri áætlun um samrana
fyrir miðjan október síðastliðinn.
Geir Magnússon, stjórnarformaður Vinnslu-
stöðvarinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið
að meðal þess sem áhrif hefði haft á ákvörðun
stjórnarinnar um að slíta viðræðunum væra
slæmar horfur í loðnuveiðum, en hið sameinaða
fyrirtæki hefði farið Ola út úr því til að byrja
með þar sem það hefði orðið mjög einsleitt í
uppsjávarveiðum. Hann segir að afkomutölur
Isfélagsins fyrir síðasta rekstrarár hafi ekki
haft áhrif á ákvörðun stjómarinnar, og Sigurður
Einarsson segir að tölumar hefðu ekki breytt
neinu um áætlaðan eignarhlut í sameinuðu fyr-
irtæki.
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vestmanna-
eyjum, segii- að hann hefði viljað sjá eitt öflugt
sjávarútvegsfyrirtæki í Vestmannaeyjum og það
hefði orðið mikill styrkur fyi-ir atvinnulífið. Ef
stjóm Vinnslustöðvarinnar stæði hins vegar við
það að vera áfram með vinnsluna í Vestmanna-
eyjum og ekkert af aflaheimildunum færi þaðan
væri það út af fyrir sig mjög gott mál.
■ Telja hagsmunum/22
Ingimundur Sigfússon sendiherra, Davíð Oddsson forsætisráðherra og Helmut Kohl, fyrrverandi kanslari Þýskalands, í kvöldverðarboðinu.
Stórsigur
Stoke
„ÞETTA var stórkostlegt. Já, ótrú-
leg byrjun hjá mér - lyginni líkast,“
sagði Guðjón Þórðarson, knatt-
spyrnustjóri Stoke, eftir að lið hans
lagði Wycombe á útivelli í gær-
kvöldi, 4:0, og skoraði Einar Þór
Daníelsson eitt markanna.
„Strákamir léku mjög vel. Það er
allt annað að sjá til liðsins nú en áð-
ur,“ sagði Guðjón ennfremur.
Einar Þór kom inn á sem vara-
maður fyrir Sigurstein Gíslason á
^^15. mínútu en Sigursteinn fór úr
^‘axlarlið. Hann lék þrjá vamarleik-
menn Wycombe sundur og saman -
og lét ekki þar við sitja, heldur
dansaði hann í kringum markvörð-
inn Martin Taylor, og skoraði á eft-
irminnilegan hátt. „Eg hélt að hann
ætlaði aldrei að koma knettinum í
netið,“ sagði Guðjón.
I Einar Þór/Cl
Davíð Oddsson forsætisráðherra átti viðræður við þýska þingmenn
Bauð Kohl til
kvöldverðar
DAVÍÐ Oddsson forsætísráð-
herra og kona hans, Ástríður
Thorarensen, skoðuðu í gær
nýtt sendiráð Islands í Berlín og
heimsóttu Sambandsþing
Þýskalands. Þar ræddi forsætis-
ráðherra við nokkra þingmenn
og átti fund með forseta þings-
ins. I fyrrakvöld buðu forsætis-
ráðherrahjónin Helmut Kohl,
fyrrverandi kanslara Þýska-
lands, og Hannelore Kohl tíl
kvöldverðar.
Davíð Oddsson kom við í
Berlín á leið heim af leiðtoga-
fundi OSE sem haldinn var í Ist-
anbúl í Tyrklandi. „Ég ákvað að
koma hér við tíl að skoða nýja
aðstöðu sendiráðs okkar og hið
sameiginlega norræna sendiráð
sem hefur vakið mikla athygli,"
sagði forsætisráðherra í samtali
við Morgunblaðið í gær. „Mér
Ieist afar vel á enda er aðstaðan
sérstök. Þessar sendiráðsbygg-
ingar skera sig nyög úr hér í
borginni, staðsetning þeirra er
góð gagnvart stjórnsýslunni
sem hér er verið að byggja upp.
Og bygging þeirra hefur vakið
athygli stjórnmálamanna og
embættismanna hér vegna
þeirrar samstöðu sem Norður-
löndin sýna og þeirrar samstöðu
sem þau sýna með sameiningu
Þýskalands með því að vera í
hópi fyrstu sendiráða til að
opna hér sendiráð. Þarna eru á
einum stað milli 160 og 170 nor-
rænir menn að störfum daglega
og það gefur öllum löndunum
aukinn styrk,“ sagði Davíð.
Mikilvægt að halda kynnum
Forsætisráðherrahjónin
heimsóttu í gær Sambandsþing
Þýskalands sem er í nýendur-
gerðu þinghúsi, Reichstag. Þar
hittí ráðherra þingmenn og hélt
hádegisverðarfundi með þing-
mönnum sem hafa látið málefni
Islands sérstaklega til sín taka.
Einnig ræddi hann við Wolf-
gang Thierse, forseta Sam-
bandsþingsins.
I fyrrakvöld buðu Davíð og
Ástríður Helmut Kohl, fyrrver-
andi kanslara, og konu hans,
Hannelore Kohl, tíl fámenns
kvöldverðar í sendiherrabústað
Islands. Davíð segir að kvöld-
verðarboðið hafi verið afskap-
lega ánægjulegt. Farið hafi ver-
ið yfir ýmis mál og viðhorf
Kohls. „Það er ljóst að kanslar-
inn fyrrverandi hefur enn afar
sterka pólitíska stöðu, ekki ein-
ungis hér heldur um alla Evr-
ópu. Það er afskaplega mikil-
vægt að halda þeim kynnum og
það gladdi mig að fá að ræða
svo lengi og ítarlega við hann,“
sagði Davíð.
Varðandi stöðu íslands sagði
forsætísráðherra ekkert nýtt
hafa komið fram. „Staða okkar
veldur ekki neinum vandræðum
gagnvart Evrópusambandinu.
Hún er trygg í okkar mikilvæg-
ustu hagsmunum,“ sagði hann.